Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 8

Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hann byrjaði að snúast þegar farið var að birta þessar skoðanakannanir daglega og síðan hefur hann bara verið eins og skopparakringla, læknir. Flórgoðadagurinn á Ástjörn Hangir þarna á bláþræði HINN árlegi Flór-goðadagur verðurhaldinn við Ástjörn við Hafnarfjörð á morgun, sunnudag, milli klukkan 13.30 og 15. Á staðnum verða reyndir fuglaskoðarar með kraft- mikla sjónauka sem upp- lýsa munu gesti um leynd- ardóma flórgoðans, sem hefur orpið við Ástjörn um árabil, og er að ýmsu leyti sérkennilegur fugl, fremur fáséður nema við Mývatn, og auk þess fuglategund sem ekki er sérlega vel kynnt eða þekkt. Flórgoð- inn á í vök að verjast, sem og lífríki Ástjarnar allt og því mikilsvert að mati þeirra sem standa að Flór- goðadeginum að kynna fyrir fólki flórgoðann og lífríki Ástjarnar. Morgunblaðið ræddi við Ólaf Torfason verkstjóra sem hefur frá upphafi verið í forsvari fyrir Flórgoðadaginn. – Hvenær var byrjað með Flór- goðadaginn? „Það var árið 1993 og algerlega að frumkvæði Fuglaverndar- félagsins. Umhverfisnefnd Hafn- arfjarðar hefur einnig komið að deginum, en síðustu árin hefur Flórgoðadagurinn að heita má verið algerlega á framfæri mínu og Hallgríms Gunnarssonar. Efnt var til Flórgoðadagsins á sínum tíma, því fuglinum var að fækka mjög mikið og Ástjörn var nánast eini þekkti varpstaðurinn allt frá Klaustri til Snæfellsness. Það var mjög heppilegt að hafa varpstað svona alveg við bæjardyrnar og Fuglaverndarfélagið var mikið á þessum tíma að reyna að koma á fót uppákomum um fugla al- mennt.“ – Er mikið af flórgoða þarna? „Flórgoðinn er ekki algengur fugl á Íslandi utan að á Mývatni eru nokkur hundruð pör og víða á norðausturhorninu er talsvert af flórgoða á víð og dreif. Hann er ekki algengur annars staðar, en við Ástjörn hefur hann haldið velli. Við höfum séð allt að 17 fugla á Ástjörn á Flórgoðadegi, en í fyrra aðeins sex fugla og síðasta sumar var aðeins eitt hreiður. Yf- irleitt hafa verið 4–5 hreiður í sef- inu við Ástjörn. Flórgoðinn hangir því þarna á bláþræði.“ – Hvers vegna? „Umgengni við Ástjörn hefur verið slæm eftir að byggðin fór að þrengja að henni. Það er ekki bara flórgoðinn, hettumáfsvarp upp á 300 hreiður flaug bara upp í loft og flutti sig og 200 til 300 kríupör flugu bara burt af eggjum eitt vor- ið. Örfá pör hafa setið eftir, en hafa ekki haft erindi sem erfiði. Mófuglavarp hefur einnig látið stórlega á sjá. Þetta byrjaði á því að minkaleit mistókst eitt vorið og auk þess eru mikil brögð að því að reglur um hunda- og kattahald eru ekki virtar. Kettir laumast inn á svæðið og taka sinn toll, hunda- eigendur sleppa þeim lausum þótt slíkt sé bannað og því miður senda sumir þeirra eft- irlitsmönnum tóninn. Hræðsla fugla við fer- fætlinga er vel þekkt. Þeir bara forða sér, auk þess sem þessi dýr drepa unga og skemma hreiður.“ – Er allt fuglalíf þarna sum sé í hættu? „Ég er ofboðslega hræddur um þessa einstöku náttúruperlu og ég er hræddur um að eftir nokkurár, kannski 5 til 10 ár, þá verði Ástjörn einskis virði og þá hafa þeir aðilar sem vilja bara byggja þarna um allt unnið sigur.“ – Hvað er annars að segja um flórgoðastofninn? „Fyrir nokkrum árum snar- fækkaði flórgoða eins og ég gat um áðan og þá var Ástjörn lengi vel eini varpstaðurinn á stóru svæði. Allra síðustu árin hefur stofninn hins vegar verið í góðri uppsveiflu og fjölgun hefur verið stöðug. Flórgoðar sjást nú aftur á vötnum og tjörnum þar sem þeir hafa ekki sést um árabil. Á Ástjörn hefur honum samt sem áður fækkað.