Morgunblaðið - 10.05.2003, Page 35

Morgunblaðið - 10.05.2003, Page 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 35 SIGURÐUR Þórir Sigurðsson myndlistarmaður er með málverka- sýningu í félags- og þjónustumið- stöðinni Vesturgötu 7. Sýningin er opin á afgreiðslutíma þjónustumiðstöðvarinnar frá kl. 9– 16:30 alla virka daga. Sýningin stendur til föstudagsins 30. maí. Málverk á Vesturgötu SÝNINGIN Inn og út um gluggann: Ísland, Grænland og Færeyjar skoða hvert annað verður opnuð í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 15. Á sama tíma verður einnig opn- uð ljósmyndasýningin Úr útnorðr- inu eftir Ragnar Th. Sigurðsson. Útnorðrið eða Vestnorden- svæðið tekur m.a. til Grænlands, Færeyja og Íslands og hafa þjóðir landanna aukið samstarf sitt á margan hátt, m.a. með vaxandi menningarsamstarfi og aukinni ferðaþjónustu. Myndefni 48 ljósmynda Ragnars Th. Sigurðssonar ljósmyndara er fólk, menning og náttúra landanna þriggja en texta sýningarbæklings skrifar Ari Trausti Guðmundsson, rithöfundur og jarðeðlisfræðingur. Myndirnar eru allar úr ferðum þeirra beggja um norðurheim- skautssvæðið og útnorðrið og er þeim komið fyrir í 16 þriggja mynda röðum þar sem ein mynd frá hverju landi lýtur að tilteknu þema. Þeim er ætlað að kynna löndin inn- byrðis. Ragnar Th. og Ari Trausti höfðu frumkvæði að þessari sýningu og hlutu styrki til hennar frá Sam- starfsnefnd vestnorrænu höfuð- borganna og SAMIK (samstarfs- nefnd um aukin samskipti og ferðaþjónustu Grænlendinga og Ís- lendinga). Myndir á sýningu Ragnars Th. Sigurðssonar á Akureyri. Myndir úr útnorðr- inu á Akureyri  Staccato/Lesbók 8 Á SJÖTTA tug nemenda úr mynd- listardeild og hönnunardeild Listaháskóla Íslands taka þátt í útskriftarsýningu skólans, sem verður opnuð í dag í Hafnarhús- inu og er fjölbreytt og metnaðarfull að vanda. Sýningarstjórar eru úr röðum kennara við skólann, þau Hekla Dögg Jónsdóttir sem stýrir uppsetningu á myndlistarhlutanum, og Steinþór Kári Kárason sem sér um hönn- unarhlutann auk þess að hafa umsjón með innsetningum í fordyri og göngum safnsins. Gengið inn í súlu Alls útskrifast 28 nemendur úr myndlist- ardeildinni í vor. Elín Hansdóttir er ein þeirra, og hefur horft til rýmis safnsins við gerð síns framlags til sýningarinnar. „Í Listasafni Reykjavíkur eru gríðarlega stórar súlur sem halda uppi rýmum hússins. Þær eru mjög áberandi og kannski truflandi – þær trufluðu mig að minnsta kosti þegar ég kom inn og var að finna mér stað. Þannig að ég ákvað að bæta einni við, ég smíða sem sagt eftirlíkingu af súlu sem er mjög lík hin- um. Nema að það er hægt að ganga inn í þessa súlu, áhorfandinn kemst inn í hana, getur lokað að sér og upplifað þannig ákveðið næði,“ segir Elín um verk sitt. Inni í súlunni eru speglar sem gera það að verkum að áhorfandinn horfist í augu við sjálfan sig og segir Elín að hún hafi viljað draga athyglina að áhorfandanum, frekar er verkinu sjálfu. „Ég vildi draga athyglina að áhorfandanum vegna þess að það er hann sem heldur uppi stofnun eins og Listasafni Reykjavíkur. Það er nú mergur málsins.