Morgunblaðið - 28.02.2003, Side 33

Morgunblaðið - 28.02.2003, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 33 Í MÍNUM huga er flokkur á miðju stjórnmálanna víðsýnn. Framsókn- arflokkurinn er miðjuflokkur sem hafnar öfgakenndum skoðunum hvort sem þær eru kenndar við hægri eða vinstri. Þegar ég skoða stefnumál og málflutning stjórnmálaflokkanna þá er ég ekki í vafa um að Framsókn- arflokkurinn er sá flokkur sem þorri Reykvíkinga ætti að finna hljómgrunn með. Framsóknarflokkurinn er flokk- ur samfélagslegra gilda, fjölskyld- unnar, öflugs atvinnulífs, skyn- samlegrar nýtingar auðlinda hafsins og þess sem landið gefur af sér. Hvað er það sem ungt fólk og fjöl- skyldufólk horfir fyrst og fremst til? Að mínu mati er það fjölbreytt og örugg atvinna, trygg heilbrigðisþjón- usta, öruggt umhverfi, gott félagslegt stuðningsnet og aðgengi að góðri menntun. Í stefnuskrá Framsókn- arflokksins er tekið á öllum þessum málaflokkum og þegar störf fram- sóknarmanna í núverandi ríkisstjórn eru skoðuð og metin má sjá að vel hefur verið staðið við grundvall- arstefnu flokksins. Án traustrar at- vinnu og öflugra fyrirtækja stendur þjóðarbúið ekki undir öllum okkar þörfum, hvort sem við tölum um menntun, heilbrigðisþjónustu eða fé- lagslegan stuðning. Það hefur verið unnið dyggilega að uppbyggingu í atvinnumálum, stutt við útrás íslenskra fyrirtækja erlendis og sköpuð skilyrði fyrir unga Íslend- inga að nýta menntun sína bæði inn- anlands og utan. Eitt það mikilvæg- asta fyrir Reykvíkinga er fjölbreytt atvinna. Atvinnuleysi má alls ekki ná að skjóta hér rótum. Nýtt erlent fjár- magn inn í íslenska hagkerfið og auk- inn hagvöxtur koma fyrirtækjum og landsmönnum öllum til góða. Það er því alrangt að halda því fram að við hér í Reykjavík njótum ekki góðs af framkvæmdum á Austurlandi. Með lögum um fæðingar- og for- eldraorlof var brotið blað í jafnrétt- ismálum, bæði út frá sjónarhorni barna og foreldra. Aukin samvist feðra og barna strax frá fæðingu eyk- ur og styrkir varanleg tengsl. Einnig er með fæðingarorlofi feðra við- urkennd sú réttmæta krafa að umönnun barna sé ekki aðeins mál mæðra heldur foreldra. Nú er lokið við hönnun og smíði á nýjum barnaspítala og lögðu þar margir hönd á plóginn, bæði félög og einstaklingar. Sameining og hagræð- ing í sjúkrahúsrekstri hefur verið mikið og erfitt verkefni en í gegnum alla þá orrahríð hefur verið staðinn vörður um þá grundvallarstefnu flokksins að heilbrigðisþjónustan sé rekin af ríkinu, en ýmsir þjónustu- samningar hafa verið gerðir við fag- fólk í heilbrigðisstétt. Framsóknarflokkurinn stendur fyr- ir skynsamlegri umræðu um sam- skipti Íslands við umheiminn. Kynn- ing á aðild að EB tekur langan tíma og það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að fela traustum mönnum umboð okkar. Afstaða, með eða á móti, sem tekin er þar sem tilfinningar einar ráða för kunna ekki góðri lukku að stýra. Hver getur á þessari stundu tekið afstöðu sem byggist á hlutlægu mati? Engum treysti ég betur en Halldóri Ásgríms- syni til að leiða umræðuna, hann hef- ur áralanga reynslu og þekkingu sem þjóðin hefur ekki efni á að fara á mis við. Ef fólk skoðar vel þróunina í land- búnaði á síðustu árum kemur í ljós að búum hefur fækkað stórlega og þau sem eftir eru hafa stækkað. Það hefur átt sér stað hagræðing með hagsmuni markaðar og okkar neytenda í huga. Auðvitað verðum við á öllum tímum að stefna að góðri vöru á sanngjörnu verði. Ég geri mér vel grein fyrir því að íslenskar landbúnaðarvörur geta ekki