Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐANAKANNANIR fyrir
kosningarnar 1999 sýndu bæði
Sjálfstæðisflokkinn og Samfylk-
inguna með meira fylgi en flokk-
arnir fengu síðan í kosningunum.
Friðrik H. Jónsson, forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar, segir að
þó að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
oftast nær fengið meira fylgi í
könnunum en kosningum sé óvar-
legt að fullyrða að þannig verði
einnig nú. Landslagið sé talsvert
breytt og kosningabaráttan harð-
ari nú en oft áður. Sjálfstæðis-
flokkurinn mældist t.d. með heldur
minna fylgi í könnunum fyrir
kosningarnar 1995 en hann fékk í
kosningunum.
„Það eina sem hægt er að full-
yrða er að þetta verða spennandi
kosningar,“ sagði Friðrik. Þrátt
fyrir margar kannanir væri tals-
verð óvissa um hvort ríkisstjórnin
héldi velli.
Nokkur munur er á niðurstöðu
þeirra skoðanakannana sem gerð-
ar hafa verið síðustu daga. Friðrik
sagði að þessar kannanir væru
gerðar með tveimur ólíkum aðferð-
um. Annars vegar væri notast við
tilviljanaúrtak úr þjóðskrá og hins
vegar væri stuðst við símaskrána.
Hann sagðist ekki telja að aðferð-
irnar hefðu áhrif á niðurstöðurnar,
a.m.k. ekki þegar úrtakið væri
stórt líkt og var í þeim könnunum
sem birtar voru í gær.
Fimm kannanir voru birtar í
gær. Morgunblaðið birti könnun
sem Félagsvísindastofnun gerði
5.–7. maí. DV gerði könnun 7.–8.
maí. Úrtakið var 2.500 manns, en
svarhlutfall er ekki gefið upp.
26,2% sögðust óákveðnir eða neit-
uðu að svara. Fréttablaðið gerði
könnun 7.–8. maí. Úrtakið var
3.000 manns og svarhlutfall var
91%. 17,5% sögðust óákveðnir eða
svöruðu ekki. IBM gerði skoðana-
könnun fyrir Stöð tvö 5.–8. maí.
Úrtakið var 3.500 manns. Þá birti
Ríkisútvarpið í gær nýja könnun
frá Gallup sem gerð var 8.–9. maí.
Úrtakið var 1.600 manns og svar-
hlutfall rúmlega 70%. Tæplega
82% gaf upp hvað þeir ætluðu að
kjósa. Í öllum þessum könnunum
halda ríkisstjórnarflokkarnir
meirihluta sínum.
Sveiflur á fylgi
Samkvæmt skoðanakönnunum
var fylgi Framsóknarflokksins
komið niður fyrir 10% í upphafi
kosningabaráttunnar. Stuðningur
við flokkinn hefur verið að aukast
og í þessari viku hefur það mælst
12,7–18,5%. Flokkurinn fékk 18,4%
í síðustu kosningum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í
kosningabaráttunni hefur einnig
verið undir kjörfylgi flokksins í
síðustu kosningum, en þá fékk
hann 40,7% atkvæða. Síðustu vik-
una hefur stuðningur við flokkinn
mælst 32,7–37,1%.
Fylgi Frjálslynda flokksins hef-
ur verið nokkuð stöðugt síðustu
vikurnar. Kannanir sýndu flokkinn
með yfir 10% fylgi í lok apríl, en í
þessari viku hefur fylgi flokksins
mælst 6,3–9,3%. Frjálslyndi flokk-
urinn fékk 4,2% atkvæða í síðustu
kosningum.
Samfylkingin fékk yfir 40% fylgi
í skoðanakönnunum í upphafi
kosningabaráttunnar, en kannanir
á síðustu vikum gefa til kynna að
úr því hafi dregið. Í þessari viku
hefur flokkurinn verið að fá 26,1–
33% fylgi í könnunum. Flokkurinn
fékk 26,8% í síðustu kosningum.
