Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 26
AKUREYRI
26 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kúluís
Grillaður pylsur og svínarif
Tveir hoppukastalar
Ökuferð í Gamla Ford
Kaffihlaðborð allan daginn
Fjölskyldan verður í fyrirrúmi í kosningamiðstöðinni
Suðurlandsbraut 34 í dag milli kl. 14:00-18:00
Verið velkomin á fjölskylduhátíð Framsóknarflokksins í Reykjavík
þar sem boðið verður upp á veitingar og fjölbreytta skemmtun.
Fjölskylduhátíð Reykvíkinga í dag
Kosningamiðstöðin Suðurlandsbraut og hverfaskrifstofurnar í Mjódd og Spöng eru opnar frá kl 9:00 til 22:00. Heitt á könnunni allan daginn.
Fjölskyldan í fyrirrúmi á kjördag
Hverfisskrifstofan í Mjódd
Grand Hótel við Sigtún
FIMM umsóknir bárust um
stöðu skólastjóra Giljaskóla á
Akureyri en stefnt er að því að
ráða í stöðuna fljótlega. Um-
sækjendur eru: Jón Baldvin
Hannesson Akureyri, Ágúst
Frímann Jakobsson Akureyri,
Bjarni Guðmundsson Hafra-
lækjarskóla, Ragnheiður
Gunnbjörnsdóttir Eyjafjarðar-
sveit og Sigfús Aðalsteinsson
Akureyri.
Skólastjóri Giljaskóla
Fimm um-
sækjendur
KIRKJULISTAVIKA hefst í Ak-
ureyrarkirkju á morgun, sunnudag-
inn 11. maí, en þetta er í áttunda
sinn sem efnt er til slíkrar viku í
kirkjunni að sögn Björns Steinars
Sólbergssonar formanns Listvina-
félags Akureyrarkirkju. Hátíðin
verður formlega sett við fjölskyldu-
messu sem hefst kl. 11 á morgun.
„Við bjóðum upp á vandaða og
metnaðarfulla dagskrá á Kirkju-
listaviku,“ sagði Björn Steinar, en
hápunktinn segir hann vissulega há-
tíðartónleika Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands á morgun, sunnudag
þar sem flutt verður Requiem eftir
Verdi með góðum liðsstyrk fjölda
kóra og einsöngvara. „Þetta er við-
burður sem enginn ætti að láta fram
hjá sér fara,“ sagði Björn Steinar
en tónleikarnir hefjast kl. 16 í
Íþróttahöllinni.
„Á Kirkjulistaviku leggjum við
áherslu á að tengja saman trú og
listir, efla listastarfsemi sem og
tengja hana trúnni. Það hefur gefist
vel og við höfum notið mikils vel-
vilja meðal menningarstofnana í
bænum sem allar hafa með ein-
hverjum hætti tekið þátt og einkum
og sér í lagi hefur samstarfið við
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
borið ríkulegan ávöxt,“ sagði Björn
Steinar.
Meðal viðburða á Kirkjulistaviku
má auk hátíðartónleikanna geta
sýningarinnar „Myndir úr Maríu
sögu“, sem opnuð verður í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju að lok-
inni fjölskylduguðsþjónustu á morg-
un. Þar sýnir Elsa E. Guðjónsdóttir
útsaumsmyndir en á mánudag flyt-
ur hún erindi um Maríumyndir í ís-
lenskum útsaumi fyrri alda. Sýn-
ingin er haldin í samvinnu við
Minjasafnið á Akureyri.
Vortónleikar Unglingakórs Akur-
eyrarkirkju verða næsta laugardag,
17. maí, og hátíðarguðsþjónusta í
kirkjunni þar sem Sigurbjörn Ein-
arsson biskup predikar verður á
sunnudag, 18. maí.
Kirkjulistavika er haldin annað
hvert ár og var sú fyrsta árið 1989,
en hitt árið er Kirkjuvika sem Pétur
Sigurgeirsson biskup fyrrverandi
sóknarprestur í Akureyrarkirkju
var upphafsmaður að.
Kirkjulistavika haldin í Akureyrarkirkju í áttunda sinn
Metnaðarfull
dagskrá