í öllum tilfellum keppt í verði við erlendan verksmiðjulandbúnað. Í ný- legri skoðanakönnun kom skýrt fram að mikill meirihluti þjóðarinnar vill fyrst og fremst neyta innlendrar land- búnaðarframleiðslu. Einnig má ekki gleyma því að innlendur landbúnaður skapar, beint og óbeint, ótal störf bæði í sveitum og hér í þéttbýlinu. Nú rétt fyrir áramót staðfesti um- hverfisráðherra svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæði og aðalskipulag Reykjavíkur fyrir tímabilið 2001–2024. Þar er lagður grunnur að frekari mót- un þeirrar borgar sem við þekkjum og veljum að búa í. Af ofangreindum málum má sjá að hér er stjórnmálaflokkur sem á fullt erindi við íbúa Reykjavíkur. Ég sem er fædd og uppalin hér í Reykjavík á ekki í erfiðleikum með að finna sam- leið með Framsóknarflokknum, stefnumálum hans og áherslum. Það lýsir röngu mati á störfum Framsókn- arflokksins að telja að hann sinni að- eins íbúum í dreifðum byggðum landsins og ég á nú erfitt með að trúa að hér í Reykjavík búi fólk sem sér landið og íbúa þess ekki sem eina heild. Ég hvet kjósendur í Reykjavík til að kynna sér vel störf og stefnumál okkar framsóknarmanna og þá hræð- ist ég ekki mat borgarbúa. Til þess að gera góða borg enn betri er ekki vafi í mínum huga. Framsóknarflokkurinn og stefnumál hans eiga fullt erindi við okkur Reyk- víkinga. Við höfum ekki efni á að neita stefnumálum Framsóknarflokks- ins, flokks sem hefur fólk í fyrirrúmi. Af hverju kjósa Reykvík- ingar Framsóknarflokkinn? Eftir Fannýju Gunnarsdóttur „Við höfum ekki efni á að neita stefnumálum Framsóknarflokksins, flokks sem hefur fólk í fyrirrúmi.“ Höfundur er kennari og frambjóðandi Framsóknarflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi norður. HINN 25. maí árið 2000 setti Samband ungra sjálfstæðismanna fram á opnum fundi á Akureyri tillögur um breyt- ingar á stjórnkerfi fiskveiða. Í frétt Morgunblaðsins daginn eftir, 26. maí, segir svo undir fyrirsögninni „Takmarkanir á framsali kvóta verði afnumdar“: „Afnám allra takmarkana á framsal aflahlutdeilda og að aflahlutdeild verði sjálfstæð eign er meðal tillagna í sjáv- arútvegsmálum sem Samband ungra sjálfstæðismanna setti fram á opnum fundi á Akureyri í gærkvöldi.“ Tillögur ungra sjálfstæðismanna bera yfirskriftina „Sjávarútvegur á grunni viðskiptafrelsis“ og segir þar að SUS leggi áherslu á að breytingar verði gerðar á kvótakerfinu á grund- velli þess mikla árangurs sem náðst hafi nú þegar. „Viðskiptafrelsi og eignarréttur eru óumdeildar stoðir efnahagskerfis Vest- urlanda,“ segir þar. „Íslenskt efna- hagslíf byggist á þessum stoðum og sjávarútvegurinn að mestu leyti. Frek- ari árangur í fiskveiðistjórnun á Ís- landi byggist á því að lögum verði breytt í því augnamiði að treysta við- skiptafrelsi í greininni og minnka op- inber afskipti.“ Og síðar í fréttinni segir svo: „Lagt er til að framsal aflaheimilda verði frjálst með þeim rökum að allar takmarkanir á framsali leiði til óhag- kvæmni og sóunar. Takmarkanir hindri viðskipti með aflaheimildir og leiði þar með til þess að kvótinn sé ekki ávallt í höndum þess sem geti nýtt hann með hagkvæmasta hættinum. Ungir sjálfstæðismenn gera tillögu um að aflahlutdeild verði sjálfstæð eign.