“ Maður þarf að vera ákveðinn Elín lætur vel af því sýningin sé haldin í Listasafni Reykjavíkur. „En ég tek kannski smáséns, því ég vinn verkið beint inn í rýmið og gat ekki byrjað á því fyrr en í síðustu viku. Það setur okkur auðvitað skorður að geta ekki unnið frameftir nóttu eins og gert hefur verið í skólanum hingað til. Við höfum því þurft að hætta klukkan fimm eins og venju- legt fólk,“ segir hún og hlær. Aðspurð segist hún stefna á að halda áfram að lifa lífi mynd- listarmannsins og iðka myndlist. „Og lifa af því,“ bætir hún við. „Maður þarf bara að vera ákveðinn og finna sér leiðir, því það eru mjög margir möguleikar, sérstaklega á Norður- löndunum. Ætli ég fari ekki til útlanda – það er ekki margt sem bíður manns hér á Íslandi, því miður býður kerfið ekki upp á það. En vonandi bætir þessi sýning úr því – undir- strikar mikilvægi menningarinnar hér í Reykjavík og á Íslandi.“ Svavar Pétur Eysteinsson er einn þeirra 28 nemenda hönnunardeildar skólans sem verk eiga á útskriftarsýningunni. Lokaverk- efni hans er borðspil, sem fjallar um rokk- hljómsveit á tónlistarferðalagi um heiminn. „Hugmyndin er komin útfrá öðru verki sem ég ætlaði mér upphaflega að gera, sem var svolítið tónlistarlegs eðlis en átti kannski ekki heima í hönnunardeildinni. Þannig að ég þróaði hugmyndina út í borðspil, þar sem spilararnir eru hljómsveitarmeðlimir sem lenda í allskonar uppákomum á tónleikastöð- unum þar sem þeir spila og þurfa að útkljá ýmis vandamál sín á milli. Markmiðið er að safna aðdáendum, og sá meðlimur vinnur spilið í lokin sem hefur safnað þeim flestum,“ segir Svavar Pétur. Hann segist ekki enn hafa lagst í markaðshugmyndir varðandi spil- ið, en spilið sé ætlað flestum. „Hverjum sem hefur áhuga á góðu rokki.“ Á sýningunni í Hafnarhúsinu hefur Svavar Pétur sett saman hljómsveit sem ætlar að spila spilið, en hann segir gesti á sýningunni einnig geta komið inn í spilið, sem hefur fjóra þátttakendur. Svavar Pétur er bjartsýnn á framtíðina, sem er skipulögð út sumarið en ekki lengra. „Ég fékk styrk úr Nýsköpunarsjóði náms- manna til að safna saman íslensku letri og mun vinna í því þessa þrjá sumarmánuði. Eftir það tek ég stefnuna á útlönd og að fara í frekara nám í kjölfarið, og reyna svo bara að vera hamingjusamur,“ segir hann að síð- ustu. Mikilvægur þáttur í listalífinu Þetta er í fyrsta sinn sem útskriftarsýning Listaháskólans er haldin í Hafnarhúsinu, en síðustu ár hafa sýningarnar verið haldnar í húsnæði skólans í Laugarnesi. Að sögn Ei- ríks Þorlákssonar, forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur, er stefnt að því að sýningarnar verði áfram haldnar í safninu. „Þetta er mjög mikilvægur þáttur í íslensku listalífi á hverju vori sem þarf verðugan vettvang. Við erum að leita eftir því að þessi vettvangur geti ver- ið hér í safninu, árlegur og fastur. Hvort það yrði alltaf hér í Hafnarhúsinu eða skipt milli húsa mun tíminn leiða í ljós,“ sagði Eiríkur í samtali við Morgunblaðið. Hann segist sjá hag í samstarfinu fyrir báða aðila. „Ég lít þannig á að bæði Listasafn Reykjavíkur og Listaháskóli Íslands séu fyrst og fremst þjónustu- og menntastofnanir í eðli sínu. Við hér í safninu getum notið þess að eiga í sam- starfi við skólann um þessar sýningar og boð- ið okkar gestum upp á þær. Um leið bjóðum við skólanum faglegt og gott umhverfi til að setja sýningarnar inn í – ég held að nemend- urnir læri ekki minna á því að setja sýning- arnar upp í safni en þeir gera af því að vinna verkin og sýna í sínum vinnustofum eins og gert hefur verið hingað til.