Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 36
MENNTUN
36 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
S M U
Stærsti enskumælandi háskólinn í Sviss býður
Æðri Diplómu/BA- gráðu/MA- gráðu í:
Viðskiptastjórnun Bankarekstri Hótelstjórnun
Ferðaþjónustu Viðburðastjórnun
Stjórnun heilsulinda Markaðsstjórnun
• Frábær aðstaða í heimsborginni Montreux við Genfarvatn
• Nemendur frá 60 löndum
• Möguleikar á hraðferðarnámi
• Bein innganga í BA/MA nám
• Hagstæð pakkagjöld, innifalin kennsla og húsnæði
Swiss Management University
Nám fyrir viðskiptaleiðtoga framtíðarinnar
SMU EUROPE, Rudolfplatz 6, D - 50674 Koeln
sími: +49 - 221 - 258 5210, fax +49 - 221 - 258 5211
Hafið samband við: SMU EUROPE
smueurope@smu-ch.com www.smu-ch.com
Á undanförnum árum hafastjórnvöld og forysta land-búnaðarins lagt miklaáherslu á að efla land-
græðslu og skógrækt. Á tveim síðustu
löggjafarþingum hafa verið sam-
þykktar umfangsmiklar landgræðslu-
og skógræktaráætlanir til langs tíma.
Þessu sér m.a. stað í því að auglýst
var nýlega staða háskólakennara við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri,
en um er að ræða stöðu þar sem sér-
menntun á sviði landgræðslu, skóg-
ræktar eða hliðstæðs (dósent/lektor)
er krafist. Blaðamaður spurði rektor
LBH um stefna, en nefna má fyrir
áhugasama að í dag, 9. maí, er náms-
kynning skólans í verslunarmiðstöð-
inni Hyrnutorgi í Borgarnesi.
Það eru borgfirsku háskólarnir
tveir á Bifröst og Hvanneyri sem
kynna þar námsframboð sitt á sviði
viðskipta, lögfræði, náttúruvísinda og
landbúnaðar. Kynningin stendur yfir
frá kl. 16–19. Umsóknarfrestur um
háskólanám á Hvanneyri eða Bifröst
rennur út í byrjun júní næstkomandi.
Skilgreining
á landbúnaði
„Þessar áherslur í landgræðslu og
skógrækt eru í samræmi við hið fjöl-
þætta hlutverk landbúnaðar framtíð-
arinnar,“ segir Magnús B. Jónsson
rektor Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri. „Í þeirri skilgreiningu
felst að landbúnaður er búskapur þar
sem landið er nýtt sem auðlind.“
Landbúnaður er einnig varðveisla
og verndun landkosta. Hann spannar
í raun allt ferlið frá mold til matar og í
mörgu tilliti einnig ferilinn frá mat til
moldar. „Hin hefðbundna skilgrein-
ing landbúnaðar hefur verið mjög
bundin búvöruframleiðslunni og sum-
ir sjá landbúnað aðeins fyrir sér sem
atvinnuveg þar sem sífellt tækni-
væddari atvinnuvegur fullnægir þörf
okkar fyrir matvæli,“ segir Magnús.
Þannig er það ekki og hefur reyndar
aldrei verið, að hans mati.
Framleiðsla, ræktun,
umhverfisstjórnun
Hið fjölþætta hlutverk landbúnað-
arins kallar á aukna menntun og
rannsóknir bæði varðandi búvísindin
sem tengjast framleiðslu matvæla og
ræktun en ekki síður að hverskonar
viðfangsefnum sem tengjast meðferð
og umgengni um auðlindina landið.
Samtenging þeirra viðfangsefna sem
tengjast framleiðslu og ræktunarbú-
skap og þeirra sem tengjast umhverf-
isstjórnun og umgengnismálum er
því mjög augljós til þess að gagn-
kvæm virðing skapist fyrir hvorum
þætti fyrir sig.
„Landbúnaðarháskólinn leggur
metnað sinn í að tengja þessi verkefni
saman í námsframboði sínu og
áherslum á sviði rannsókna því fag-
þekking er nauðsynleg svo unnt sé að
skila landinu til komandi kynslóða í
jafngóðu eða betra ástandi og tekið er
við því,“ segir Magnús.
