Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 64

Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 64
MINNINGAR 64 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þegar ég og Siddi fluttum í Bugðutanga 10 bjó Anna Einars- dóttir við hliðina á okk- ur. Hún var oft einmana og leið ekki alltaf vel. Hún missti manninn sinn fyrir nokkrum árum. Þegar ég fór að kynnast Önnu vinkonu minni þá gerðum við margt skemmtilegt. Við töluðum mikið saman, hún fræddi mig mikið um hvað var gert í gamla daga. Við horfðum oft saman á sjón- varpið og ég man hvað það var gott að liggja í fallega sófanum hennar með fallegu púðunum. Stundum spil- uðum við Rússa og tókum 2–3 spil eftir því hvernig við vorum upplagð- ar. Anna fékk stundum hláturkast ef ANNA EINARSDÓTTIR ✝ Anna Einars-dóttir fæddist á Sellátranesi í Rauða- sandshreppi 2. sept- ember 1927. Hún lést á líknardeild Land- spítalans, Landakoti, 25. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ 2. maí. ég var að þusa eða stríddi henni mikið, það var sko gantast mikið. Stundum var Anna út í garði að tína rusl eða fallin laufblöð. Í október heimsótti ég Önnu mína, hún var búin að vera í allsherjar rannsóknum og þá kom í ljós að Anna væri með krabbamein sem herj- aði mjög fljótt á hana. Hún var lögð inn á Landakotsspítala í febrúarlok og barðist við þetta þangað til hún dó. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við að Anna sé farin í burtu frá mér. Við Siddi vottum öllum ættingjum hennar samúð. Ég þakka þér, Anna mín, hversu góð þú varst mér og allar þær góðu stundir sem að við áttum saman. Guð geymi þig, elsku Anna mín, og ég veit að þú ert fegin að vera komin upp til guðs til mannsins þíns sem hefur beðið eftir þér. Þín vinkona Helga Pálína. ✝ Pálína Pálsdóttirfæddist á Selja- landi í Fljótshverfi í Vestur-Skaftafells- sýslu 1. nóvember 1919. Hún lést á dval- arheimilinu Hjalla- túni í Vík 2. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Málfríð- ur Þórarinsdóttir, f. 1877, d. 1946, og Páll Bjarnason, f. 1875, d. 1922. Pálína var yngst af 15 systkin- um og eru nú 4 á lífi. Pálína giftist 21. júlí 1943 Matthíasi Eggert Odds- syni frá Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, d. 27.6. 1981. Börn Pál- ínu og Eggerts eru: Málfríður, f. 10.10. 1943, maki Högni Klemens- son, þau eiga tvö börn og eru bú- sett í Vík. Sigurjóna Svanhildur, f. 1.2. 1945, hún á tvær dætur og er búsett í Reykjavík. Halldór, f. 23.7. 1946, maki Anna Friðjóns- dóttir, hún á einn son, þau eru bú- sett í Vík. Þórarinn, f. 23.7. 1946, maki Kristín Jónsdóttir, þau eiga fjögur börn og eru búsett í Hraun- gerði í Álftaveri. Þórhalla, f. 29.1. 1948, maki Hörður Mar, þau eiga þrjú börn og eru búsett í Reykja- vík. Oddur, f. 12.10. 1949, d. 24.7. 1994, maki Ágústa Sigurðardóttir, þau eiga tvær dætur og voru búsett á Kirkju- bæjarklaustri, Ágústa býr í Reykja- vík. Páll, f. 5.4. 1951, maki Margrét Harð- ardóttir, þau eiga tvö börn og eru bú- sett á Mýrum í Álfta- veri. Hafdís, f. 19.9. 1953, maki Sveinn Þorsteinsson, þau eiga fjögur börn og eru búsett í Vík. Gottsveinn, f. 21.5. 1955, maki Svana Sigurjónsdóttir, þau eru búsett í Holti í Álftaveri og eiga þrjú börn. Jón, f. 21.11. 