Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 66
MINNINGAR
66 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta minning mín um Ellu ömmu
og Sigga afa í Köldukinn er úr eldhús-
inu, risastór pottur á eldavélinni og
þessi sérstaki ilmur sem kemur þegar
verið er að sjóða rabarbara. En Ella
amma vissi að mér þótti hann bestur
ferskur og geymdi nokkra stilka, bara
handa mér. Einkenndi það hana sem
margar aðrar húsmæður hennar kyn-
slóðar að eiga alltaf með kaffinu,
ásamt áhyggjum yfir því að ég borð-
aði ekki nóg. Hún var blíð kona, ekki
man ég að það hafi nokkurn tímann
verið hastað á mann eða röddin
brýnd, enda var eins og róin sem lá yf-
ir heimilinu smitaði okkur krakkana
líka. Þó var alltaf mikið líf í Köldu-
kinninni. Þegar ég fluttist burt og
seinna svo stofnaði fjölskyldu var allt-
af vel tekið á móti okkur, alltaf fylgd-
ist hún með því sem við vorum að gera
og hrósaði manni fyrir dugnað á þann
hátt að manni hlýnaði að innan. Þann-
ig var Ella amma, lét öllum líða vel.
Ég er guði þakklát fyrir að hafa
fengið að sitja hjá henni síðustu dag-
ana og haft tækifæri til að þakka
henni æskuárin og kveðja hana. Guð
blessi minningu hennar.
Bára Kristín.
Við bræðurnir kveðjum nú ömmu
okkar með söknuði, en jafnframt í
sátt því hún dó södd lífdaga. Henni
var gefinn hár aldur og góð heilsa
fram á síðustu daga hennar og aldrei
brást minnið eða húmorinn og var oft
gaman að tala við hana um liðna tíma,
enda spannaði ævi hennar tímana
tvenna. Hún bjó yfir mikilli hlýju og
alltaf var gott að koma til ömmu og
afa í Köldukinn og nutum við þess að
eiga heimili nálægt þeim og var því
nánast daglegur samgangur. Eitt af
því sem lýsti ömmu best, var að þegar
maður birtist í dyrunum var fyrsta
spurningin sú hvort við værum búnir
að borða. Hún passaði sig alltaf á að
elda fyrir fjóra ef von var á tveimur,
og enginn gat bakað pönnukökur eins
og hún. Þegar hugsað er til baka er af
nógu að taka, ferðirnar uppí Munað-
arnes með ömmu og afa á Grána
gamla, en það kallaði amma Chevr-
olettinn hans afa, eða alla bíltúrana
niðrá bryggju eða útá Álftanes á
sunnudögum.
Amma var nokkurs konar tengilið-
ur fjölskyldunnar, sérstaklega eftir
að afi dó og hún fór minna úr húsi, var
hún alltaf í góðu sambandi við sína
nánustu og hafði einlægan áhuga á
því hvernig okkur gekk. En nú er
þessi ferð á enda og önnur tekin við
og trúum við því að afi hafi tekið vel á
móti henni. Minning þeirra mun lifa.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Sigurður, Fylkir og
Elvar Jónssynir.
ELÍN
JÓNS-
DÓTTIR
✝ Elín Jónsdóttir fæddist á Balaí Gnúpverjahreppi 12. septem-
ber 1909. Hún lést á St. Jósefsspít-
alanum í Hafnarfirði 25. apríl síð-
astliðinn og var útför hennar gerð
frá Víðistaðakirkju 5. maí.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU UNNAR ÁGÚSTSDÓTTUR,
Litla Ósi,
Vestur-Húnavatnssýslu.
Þorvaldur Björnsson,
Már Þorvaldsson, Álfheiður Sigurðardóttir,
Jóhanna Þorvaldsdóttir, Hermann Ólafsson,
Björn Þorvaldsson, Birna Torfadóttir,
Gunnar Þorvaldsson, Gréta Jósefsdóttir,
Ágúst Þorvaldsson, Bergþóra Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KATRÍNAR HULDU TÓMASDÓTTUR
fyrrv. hjúkrunarkonu,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður til heimilis
á Bústaðavegi 109, Reykjavík.
Alúðarþakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fyrir
góða umönnun og hlýju.
Aðstandendur.
Elsku drengurinn minn,
BIRKIR FREYR RAGNARSSON,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju mánu-
daginn 12. maí 2003 kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þóra Katrín Halldórsdóttir.
Frændi minn,
INDRIÐI GUÐMUNDSSON,
Munaðarnesi,
Árneshreppi,
verður jarðsunginn frá Árneskirkju mánu-
daginn 12. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja,
Guðmundur G. Jónsson.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
BALDVIN ÁRNASON,
Miklubraut 68,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 7. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Katrín Árnason og börn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur okkar,
faðir, tengdafaðir, bróðir og afi,
SIGHVATUR JÓHANNSSON,
Litlabæjarvör 13,
Bessastaðahreppi,
verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju þriðju-
daginn 13. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vin-
samlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á Hjartavernd.
Sigríður Tryggvadóttir,
Jóhann Jónasson, Margrét Sigurðardóttir,
Þórarinn, Þórður og Ingvar Sighvatssynir,
tengdadætur, systkini og barnabön.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
SIGURÁSTU ÁSMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Austurbæjar,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, fyrir veitta
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ester Sigurásta Sigurðardóttir.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
HAUKUR CLAUSEN,
tannlæknir,
Blikanesi 5,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriðju-
daginn 13. maí kl. 13.30.
Elín Hrefna Thorarensen,
Ragnheiður Elín Clausen,
Þórunn Erna Clausen.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTRÚN S. JÓNSDÓTTIR,
Suðurgötu 20,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku-
daginn 7. maí.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju miðviku-
daginn 14. maí kl. 14.00.
Egill Þorfinnsson,
Steinunn Egilsdóttir, Viðar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
EYVINDUR ÁSKELSSON,
Laugafelli,
Reykjadal,
varð bráðkvaddur miðvikudaginn 7. maí.
Útförin auglýst síðar.
Guðrún Eyvindsdóttir, Jónas Baldursson,
Arna Guðný Jónasdóttir,
Heiða Dögg Jónasdóttir,
Ævar Geir Jónasson,
Baldur Þór Jónasson
og systkini hins látna.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
VILHELMÍNU S. JÓNSDÓTTUR
og virðingu sýnda minningu hennar.
Áslaug G. Nielsen,
Jónas Gunnlaugsson, Margrét Pétursdóttir,
Hallfríður Gunnlaugsdóttir, Bjarni Þorsteinsson,
Lárus Gunnlaugsson, Halla Gísladóttir,
Jón Gunnlaugsson, Pálína Karlsdóttir
og barnabörn.
AFMÆLIS- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út-
farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Frágangur afmælis-
og minningargreina