Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 40
HEILSA
40 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kunningi minn sem var undir miklu álagi í
prófum fór að að haga sér meira og meira und-
arlega eftir það. Hann talaði mikið um óskilj-
anleg samsæri og fleira. Síðar var hann
greindur með geðklofa. Getur verið að mikið
álag í námi hafi valdið geðklofanum og þróast
þetta þannig að hann verði margir persónu-
leikar?
SVAR Geðklofi er sú geðröskun sem
almennt er talin vera alvarlegasta geðrösk-
unin og er sú geðröskun sem einna helst
krefst innlagna á geðdeild. Það getur hins-
vegar verið mismunandi eftir einstaklingum
hvernig einkennin birtast og hversu alvar-
legur geðklofinn verður. Sumir verða mjög
veikir, einkennin langvarandi og tímabilin
sem einkennin liggja niðri stutt. Aðrir veikj-
ast aðeins einu sinni eða sjaldan og geta lifað
eðlilegu lífi þess á milli. Algengt er að upphaf
einkenna eigi sér stað í kjölfar mikils álags,
líkt og gerðist hjá kunningja þínum. Ein-
staklingurinn virðist þá oft veikjast mjög
skyndilega og eru þá einkennin mjög áber-
andi. Þessi tími fyrstu einkenna hefur hins-
vegar lengi valdið töluverðum misskilningi,
þar sem fólk hefur tengt álag eins og próf-
lestur við upphaf geðklofaeinkenna og því lit-
ið á álagið sem orsakavald geðklofa. Margir
þekkja örugglega setninguna: „Hann las yfir
sig.“ Þegar talað er um að „lesa yfir sig“ er
oft gert ráð fyrir að álagið við lærdóminn sé
hin raunverulega orsök og hefur miskiln-
ingur, í gegnum tíðina, jafnvel gert sumt fólk
hrætt við nám og þá sérstaklega lang-
skólanám. Þegar maður ræðir við fólk sem á
ættingja eða vini sem „lásu yfir sig“ er það
gjarnan sannfært um að ef einstaklingurinn
hefði ekki farið í nám hefði ættinginn eða
vinurinn aldrei veikst. Hinsvegar er mik-
ilvægt að átta sig á að álag, eins og erfið próf
eða krefjandi nám, er einungis það sem kem-
ur einkennunum af stað en er ekki orsaka-
valdur geðklofans og einstaklingurinn hefði
að öllum líkindum veikst við önnur skilyrði
og þá kannski í kjölfar annars konar álags.
Geðklofi fyrirfinnst í öllum samfélögum og
hrjáir fólk alls staðar, að því er virðist, um
það bil 1% fólks í þjóðfélaginu. Ef álagið eða
lærdómurinn væri orsök geðklofans ættu ein-
kennin að vera algengari í vestrænum sam-
félögum þar sem meira er um að fólk fari í
langskólanám og almenn streita í umhverfinu
meiri. Einstaklingar veikjast yfirleitt fyrst á
aldrinum 18-35 ára, sem er sá aldur þar sem
fólk er gjarnan í námi, og getur það að hluta
til skýrt misskilning fólks. Ef lærdómurinn
væri orsök ættum við að hafa orðið var við
mikla aukningu á síðustu árum í samfélagi
eins og okkar, þar sem krafan til náms er
meiri og sífellt fleiri sækja lengra nám. Hins-
vegar hefur ekki orðið aukning á geðklofa
síðustu ár og ef eitthvað er virðist nýgengi
(ný tilfelli) hafa farið lækkandi milli ára.
