Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 75

Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 75
EINS og svo margir hafa upplifað á sjálfum sér, hefur ofurvald for- sætisráðherrans gert það að verk- um að þeir veigra sér við að opna munninn af ótta við að verða fyrir ofsóknum af hans hendi eða Sjálf- stæðisflokksins í heild. Hræðslan birtist í fjölmörgum myndum: Nán- ast engir hafa þorað að taka sér mótmælastöður, hvað þá arka, fyrir málstað sem stríðir gegn skoðunum Davíðs Oddssonar. Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur alger- lega látið eiga sig að skrifa pólitísk- ar greinar gegn forsætisráðherran- um, Einar Kárason rithöfundur hefur ekkert stungið niður penna, Guðmundur Andri Thorsson, Jón Kalmann Stefánsson, Elísabet Jök- ulsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og fleiri hafa öll steinþegið eða verið með óráði af einskærum ótta. Lýð- ræðislega kjörið forsætisráð- herraefni Samfylkingarinnar, hefur aldrei þorað að gagnrýna forsætis- ráðherra opinberlega og ef það hef- ur gert það, þá hefur mál þess ávallt verið stutt staðföstum rökum en ekki dylgjum. Sama má segja um Sverri Hermannsson, Ögmund Jónasson, Steingrím J. Sigfússon og aðra stjórnmálamenn. Frétta- blaðið þorir sannarlega aldrei að gagnrýna Davíð Oddsson eða Sjálf- stæðisflokkinn. Gunnar Smári Eg- ilsson, ritstjóri þess, hefur verið píndur til að skrifa hverja lofgrein- ina á fætur annarri um glæsilegan árangur ríkisstjórnarinnar undan- farin ár og Reynir Traustason blaðamaður getur ekki sagt sann- leikann. Fréttamenn hafa margir hverjir sungið halelúja um skatta- lækkanir, einkum þeir á Stöð 2, því ekki vilja þeir uppskera reiði for- sætisráðherrans. Og biskupinn, hann má vart lýsa skoðun sinni, að ekki komi sjálfstæðismaður og lýsi líka sinni. Hvílík frekja! Forseti vor, sameiningartákn þjóðarinnar og fyrirmynd í háttsemi og góðum siðum, má ekkert segja, án þess að einhverjir sjálfskipaðir sjálfstæðis- menn rísi upp á afturlappirnar og setji ofan í við hann. Svo er það líka skelfilegur dónaskapur af forsætis- ráðherranum að voga sér að hafa skoðanir, enda eru fjölmargir snill- ingar fljótir að benda á misræmið sem felst í því og að vera um leið formaður stjórnmálaflokks. Forráðamenn öryrkja og eldri borgara hafa sannarlega verið hræddir, enda ekkert þorað að gagnrýna, eins og dæmin sanna. Það er því ekki að ástæðulausu sem ég er hræddur, ansi hræddur um að lýðræði þessa lands sé ekki virt eða sýnt nægt umburðarlyndi af sjálfskipuðum málsvörum þess. SIGURGEIR ORRI SIGURGEIRSSON, Garðastræti 17, Reykjavík. Ég er hræddur Frá Sigurgeiri Orra Sigurgeirssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 75 Nemendur frá Spartan-skólanum athugið Spartan-flugskólinn býður nú BS.-gráðu í flugtækni- stjórnun (Aviation Technology Management)! Bættu samkeppnisstöðu þína og tekjumöguleika með fullu námi. Í náminu er lögð áhersla á viðskiptastjórnun Tulsa, OK - U.S.A. Licenced by: OBPVS Hafið samb. við Damon Bowling með tölvupósti: dbowling@mail.spartan.edu eða í fax +1-918 831 5234 eða í síma +1 918 836 6886. MIKIL umræða hefur verið í kosn- ingabaráttunni um nauðsyn þess að hækka barnabætur og draga úr tekjutenginu þeirra. Það er ljóst að foreldrar með ung börn þurfa að standa straum af miklum útgjöldum. Þar á meðal þarf að endurnýja flest- ar flíkur barnanna oftar en einu sinni á ári. Barnið vex en brókin ekki. Álögur á barnafatnað og -skó geta numið allt að þriðjungi af útsölu- verði þeirra. Þarna spila saman tollur og virð- isaukaskattur. Ef ríkisvaldið felldi aðeins niður tolla af þessum vöru- flokkum myndu barnafjölskyldur spara geysilega fjármuni. Yfirgnæfandi meirihluti alls barnafatnaðar er framleiddur í Austurlöndum og á því að bera 15% toll á CF-verð, þ.e. innkaupsverð + flutningskostnað. Á flík sem kostar t.d. út úr búð kr. 3.990 er virðisaukaskattur kr. 785 og tollur sem innflytjandi greiðir u.