“ Í tengslum við Vorhátíð Listaháskólans í Reykjavík, sem útskriftarsýningin er hluti af, verður dagskrá í safninu daglega með tón- leikum, leiklestrum og tískusýningum, svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem sýningin Tvö hús verður sett upp í Smiðjunni við Sölvhóls- götu á vegum Nemendaleikhúss Listaháskól- ans. Nánar má lesa um dagskrána á heima- síðu skólans, www.lhi.is. Útskriftarsýningin verður opin í dag frá kl. 14–19, en annars verður hún opin alla daga frá kl. 10–17 til 29. maí. Aðgangur er ókeypis. Horfst í augu við sjálfan sig Morgunblaðið/Sverrir Útskriftarsýningin er nú í fyrsta sinn haldin í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. „Þetta er mjög mikilvægur þáttur í íslensku listalífi á hverju vori sem þarf verðugan vettvang. Við erum að leita eftir því að þessi vettvangur geti verið hér í safninu, árlegur og fastur,“ segir Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Hann sér hag í samstarfinu fyrir báða. Borðspil um hljómsveit og súla með víðtækari skír- skotun eru meðal lokaverk- efna sem gefur að líta á út- skriftarsýningu myndlistar- og hönnunardeildar Listahá- skóla Íslands, sem verður opnuð í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi, í dag. Inga María Leifsdóttir kynnti sér verk tveggja nemenda deildanna. Alls sýna 58 nemendur lokaverkefni sín á út- skriftarsýningu myndlistar- og hönnunar- deildar Listaháskóla Íslands, sem opnuð verð- ur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í dag. ingamaria@mbl.is Á GAGNAGRUNNINUM compos- ers-classical-music.com er Jólaóra- torían Barn er oss fætt eftir John Speight valin besta verkið sem útvarpað var á Jólatónleikum Evrópusambands útvarpsstöðva 22. desember sl. Flytjendur voru Mótettukór Hall- grímskirkju, Scola cantorum, einsöngvararnir Elín Ósk Óskarsdóttir sópran, Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir alt, Garðar Thor Cortes tenór og Benedikt Ing- ólfsson bassi og Kammersveit Hall- grímskirkju. Hörður Áskelsson stjórnaði flutningnum. Tónleikunum var útvarpað gegnum Ríkisútvarpið til fjölmargra landa Evrópu og til Bandaríkjanna til milljóna hlust- enda. Í umsögninni segir: „Íslenska framlagið til Jólatón- leika EBU var það langbesta – bæði tónsmíðin og flutningurinn. Jafnvel þótt útvarpssambandið frá Íslandi hafi verið það versta, var framlag Ís- lands langbest að listrænum gæð- um.“ Jólaóratoría Johns Speight, Barn er oss fætt, hreppti Íslensku tónlist- arverðlaunin fyrr á þessu ári í flokki sígildrar tónlistar. Valið besta verkið á evrópskum jólatónleikum Morgunblaðið/ÞorkellKórar Hallgrímskirkju, hljómsveit, stjórnandinn Hörður Áskelsson og einsöngvararnir Elín Ósk Ósk- arsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir, Garðar Thor Cortes og Benedikt Ingólfsson við æfingar á Jólaóratoríunni Barn er oss fætt. John Speight tónskáld. Jólaóratorían Barn er oss fætt eftir John Speight

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.