Hitt atriðið sem þú spyrð um, hvort vinur
þinn verði eins og margar persónur, er í raun
annar algengur misskilningur sem er mjög
útbreiddur um geðklofa. Margir telja að geð-
klofi sé það sama og margskiptur persónu-
leiki/klofinn persónuleiki, þar sem ein-
staklingur hefur tvo eða fleiri, oft mjög
mismunandi, persónuleika. Þetta er mikill
misskilningur, þar sem geðklofi einkennist af
skynvillum, hugsanatruflunum og rang-
hugmyndum, svo dæmi séu nefnd, en alls
ekki af mörgum persónuleikum. Þeirri rösk-
un sem einkennist af tveimur eða fleiri per-
sónuleikum, og nefnist klofinn persónuleiki,
hef ég áður lýst í svörum mínum hér og er
allt annar hlutur. Þessi misskilningur er
mjög útbreiddur og er t.d. að finna í spurn-
ingarspilinu „Trivial Pursuit“ þar sem spurt
er um hvað hafi hrjáð Evu í sögunni og
myndinni Þrjú andlit Evu. Rétt svar er klof-
inn persónuleiki en misskilningurinn kemur
fram í röngu svari í spilinu, þar sem því er
ranglega haldið fram að það sé geðklofi.
Það er engin spurning að ef fólk er hrjáð
af alvarlegum geðröskunum getur álag eins
og mikil streita, miklar vökur og þær streitu-
aðstæður, sem próftímabil oft einkennast af,
valdið því að einstaklingurinn veikist eða
honum versnar. Aftur á móti er það mikill
misskilningur að þetta álag sé orsök geð-
klofa.
Gangi þér vel.
Geðklofi
eftir Björn Harðarson
Algengt að veikjast
á aldrinum 18–35 ára
Björn Harðarson,
sjálfstætt starfandi sálfræðingur.
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurn-
ingum varðandi
sálfræði-, fé-
lagsleg og vinnu-
tengd málefni til sérfræðinga
á vegum persona.is. Senda
skal tölvupóst á persona@per-
sona.is og verður svarið jafn-
framt birt á persona.is.
ÞAÐ vill svo heppilega til að alþingiskosningarnar í ár
ber upp á 10. maí, sama dag og Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin (WHO) hefur valið sem alþjóðlegan
dag hreyfingar. Kjörorð dagsins er: „Hreyfðu þig –
heilsunnar vegna.“ Þetta tækifæri ættu allir kjós-
endur, sem mögulega geta, að nýta sér í dag og ganga
eða hjóla á kjörstað. Þeir sem eru of ungir til að kjósa
ættu líka að velja sér einhverja skemmtilega hreyf-
ingu.
En hvers vegna skyldi alheimsstofnun mæla með
hreyfingu fyrir alla jarðarbúa? Einfaldlega vegna
þess að reglubundin hreyfing og hollt mataræði eru
hornsteinar góðrar heilsu. Með því að ganga rösklega
a.m.k. hálftíma á dag flesta daga vikunnar nást veru-
leg áhrif til heilsubótar. Ýmis önnur hreyfing af svipaðri áreynsku er auðvit-
að í fullu gildi líka, s.s. skokk, hjólreiðar, sund, garðvinna og ýmis heim-
ilisstörf. Ávinningurinn er m.a. vörn gegn ýmsum langvinnum sjúkdómum,
þyngdin helst í skefjum, streitan minnkar, orkan eykst og vinnuframlag líka.
Síðast en ekki síst léttir hreyfingin lund og eykur vellíðan.
Þótt langflestum Íslendingum sé kunnugt um að hreyfing sé holl (skv.
könnun frá árinu 2000) má samt ætla að um 50-60% landsmanna þyrftu að
hreyfa sig meira en þeir gera til þess ná að vernda og bæta heilsuna. Jafn-
framt er vitað að mestallur þessi hópur hefur hug á að hreyfa sig meira. Því
væri upplagt að byrja reglubundna hreyfingu á sjálfan kosningadaginn, á al-
þjóðlegum degi hreyfingar.
Sumarið gefur okkur líka margvísleg tækifæri til að stunda fjölbreytta
hreyfingu og njóta náttúru landsins okkar. Útivistarfélög bjóða upp á göngu-
ferðir, styttri og lengri, og Ungmennafélag Íslands hefur gefið út bók með
gönguleiðum fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugar eru um allt landið og þar er
bæði hægt að hreyfa sig og slaka á í heitum potti. Hjólreiðar eru fararmáti
sem æ fleiri nota, bæði til að komast á milli staða og að njóta útvistar.
Hreyfum okkur – heilsunnar vegna í sumar, hvort sem við erum ein á ferð
eða með fjölskyldu eða vinum.
