Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 1
Gengið
inn í súlu
Fjölbreytni á útskriftarsýningu
nema í LHÍ Listir 35
Nýr þjálfari vill fá 9 stig úr
næstu 3 leikjum Íþróttir 79
Sýndar-
sagnfræði
Hvað ef víkingarnir hefðu haldið
áfram vesturferðum? Lesbók
Kjósum
stöðugleika
Ásgeir í
stað Atla
STOFNAÐ 1913 125. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kosningarnar/2/6/11
Lokasenna leiðtoganna við Austurvöll
Morgunblaðið/Kristinn
flokksins, fréttamennirnir Kristján Már Unn-
arsson og Páll Benediktsson, Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tals-
maður Samfylkingarinnar og Guðmundur G.
Þórarinsson formaður Nýs afls.
ir til kl. 22 í kvöld. Fyrstu tölur úr öllum kjör-
dæmum eru væntanlegar upp úr kl. 22.
Á myndinni eru flokksleiðtogarnir við upphaf
umræðnanna. Frá vinstri: Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, Guðjón
Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda
KOSNINGABARÁTTUNNI fyrir þingkosning-
arnar í dag lauk formlega í gærkvöldi með
sjónvarpskappræðum flokksleiðtoganna í Al-
þingishúsinu við Austurvöll. Í dag eiga rúmlega
211 þúsund kjósendur rétt á að kjósa nýtt Al-
þingi.
Kjörstaðir verða víðast hvar opnaðir kl. 9 eða
10 árdegis og verða a.m.k. á stærri stöðum opn-
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti kynnti í gær tillögu um að stofn-
að yrði til sameiginlegs fríverzlunar-
svæðis Bandaríkjanna og Mið-Aust-
urlanda á næstu tíu árum. Er
tilgangurinn með tillögunni fyrst og
fremst sá að gefa samvinnufúsum
arabaþjóðum fyrirheit um það
hvernig þær geti horft fram á betri
tíð eftir að stjórn Saddams Husseins
í Írak var bolað frá völdum.
Í ræðu sem Bush flutti við út-
skriftarathöfn í háskóla í Suður-Kar-
ólínu sagði hann að tillaga sín myndi
leggja grunninn að nýrri grósku í
efnahagsþróun í Mið-Austurlöndum,
og ryðja brautina að stofnun sjálf-
stæðs ríkis Palestínumanna, sem
lifði í sátt og samlyndi við Ísrael. Ein
grundvallarforsendan fyrir því að ná
þessum markmiðum væri að skjóta
styrkum stoðum undir hagsæld á
svæðinu, og Bandaríkin væru tilbúin
að leggja sitt af mörkum til þess með
því að koma á fríverzlun við löndin
sem í hlut eiga.
Bush leggur
til fríverzl-
un við Mið-
Austurlönd
Columbia í Suður-Karólínu. AP, AFP.
AFTURHLERI á flutningaflugvél,
sem var á flugi með stóran hóp lög-
reglu- og hermanna og fjölskyldur
þeirra yfir Lýðveldinu Kongó í
fyrrakvöld, rifnaði upp með þeim af-
leiðingum að 129 manns soguðust út
og fórust, að því er flugvallarstarfs-
menn greindu frá.
Kikaya Bin Karubi, talsmaður
stjórnvalda í landinu, sagði í gær að
dauði sjö farþega vélarinnar hefði
verið staðfestur, eftir að hafa sogazt
út úr vélinni í um 10.000 m hæð. Vél-
in, sem er gömul flutningaþota af
gerðinni Iljushin 76, var á miðri leið
frá höfuðborginni Kinshasa til Lub-
umbashi í SA-Kongó. Henni var snú-
ið aftur á flugvöllinn í Kinshasa. Fá-
einir tugir þeirra sem um borð voru,
þ.á m. rússnesk áhöfn vélarinnar,
komust lífs af.
Flugslys í Kongó
Yfir hundrað
manns sagðir
hafa sogazt út
Kinshasa. AFP, AP.
