Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KJÖRDAGUR
Kosningabaráttunni fyrir þing-
kosningarnar í dag lauk formlega í
gærkvöldi með sjónvarpskapp-
ræðum flokksleiðtoganna í Alþing-
ishúsinu við Austurvöll. Í dag eiga
rúmlega 211 þúsund kjósendur rétt
á að kjósa nýtt Alþingi. Kjörstöðum
verður lokað kl. 22 í kvöld og verða
fyrstu tölur væntanlega birtar fljót-
lega upp úr því.
Síldarstríð við Norðmenn?
Norskir fjölmiðlar telja síldarstríð
í uppsiglingu milli Íslands og Nor-
egs í kjölfar yfirlýsinga Davíð Odds-
sonar, forsætisráðherra, og Árna M.
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra,
þess efnis að Íslendingar telji sér
fyllilega heimilt að veiða síld innan
verndarsvæðisins við Svalbarða og
jafnframt að Íslendingar myndu
fara með málið fyrir alþjóðlega dóm-
stóla reyndu Norðmenn að koma í
veg fyrir veiðar íslenzkra skipa þar.
Hækka megi auðlindagjald
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í sjón-
varpskappræðum leiðtoga stjórn-
málaflokkanna í gærkvöld, að hann
teldi koma til greina að hækka auð-
lindagjaldið ef fyrir lægi að sjávar-
útvegurinn bæri slíka hækkun.
Bush boðar fríverzlun
George W. Bush Bandaríkja-
forseti kynnti í gær tillögu um að
stofnað yrði til sameiginlegs frí-
verzlunarsvæðis Bandaríkjanna og
Mið-Austurlanda á næstu 10 árum.
Tilgangur tillögunnar er fyrst og
fremst að gefa samvinnufúsum
arabaþjóðum fyrirheit um betri tíð
og að skapa betri forsendur fyrir
friði í heimshlutanum.
HABL í rénun?
Kínverskir stjórnarerindrekar
sögðu í gær að svo virtist sem bráða-
lungnabólgufaraldurinn HABL væri
í rénun í Peking. Talsmaður Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO, sagði þó að enn væri of
snemmt að draga þá ályktun að far-
aldurinn hefði náð hámarki.
L a u g a r d a g u r
10.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 42/63
Viðskipti 13/14 Viðhorf 48
Erlent 18/20 Minningar 64/66
Höfuðborgin 24 Kirkjustarf 67/69
Akureyri 26/28 Myndasögur 74
Suðurnes 28 Bréf 74/75
Landið 31 Dagbók 76/77
Árborg 32 Íþróttir 76/77
Listir 33/35 Leikhús 80
Menntun 36 Fólk 80/85
Neytendur 38 Bíó 82/85
Heilsa 40 Ljósvakamiðlar 86
Forystugrein 44 Veður 87
* * *
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í sjón-
varpskappræðum leiðtoga stjórn-
málaflokkanna, að hann teldi koma
til greina að hækka auðlindagjaldið
ef fyrir lægi að sjávarútvegurinn
bæri slíka hækkun. „Ég hef alltaf
verið að vona það að allar breyt-
ingar sem gerðar eru, til dæmis
eins og [veiði]gjaldið myndi leiða af
sér meiri sátt,“ sagði Halldór.
Spurt var hvort hann vildi hækka
gjaldið og Halldór svaraði: „Það
má vel vera, það má hækka gjaldið
ef sjávarútvegurinn getur greitt
það, án þess að það hafi veruleg
áhrif á gengið. Það má líka auka
veiðiskylduna, ég tel að það sé
sjálfsagt að auka veiðiskylduna.“ Í
máli Halldórs kom einnig fram að
auka mætti þær heimildir sem ráð-
stafað væri sem byggðakvóta.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
sagði Samfylkinguna styðja kvóta-
kerfið, hins vegar væri spurning
um það hvernig kvótum væri út-
hlutað. Það væri stefna flokksins
að kvótar færu á markað og yrðu
boðnir út. Hún sagði þá sem fyrir
væru í kerfinu og hefðu keypt
kvóta hugsanlega fá einhverjar
bætur til baka fyrir fyrndar afla-
heimildir en aldrei nema að hluta.
„Það hefur jafnvel verið talað um
það að í byrjun verði mönnum bætt
þetta upp með einhverjum hætti.
Það er alveg hægt að gera þetta.
Það er hægt að greiða mönnum að
einhverjum hluta fyrir það sem
þeir fara á mis við. … Það er alveg
hægt að nýta hluta af þessum fjár-
munum og þeir fá þá aldrei nema
hluta af því til baka.“
Yrði að skerða
lífeyrisgreiðslur
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagðist óttast af-
leiðingar þess að farin yrði fyrn-
ingarleið. Sjávarútvegsfyrirtæki
gætu lent í því að allur kvóti yrði
tekinn af þeim á tíu árum en þau
sætu eftir með skuldirnar og
eignamyndun í fyrirtækjunum
hyrfi. „Það er rétt sem menn segja
að á fyrsta degi sem slíkt kerfi er
sett í gang þá hverfur markaðshæfi
hlutabréfanna í viðkomandi fyrir-
tæki. Því brautin er lögð, hún ligg-
ur fyrir. Hvað verður þá um lífeyr-
issjóðina sem eiga stórkostlega
hluti í þessum fyrirtækjum? Það
þarf þá væntanlega að skerða allar
greiðslur til lífeyrisþeganna. Og
hvað verður um byggðirnar? Þetta
er glórulaus hugmynd,“ sagði Dav-
íð.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, sagði
„ömurlegt að upplifa“ að sjávarút-
vegsfyrirtæki sem hefðu fengið
gjafakvóta væru allt að því að hóta
fólki sínu á síðustu dögum kosn-
ingabaráttunnar. „Mér finnst þetta
lúaleg vinnubrögð,“ sagði Guðjón.