Fylgi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs hefur lítið breyst
í kosningabaráttunni og virðist
vera svipað og flokkurinn fékk í
síðustu kosningum. Í þessari viku
hefur fylgi VG verið á bilinu 6,9–
10,1%, en flokkurinn fékk 9,1% í
kosningunum.
Nýtt afl hefur verið að fá um 1%
stuðning í skoðanakönnunum og T-
listinn, sem býður fram í Suður-
kjördæmi, hefur verið að fá innan
við 1% á landsvísu.
Sjálfstæðisflokkur og Sam-
fylking mældust of hátt 1999
Athyglisvert er að bera nýjustu
skoðanakannanir saman við skoð-
anakannanir sem gerðar voru síð-
ustu vikuna fyrir kosningarnar
1999. Kannanir í maí 1999 sýndu
Sjálfstæðisflokkinn með nokkuð
meira fylgi en núna og Frjálslynda
flokkinn með talsvert minna fylgi
en nú. Munurinn er marktækur.
Kannanir í lok kosningabarátt-
unnar 1999 sýndu meira fylgi við
Sjálfstæðisflokkinn og Samfylk-
inguna en flokkarnir fengu í kosn-
ingunum.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk-
inn mældist 41,9–43,1% í sex könn-
unum sem gerðar voru í maí, en í
einni könnun fékk flokkurinn
40,8%. Sjálfstæðisflokkurinn fékk
40,7% í kosningunum. Samfylking-
in fékk 27,1–28,9% fylgi í sex
könnunum, en ein sýndi hann með
25,2% fylgi. Flokkurinn fékk
26,8% í kosningunum.
Betur gekk að endurspegla fylgi
Framsóknarflokksins í könnunum.
Flokkurinn fékk 17,3–19% fylgi í
sex könnunum í maí 1999, en
21,2% fylgi í einni könnun. Flokk-
urinn fékk 18,4% fylgi í kosning-
unum.
VG og Frjálslyndi flokkurinn
mældust hins vegar með minna
fylgi í könnunum en þeir fengu
síðan í kosningunum sjálfum. VG
mældist með 7,5–8,7% fylgi en
fékk 9,1% í kosningunum. Frjáls-
lyndir mældust með 2,7–3,4%
fylgi, en fengu 4,2% fylgi í kosn-
ingunum.
Stjórnarflokkarnir
mælast með meirihluta
!"
#" $% &'
!"# $!! # % &&&'#
#
!
"#
()*+
,)-+
)-+
(),+
.)+
.)+
.)-+
,)+
-)+
*)-+
.)+
*)+
.)+
*)*+
-)+
)-+
,)-+
,)(+
*)+
()+
)+
-).+
()*+
-)(+
()+
)+
.)+
.)(+
.).+
)-+
(),+
)+
)*+
).+
),+
)-+
)+
)+
()+
()*+
-)+
.)+
()+
()+
-)+
'
)*+
)*+
)+
)+
).+
)-+
)+
)(+
'
)*+
)+
'
)(+
)+
)*+
)+
)+
„EF ALLT gengur samkvæmt
áætlun næ ég á tindinn á þriðju-
dag,“ sagði Anna Svavarsdóttir
fjallgöngukona er Morgunblaðið
ræddi við hana í gervihnattasíma
úr grunnbúðum fjallsins Cho Oyo í
5.600 metra hæð. Anna stefnir á
að ganga á tind fjallsins sem er
8.201 metra hár og takist henni
það setur hún nýtt hæðarmet ís-
lenskra kvenna í fjallgöngu.
Hún segist nýkomin úr fjögurra
daga ferð hátt upp hlíðar Labchi
Kang (7.367 metrar). Þegar hún
var komin í 6.400 metra hæð fann
hún verulega fyrir hæðarveiki og
ákvað að halda þar kyrru fyrir
meðan félagar hennar reyndu við
tindinn. „Ég varð dálítið veik en
það er eðlilegt, allir verða eitt-
hvað veikir þegar líkaminn er að
venjast hæðinni.“
Hún segir að þau hafi verið
fjögur saman í ferðinni en einn
hafi hætt við og þau því þrjú eftir.
