Morgunblaðið - 09.04.2003, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.04.2003, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. EINHUGUR og stefnufesta voru ríkjandi á afar fjölmennu og vel heppnuðu vor- þingi Samfylkingarinnar um síðustu helgi. Jafnaðarmenn hafa þannig lagt línurnar fyrir lokaátök kosningabaráttunnar og dregið upp skýra mynd af þeim aðal- atriðum sem stjórnmál dagsins og fram- tíðarinnar eiga að hafa í forgangi, að mati Samfylkingarinnar. Jöfnun lífskjara, samfara stækkun þjóðarkökunnar og styrkingu velferð- arþjónustu, um leið og álögur eru lækk- aðar á almenning og dregið úr kostnaði við heimilisreksturinn – eru lykilatriði í loforðum Samfylkingarinnar. Og eft- irtektarvert er að Samfylkingin sund- urliðar sín áform, tímasetur sum þeirra og verðmetur þau öll. Jafnaðarmenn fara ekki fram með yfirboð á öllum vígstöðvum stjórnmálanna, heldur eru raunsæir og ábyrgir í orðum og gerðum. Það eru því stjórnarflokkarnir, Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsóknarflokk- urinn, sem hafa haft völdin um 8 ára skeið, sem telja sig verða að lofa öllu fögru alls staðar – vegna þess að þeir hafa ekki sinnt málefnum fólksins á liðnum ár- um. Samviska þeirra er ekki góð og þess vegna er lofað bót og betrun einhvern tíma í framtíðinni. Ekki beinlínis trúverð- ugt á síðasta spretti kosningabarátt- unnar. Kjarabætur fyrir fjölskylduna Samfylkingin stendur við það sem hún segir. Orð eiga að standa. Þannig mun Samfylkingin hækka skattleysismörk um 10 þúsund krónur, sem mun koma öllum launamönnum til góða – en hlutfallslega mest þeim sem hafa lágar- og millitekjur. Strax um næstu áramót verður fyrsti áfangi þessara kjarabóta að veruleika, fái Samfylkingin til þess nægan stuðning í kosninunum 10. maí næstkomandi. Þá mun matvöruverð lækka með lækk- un virðisaukaskatts á matvæli. Það sama gildir um barnaföt. Þessi stefnumörkun er mjög í anda þeirrar baráttu sem Samfylk- ingin hefur haldið á lofti á öllu kjör- tímabilinu, að það þurfi að bæta kjör fjöl- skyldunnar – bæði með lækkun beinna skatta sem og að lækka matarreikning hinnar íslens hefu ítrekað b Íslendingar b mat í allri Ev einfaldlega sí eða langt í ko Eins er Sa baráttu sinni skyldna hér á arinnar um 4 ir hvert barn tekjum foreld þann málflutn tekjuviðmið v bóta hækkuð áforma eru te hæð 3 milljar Það er eftir isstjórnarflok undir þennan Samfylkingin heldur sín „Ég hvet kjósendur til að kynna sér ná- kvæmlega kosn- ingastefnuskrá flokkanna.“ Eftir Guðmund Árna Stefánsson VIÐ lifum á tímum aukinna alþjóðlegra samskipta. Í huga okkar eru vegalengdir á milli landa alltaf að styttast og alþjóðlegir samningar veita fólki rétt á að sækja vinnu og menntun út fyrir landsteinana. Norð- urlöndin eru eitt atvinnusvæði, það sama má segja um Schengensvæðið og Evrópska efnahagssvæðið. Með ýmsum alþjóðasamn- ingum hefur flutningur fólks á milli landa aukist og á enn eftir að aukast. Atvinna, menntun og búseta verður án landamæra. Við hér á Íslandi höfum tekið þátt í þessum breytingum, fjöldi Íslendinga starfar er- lendis og ungt fólk sækir í síauknum mæli menntun í erlenda skóla og er það vel. Að sama skapi hefur flust til landsins