Svandís Sigurðardóttir, lektor við sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands.
Þórarinn Sveinsson, dósent við sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands.
Anna Björg Aradóttir, hjúkrunarfræðingur landlæknisembættinu.
Frá landlæknisembættinu
Heilsan í brennidepli
Alþjóðlegur dagur
hreyfingar 10. maí
Hreyfðu þig –
heilsunnar vegna
AFBRIGÐI af algengum kvefvírus,
adeino-veiran, getur hugsanlega
unnið á banvænu krabbameini í
heila, að því er segir í nýrri grein í
tímaritinu Journal of the National
Cancer Institute. Tilraunir voru
gerðar á músum með illvígt afbrigði
af heilaæxli. Kvefvírusinn var endur-
hannaður þannig að hann sýkir
heilaæxlisfrumur á sértækan hátt.
Hann réðst síðan á og drap krabba-
meinsfrumur sem valda illkynja æxli
í heilanum en lét heilbrigðar frumur
afskiptalausar.
Niðurstöðurnar lofa svo góðu að
sérfræðingar við Háskólann í Texas í
Bandaríkjunum, sem stjórnuðu
rannsókninni, telja að jafnvel verði
hægt að hefja tilraunir á mönnum
síðla á næsta ári.
Hið nýja afbrigði kvefvírussins,
sem kallast Delta-24-RGD, kveikir
því nýja von í brjósti margra. Dr. Ju-
an Fueyo, sem er í forsvari rann-
sóknarinnar, telur í samtali við vef-
útgáfu Daily Mail, að frekari
rannsóknir þurfi að fara fram en
þessi jákvæðu viðbrögð við meðferð
eigi sér ekki hliðstæður.
Helgi Sigurðsson, yfirlæknir á
krabbameinsmiðstöð Landspítalans,
segir að þótt niðurstöður séu afar at-
hyglisverðar, séu nokkur ár í að það
skýrist hvort þær hafi þessi áhrif á
æxli í mönnum. Fyrst að þeim tíma
liðnum geti niðurstöður orðið að liði.
„Mjög algengt er að rannsóknir sem
þessar komi ekki sjúklingum að not-
um fyrr en að mörgum árum liðnum
ef þær standast.“
Kvef vinnur á heilaæxli
MEIRIHLUTI ungs fólks sem sæk-
ir hávaðasama skemmtistaði eða tón-
leika að staðaldri á við einhvers kon-
ar heyrnarleysisvandamál að glíma,
að því er segir í frétt á netútgáfu
BBC. Upplýsingar þessar eru hafðar
eftir talsmannni bresku konunglegu
heyrnleysingjastofnunarinnar.
Því er haldið fram að þriðjungur
ungs fólks, sem sækir næturklúbba
þar sem spiluð er hávær tónlistog
tónleika á Bretlandi, eigi á hættu
langvarandi heyrnarvandamál.
Vandamálin felast m.a. í suði fyrir
eyrum eða daufheyrn eftir dvöl á há-
vaðasömum skemmtistað.
Rannsókn hefur einnig leitt í ljós
að næstum helmingur ungs fólks veit
að suð fyrir eyrum getur verið merki
um skemmd í eyrum en meirihlutinn
veit ekki að skemmdirnar eru í
mörgum tilfellum ólæknanlegar.
Eyrnatappa með í fjörið
Við þokumst í átt að hápunkti
ótímabærs heyrnarleysis fólks á
miðjum aldri, að mati Brians Dow
talsmanns konunglegu heyrnleys-
ingjasamtakanna. „Félagslegur há-
vaði hefur þrefaldast í Bretlandi síð-
an í byrjun níunda áratugarins sem
gefur tilefni til þess að fólk hafi varan
á. Forvarnir eru ávallt betri en lækn-
ing, sér í lagi þar sem ekki er til neitt
lyf gegn heyrnarleysi. Lausnin gæti
falist í því að taka eyrnatappa með
sér á skemmtistaðina.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heyrnarvandamál færast í vöxt hjá breskum ungmennum.
Hætta á
ótímabæru
heyrnar-
leysi
ATVINNA mbl.is