Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 48

Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 48
UMRÆÐAN 48 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í dag fá kjósendur í land- inu tækifæri til að kjósa sér alþingismenn sem hafa það verkefni að stjórna landinu næstu fjögur árin. Þetta er dagur sem margir hafa beðið eftir. Áhuga- menn um stjórnmál bíða spenntir eftir úrslitum kosninganna. Aðrir sem minni áhuga hafa á pólitísku þrasi fagna því að þessari orra- hríð linnir og meiri afslöppun og friður færist yfir samfélagið. Þeir eru til sem finnst þetta þras allt hið mesta hjóm og finna enga samsvörun í stefnuskrám stjórn- málaflokk- anna. Þó hægt sé að taka undir það að margt af því sem sagt er í kosningabaráttunni sé ekki ýkja merkilegt og stundum sé erfitt að sjá mun á stefnu flokkanna er fráleitt að segja að þetta skipti engu máli. Allir hafa skoðanir og það er lýðræðisleg skylda kjós- enda að tjá þær í kosningum. Kosningarétturinn er dýr- mætur réttur. Það má minna á að stór hluti íbúa heimsins hefur ekki þennan rétt. Og það eru ekki nema 95 ár frá því að leynilegar kosningar voru fyrst haldnar á Íslandi. Það er ekki lengur tími í sögu þjóðar. Árið 1908 er merkilegt ár í sögu þjóðarinnar. Það ár fóru fyrstu leynilegu kosningarnar fram á Íslandi. Þetta voru spenn- andi kosningar sem skiptu miklu fyrir framtíð þjóðarinnar. Fram til 1908 höfðu kosningar farið fram í heyrandi hljóði. Kosningarnar fóru fram með þeim hætti að boðaður var kjör- fundur. Nöfn þeirra sem mættu á hann voru lesin upp og menn svöruðu munnlega hvern þeir ætluðu að kjósa. Kosningin var því hvorki leynileg né skrifleg. Að auki var kosningarétturinn mjög takmarkaður. Einungis karlar máttu kjósa og raunar var einnig í lögum ákvæði um að aðeins eignamenn mættu kjósa. Fátækt fólk og vinnufólk mátti því ekki kjósa. Talið er að árið 1843, þegar Danakonungur gaf út tilskipun um endurreisn Alþingis, hafi tæplega 5% þjóðarinnar haft kosningarétt. Eins og nærri má geta höfðu ekki allir kjósendur hugrekki til að segja eins og þeim bjó í brjósti þegar þeir mættu á kjörfund. Það varð því mikil grundvallarbreyt- ing þegar teknar voru upp leyni- legar kosningar árið 1908. Fyrir þessar kosningar höfðu Íslendingar leitað eftir því að leysa þau mál sem enn voru óleyst í samskiptum Íslands og Danmerkur. Eftir að Friðrik VIII. Danakonungur heimsótti Ísland sumarið 1907, en hann hafði mikinn áhuga á málefnum landsins, var skipuð milliþinga- nefnd sem lagði fram „uppkast að lögum um ríkisréttarsamband Danmerkur og Íslands“. Full samstaða varð ekki í nefndinni um „Uppkastið“ því Skúli Thor- oddsen taldi ekki nægilega vel frá öllum hnútum gengið. Ákvæði 1. greinar var umdeilt, en þar sagði „Ísland er frjálst og sjálfstætt land, er eigi verður af hendi látið. Það er í sambandi við Danmörku um einn og sama konung og þau mál, er báðir aðilar hafa orðið ásáttir um að telja sameiginleg í lögum þessum. Danmörk og Ís- land eru í ríkjasambandi, er nefn- ist veldi Danakonungs.“ Um Uppkastið skapaðist meiri pólitískur æsingur en dæmi voru um á Íslandi fram að þeim tíma. Fundir voru haldnir um allt land og hart barist. Frambjóðendur fóru þetta sumar ríðandi um allt land og leituðust við að sannfæra kjósendur um ágæti síns máls- staðar. Þó að Hannes Hafstein ráðherra, flokkur hans og gamlir pólitískir andstæðingar eins og Valtýr Guðmundsson og Jón Jensson, formaður Landvarn- arflokksins, styddu Uppkastið höfðu andstæðingarnir betur. Þar réð miklu að stærstu blöð landsins, Ísafold og Þjóðólfur, börðust af hörku gegn Uppkast- inu sem andstæðingar þess töldu að fæli í sér of mikla eftirgjöf frá