Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 63
ÁGÆTI lesandi.
Gleðilegt sumar og bestu þakkir
fyrir samskiptin á liðnum árum og ný-
ir lesendur eru einkar velkomnir í
hópinn. Þótt þessi samskipti séu
reyndar dálítið einhliða veit ég þó að
pistlarnir um Blóm vikunnar eru lesn-
ir, því við sem stýrum penna fáum at-
hugasemdir og ábendingar um það
sem betur mætti fara en
líka klapp á öxlina þegar
við stöndum okkur vel.
Öllum ábendingum, at-
hugasemdum og óskum
um efni er best að koma
á skrifstofu Garðyrkju-
félags Íslands þar sem
eru okkar höfðuðstöðv-
ar ef svo má segja.
Blóm vikunnar er
óvenju seint á ferðinni í
ár, það er að verða sein-
asta blómið til að spíra á
þessu vori. Ég vil kenna
þessu óvenjulega tíðarf-
ari um því ég hef varla
vitað í hvorn fótinn ég
ætti að stíga, gleðjast
yfir góðviðrinu eða
skelfast yfir bakslaginu sem hlyti að
koma.
Mér finnst sem veturinn hafi nán-
ast aðeins verið hálfur mánuður og sá
hálfi mánuður hafi verið í októberlok,
en mér hefur svo sem verið góðlátlega
bent á að ég hafi nú bara gullfiska-
minni, svo verið getur að veturinn hafi
verið aðeins lengri, a.m.k. hafi stöku
frostnætur komið síðan. Ég veit þó
með vissu að það voru fíflar að
springa út í Fljótshlíðinni um miðjan
desember. Fyrstu páskalilju ársins sá
ég 4. janúar, sú hafði sprungið út á
jóladag, þannig að e.t.v. ætti ég frekar
að kalla hana síðustu páskalilju ársins
2002. Venju samkvæmt var fátt um
fína drætti í garðinum mínum í jan-
úar, ég hafði á orði að páskaliljur og
túlipanar í „heita“ beðinu mínu væru
líklega óvenju seint á ferðinni, því oft
hafa þeir stungið upp ekki kollinum
heldur blöðunum í janúar, en síðan
hefur hver blómstrunin rekið aðra.
Töfratréð yndislega, sem er þeim
töfrum gætt að það blómstrar áður en
það laufgast, var orðið þakið fjólu-
bláum blómum í janúarlok og stóð
þannig allan febrúar. Í mars var það
nánast orðið allaufgað, en í venjulegu
tíðarfari byrjar þá að sjást í blóm. Í
febrúar blómstraði vetrargosinn og
snæklukkan fallega, Leucojum vern-
um, var í fullum blóma í marsbyrjun
og stóð venju fremur lengi. Krókus-
arnir eru komnir og farnir fyrir löngu
og páskaliljurnar, sem stundum hafa
aðeins rétt verið byrjaðar að blómstra
þegar sumarpáskar eru, eru eiginlega
heill kapítuli út af fyrir sig. Þær bara
uxu og uxu og viku af mars klippti ég
þær fyrstu í garðinum og setti í vasa
inni í stofu, reyndar ekki fullút-
sprungnar, en samt
með vel þroskuð blóm,
þannig að þær opnuðu
sig með sóma.
En það eru ekki að-
eins laukblómin sem
hafa svarað þessu
ótímabæra kalli vors-
ins. Ég nefndi áðan
töfratréð, dekurplöntu í
garðinum, en „alvöru“
trén hafa líka tekið við
sér. Gráölur, sem er ná-
frændi birkisins og
blómstrar með reklum
eins og það, blómstraði
í mars. Þau blóm hafa
þó að líkindum eyði-
lagst eina frostnóttina
og eru nú þurr og
skorpin. En öspin er farin að
blómstra og jafnvel laufgast verulega.
Það leiðir hugann að páskahretinu
mikla, sem varð 9. apríl 1963. Þá hafði
viðrað líkt og nú, a.m.k. sunnanlands,
verið margra vikna hlýindakafli svo
öspin lét gabbast og sitkagrenið líka.
En eins og hendi væri veifað féll hita-
stigið um allt að 20 gráður á örfáum
klukkustundum og kom hörkufrost.
Þarna féllu flestar aspir og sitkagreni
sunnan- og suðvestanlands, en norð-
an- og austanlands hafði gróður ekki
tekið við sér og slapp því. Skógrækt-
armenn hafa dregið mikinn lærdóm
af þessum atburði og hagað leit sinni
að trjáplöntum sem henta íslenskri
skógrækt með tilliti til þeirra miklu
veðurfarssveiflna sem hér geta orðið.
Í hretinu mikla fyrir réttum 40 ár-
um urðu ekki gróðurskemmdir norð-
an- og austanlands, enda trjágróður
ekki kviknaður. Nú stendur lerk-
iskógurinn í Eyjafirði í ljósgrænum
vorskrúða, en við skulum vona að at-
burðirnir endurtaki sig ekki. Þótt
veðurfræðingar spái vægu frosti á
næstu dögum er ekkert sem bendir til
þeirrar miklu hitasveiflu sem þá varð.
Þessi pistill er skrifaður síðasta
vetrardag og því við hæfi að bjóða
gleðilegt sumar bæði við upphaf og
endi hans.
S.Hj.
Töfratré
Í SUMARBYRJUN
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
nr. 488
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 63
Kringlunni - Smáralind - Laugavegi
LACOSTE
bolir í úrvali
Vantar
þig akstur
á kjördag?
Samfylkingin getur keyrt þig á
kjördag. Kaffi og meðlæti í boði í
kosningamiðstöð Samfylkingarinnar
við Lækjargötu.
Aksturssíminn er:
552 9244 og 820 2941