1956, búsettur í Vestmannaeyjum. Barnabörnin eru 23, barnabarna- börn 17, og barnabarnabarnabarn eitt. Pálína flutti frá Seljalandi 1942 að Hraungerði í Álftaveri og ger- ist þar húsmóðir og bóndi til árs- ins 1986 er hún flutti til Víkur. Þar starfaði hún á saumastofu til ársins 1992, er hún lét af störfum sökum aldurs. Útför Pálínu verður gerð frá Þykkvabæjarklausturskirkju í Álftaveri í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma. Nú ertu farinn á feðranna fund við hugsum til þín með sorg í hjarta, þín verður saknað um ókomna stund, guð geymi þig um veröld bjarta. (Höf. ók.) Stundin er runnin upp og guð hefur nú kallað þig til sín. Ósköp munum við sakna þín og allra þeirra stunda sem við áttum með þér. Þegar að þú söngst fyrir okkur um sumarsólina, um hann Gutta litla og öll uppátækin hans. Þú kenndir okkur að meta öll þau gömlu ljóð sem þú lærðir sjálf í æsku. Einnig allar þær gönguferðir sem við fórum með þér um víkina og sveitina og allar þær sögur sem þú gast sagt okkur um hvern stein og hverja jurt og alltaf höfðum við jafn- gaman af þeim. Alltaf munum við minnast ömmu eins og hún var á Suð- urvíkurveginum raulandi lagstúf við eldavélina ýmist að baka pönnukökur eða flatkökur. Guð blessi þig, amma. Ó, blessuð vertu sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðavötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár. Nú fellur heitur haddur þinn á hvíta jökulkinn. (Páll Ólafsson.) Laufey og Matthildur. Elsku amma. Núna þegar þú ert búin að kveðja okkur sitjum við eftir með tár á hvarmi og söknuð í hjarta. Við gerum okkur nú grein fyrir því að við mun- um aldrei framar passa það að borða ekki of mikið í hádeginu af því að við erum að fara að heimsækja þig eftir kaffi. Við munum ekki fá litríkar lopa- peysur með glænýju munstri í jóla- gjöf oftar. Við vitum að við munum aldrei framar líta glettna brosið þitt augum á mannamótum. En við vitum það líka að þú verður aldrei langt und- an þegar við þurfum á þér að halda, jafnvel þó við sjáum þig ekki lengur. Elsku langamma, þú hefur gefið okkur svo mikið af góðum minning- um. Þær getur enginn tekið frá okk- ur. Þær eru ómetanlegur fjársjóður sem við munum ylja okkur við um ókomna tíð. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Ása, Guðni, Fríða, og Ástþór. PÁLÍNA PÁLSDÓTTIR ✝ Anna Tómasdótt-ir fæddist í Vest- mannaeyjum 28. apríl 1931. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vest- mannaeyja mánu- daginn 5. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Tóm- as Sveinsson frá Sel- koti undir Eyja- fjöllum, f. 14. ágúst 1903, d. 20. apríl 1988, og Líney Guð- mundsdóttir frá Hvammskoti á Skaga- strönd í Vestur-Húna- vatnssýslu, f. 23. des. 1901, d. 7. febrúar 1997. Bræður Önnu voru Guðmar, f. 6. apríl 1933, d. 27. júlí 1967, og Sveinn, f. 24. nóvember 1934, d. 25. mars 2001. Anna giftist 8. nóvember 1952 Símoni Kristjánssyni, f. 2. sept 1926, d. 7. október 1997. Foreldrar hans voru Kristján Egilsson á Stað og Sigurbjörg Sigurðardóttir, sem bæði voru ættuð úr Rangárvalla- sýslu. Dætur Önnu og Símonar eru: Helga, f. 13. maí 1962, gift Halldóri Guðbjörnssyni, börn þeirra eru Símon og Jóhann, f. 19. janúar 1980, og Anna, f. 28. janúar 1983; og Lí- ney, f. 1. maí 1966, í sambúð með Frið- þjófi Árnasyni, börn þeirra eru Ívar og Freyja, f. 11. janúar 2000. Anna og Símon bjuggu í Vestmanna- eyjum alla tíð, fyrst á Stað og síðan á Túngötu 23. Anna starfaði sem ung kona á Landsímanum, síðar með húsmóðurstörfunum á Bóka- safni Vestmannaeyja og í Þurrk- húsinu hjá Símoni. Anna söng til margra ára með Kirkjukór Landa- kirkju. Útför Önnu verður gerð frá Landakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 16. Áralangri baráttu við óvæginn sjúkdóm er lokið, en ekki fyrr en í fulla hnefana. Hún Anna Tomm, vinkona okkar allra, kvaddi þennan heim snemma á vormorgni 5. maí sl. Fyrir u.