kröfum Íslendinga um aukið sjálfstæði. Þjóðólfur átti sér glæsta sögu, en blaðið studdi á árum áður stefnu Jóns Sigurðs- sonar. Blaðið var undir ritstjórn Hannesar Þorsteinssonar og hann ásamt Birni Jónssyni rit- stjóra Ísafoldar átti stóran þátt í því að stuðningsmenn Uppkasts- ins töpuðu meirihluta sínum á þingi. Stuðningsmenn Hannesar fengu aðeins 9 menn kjörna á þing en andstæðingar hans 25. Vegna kjördæmaskipanarinnar varð ósigurinn stærri en at- kvæðatölurnar gáfu tilefni til. Kosningaþátttakan varð hins vegar meiri en nokkru sinni áður eða 75,5%. Úrslit kosninganna voru bæði afgerandi og óvænt. Ráðherrann, sem aðeins hafði setið í fjögur ár, hafði verið felldur. Björn Jónsson varð ráðherra, en ráðherratíð hans varð nokkuð stormasöm og svo fór að lokum að nokkrir af stuðningsmönnum hans sneru við honum baki og samþykkt var á hann vantraust. Það er kannski erfitt að bera kosningarnar 1908 saman við kosningarnar sem fram fara í dag. Margir eru þó á þeirri skoð- un að þetta séu með mikilvægari kosningum sem fram hafa farið í langan tíma. Óvíst er hins vegar hvernig sagan dæmir mikilvægi þessara kosninga. Það ræðst væntanlega fyrst og fremst af því hvort ríkisstjórnarflokkarnir halda meirihluta sínum á Alþingi og hvort nýtt fólk tekur við völd- um. En hvort sem hér verða stjórn- arskipti eða ekki eru kosningar ávallt mikilvægar og óhætt að hvetja alla til að taka þátt í þeim. Dýrmætur kosninga- réttur Árið 1908 er merkilegt ár í sögu þjóð- arinnar. Það ár fóru fyrstu leynilegu kosningarnar fram á Íslandi. Þetta voru spennandi kosningar sem skiptu miklu fyrir framtíð þjóðarinnar. VIÐHORF Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Í UPPHAFI árs horfðu Reyk- víkingar dálítið langleitir á for- mann Framsókn- arflokksins, Halldór Ásgrímsson, bola Ingibjörgu Sólrúnu úr embætti borg- arstjóra, aðeins ör- fáum mánuðum eft- ir að þeir höfðu kosið hana til að gegna því sama embætti. Einu má gilda héðan af hvaðan Halldór þóttist hafa umboð til að ónýta lýðræðislegan vilja borgarbúa með tuddaskap sínum. Hins vegar er það óskammfeilni af framsóknarformanninum að flytj- ast nú suður og biðja um stuðning Reykvíkinga í Alþingiskosningum. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina. Almennt séð eru margar og góð- ar ástæður til að kjósa ekki Fram- sóknarflokkinn. Fyrir Reykvíkinga sem vilja gæta að virðingu sinni er hreinlega allt betra en framsókn. Framsóknar- maður kemur í bæinn Eftir Hjört Hjartarson Höfundur er kynningarstjóri og kjósandi í Reykjavík. STEINUNN Jóhannesdóttir rit- höfundur ritaði grein í Morg- unblaðið í gær þar sem hún mót- mælti grein minni, þar sem ég hélt því fram að hvatning um að kjósa konu vegna kynferðis hennar væri móðg- un við konur. Steinunn hélt því fram að ég væri að gera lítið úr jafnréttisbaráttu kvenna á meðan sannleikur málsins er sá að ég var einmitt að mæla með að konur sýni hvað í þeim býr. Aldrei myndi ég gera lítið úr Auði Auðuns eða öðr- um konum sem hafa komist til valda á eigin verðleikum. Þvert á móti tel ég ákall um að kjósa konu vegna kynferðis vera vanvirðingu við slíkar konur. Steinunn fellur í þá gryfju að líta ekki á konur fyrst og fremst sem einstaklinga. Kjarni málsins er sá að við eigum að velja fólk til starfa eftir verðleikum þess, ekki kyn- ferði. Það er jafn mikið ójafnrétti fólgið í því að velja konu, bara af því að hún er kona, og það er að ganga fram hjá konu vegna kyn- ferðis hennar. Sú hugsun að velja fólk á grundvelli kynferðis gengur beinlínis gegn jafnréttishugsjóninni. Ekkert ójafnrétti verður leiðrétt með meira ójafnrétti. Málflutningur Samfylkingarfólks um að velja