fólk frá öllum heimshornum og sett sitt mark á ís- lenskt samfélag. Spornum við brottfalli úr framhaldsskólum Yfirvöld verða að marka sér heildstæðari stefnu í móttöku og stuðningi við börn og unglinga af erlendum uppruna og aðstoða betur fjölskyldur þeirra við að fóta sig í nýju menningarsamfélagi. Það er alls ekki nægilegt að veita börnum og unglingum sem hingað koma sérstaka kennslu í ís- lensku í nokkur ár. Það þarf að stórauka kennslu í íslensku sem öðru tungumáli og það vantar tilfinnanlega námsefni, æfingar og þjálfunarefni. Þrátt fyrir mjög gott starf í móttökudeildum og í almennum bekkj- ardeildum reynist skólaganga þessum börnum oft á tíðum mjög erfið. Eftir því sem líður á grunnskólann þyngist allt nám, lestur og lesskilningur verður æ stærri hluti námsins. Eitt af stefnumálum Fram- sóknarflokksins er að gert verði átak í menntunarmálum nýbúa strax í leikskóla og markvissum stuðningi við nemendur og fjölskyldur þeirra haldið áfram út grunn- skólann. Flokkurinn leggur einnig áherslu á að leitað verði leiða til að sporna við brott- falli nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskólum. Það væri mjög til bóta ef hægt væri að fjölga ráðgjöfum (mentorum) í grunn- og framhaldsskólum sem veittu nemendum bæði aðstoð, ráðleggingar og aðhald. Sveitarfélög vítt og breitt um landið reyna að gera sitt besta og má þar nefna t.d. að nýlega hefur Fræðslumiðstöð Reykjavíkur gefið út bæklinga á ýmsum tungumálum um íslenska skólakerfið, útbú- in hafa verið sérstök innritunarblöð fyrir erlenda nemendur og gefin út sérstök mót- tökuáætlun. Virkjum börn og unglinga Oft er skólinn eini staðurinn þar sem þessi börn og unglingar tala íslensku og umgangast íslenska jafnaldra sína. Því ber að hafa þennan hóp sérstaklega í huga þeg- ar kemur að því að skipuleggja æskulýðs- og tómstundastörf. Það er nauðsynlegt að leggja rækt við að virkja þennan hóp í upp- byggjandi tóm með tengsl þe þau búa í. Eitt af því móttöku, ken nemenda er a búa eru ekki þrjú ráðuney lags-, mennta það fagnaðar urinn leggur heildaryfirsý félagsmálará Fólk flytur ástæðum. Þa ástæðunum í flóttamenn, f atvinnu og út sem sambýlis Mín reynsla ú hingað koma skylduböndu fyrst tengslum málinu. Það f vinnuleit er v um á engan h margir hafa l á tungumálin taka í samféla Tökum vel á móti nýjum „Að setjast að í nýju landi, læ nýtt tungumál, siði og venju erfitt og ögrandi. Það sýnir s hvers þjóðfélags að taka ve móti nýjum íbúum.“ Eftir Fanný Gunnarsdóttur RÉTTLÆTI í sjávarútvegi og við alla auðlindanýtingu er á meðal meginmála Samfylkingarinnar fyrir komandi kosn- ingar. Það á að úthluta nytjum sameig- inlegra auðlinda þjóðarinnar á grund- velli jafnræðis en ekki forréttinda. Núverandi fiskveiðistjórnkerfi er mesta ranglæti nútímans og mikilvægasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar jafn- aðarmanna er að vinda ofan af því og færa veiðiheimildirnar til stjórn- arskrárbundinna eigenda sinna: Þjóð- arinnar allrar. Það verður að færa byggðunum aftur réttinn til að róa, sem er fyrst og fremst spurning um réttlæti og sanngirni. Strandbyggðir njóti nálægðarinnar Samfylkingin hefur lagt til fyrning- arleið sem felst í því