Stjórnarandstaðan
vinnur ekki saman
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, gagnrýndi Sam-
fylkinguna ítrekað. „Mér sárnar og
þá væntanlega einnig félögum okk-
ar í Frjálslynda flokknum áróður
Samfylkingarinnar nú á síðustu
dögum um að eina leiðin til að fella
ríkisstjórnina sé að kjósa Samfylk-
inguna. Eins og að atkvæði greidd
okkur og Frjálslynda flokknum
verði ekki talin með annað kvöld.
Ég hef ekki séð neina tilkynningu
um það frá yfirkjörstjórn, Ingi-
björg Sólrún. Samt segið þið þetta
og ykkar forystufólk og reynið að
hræða yfir til ykkar fylgi frá fé-
lögum ykkar í stjórnarandstöðunni.
Þetta er nú ekki uppbyggilegt og
við vinnum ekki sameiginlega sem
heild,“ sagði Steingrímur.
Hann var eini leiðtoginn sem
kvað upp úr með æskilegt stjórn-
armynstur, sagði að stjórnarand-
staðan ætti að taka við ef rík-
isstjórnin félli og hét því að
viðlögðum drengskap að leggja sitt
af mörkum til að mynda vinstri
stjórn.
Halldór Ásgrímsson í sjónvarpskappræðum leiðtoga stjórnmálaflokkanna
Hækka má auð-
lindagjald ef út-
gerðin þolir það
GUNNAR Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins, segist hafa átt ágætt
og vinsamlegt samtal við Alex-
ander Rannikh, sendiherra
Rússlands á Íslandi, vegna flugs
tveggja rússneskra herflugvéla
innan íslenska loftvarnarsvæð-
isins í lok apríl án þess að til-
kynna sig til íslenskra stjórn-
valda.
Að sögn Gunnars lofaði sendi-
herrann því að haft yrði betra
samráð um hluti sem þessa í
framtíðinni.
„Ég átti ágætt samtal við
rússneska sendiherrann og
hann ætlaði að koma því til skila
til rússneskra stjórnvalda að
næst þegar þeir ættu eitthvert
erindi inn á íslenska loftvarn-
arsvæðið myndu þeir gera okk-
ur viðvart, ekki síst vegna þess
að það er öryggisatriði fyrir
okkur að flugstjórnaryfirvöld
viti með góðum fyrirvara hvar
vélar eru á ferli.“
Engin skýring fékkst á
tilgangi flugsins
Aðspurður segir Gunnar að
sendiherrann hefði ekki fengið
neinar skýringar á því í hvaða
erindagjörðum vélarnar tvær
voru.
Rússnesku vélarnar eru svo-
kallaðir „Birnir“ og voru á loft-
varnarsvæðinu í 25 mínútur.
Ráðuneytið ræddi við sendiherra Rússa
Samráð verði
betra í framtíðinni
HÚSRÁÐANDI í íbúð við Bárugötu
sem vaknaði upp við að innbrotsþjóf-
ur var kominn inn í íbúðina í gær-
morgun, bað hann vinsamlegast að
hafa sig á brott og bauð honum bjór í
nesti. Það þáði innbrotsþjófurinn
með þökkum og hafði sig á brott.
Að sögn lögreglu var tilkynnt um
innbrot og innbrotstilraunir við
Bárugötu og að maður væri að
hnupla úr bílum við Stýrimannastíg.
Stuttu síðar stöðvaði lögregla rúm-
lega þrítugan mann og tæplega tví-
tuga konu á bifreið skammt frá. Þýfi
var í bílnum og voru þau bæði hand-
tekin. Síðdegis var ákveðið að mað-
urinn hæfi afplánun á fjögurra mán-
aða fangelsisdómi á Litla-Hrauni.
Konunni var sleppt.
Innbrotsþjóf-
urinn þáði
bjór og fór
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hlaut bak- og fótmeiðsl er hann datt
úr stiga á hafnarsvæðinu á Húsavík í
gær. Var hann fluttur á sjúkrahúsið
á Húsavík til aðhlynningar. Maður-
inn var að fúaverja hús þegar stiginn
rann undan honum og er talið að fall-
ið hafi verið um 4 metrar.
Maður datt
úr stiga
♦ ♦ ♦
OLÍUFLUTNINGABÍLL valt í
beygju á Brautarholtsvegi á Kjalar-
nesi síðdegis í gær. Um 3.500 lítrar
af gasolíu voru í tankinum og lak
olían ekki út þrátt fyrir óhappið.
Ökumann bílsins sakaði ekki. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar í
Reykjavík var olíunni dælt af bíln-
um og hann síðan réttur við. Var
hann óökufær eftir veltuna og varð
að setja hann upp á stóran vörubíls-
pall til að komast frá vettvangi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Olíuflutningabíll valt á Kjalarnesi