eigi Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem forsætisráðherra vegna kynferðis hennar sýnir að það vill ekki að fólk sé metið að verðleikum. Kannski gerir fólkið þetta vegna þess að því hefur mis- tekist að sýna fram á verðleika hennar. Jafnréttisbaráttan geldur fyrir þennan málflutning, því hvern- ig er hægt að ætlast til að fólk sé metið að verðleikum, þegar þeir sem þykjast berjast fyrir jafnrétti eru á móti því? Á að kjósa eftir kynferði? Eftir Sigþrúði Ármann Höfundur er laganemi í HÍ. AÐ GEFNU tilefni vegna blaðagreinar Ástu Möller frá 9. maí 2003 um leigu hjá Félagsbústöðum hf. Í grein Ástu Möller í gær er erfitt er að átta sig á samanburði á leigu í dag og frá árinu 1995 þar sem Unnur, leigjandi hjá Fé- lagsbústöðum frá 1997, bjó ekki í sömu íbúð árið 1995 á vegum Félags- málastofnunar og hún býr í í dag. Unnur, sem býr ein í 3ja herbergja íbúð í Vesturbæ, 81,6 m² að stærð, greiðir 43.530 kr. í leigu á mánuði auk 4.873 kr. kostnaðar vegna hita, sam- eiginlegs rafmagns, hússjóðs, ræstinga o.fl. samtals 48.403 kr. Hún nýtur skattfrjálsra húsaleigubóta að fjárhæð 11.539 og greiðslubyrði leigunnar því 31.991 kr. Almennt er gert ráð fyrir því hjá Félagsbústöðum til þess að auka nýtingu íbúðanna að barnlaust fólk búi í 2ja herbergja íbúðum, fólk með eitt barn í 3ja, með 2 börn í 4ra og með 3 börn og fleiri í 5 her- bergja og stærri íbúðum. Hámarksnýting húsa- leigubóta tekur einnig aðallega mið af leigufjárhæð og fjölskyldustærð. Miðað við að í viðkomandi íbúð búi einstætt foreldri eða hjón með barn næmu húsa- leigubæturnar 18.529 kr. í stað 11.539 kr. og greiðslubyrði leigunnar því 25.001 kr. í stað 31.991 kr. Unni hefur staðið til boða að sækja um milliflutn- ing í minni íbúð til þess að minnka greiðslubyrði leig- unnar í samræmi við fjárhagsaðstæður sínar en engin slík beiðni liggur fyrir hjá Félagsþjónustunni. Breytingar á leigu frá stofnun Félagsbústaða hf. 1997 eru eftirfarandi: 1. Leiga í húsnæði á vegum Félagsbústaða hefur frá upphafi tekið mið af almennum verðlags- hækkunum. 2. Á síðasta ári var leigan jöfnuð innbyrðis milli leigjenda vegna misræmis á leigu sambærilegra íbúða sem hafði skapast vegna hækkunar á fast- eignamarkaði. Þetta var mikið réttlætismál og hafa önnur nærliggjandi sveitarfélög farið svip- aðar leiðir varðandi útreikning á leigu. 3. Leiga hækkaði nýverið um 12% eingöngu vegna hækkunar á vöxtum lána til félagslegra íbúða úr 1% í 3,5%. Athugasemd frá Félagsbústöðum hf. vegna greinar Ástu Möller Eftir Sigurð Kr. Friðriksson Höfundur er framkvæmda- stjóri Félagsbústaða hf. ÁRIÐ 1971 hafði Viðreisnarstjórnin setið í 12 ár. Hvorugur þáverandi stjórnarflokka hafði á stefnuskrá sinni að beita sér fyrir frek- ari útfærslu fiskveiði- lögsögunnar. Samtök frjálslyndra og vinstri manna tóku afdrátt- arlausa afstöðu með 50 mílna einhliða út- færslu með þeim ár- angri að stjórnin féll og stjórnarand- staðan var tilbúin að taka við með þetta sem höfuðviðfangsefni næstu ríkisstjórnar. (Fjármálastjórn þessarar rík- isstjórnar var í höndum Framsókn- arflokksins.) Sjálfstæðisflokkurinn tók við sér og við næstu kosningar var hann tilbúinn að beita sér fyrir einhliða útfærslu í 200 mílur, sem síðar komst í al- þjóðalög með öflugum atbeina fulltrúa Íslands á hafréttarráðstefnum Sam- einuðu þjóðanna. Öll þjóðin stóð ein- huga að baki þessari stefnu og því er það tvímælalaust að auðlindin, fengin með þessum hætti, er eign þjóð- arinnar, þjóðarinnar allrar, svo sem reyndar leitt hefur verið í lögin um fiskveiðistjórnunina, en ekki ennþá tryggt í stjórnarskrá. Á þessu byggist allt ríkidæmi íslensku þjóðarinnar síð- an. Núverandi stjórnarflokkar hafa unnið