Með auknum umsvifum og auknu
fjármagni til landgræðslu og skóg-
ræktar eykst þörfin fyrir fræðslu og
rannsóknir sem tryggir sem best nýt-
ingu þeirra fjármuna sem til verkefn-
anna er varið. „Menntun er lykill
framfara og því er höfuðnauðsyn að
menntunartilboð fylgi eftir þeim
auknu fjármunum sem til verkefn-
anna er varið,“ segir hann og að mik-
ilvægt sé að samfara eflingu mennt-
unarinnar fylgi fjármagn til
rannsókna því með auknum umsvif-
um vakna fleiri og flóknari spurning-
ar sem ekki verður svarað nema með
rannsóknum.
Landgræðsla og skógrækt
Í ljósi þessa hefur Landbúnaðarhá-
skólinn um þriggja ára skeið boðið
upp á hásksólanám til BSc-prófs eða
kandidatsprófs á námsbraut sem
fjallar um landnýtingu með aðal-
áherslu á séríslenskar aðstæður sem
eiga við í landgræðslu og skógrækt.
Námið fjallar um skipulag landnýt-
ingar í víðum skilningi. Í náminu er
lögð sérstök áhersla á að veita þekk-
ingu til þess síðar að geta sérhæft sig
á sviði landgræðslu, skógræktar, út-
hagafræða og einnig landvörslu og
ýmiss konar umhverfisvöktunar.
Kennslan byggist á vistfræði og
öðrum undirstöðugreinum náttúru-
fræða, skipulagsfræðum, hagfræði og
tækni og tekur síðan fyrir undirstöð-
ugreinar langræðslu og skógræktar
með íslenskan veruleika að leiðarljósi.
Á þann hátt tengjast saman fram-
leiðslutengdir ræktunarþættir skóg-
ræktarinnar og umhverfisþættir sem
einkenna landgræðsluverkefnin.
Fagleg fótfesta
Magnús segir að fagleg fótfesta
þessa náms byggist á víðtæku sam-
starfi við fræðimenn skógræktar og
landgræðslu. En einnig á staðsetn-
ingu héraðssetranna, sem er mikill
styrkur, ásamt miðstöð Vesturlands-
skóga á Hvanneyri, skógræktinni í
Skorradal og öflugum fulltrúum verk-
efnisins „Bændur græða landið“ í
næsta nágrenni. „Samstarf Landbún-
aðarháskólans við háskóla erlendis
tryggir svo að þeir nemendur sem
vilja sækja frekari sérhæfingu er-
lendis fá nám sitt á Hvanneyri að fullu
metið til framhaldsnáms,“ segir hann.
Landgræðslu- og skógræktaráætl-
anirnar skapa þessum verkefnum
fjárhagslegan ramma og metnað og
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
veitir ungu fólki tækifæri til þess að
takast á við ný og mikilvæg verkefni á
sviði náttúruvísinda og fyrir íslenskan
landbúnað og íslenskt samfélag.
Landið sem auðlind
Áhersla á íslensk-
ar aðstæður í
landgræðslu og
skógrækt.
Borgfirsku há-
skólarnir á Bif-
röst og Hvanneyri
kynna sig í dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Aukinn kraftur er í námi í landgræðslu og skógrækt, segir Magnús B. Jóns-
son, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
guhe@mbl.is
TENGLAR
..............................................
www.hvanneyri.is
Hvanneyri/Landbúnaður er búskapur þar sem landið er nýtt sem auðlind og
hann er varðveisla og verndun landkosta. Háskólanám í landgræðslu og skóg-
rækt er stundað í LBH. Gunnar Hersveinn spurði um stefnuna og áherslur.
Nú stendur yfir viðamikilkönnun á afstöðu Ís-lendinga til umhverfis-og þróunarmála. Þessir
málaflokkar hafa lítið verið rann-
sakaðir hérlendis
áður og mun
könnunin því
gefa mjög mikil-
vægar upplýsing-
ar um viðhorf Ís-
lendinga til
þeirra. Könnunin
er samstarfs-
verkefni Sið-
fræðistofnunar
Háskóla Íslands,
Félagsvísindastofnunar HÍ og Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu Reykja-
víkur. Blaðamaður spurði Þorvarð
Árnason náttúrufræðing og verk-
efnisstjóra hjá Siðfræðistofnun um
tilurð könnunarinnar og tilgang.