♦ ♦ ♦
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að íslensk stjórnvöld séu
reiðubúin að taka eigin ákvarðanir
varðandi síldveiðar við Svalbarða, séu
þau beitt órétti af Norðmönnum. Vilji
sé til þess að ná samningum við Norð-
menn um síldveiðar á þessu svæði en
slíkir samningar verði að byggjast á
sanngirni af beggja hálfu. Verði ís-
lensk skip tekin á þessum veiðum
verði leitað til alþjóðlegra dómstóla.
Talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins, Karsten Klepsvik, sagði í
gær í samtali við norska Ríkisútvarp-
ið, að norsk stjórnvöld óskuðu þess að
fá viðræður um nýjan síldveiðisamn-
ing sem allra fyrst, en enginn vafi
væri á yfirráðum Norðmanna yfir
verndarsvæðinu umhverfis Sval-
barða.
Í kjölfar yfirlýsinga Davíðs og
Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra, um að Íslendingum sé heimilt
að veiða síld innan verndarsvæðisins
við Svalbarða, hafa norskir fjölmiðlar
talið að síldarstríð sé í uppsiglingu
milli Íslands og Noregs. Davíð segir
það ekki rétt að hann sé að æsa til
síldarstríðs.
„Við reyndum og teygðum okkur
langt til þess að ná samningum, en
kröfur Norðmanna og Evrópusam-
bandsins voru með öllu óviðunandi og
ekki þannig að við gætum við þær un-
að,“ segir Davíð.
Stjórnarandstaðan styður
aðgerðir stjórnvalda
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segist alltaf hafa lagt á það
áherslu að ná niðurstöðu með samn-
ingum. „Ég hef rætt þetta mál alloft
við utanríkisráðherra Noregs og ég
trúi því að það muni takast að leysa
þetta með samningum. Ég er þeirrar
skoðunar að ef það gerist ekki þá sé
mikilli vinnu kastað fyrir borð,“ segir
Halldór.
Formenn stjórnarandstöðuflokk-
anna á Alþingi segjast styðja aðgerðir
ríkisstjórnarinnar ef í hart fari gagn-
vart Norðmönnum vegna síldveiða
við Svalbarða. Formenn Samfylking-
arinnar og Frjálslynda flokksins
segja að íslensk stjórnvöld hafi átt að
vera búin að útkljá málið fyrr.
„Svo getur farið að átök verði á
milli þjóðanna og þá er ekkert annað í
stöðunni en að fá úr þessu skorið með
dómi,“ segir Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að Íslend-
ingar séu aðilar að Svalbarðasamn-
ingnum og hafi þess vegna fullan rétt
til að athafna sig á svæðinu. Það sé
„algerlega óþolandi og fráleitt“ ef að
Norðmenn hyggist beita ofbeldi til að
taka íslensk síldveiðiskip á löglegum
veiðum að hans mati.
„Því gleður það mig að ríkisstjórnin
hafi loksins tekið á sig rögg og ákveð-
ið að sýna Norðmönnum fulla hörku.
Ég styð íslensku ríkisstjórnina full-
komlega ef hún grípur til þess ráðs að
kæra Norðmenn til Alþjóða dómstóls-
ins í Haag, ef þeir gerast svo ósvífnir
að reyna að beita valdi gagnvart ís-
lenskum síldveiðiskipum. Ég efast þó
um að þeir leggi í það,“ segir Össur.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs, segir að það sé allt í lagi að
ýta við Norðmönnum í þessum efn-
um, líkt og gert hafi verið á dögum
Smugudeilunnar. Það sé eðlilegt að
Íslendingar fái sanngjarna hlutdeild
við nýtingu þessara auðlinda.
Gagnkvæmur vilji til
nýrra síldarsamninga
Íslensk stjórnvöld reiðubúin að stefna Noregi vegna síldveiða við Svalbarða
VERNDARSVÆÐIÐ svonefnda við
Svalbarða heyrir í raun ekki undir
norska lögsögu og norsk lög gilda
ekki innan 200 mílna lögsögu Sval-
barða. Þar gildir þess í stað samn-
ingur, sem þær þjóðir sem mestra
hagsmuna hafa þar átt að gæta,
komu sér saman um fyrir mörgum
áratugum.
Verndarsvæðið
Norðmenn/10