að kvótinn verði innkallaður í smáum, árlegum áföngum, þannig að sjávarútvegurinn geti lagað sig að breytingunum og að sem mest sátt verði um þær. Eignarhald þjóð- arinnar á auðlindum sjávar verði skráð í stjórnarskrá lýðveldisins og kvóti boðinn til leigu um lengri og skemmri tíma til að tryggja í senn stöðugleika og sveigj- anleika. Kvótaleiga verði greidd þegar afla hefur verið landað. Mikilvægt er að strandbyggði gjöful fiskimi möguleika til ekki dæmin f Kvótinn seldu blæðir. Það e strandveiðiby við endurskoð ert réttlætir þ einu símtali g undan heilu b Rétturinn til að róa „Það verður að færa byggð- unum aftur réttinn til að róa, sem er fyrst og fremst spurning um réttlæti og sanngirni.“ Eftir Björgvin G. Sigurðsson ÍRAK AÐ STRÍÐI LOKNU Niðurstaða hernaðarátakanna íÍrak er að verða ljós, þóttátökunum sé ekki lokið og Saddam Hussein og menn hans hafi ekki gefizt upp. Fyrirsjáanlegt er að þeir bíða ósigur. Þá tekur við nýtt tímabil í Írak og umræður um það eru þegar hafnar á Vesturlöndum. Í þeim efnum er mikilvægt að Bandaríkjamenn og Bretar standi við stóru orðin og afhendi Írökum stjórn eigin mála, sem allra fyrst. Vestur- landabúar hafa lengi haft tilhneigingu til að ætla að yfirfæra það stjórnarfar, sem við þekkjum bezt á önnur þjóð- félög í öðrum heimshlutum, sem búa við aðrar venjur og hefðir en við. Það er grundvallarmisskilningur að reyna slíkt. Sérhver þjóð verður að finna sína eigin leið í þeim efnum og það á við um Íraka eins og aðra. Nú þegar eru hafnar deilur á Vest- urlöndum um það hverjir skuli hafa forræði um uppbyggingu í Írak að stríðinu loknu. Slíkar deilur eru þýð- ingarlausar. Það er auðvitað ljóst að þeir sem lögðu í þessa herför, Banda- ríkjamenn og Bretar, ráða því. Hitt er svo annað mál, að það er hyggilegt og skynsamlegt fyrir þessar tvær þjóðir að fela Sameinuðu þjóðunum eins veigamikið hlutverk og kostur er í því uppbyggingarstarfi. Með því fæst aukin samstaða um uppbyggingar- starf í Írak á næstu árum og aukinni samstöðu fylgir væntanlega aukið fjármagn frá hinum ríku þjóðum Vest- urlanda. Einn meginþátturinn í þeim skuld- bindingum, sem við Íslendingar höf- um tekið á okkur með stuðningi við Breta og Bandaríkjamenn í þessu máli er að taka þátt í uppbyggingarstarfinu í Írak og leggja til þess fjármuni. Ís- lenzka ríkisstjórnin hefur þegar tekið vissar ákvarðanir í þeim efnum. Íslenzk friðargæzla hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Á hennar vegum er nú töluverður hópur Íslend- inga við störf víða um heim. Við getum lagt okkar skerf af mörkum til upp- byggingar bæði í Írak og annars stað- ar með slíku starfi. Við eignumst fólk, sem hefur þjálfast í störfum við erf- iðar aðstæður og getur farið með skömmum fyrirvara til landa og land- svæða, þar sem aðstoðar er þörf. Í stað þess að halda áfram þrasi um þær ákvarðanir, sem þegar hafa verið teknar er tímabært að íslenzkir stjórnmálamenn beini umræðum um Íraksstríðið að þætti okkar í þeirri miklu uppbyggingu, sem þar er fram- undan á næstu mánuðum og er aug- ljóslega að hefjast að hluta til en fer í fullan gang, þegar harðstjóranum í Bagdad hefur endanlega verið steypt af stóli. Óhætt er að fullyrða að