Afstaðan til náttúru
„Umhverfismálin hafa á tiltölu-
lega skömmum tíma orðið æði fyr-
irferðarmikill málaflokkur í ís-
lensku samfélagi, eins og raunar
víðast hvar á Vesturlöndum, og það
er því mjög áhugavert að kanna
viðhorf fólks til þeirra út frá fé-
lagsfræði- og heimspekilegu sjón-
arhorni,“ segir hann,
Aðdragandi þessarar könnunar
er talsvert langur því Siðfræði-
stofnun með Pál Skúlason rektor í
fararbroddi hóf skipulegar rann-
sóknir á náttúrusýn Íslendinga fyr-
ir u.þ.b. tíu árum. „Rannsóknir á af-
stöðu fólks til umhverfismála hafa
lengi verið stundaðar á Norður-
löndunum og meðal annarra ná-
grannaþjóða okkar, en lítið verið
könnuð hér á landi,“ segir Þorvarð-
ur. Helsta undantekningin er rann-
sókn Siðfræðistofnunar árið 1997
með heitið „Náttúra, þjóðerni og
umhverfisstefna á Norðurlöndun-
um“, en í tengslum við þá rannsókn
var gerð viðhorfskönnun í þremur
löndum – Íslandi, Svíþjóð og Dan-
mörku, sem leiddi margt áhugavert
í ljós.
Þjóðareinkenni Íslendinga
Ýmsar lykilspurningar úr könn-
uninni 1997 eru lagðar aftur fyrir í
þessari nýju könnun sem nú stend-
ur yfir en hún nær til 1.500 manna
slembiúrtaks úr þjóðskrá á aldr-
inum 18–75 ára. Mörgu er þó bætt
við, t.d. um þróunarmál, og þá bæði
í hnattrænu og innlendu samhengi.
Ástæða er til að kanna helstu lyk-
ilþætti aftur því margt getur breyst
í samfélaginu á 5–6 árum og sam-
anburðurinn sem eldri könnunin
gefur möguleika á gæti því leitt
ýmislegt forvitnilegt í ljós. „Í nýju
könnuninni er einnig farið dýpra í
umhverfismálin og spurt um þekk-
ingu og atferli, t.d. hvaða hluti fólk
flokkar frá heimilissorpi, auk við-
horfa til fjölmargra mála,“ segir
Þorvarður. Í könnuninni eru einnig
lagðar fram ýmsar spurningar sem
varða þróunaraðstoð, lýðræðisþró-
un og þjóðernisvitund.
Viðhorf til lýðræðis
og þjóðernis
Nefna má dæmi um spurningu í
því sambandi: „Hver af neðan-
greindum atriðum telur þú að móti
helst þjóðareinkenni Íslendinga?
(Merktu við þrjú atriði).
a) Sagnahefðin, b) Landslagið, c)
Einangrunin, d) Veiðimennskan, e)
Tungumálið, f) Veðurfarið, g)
Smæð þjóðarinnar, h) Hafið.“
Spurt er um lýðræði og þjóðern-
ismál vegna þess að umhverfismál-
in eru ekki í tómarúmi, og þau
tengjast iðulega öðrum hræringum
í samfélaginu, eins og t.d. atvinnu-
málum. „Erlendir fræðimenn hafa
skrifað mjög mikið um tengsl milli
lýðræðis og umhverfismála og eru
um þau talsvert skiptar skoðanir en
könnunin gefur okkur tækifæri til
að fara ofan í saumana á slíkum
kenningum,“ segir Þorvarður, „á
sama hátt má ætla að töluverður
snertiflötur sé á milli hugmynda
um þjóðerni og viðhorfa til náttúr-
unnar – en hvort og þá hvernig
þetta tvennt tengist skal þó ósagt
látið að svo komnu máli. Þess utan
eru lýðræði og þjóðerni auðvitað
hvort fyrir sig einkar áhugaverð
rannsóknarefni.“ Stefnt er að því
skýrsla um fyrstu niðurstöður
rannsóknarinnar verði tilbúin í júní
eða júlí en síðan er fyrirsjáanleg
nokkuð umfangsmikil vinna við
frekari úrvinnslu og túlkun gagna.