“ Þá hafa menn það og rétt að rifja þessar tillögur upp nú, þegar þeir ungu menn, sem að þeim stóðu, eru nú í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og nokkrir þeirra líklegir að nái kosningu til alþingis. Hér er beinlínis verið að leggja til að allar aflaheimildir geti færzt á eina hönd svo „hagræðingin“ nái fram að ganga til fullnustu. En það eru fleiri en SUS-arar, sem vilja rétta örfáum auðmönnum alla sjávarauðlindina á silfurfati. Í leiðara í DV 5. okt. sl. kallar leigupenni sægreif- ans og Samfylkingarfurstans Ágústs Einarssonar takmarkanir á framsali aflaheimilda „spennitreyju“ sem skerði „stórkostlega“ athafnafrelsi lénsherr- anna. En leigupenninn sér ljós í myrkrinu og varpar fram ósk sinni í lok leið- arans: „Vonandi munu kaup Eimskips á Haraldi Böðvarssyni hf. leiða til þess að ólögin um hámarksaflahlutdeild verði endurskoðuð þannig að fyr- irtækjum í sjávarútvegi verði gefið svigrúm til frekari sóknar.“ Að hugsa sér ólögin, sem færa fyr- irtækið Granda, sem Ágúst Einarsson á 20% í, í þá „spennitreyju“ að mega aðeins „eiga“ 12% heildaraflans, sem það að vísu hefir nú þegar náð að sölsa undir sig! En ungir Sjálfstæðisflokksmenn eiga sér fleiri athyglisverðar hug- myndir sem vonlegt er. Á Hellu ályktuðu þeir drjúgum sl. haust til handa sjúkum og öldruðum: „Sjúklingar greiði fyrir fæði að fullu og lyf upp að vissu marki þegar þeir leggjast inn á sjúkrahús.“ Námsfólki senda SUS-ararnir svo- hljóðandi kveðju: „Nemendur taki aukinn þátt í kostnaði við menntun sína, t.d. með verulegri hækkun skóla- gjalda við Háskóla Íslands.“ Stórtækir menn nota nú ekki orðið „verulegt“ um neina smámuni. Var einhver að tala um jafnan rétt ungs fólks til náms? Hér hafa arftakar nýfrjálshyggj- unnar talað. Arftakarnir Eftir Sverri Hermannsson „Ungir sjálfstæð- ismenn gera til- lögu um að afla- hlutdeild verði sjálfstæð eign.“ Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. er að finna nokkuð ít- llun um rekstur og starf- dansstaða og réttarstöðu fndin lagði m.a til að sér- r yrðu settar um athafnir ktardansstöðum og að rði ekki leyfður. Vísaði kýrslu starfshóps Reykja- og lögreglustjórans í þessu tilliti, en sá starfs- einnig komist að þeirri nið- kki ætti að leyfa einkadans banni best komið við í þykkt. Fljótlega í kjölfarið Reykjavíkurborg og Ak- breytingu á lögreglu- m sínum sem tók fyrir svo- kadans. Ráðuneytið breytingu, meðal annars fengið lagalegt álit ríkis- lögmanns, sem taldi breytinguna fylli- lega lögmæta. Nektardansstaðir tengjast óneit- anlega í mörgum tilfellum verslun með konur. Nefndin fjallaði þannig sér- staklega um þann vaxandi vanda í Evr- ópu sem verslun með konur vissulega er og tengslin við aukna útbreiðslu nektardansstaða. Í skýrslunni sagði meðal annars: ,,Vonleysið um framtíð í heimalandinu hefur neytt þennan hóp kvenna til að þiggja vafasöm atvinnu- tilboð, t.d. störf dansara á nektardans- stöðum, hvort sem þeim hefur verið ljóst að ætlast yrði til af þeim að þær stunduðu vændi eða ekki.“ Í ljósi þessa er það ánægjuefni að Hæstiréttur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að þeir þættir í rekstri veit- ingastaðar, sem lúta að einkadansi í lokuðu rými og frjálsri för sýnenda meðal áhorfenda, verði ekki taldir til atvinnustarfsemi sem nýtur verndar 75. gr. stjórnarskrárinnar. Þessi nið- urstaða málsins er mikilvæg með tilliti til þess að minni líkur eru nú en ella á því að í skjóli leyndar fari fram vændi á íslenskum nektardansstöðum og kon- ur séu á vegum slíkra staða beittar þrýstingi til þess að selja sig. konur Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra. u hafa áhrif á gengið. Þar nríkisviðskipti, fjárfest- ra aðila innan lands og innlendra aðila erlendis ekki síst væntingar um agslífsins. Lítill vafi er á ngar vegna stóriðjufram- a haft áhrif á gengið