friðargæzlu- störf af þessu tagi höfða mjög til ungra Íslendinga. Þeir fá tækifæri til að láta þjóðir, sem eiga um sárt að binda, njóta góðs af menntun sinni og þekk- ingu um leið og þetta íslenzka æsku- fólk kynnist framandi þjóðum og menningarheimum. Á vegum Íslenzku friðargæzlunnar fer fram miklu merkilegri starfsemi en landsmenn átta sig á. Við eigum að leggja metnað okkar í að efla þessa starfsemi og auka fjárframlög af okk- ar hálfu til þeirra þjóða, sem þurfa á aðstoð okkar að halda. Með þessu framlagi á alþjóðavettvangi erum við að leggja okkar af mörkum til þess að bæta líf fólks víða um heim. Þetta starf byggist á hugsjónum, sem eru líklegar til að höfða til margra. SJÁLFBÆR SJÁVARÚTVEGUR Sjálfbær sjávarútvegur var meðalþess, sem var til umræðu á nýaf- stöðnu fiskiþingi. Það getur ekki dul- ist nokkrum Íslendingi hversu mik- ilvægu hlutverki sjávarútvegur gegnir í afkomu þjóðarinnar. Vissu- lega hafa aðrir atvinnuvegir og út- flutningsgreinar gert það að verkum að við erum ekki háð sjávarútvegi í sama mæli og áður, en undirstöðu- hlutverk hans kemur ekki síst í ljós þegar efnahagslífið hikstar. Mörg vandamál steðja að sjávarút- vegi um allan heim og flest tengjast þau ofveiði. Það er því mikilvægt að hér verði haldið rétt á spilunum í fisk- veiðimálum og haldið áfram á þeirri braut stjórnunar, sem fetuð hefur verið. En það er ekki nóg að hugsa aðeins um það, sem að hafinu um- hverfis Ísland lýtur. Innan íslenskrar fiskveiðilögsögu er ekki einangrað vistkerfi heldur hluti miklu stærri heildar og velferð íslenskra fiskimiða byggist á velferð heildarinnar. Gunnar Pálsson sendiherra fjallaði um þessi mál í ávarpi, sem hann flutti á þinginu. Þar sagði hann að vildu Ís- lendingar tryggja að íslenskar sjáv- arafurðir stæðust samkeppni á er- lendum mörkuðum væri óhjákvæmi- legt að þeir legðu sitt af mörkum til að koma böndum á hættulega meng- un og spilliefni í hafinu með alþjóð- legum samningum: „Á sama hátt má færa rök fyrir því að ein árangursrík- asta leiðin til að koma í veg fyrir að fjarlægir aðilar, hvort sem það eru ríki, félagasamtök eða stofnanir, hlutist í auknum mæli til um að stjórnun okkar lifandi sjávarauð- linda, sé að liðsinna öðrum, ekki síst í þróunarheiminum, til að efla sjálf- bæran sjávarútveg.“ Gunnar sagði að Ísland hefði stuðl- að að því að koma á alþjóðlegu um- hverfi, sem væri vinsamlegt sjálf- bærri nýtingu og þar með hjálpuðum „við okkur sjálfum til að hagnýta og markaðssetja íslenskar sjávarauð- lindir til lengri tíma litið“. Ísland hefði með ýmsum hætti unnið að því að afla sér viðurkenningar fyrir sjálf- bæra auðlindanýtingu og því striki þyrfti að halda. Í þessu máli fara saman viðskipta- hagsmunir landsins og umhverfis- sjónarmið. Fiskur er víðast hvar orð- inn munaðarvara. Það sést ekki aðeins á því að hér á landi er fiskur nú orðið mun sjaldnar á borðum en áður var, heldur einnig í borðum fiskkaup- manna í löndunum í kringum okkur. Um leið eykst áhersla á umhverfis- væn matvæli og í því samhengi skipt- ir ekki litlu máli að það orð fari af ís- lenskum sjávarútvegi að hér séu stundaðar sjálfbærar fiskveiðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.