þ.b. 36 árum þegar við fluttum hingað í Túngötuna í næsta hús við Önnu og Símon var allt fólkið í götunni á aldrinum 30–40 ára með fullt af börnum. Mér finnst eins og alltaf hafi verið sól og blíða. Fólk var að dytta að hús- um sínum og verið var að skipu- leggja garða, gatan var ómalbikuð og allir fóru úr skónum til að ata ekki út fínu teppin, sem mjög ruddu sér til rúms þessi árin. Flestar húsmæður voru heimavinn- andi og kallað var í börnin að koma inn að drekka klukkan þrjú. Það var bakað á fimmtudögum og skúr- að út á föstudögum, konur klædd- ust hagkaupssloppum, með strauj- aðar svuntur og rúllur í hárinu. Oft var hlaupið á milli húsa í kaffisopa og ófáar voru afmælis- og ferming- arveislurnar sem við buðum hvert öðru í, nágrannarnir í götunni. Anna og Símon voru einstaklega samhent hjón, reglusemin var ein- stök, hver hlutur á sínum stað og staður fyrir hvern hlut. Á vorin voru stórhreingerningar og síðan var garðurinn og húsið tekið í gegn, enda fengu þau verðlaun fyr- ir garðinn sinn og ófáir ferðamenn stöldruðu við og mynduðu hann og ræddu við húsráðendur og var oft boðið inn í kaffi. Í þessu fallega umhverfi ólu þau upp dætur sínar tvær, Helgu og Líneyju, sem veittu þeim ómælda gleði í gegnum tíðina. Helga er húsmóðir í Vestmanna- eyjum, gift Halldóri Guðbjörnssyni og eiga þau tvíburasynina Símon og Jóhann og dótturina Önnu, sem öll eru uppkomin. Líney er meina- tæknir í Reykjavík, í sambúð með Friðþjófi Árnasyni og eiga þau tví- burana Freyju og Ívar, þriggja ára. Öll voru börnin stolt og gleði- gjafar afa síns og ömmu. Anna var mikil hannyrðakona, saumaði mikið út og heklaði og hún átti sko aldrei neitt óklárað, sem hent var undir stól eins og sumar okkar hinna, nei þar var gengið frá öllu og sett upp eftir því sem við átti. Þá hafði hún mikla unun af lestri góðra bóka, einkum ljóðabóka, og var það sama sagan, farið var mjúkum höndum um þær og þeim raðað fallega upp í bókahillur. Oftar en ekki lærði hún ljóðin utanbókar og skrifaði þau í minnisbækur. Nokkur síðustu starfsárin vann hún á Bókasafni Vestmannaeyja og naut sín þar einkar vel innan um gott sam- starfsfólk og allar bækurnar. Á yngri árum vann hún á símstöðinni í Vestmannaeyjum og átti þaðan góðar minningar. Við Anna vorum saman bæði í Samkór Vestmannaeyja og þó lengst af í Kór Landakirkju, þar sem hún var meðan heilsan leyfði. Við stóðum yfirleitt hlið við hlið og sungum altrödd. Ég man enn þeg- ar titringurinn var að byrja í hand- leggnum á henni og við báðum Guð þarna á kirkjuloftinu að þetta lag- aðist. Anna og Símon ferðuðust óvenjumikið um ævina. Þau fóru í heimsreisur til Afríku, Taílands, Malasíu og flestra Evrópulanda. Einnig til Grænlands og einu sinni til Bandaríkjanna, þar sem hún fór í heilaaðgerð vegna Parkinsonveik- innar. Þau fóru oft í kirkjukórs- ferðir bæði innanlands og utan og voru góðir og skemmtilegir ferða- félagar. Á þessum ferðum sínum kynntust þau aragrúa af fólki og eignuðust mikið af pennavinum, sem Anna skrifaðist á við, en hún var heilmikil málamanneskja. Það var Önnu og allri fjölskyld- unni mikið áfall, þegar Símon lést 6. okt. l997. Þá var heilsu hennar þannig komið að hún gat ekki leng- ur verið ein og varð því að selja húsið sitt og fluttist að Hraunbúð- um, dvalarheimili aldraðra. Öllum þótti þetta hræðileg örlög, en eins og alltaf var Anna mín fljót að sætta sig við orðinn hlut og eign- aðist strax vini meðal heimilisfólks- ins. Hún var yfirleitt glöð og kát og tilbúin að taka þátt í ýmsum uppá- komum eldri borgara, og alltaf bjó í henni von um betri heilsu. Fyrir u.