að Vextir hafa vissulega ð, en reynslan hér og ann- nir að þau áhrif hverfa ur svo lengi sem pen- miðar að svipaðri verð- gdar og í viðskiptalönd- a hátt geta inngrip aft stundaráhrif. Ef geng- stefnir í ákveðna átt með enginn seðlabanki til að því. Það er reynslan heiminum þar sem frjálsir tningar eru milli landa. reynsla Seðlabanka Ís- hann reyndi að hamla krónunnar frá miðju ári tsins 2001. Að krefjast eðlabankinn setji sér mið er óraunsætt. Eina esta gengið er að fara í g taka upp gjaldeyrishöft hverfa aftur til þess tíma? ur vexti nú umfram það gumarkmið bankans leyfir að knýja niður gengið áðlegt. Nafngengið kynni hvað tímabundið, en að verðbólga færi síðan á lega sætu menn uppi með engi og áður og væru til ir að safna í bálköst næsta óstöðugleikatímabils. Slaki í hagkerfinu tímabil mikils hagvaxtar ofþenslu sjáum við nú rfinu með auknu atvinnu- nú m.a. haldið fram að einkum vegna aðhalds- u í peningamálum. ar og annarra þjóða sýnir nn slaki er oft óhjá- fylgifiskur aðhaldssamrar sem miðar að því að slu og koma böndum á ess vegna m.a. er svo mik- ma í veg fyrir að slíkar öldur rísi of hátt. Það er hins vegar mikil einföldun að halda því fram að peningastefnan ein skipti hér sköpum. Vextir hafa fyrst og fremst áhrif á eftirspurnina í þjóðfélaginu. Það eru hins vegar margir aðrir þættir sem hafa áhrif bæði á eftirspurnar- og framboðshlið hagkerfisins. Þar má nefna aflaheimildir, ríkisfjármál og framkvæmdir opinberra aðila, fjár- festingar erlendra aðila, t.d. í stóriðju, og launastefnu aðila vinnumarkaðar- ins. Þeir sem ráða þessum þáttum fara með mikilvæg stjórntæki í efna- hagsmálum sem eru utan seilingar Seðlabankans. Það eru því margir að- ilar sem koma að stjórn efnahagsmála og fjarri lagi að Seðlabankinn beri þar einn ábyrgðina. Aðgerðir til að auka hagvöxt og minnka atvinnuleysi Að undanförnu hefur verið tilkynnt um ýmsar aðgerðir til slökunar í efna- hagsmálum. Hinar miklu vaxtalækk- anir að undanförnu eiga eftir að skila sér að fullu. Seðlabankinn hefur einn- ig tilkynnt að á næsta leiti séu tilslak- anir á bindiskyldu sem muni losa fé fyrir bankakerfið og ættu að leiða til vaxtalækkana þar. Seðlabankinn kaupir daglega gjaldeyri á gjaldeyr- ismarkaði og hefur þannig síðan í september sett 11 milljarða íslenskra króna í umferð og vissulega hamlað hækkun gengisins. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að flýta ákveðnum fram- kvæmdum og verja til þess 6 millj- örðum króna. Sveitarfélög og fleiri að- ilar hafa boðað aðgerðir sem stefna að sama marki. Það er því ljóst að margt hefur verið gert sem líklegt er að auki hagvöxt og dragi úr atvinnuleysi á næstu mánuðum. Framundan eru svo mestu fram- kvæmdir Íslandssögunnar sem munu hafa mikil áhrif á efnahagslífið bæði í bráð og lengd. Þær kalla á trausta hagstjórn. Mikilvægt er að sjá fyrir í tíma hvaða áhrif þessar framkvæmdir myndu hafa ef ekkert væri að gert. Það væri auðvitað fullkomið ábyrgð- arleysi að fljóta sofandi að feigðarósi og láta eins og ekkert þurfi að gera til mótvægis þessum framkvæmdum, en slíkar raddir hafa heyrst að und- anförnu. Í greiningu Seðlabankans á fyrirhuguðum framkvæmdum kemur fram að með skynsamlegum hag- stjórnarviðbrögðum verður hægt að varðveita efnahagsstöðugleika og halda verðbólgu í skefjum. Seðlabanki Íslands mun gera sitt ýtrasta til að það gangi eftir enda hvílir á honum ótvíræð lagaskylda í þeim efnum. labanka Íslands fram- em - gd. rn.“ Höfundur er formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.