Fátíðar kannanir
Þorvarður segir að nú sé að síga
á seinni hluta þessarar rannsóknar
og hann hvetur þá þátttakendur
sem ekki hafa enn skilað inn listum
að gera það sem allra fyrst. Ef list-
inn hefur glatast eða ef fólk hefur
einhverjar spurningar um könn-
unina þá getur það snúið sér til Fé-
lagsvísindastofnunar (s. 525 4545).
„Auk fræðilegs gildis þessarar
könnunar og þess nýmælis sem hún
hefur þá er það von okkar að þær
upplýsingar sem hún leiðir í ljós
geti hjálpað stjórnvöldum við að
móta sem besta umhverfisstefnu
fyrir land og þjóð,“ segir hann.
„Það er því mikilvægt að fólk nýti
þetta tækifæri til að koma skoð-
unum sínum á framfæri, hverjar
svo sem sem þær kunna að vera. Í
þessu sambandi er einnig rétt að
hafa í huga að fræðilegar kannanir
sem þessi eru frekar fátíðar enda
ekki alltaf auðvelt að afla til þeirra
fjár, þannig má búast við því að það
líði þó nokkur ár þar til næsta
könnun um þessi málefni verður
gerð.“
Heimspeki, sagnfræði
og viðhorfskönnun
Könnunin „Afstaða Íslendinga til
umhverfis- og þróunarmála“ er
hluti af stærra verkefni sem hefur
verið í gangi í u.þ.b. 2 ár og er í
þremur þáttum: 1. Sagnfræðilegum
um þróun umhverfisverndarhyggju
á Íslandi á síðustu öld. Umsjón hafa
sagnfræðingarnir Guðmundur
Hálfdanarson og Unnur Birna
Karlsdóttir. 2. Heimspekilegum um
umhverfis- og þróunarmálin sem
siðfræðileg viðfangsefni. Umsjón
hafa Jón Á. Kalmansson og Róbert
H. Haraldsson heimspekingar, en
Róbert stýrir jafnframt verkefninu
í heild. 3. Viðhorfskönnunin sem er
samstarfsverkefni Siðfræðistofnun-
ar við Félagsvísindastofnun og Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu Reykja-
víkur. Umsjón hafa Friðrik H.
Jónsson, Ævar Þórólfsson, Hjalti J.
Guðmundsson og Þorvarður Árna-
son.
Helsti styrktaraðili verkefnisins
er Markáætlun Rannís um upplýs-
ingatækni og umhverfismál. Einnig
styrkja umhverfisráðuneytið og
Reykjavíkurborg þessa rannsókn.
Í umfangsmikilli könnun um afstöðu Íslendinga til
umhverfis- og þróunarmála koma tengsl lýðræðis
og umhverfismála við sögu. Hugmyndir lands-
manna um þjóðerni og þróunaraðstoð koma einnig
fram í viðhorfum til náttúrunnar. Könnunin er
þáttur í rannsókn sem spinnur saman félagsvísindi
og hugvísindi, eins og heimspeki og sagnfræði.
Hugurinn til
umhverfismála
guhe@mbl.is
Þorvarður
Árnason BS-90 í búvísindum.
BS-90 í landnýtingu (land-
græðsla og skógrækt).
BS-90 í umhverfisskipulagi
(landslagsarkitektúr).
Kandidatsnám: Boðið er upp á
eins árs viðbótarnám og rann-
sóknaþjálfun til kandidatsprófs í
búvísindum og landnýtingu að
loknu BS-90-námi.
Meistaranám til 60 eininga í bú-
vísindum. MS-námið veitir mögu-
leika á sérhæfingu á sviði búfjár-
ræktar, jarðræktar og bútækni.
Meistaranám til 60 eininga í
landnýtingu. MS-námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði
landgræðslu, skógræktar, um-
hverfisstjórnunar, jarðræktar og
bútækni.
Landbúnaðarháskólinn