Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 13
SAMÞYKKT var á aðalfundi Spari-
sjóðs vélstjóra að vextir af stofnfé
yrðu 23,7% og að stofnfé yrði hækkað
um 5%. Stofnfé er jafnframt uppfært
sem svarar til hækkunar neysluverðs-
vísitölu um 2%. Heildararðgreiðsla til
stofnfjáraðila vegna ársins 2002 nem-
ur því 30,7%. Sigríður Smith stjórn-
arformaður sparisjóðsins sagði í ræðu
sinni að góð aukning hafi orðið í inn-
lánum og afkoma sparisjóðsins var
umfram væntingar. Hins vegar hafi
dregið úr lánveitingum vegna sam-
dráttar og minni framkvæmda. Sig-
ríður sagði að sparisjóðurinn muni í
vaxandi mæli, í samstarfi við aðra
banka og sparisjóði, taka þátt í stærri
lánveitingum, enda sé sparisjóðurinn
orðinn það fjárhagslega sterkur að
hann sé fullkomlega fær um þátttöku
í sambankalánum.
Sigríður sagði að eigið fé spari-
sjóðsins hafi aukist um tæpar 700
milljónir króna á árinu og nemur eigið
fé hans nú 3.641 milljón króna. Eig-
infjárhlutfall sparisjóðsins sam-
kvæmt svokölluðum CAD-reglum er
25,2 % en má lægst vera 8%. Sigríður
sagði að sparisjóðurinn sé í raun með
alltof hátt eiginfjárhlutfall og verði
það eitt helsta verkefni ársins að
lækka það, meðal annars með upp-
greiðslu víkjandi lána og aukningu út-
lána.
Í ljósi þess að árangur sparisjóðs-
ins í rekstri var mun betri en áætlanir
stóðu til var ákveðið að greiða starfs-
mönnum sparisjóðsins í fullu starfi
100 þúsund króna kaupauka. Var slík-
ur kaupauki einnig greiddur á síðasta
ári.
Sjálfkjörið var í stjórn sparisjóðs-
ins og er hún óbreytt frá fyrra ári. Í
stjórn sitja: Sigríður Smith, Jón Þor-
steinn Jónsson, Guðmundur Jónsson,
Helgi Laxdal og Páll Magnússon.
Afkoma Sparisjóðs vélstjóra var kynnt á aðalfundi félagsins nýverið.
Eigin-
fjárhlut-
fall SPV
of hátt
30,7% arður til
stofnfjáreigenda
HAGNAÐUR af rekstri Kaupfélags
Eyfirðinga svf., KEA, á árinu 2002
nam 151 milljón króna eftir skatta.
Árið áður var tap félagsins 613 millj-
ónir.
Rekstrartekjur KEA á árinu 2002
voru 188 milljónir og rekstrargjöld
31 milljón. Rekstrarhagnaður fyrir
skatta var 157 milljónir og skattar 5
milljónir. Veltufé til rekstrar nam 37
milljónum og er bókfært eiginfjár-
hlutfall 80,5%.
Umtalsverðar breytingar hafa
orðið á tilgangi og starfsemi KEA
frá fyrra ári. Í upphafi árs tók Kald-
bakur fjárfestingarfélag hf. við öll-
um eignum og skuldbindingum KEA
en á móti eignaðist félagið hlutabréf í
Kaldbaki.
Helstu eignir KEA eru um 39%
hlutur í Kaldbaki og auk þess á fé-
lagið hlut í Skinnaiðnaði Akureyri,
MT bílum, Norðurmjólk og Frum-
kvöðlasetri Norðurlands.
KEA hefur ekki með höndum at-
vinnurekstur í eiginlegum skilningi,
en stofnar og rekur hlutafélög og
fyrirtæki, sem eru ýmist að fullu í
eigu félagsins eða í sameign með
öðrum.
KEA hagnast
um 151 milljón
● VÖRUSALA næststærstu mat-
vörukeðju Bretlands, Sainsbury,
dróst saman á fjórða ársfjórðungi
síðasta uppgjörsárs. Sainsbury er
eitt þeirra fyrirtækja sem sóst hafa
eftir því að kaupa Safeway-
matvörukeðjuna.
Samdráttur í sölu virðist þó ekki
angra forstjórann Sir Peter Davis en
haft er eftir honum á vef FT að sölu-
aukning sé ekki mikilvæg fyrir fyr-
irtækið á þessari stundu. Meira um
vert sé að verða betur samkeppn-
ishæft við önnur fyrirtæki á breskum
matvörumarkaði. Hann segir Sains-
bury enn ætla sér að eignast Safe-
way.
Talið er að samkeppni á breskum
matvörumarkaði minnki verulega ef
Sainsbury eignast Safeway.
Sala Sainsbury
minnkar
BÚIÐ er að sameina undir
merkjum Staðarskála ehf. eign-
ir og rekstur veitingaskálanna
á Brú og í Staðarskála í Hrúta-
firði. Staðarskáli ehf. er í meiri-
hlutaeigu fjölskyldunnar að
Stað í Hrútafirði en Olíufélagið
ehf. á nú 27,5% hlut í félag-
inu.Félögin hafa gert sam-
starfssamning um eldsneytis-
sölu fyrir báða skálana og
Staðarskáli ehf. yfirtekur
rekstur á veitingaskála, bensín-
afgreiðslu og verslun á Brú.
Rekstur á Brú
og Staðarskála
sameinaður