Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 71
Leiðsöguskóli Íslands
Menntaskólanum í Kópavogi, v. Digranesveg, 200 Kópavogur.
Sími 594 4025, netfang: lsk@ismennt.is.
X Leiðsögunám
Nám og kennsla
Innritun og inntökuskilyrði
Umsóknir
Leiðsögunám hefst í byrjun september og spannar tvær annir,
kjarna og kjörsvið. Kennsla fer fram mánudaga - miðvikudaga, frá
kl. 17:30 - um 22:00. Námið er fjölbreytt og miðar að því að búa
nemendur undir það að fara með erlenda ferðamenn um Ísland.
Áhersla er lögð á námsgreinar sem fjalla um náttúru, sögu og
menningu landsins. Vettvangs- og æfingaferðir eru þýðingarmikill
þáttur í náminu og lýkur því með hringferð um landið.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf, 21 árs aldur
og gott vald á einu erlendu tungumáli.
Inntökupróf á kjörmáli fara fram að lokinni innritun.
Skráning er hafin og stendur til 16. maí.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans
eða á heimasíðunni http://mk.ismennt.is/leidny/lsk.htm
Námið er viðurkennt af Félagi leiðsögumanna
alltaf á þriðjudögumHEIMILI/FASTEIGNIR
Vornámskeið Greiningarstöðvar.
Árlegt vornámskeið Greining-
arstöðvar, ætlað fagfólki sem vinnur
með börnum með þroskafrávik og
fatlanir, verður haldið í Háskólabíói
15. og 16 maí. Að þessu sinni er efnið
samvinna og samskipti. Á námskeið-
inu verða haldin 16 erindi af jafn-
mörgum fyrirlesurum. Meðal annars
verður fjallað um mögulega stétta-
múra á milli stofnana og fagstétta.
Einnig verður fjallað um gildi tilfinn-
ingagreindar, samskipti á vinnustað,
líðan starfsmanna og leiðir til að bæta
þau. Dagskrá og nánari upplýsingar
er að finna á www. greining.is.
Fyrirlestur í tölvunarfræði. Daniel
Moody, research fellow við School of
Business Systems, Monash Univers-
ity, Ástralíu, heldur fyrirlestur á veg-
um tölvunarfræðiskorar, Háskóla Ís-
lands, mánudaginn 12. maí kl. 10 í
stofu V-257 í húsi verkfræði- og raun-
vísindadeildar HÍ, Hjarðarhaga 2–6.
Moody segir í þessum fyrirlestri frá
raungreiningu á táknfræðilegum
gæðaramma fyrir gæðamat á upplýs-
ingalíkönum. 192 þátttakendur voru
þjálfaðir í hugtökum gæðaramma
sem síðan voru notuð til að meta gæði
einindavenslalíkana.
Vikunámskeið gegn reykingum.
verður haldið 18 til 25 maí nk. í
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Þátttakendur, mest 10, hafa stuðning
hver af öðrum auk þess sem boðið er
upp á dagskrá með fræðslu, um-
ræðum, hreyfingu, útivist og slökun.
Upplýsingar og skráning í Heilsu-
stofnun beidni@hnlfi.is.
Börn og umhverfi. Reykjavík-
urdeild Rauða krossins gengst fyrir
námskeiðinu „Börn og umhverfi“,áð-
ur barnfóstrunámskeið, fyrir nem-
endur fædda 1989, 1990 og 1991.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 14.
maí og stendur í fjögur kvöld. Nám-
skeiðið er haldið í Fákafeni 11, 2. hæð
kl. 18–21. Markmiðið er að nemendur
öðlist aukna þekkingu á börnum og
umhverfi þeirra, einnig verður
kennsla í skyndihjálp. Leiðbeinendur
eru leikskólakennari og hjúkr-
unarfræðingur.
MBA hádegisfundir í Háskólanum
í Reykjavík. Dagana 12.–14. maí
verða haldnir hádegisfundir í Háskól-
anum í Reykjavík þar sem MBA-
útskriftarnemar kynna lokaverkefni
sín og draga af þeim stærri ályktanir
sem geta nýst stjórnendum í íslensk-
um fyrirtækjum. Lykilaðili úr at-
vinnulífinu flytur inngangserindi á
hverjum fundanna. Hádegisfundirnir
verða hver með sínu þema; á mánu-
deginum verður kastljósinu beint að
nýsköpun, á þriðjudeginum velta
menn fyrir sér opinbera geiranum og
þeim áskorunum sem stjórnendur
þar standa frammi fyrir og á mið-
vikudeginum verða bankar og fjár-
mál fyrirtækja til umræðu. Hádeg-
isfundirnir eru öllum opnir.
Fundirnir verða á 3ju hæð Háskólans
í Reykjavík, hefjast kl. 12.05 og lýkur
laust fyrir kl. 13. Léttar veitingar
verða í boði.
Á NÆSTUNNI
Félagsstarf aldraðra í Kópavogi
10 ára. Á morgun, sunnudaginn 11.
maí, eru liðin tíu ár frá því að fé-
lagsstarf aldraðra í Kópavogi hóf
starfsemi í Félagsheimilinu Gjá-
bakka, Fannborg 8, Kópavogi. Í til-
efni þess verður boðið í afmæliskaffi
og er vænst þátttöku allrar fjölskyld-
unnar. Afmælisfagnaðurinn hefst kl.
14, með því að einn fastagesta félags-
heimilisins, Sveinn Gamalíusson, en
hann er 93 ára og hefur verið virkur
þátttakandi frá opnun Gjábakka, sker
fyrstu sneiðina af þriggja fermetra
rjómatertu sem starfsmenn í Gjá-
bakka hafa bakað. Allir eru velkomn-
ir í afmæliskaffið og að skoða vorsýn-
ingu á handunnum nytja- og
skrautmunum eldra fólks í Kópavogi
sem er opin frá kl. 14–18.
Á MORGUN