þ.b. mánuði fór hún í rannsókn til Reykjavíkur, veiktist þar hastar- lega og var flutt heim á sjúkra- húsið í Vestmannaeyjum, þar sem hún lést aðfaranótt 5. maí eins og áður sagði. Henni fylgja þakkir og góðar óskir frá öllum vinum og söngfélögum í Kór Landakirkju, svo og öllum gömlu nágrönnunum í Túngötu og Birkihlíð. Elsku Anna, hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig. Hólmfríður Ólafsdóttir. Fyrir allmörgum árum eftir að ég fór að venja komur mínar til Vestmannaeyja var ég tekinn með í heimsókn upp á Túngötu til Símons og Önnu. Þar sá ég hvernig hægt er að eiga fallegan og vel hirtan garð í Vestmannaeyjum og lærði að það er alls ekki sama hvernig þvottur er hengdur upp á snúrur. Innan dyra var sama smekkvísin og snyrtimennskan og munir sem báru því vitni að þar byggi fólk sem hafði ferðast víða. Því miður urðu kynni okkar Sím- onar allt of stutt og Anna missti bjargið sem studdi hana í veik- indum sem tóku þá þegar verulega á kraftana. Kynni okkar Önnu áttu eftir að vaxa og þar með vinátta sem var mér ómetanleg. Anna trúði og vissi að hún gat miklu meira en nokkur annar trúði. Lífsgleðin var svo mikil, ástin á fegurðinni blasti alls staðar við, hvernig hún valdi munina inn á herbergið sitt á Hraunbúðum, ljóðin sem hún las, einstök frásagnargáfa og hvað hún hélt sér vel til og var glæsileg og falleg kona. Ég þakka fyrir þær nýársnætur sem ég fékk að dansa við og syngja með Önnu Tómasdóttur og ég þakka fyrir að hafa fengið að ganga með henni heim sl. nýárs- nótt. Minningin er falleg og ljúf. Ég votta dætrum Önnu og öllum sem unnu henni samúð mína. Þorsteinn Ólafsson. ANNA TÓMASDÓTTIR Við afi minn vorum sósjalistar. Guðrún frænka mín var líka sósjalisti. Ég velktist ekki í neinum vafa um að Mogginn var okkar erfiðasti mót- herji. Að vísu voru afi og amma dygg- ir áskrifendur að Mogganum og það kom sér svo sem vel að geta rennt yfir Sigmund, Högna hrekkvísa og íþrótt- irnar áður en maður tölti í skólann. Það var öllu alvarlegra mál að taka tíðindum þess efnis að vinur hennar BJÖRN JÓHANNSSON ✝ Björn Jóhanns-son fæddist í Hafnarfirði hinn 20. apríl 1935. Hann lést á heimili sínu í Hafn- arfirði að morgni miðvikudagsins 23. apríl síðastliðins og var útför hans gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 2. maí. Guðrúnar frænku minnar ynni á Moggan- um og hlyti því að vera andstæðingur okkar sósjalistanna. Mín fyrstu viðbrögð voru hræðileg vonbrigði sem lýstu sér einkum í þungum áhyggjum af líðan afa míns. Það var þess vegna af miklu skilningsleysi sem ég skynjaði að afa mínum líkaði ráðahagur frænku minnar vel. Reyndar leið mér sjálf- um strax miklu betur auk þess sem amma mín taldi vízt að maðurinn væri ekki meira íhald en góður krati. Þetta var fyrir löngu og áður en ég hitti manninn. Í eftirtíð minnist ég innkomu Björns Jóhannssonar í fjölskylduna Egilson af einlægri gleði og alltaf hef- ur fylgt því sérstök tilhlökkun að hitta þau hjónin. Óþrjótandi áhugi á líðandi stund óháð mönnum og mál- efnum var einkar gefandi og smitaði jákvæðu hugarfari. Um margt voru Björn og Guðrún samtaka en þó mest um að vera skemmtileg, þótt maður á stundum yrði að þola þeim að vera sjálfur í aðalhlutverki frásagnar af því sem manni fannst nauðaómerki- legt atvik en sem þau af einstöku næmi á mannlega þætti skynjuðu húmorinn í. Og aldrei brást það eftir fundi við Björn að ný sýn fengist á heimsmálin. Við skyndilegt fráfall Björns kem- ur kröpp sveigja á veg lífsins. Þegar minnst varir er fastapunkti yndis- legrar fjölskyldu rykkt í burtu og ólýsanlegur harmur er að henni kveð- inn með sárum söknuði og tómi sem því fylgir. Eftir góð og skemmtileg kynni af Birni Jóhannssyni í bráðum 30 ár, þar sem glettni og leiftrandi húmor fylltu baksvið hans, situr ljúf minning um dreng sem vildi heiminum vel. Þess vegna lít ég á Björn sem einn af okk- ur sósjalistunum, hvernig svo sem aðrir skilgreina það hugtak. Kveðja Þorsteinn Egilson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.