“ – Hvers vegna þessar sveiflur? „Hér ertu að spyrja um þessi ei- lífðarvísindi líffræðinnar. Vísinda- menn vita ekki nákvæmlega hvers vegna flórgoðastofninn fer í gegn- um þessar sveiflur. Þetta er al- kunna í dýraríkinu og sveiflur rjúpnastofnsins eru ugglaust þær þekktustu meðal almennings. Hvað flórgoðann varðar, þá er hann úthafsfugl á veturna svo varla er skýringarnar þar að finna. Ef til vill á þetta sínar rætur í fæðuframboði í sumarkjörlendi fuglsins. Skýringarnar geta líka verið ýmsar sem spila saman.“ – Hvernig hefur Flórgoðadag- urinn lukkast í gegnum tíðina? „Flórgoðadagurinn hefur notið vinsælda, enda er flórgoðinn ein- staklega fallegur og óvenjulegur fugl. En samt sem áður er þetta þannig uppákoma að veður ræður miklu um hvernig tekst til. Við höfum fengið allt frá 10 og upp í 200 þegar mest var. Tvö síðustu árin hefur þetta verið hvað verst, veður verið slæmt, rok, rigning og kuldi og þátttakan eftir því. Fáir hafa komið. Að þessu sinni lofar veðurspáin hins vegar góðu og útlit fyrir að ekki þurfi að draga fram regngall- ana. Við erum því bjartsýnir á að vel takist til að þessu sinni.“ – Hvar við tjörnina verðið þið með græjurnar, finnur fólkið ykk- ur? „Við verðum við tjörnina norð- anverða. Þetta er ekki stórt svæði.“ Ólafur Torfason  Ólafur Torfason er verkstjóri skipaafgreiðslu Eimskipa í Hafn- arfjarðarhöfn og hefur verið „bryggjukarl“ alla ævi eins og hann kemst að orði. Hann er gift- ur Helenu Högnadóttur versl- unarmanni og eiga þau fjögur börn, Högna, Torfa, Þórdísi og Patrek Ísak, en þau eru 23, 21, 15 og 11 ára í sömu röð. Ólafur er alinn upp á Hvaleyrarholtinu og er fuglaáhugamaður eftir að hafa nánast alist upp á bökkum Ástjarnar. Við höfum fengið allt frá 10 og upp í 200 þegar mest var HIÐ nýja skrifstofuhúsnæði Ístaks aðEngjateigi 7 í Reykjavík var tekið formlega í notkun s.l. fimmtudag. Húsið er um 2.800 fermetrar að flatarmáli og skiptist í þrjár byggingarálmur. Arkís ehf. og KHR AS arkitekt- ar í Kaupmannahöfn hönnuðu bygginguna í samein- ingu. Hér sjást þeir viðopnunina, Sören Langvad, frá- farandi stjórnarformaður Ístaks, og Páll Sigurjónsson fyrrverandi forstjóri og starfandi stjórnarformaður. Að baki þeirra má sjá Loft Árnason, sem tekið hefur við starfi forstjóra af Páli. Morgunblaðið/Arnaldur Nýtt húsnæði Ístaks tekið í notkun HÆSTIRÉTTUR dæmdi á fimmtu- dag 27 ára karlmann í 18 mánaða fangelsi þar af 15 mánuði skilorðs- bundið fyrir kynferðisbrot gegn tveimur barnungum stúlkum á árun- um 1992 til 1996. Yngri stúlkan var sjö ára þegar of- beldið hófst og stóð það yfir í nokkra mánuði. Sú eldri var tíu ára en of- beldið gegn henni stóð yfir í um fjög- ur ár. Maðurinn var einnig ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku en sýknaður af refsikröfu vegna fyrningar. Hann var hins veg- ar dæmdur til að greiða henni 200 þúsund krónur í miskabætur og hin- um stúlkunum annars vegar 500 þús- und og hins vegar 700 þúsund krón- ur í bætur. Varð fyrir alvarlegu áfalli Fyrir Hæstarétt var lagt sálfræði- vottorð vegna elstu stúlkunnar, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hún hefði orðið fyrir alvarlegu áfalli vegna þess kynferðislega of- beldi sem hún mátti þola af hálfu ákærða. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arni Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein.Verjandi ákærða var Vilhjálm- ur Þórhallsson hrl. Málið sótti Sig- ríður Jósefsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara. Dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.