„Félaga minn, sem er Ástrali, kól
á fótunum í ferðinni og þurfti að
snúa heim, en ég vona þó að hann
haldi tánum,“ sagði Anna og bað
fyrir kveðjur heim.
Fjallgöngukonan Anna Svavarsdóttir reynir við nýtt hæðarmet í Tíbet
Stefnir á að ná tind-
inum á þriðjudag
Anna Svavarsdóttir með Everest í baksýn. Myndin var tekin í október 2001
en þá var Anna í leiðangri sem varð að hverfa frá því að klífa Pumori.
KOSNINGAHANDBÓK
Morgunblaðsins, sem fylgdi
blaðinu í gær, er jafnframt að-
gengileg á fréttavef blaðsins,
mbl.is. Handbókina er að finna
í hægri dálki vefjarins, undir
hausnum „upplýsingar“.
Kosningahandbókin er á svo-
kölluðu PDF-sniði og þarf for-
ritið Acrobat Reader til að
hlaða henni niður, en það fæst
ókeypis á Netinu.
Í kosningahandbókinni eru
upplýsingar um alla lista í
framboði, mannfjölda á kjör-
skrá í einstökum kjördæmum,
fylgi flokka í kosningum und-
anfarna sjö áratugi og um nýju
kjördæmaskipanina. Þá eru í
handbókinni töflur, sem lesend-
ur geta notað til að skrá hjá sér
tölur á kosninganótt.
Á FRÉTTAVEF Morgun-
blaðsins mbl.is verður kosn-
ingavakt starfandi alla kosn-
inganóttina sem mun fylgjast
með talningu atkvæða og birta
tölur jafnskjótt og þær berast.
Úrslit verða sett upp á
myndrænu formi auk þess
sem leitast verður við að fá
viðbrögð við nýjustu tölum frá
frambjóðendum og stjórn-
málaspekingum. Hópur blaða-
manna mun standa vaktina
fram eftir nóttu uns úrslit
verða ljós í öllum kjördæmum
landsins.
Otaði hnífi að
afgreiðslu-
stúlkum
Kosninga-
handbókin
á mbl.is
Úrslit á
myndrænu
formi
Kosningavakt á mbl.is
uns úrslit verða ljós
EKIÐ var á sex ára dreng á
reiðhjóli í Hafnarfirði um átta-
leytið í gærkvöldi. Atvikið átti
sér stað á Hverfisgötu við Mjó-
sund og að sögn lögreglunnar
er talið að drengurinn hafi hjól-
að í veg fyrir fólksbifreið sem
þarna var á ferð. Var hann
fluttur á slysadeild Landspítal-
ans í Fossvogi en samkvæmt
upplýsingum vakthafandi
læknis hlaut drengurinn ekki
alvarleg meiðsl.
Lögreglan segir drenginn
ekki hafa verið með hjálm og
vill brýna fólk til að nota jafn
mikilvægt öryggistæki.
Ekið á dreng
á reiðhjóli
LÖGREGLAN í Reykjavík
leitar nú að manni sem rændi
peningum og frelsis-símakort-
um úr Bónusvídeói við Klepps-
veg síðdegis í gær. Ræninginn
var með svarta lambhúshettu
og otaði hníf að tveimur af-
greiðslukonum.
Afgreiðslukona í vídeóleig-
unni sem Morgunblaðið ræddi
við í gær sagði að ræninginn
hafi ekki verið æstur en greini-
lega taugaóstyrkur. „Hann
kom inn, otaði að okkur hnífn-
um og bað okkur um að opna
kassann og vinkona mín sem
var að vinna með mér opnaði
kassann. Síðan bað hann um öll
símakortin og ég rétti honum
þau og svo fór hann út,“ hún.
Henni brá að vonum illilega og
titraði öll af geðshræringu. Um
leið og ræninginn fór út
hringdu þær á lögreglu.