að því leynt og ljóst undanfarin ár að fiskurinn í sjónum verði full- komin eign útgerðarmanna, þeirra til að kaupa og selja, leigja, veðsetja og hagnýta að vild. Sá réttur gengur að erfðum og skiptist við hjónaskilnaði eins og hvert annað góss. Til skamms tíma hafa allir stjórn- málaflokkar verið klofnir í afstöðu sinni til stjórnunar fiskveiða og því hefur ekki verið hægt að kjósa um málið, beinlínis í alþingiskosningum. En nú er lag. Frjálslyndi flokkurinn hefur komið málinu á dagskrá og því er nú lag til að kjósa ríkisstjórn, sem er tilbúin til að tryggja að þjóðareignin verði viðurkennd, og horfið að kerfi, sem er í samræmi við óskir hennar. Haft er á orði að stjórnarand- stöðuflokkarnir séu ekki einhuga um útfærslur stefnunnar í fiskveiðistjórn- armálum. Það er tvímælalaust kostur í stöðunni. Þeir munu verða að semja sín á milli um einstaka þætti stefn- unnar og þegar þeir hafa komist að samkomulagi er sjálfboðið að þing- nefnd mun ferðast um landið með drög að lögum í farteskinu og ræða þau á fundum í hverju einasta byggð- arlagi sem á hagsmuna að gæta, hlusta á óskir og viðvaranir og móta stefnuna í samráði við landsmenn í eins mikilli sátt og hægt er að ná. Þannig ber líka að standa að mótun löggjafar um mál, sem snerta lífshags- muni okkar allra. Núverandi forrétt- indakerfi tók 20 ár að móta. Ekki er óeðlilegt að það taki einhver ár að snúa þróuninni við og koma auðlind- inni aftur í ótvíræða þjóðareign. Allir stjórnarandstöðuflokkarnir hafa líka lýst því yfir að þeir muni vinna að þessu máli af alúð og varfærni og forð- ast allar kollsteypur við kerfisbreyt- ingu. Hræðsluáróðurinn um að út- gerðin muni öll fara á hausinn ef hún missir veðsetningarheimildir á þjóð- areigninni og bankarnir verði að láta sér lynda að taka veð í skipum og fast- eignum eins og áður er því marklaus. Fyrir kosningarnar 1995 sagði Dav- íð Oddsson á kosningafundi á Húsa- vík: „Kvótakerfi er eitur í beinum okk- ar sjálfstæðismanna.“ Undir þessi orð hef ég tekið heilshugar. Á fundi í Vest- mannaeyjum nýlega lýsti hann því yfir að við mættum ekki vera „klossföst í öllum atriðum kvótakerfisins. For- kaupsréttur byggðarlaganna hefur verið dauður bókstafur“. Og hvernig ætlaði hann að laga þetta: „Það kemur til álita að velta því fyrir sér, hvort ekki megi gera ákvæðið um forkaups- rétt virkara.“ Morgunblaðið hefur bás- únað þetta sem mikinn fagn- aðarboðskap. Allir aðrir munu gera sér grein fyrir að „kemur til álita að velta því fyrir sér hvort ekki megi“ er ekki stefna heldur tilraun til þess að lægja óánægjuöldur á einum fundi. Haldi kvótaflokkarnir velli mun ekki annað verða aðhafst en að fullkomna eignarrétt útgerðanna á kvótanum samkvæmt formúlum Hannesar Hólmsteins og Ragnars Árnasonar og afnema þann eignarrétt þjóðarinnar, sem hún í orði kveðnu hefur haft að lögum. Þá mun stutt í það að útgerð- armenn krefjist þess að öllum hömlum verði aflétt af heimild útlendinga til að eignast íslenskar útgerðir að hluta eða öllu leyti í samræmi við alþjóðavæð- inguna og kvótinn fái að ganga kaup- um og sölum á heimsmarkaðsverði. Þegar svo væri komið væri kominn tími til fyrir okkur hin að taka ábend- ingu forsætisráðherrans og flytja bú- ferlum til Mallorka eða Kanarí. Í dag er kannski síðasti séns fyrir okkur að tryggja þjóðinni búseturétt í landinu. Frjálslyndi flokkurinn er nú í þeim sporum sem Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru 1971. Smáflokk- ur, sem getur riðið baggamuninn um hvort auðlindir hafsins verði okkar eign, eða örfárra fjölskyldna til ráð- stöfunar að vild. Síðasti séns? Eftir Ólaf Hannibalsson Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.