Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 49
EKKI margir geta státað
af því að vera langalang-
ömmur en það getur Jóna
Vilhjálmsdóttir, 84 ára á
Skagaströnd. Fundur
fimm ættliða er jafnan
fagnaðarfundur en á með-
fylgjandi mynd má sjá
fimm fögur fljóð þegar
yngsta stúlkan var skírð.
Elst er Jóna, svo kemur
langamman Anna Eygló
Skaftadóttir, 58 ára úr
Njarðvík, amman er Val-
dís Valdemarsdóttir, 38
ára úr Garði, mamman
Birgitta Jóna Gunnars-
dóttir er 18 ára, einnig úr
Garði, en yngsta barnið er
Sandra Ýr Jónsdóttir,
fædd 12. júní. Einnig á
Birgitta, sem er elst af sex
systkinum, strákinn Ró-
bert Snæ.
Fimm ættliðir samankomnir á skírnardegi
yngstu stúlkunnar.
Fimm ættliðir
samankomnir
VEL tókst til þegar hin árlega árshátíð og söngvakeppni starfs-
manna og nemenda Viðskiptaháskólans á Bifröst var haldin í
Hótel Borgarnesi á dögunum.
Sigurvegarar söngvakeppninnar, Bifróvisjón 2003, voru þær
Takayo Saikawa og Fumiko Yamamoto, skiptinemar frá Otaru í
Japan sem dvalið hafa á Bifröst síðan í ágúst.
Þær segjast vera mjög ánægðar með veru sína á Íslandi og
hafa þær kynnst mörgum þáttum íslenskrar menningar og hjálp-
semi landans, að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum.
Besti umboðsmaðurinn í ár var valin Ingibjörg Gréta Gísla-
dóttir og herra og ungfrú Bifröst voru kosin Bragi Þór Svav-
arsson vefstjóri og Helga Kristín Auðunsdóttir, nemandi í lög-
fræðideild. Hinir japönsku sigurvegarar söngvakeppninnar Bifróvisjón 2003.
Sigur japanskra skiptinema á Bifróvisjón
Stuð á Bifröst
SÝNINGIN Haute CoiffureFrancaise var haldin á dög-unum í Louvresafninu viðSignubakka. Silfrað fljótið
sá um undirspilið í glæsilegri sýningu
sem fremsta hárgreiðslufólk heims
lætur aldrei framhjá sér fara.
HCF-sýningin er umtöluð í tísku-
heiminum því þar eru lagðar frönsku
hárlínurnar fyrir komandi árstíð,
núna sumarið 2003. Í hugum fólks er
París alltaf klassíska tískuborgin og
þótt þaðan komi sjaldan öfgakenndar
nýjungar í hártískunni er það einfald-
leikinn og glæsileikinn sem halda
orðstír hennar á lofti.
Elsa Haraldsdóttir á Salon Veh og
Hanna Kristín Guðmundsdóttir á
Kristu, forsetar HCF á Íslandi voru á
sýningunni ásamt starfsfólki sínu. Að
þeirra sögn ber á ýmsum nýjungum í
hártísku sumarsins.
Ljósir jarðtónar og hunang
Litirnir sem verða ráðandi í sumar
eru ljósir jarðtónar, hunangslitir og
mjúkir súkkulaðibrúnir tónar. Ein-
falt, létt og meðfærilegt eru orðin sem
lýsa sumarhártískunni vel en ekki má
gleyma glansinum og lyftingunni í
hárinu sem setja punktinn yfir i-ið. Þá
myndaði fatnaðurinn og förðunin
órjúfanlega heild með hárinu. Hugað
var að hverju einasta smáatriði og var
útkoman sjarmerandi og ekta frönsk.
Í raun var það hinn franski, fágaði
stíll sem réð ríkjum á Haute Coiffure
Francaise. Virtist helst sem andi
frægra, franskra „courtesans“ á borð
við Coco Chanel og Söru Bernhardt
svifi yfir sýningarsölunum, enda var
lögð áhersla á að með góðri hárum-
hirðu, förðun og smekklegum fatnaði
væri hver einasta kona Venus frá
Míló.
Glansinn og topparnir
Sýningin í ár fór fram í fjórum sýn-
ingarsölum á Louvresafninu þar sem
fagfólki var boðið að fylgjast með hár-
greiðslumönnum fara fimum höndum
um hár módelanna. Áhersla var lögð á
glansinn sem verður allsráðandi í
sumar.
Að sögn Elsu Haralds er glansinn
léttari í sér en áður hefur þekkst. Þá
verður klippingin að hafa mikla hreyf-
ingu í sér og líf. „Tískan núna er eins
og glansandi leikur í vindi,“ sagði
Elsa. Annað sem einkennir hártísk-
una eru þungir, munúðarfullir toppar
sem ramma inn andlitið og draga
fram það fallegasta í andlitsbygging-
unni.
Að sögn Hönnu Kristínar Guð-
mundsóttur verða topparnir áberandi
í sumar sem og sléttar línur í klipp-
ingum. Strípurnar eins og við þekkj-
um þær, eru á undanhaldi og meira
fer fyrir náttúrulegri háralitum sem
þekja allt hárið og annaðhvort lýsast
eða dekkjast neðst í bláendum þess.
Það verður því spennandi að sjá
hvernig íslenskir hárgreiðslumenn
vinna úr línunum sem tískuborgin
hefur lagt fyrir sumarið 2003.
Sumarhártíska við Signubakka
Rjómi franskrar hár-
tísku var kynntur á
Haute Coiffure Franc-
aise-hártískusýningunni
í París og voru íslenskir
hárgreiðslumeistarar
viðstaddir. Guðrún
Gunnarsdóttir fékk
forsmekkinn af
sumartískunni.
Nonni Quest, Hanna Kristín Guðmundsdóttir og Elsa Haraldsdóttir kynntu
sér það nýjasta í frönsku hártískunni fyrir sumarið.