þ.b kr. 200. En þar sem tollur kemur í álagningargrundvöll vörunnar hækkar verð vörunnar hlutfallslega. Með því að fella niður tollinn, sem er tiltölulega ódýr aðgerð fyrir rík- isvaldið, gæti verð út úr búð á þess- ari sömu vöru með sama háa virð- isaukaskattinum verið kr. 3.490. Ef að virðisaukaskattur af barna- fatnaði yrði breytt í 14% eins og um hefur verið rætt en tolli haldið óbreyttum yrði verð á þessari flík kr. 3650. „Tap“ ríkissjóðs af slíkri aðgerð væri kr. 340 en einungis kr. 200 ef tollaleiðin yrði valin. Ef tollar yrðu felldir niður og virðisaukaskattur á barnafatnaði og skóm ákveðin 14% yrði verð á flík þessari kr. 2.990. Án tolls og virðisaukaskatts yrði verð á flíkinni kr. 2.690 eða 1.300 kr. lægra en upphaflega verðið kr. 3.990. Ef gert er ráð fyrir að 75% inn- flutnings landsmanna á þessum vöruflokkum beri 15% tolla er ljóst að þessi „tollaleið“ myndi verða ís- lenskum barnafjölskyldum til mik- illa hagsbóta. Þetta myndi einnig jafna sam- keppnisstöðu íslenskrar verslunar með barnafatnað við önnur lönd. Á Bretlandseyjum er enginn tollur né virðisaukaskattur á barnafatnaði og sama má segja að mestu um Banda- ríkin. Þetta myndi leiða til þess að vand- aðri fatnaður yrði frekar fyrir valinu með tilheyrandi sparnaði vegna auk- innar endingar. Einnig myndi draga úr kaupum fólks á barnafatnaði erlendis og aukning yrði á sölu fatnaðarins á Ís- landi, sem myndi eflaust bæta rík- issjóði „tjónið“. Það græða allir á því að aðlaga þessi gjöld, barnafjölskyldur, ís- lensk verslun og ríkissjóður. Helgi Vilhjálmsson, kenndur við Góu, hittir naglann á höfuðið í viðtali í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 16. apríl um vöxt sælgætisiðnaðar- ins: „Markaðurinn vex eðlilega með auknum fólksfjölda þannig að segja má að afkoma sælgætisfyrirtækj- anna fari eftir því hvað þið ungu mennirnir eruð duglegir að barna. Ég var einmitt að ræða við fjóra unga menn um daginn og spurði þá hvað þeir ættu mörg börn. Þeir voru allir um þrítugt en áttu samt ekki nema hálft barn á mann. Ég sagði við þá „þið eruð slappir“, afi minn átti nefnilega 19 stykki. Þessir menn voru að tala um væntingar um hag- vöxt í þjóðfélaginu og ég sagði nú bara við þá, að ef þeir vildu gera þessar væntingar enn betri ættu þeir að standa sig betur um helgar“! Ætli það þetta sé ekki kjarni málsins – barnabótakerfið á að virka hvetjandi til barneigna og álögum á barnafatnað og aðrar barnavörur verður að halda í algeru lágmarki. Það er sennilega besta fjárfesting þjóðfélagsins og öruggur grunnur undir hagvöxt til langrar framtíðar. SKÚLI BJÖRNSSON, Sportis, heildverslun, Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík. Tollur af barnafatnaði Frá Skúla Björnssyni: „Álögum á barnafatnað og aðrar barnavörur verður að halda í lágmarki.“ ÉG GET ekki orða bundist yfir nýrri auglýsingu ungra sjálfstæð- ismanna þar sem þeir halda því fram að hægt hefði verið að byggja þrjá spítala og sex háskóla eða að 5.000-kallastaflinn næði næstum 6 km upp í loftið! Ef allur þessi pen- ingur sem fór í að greiða niður rík- isskuldir og áframhaldandi inn- streymi í ríkissjóð í sama dúr gefur tilefni til mikilla skattalækkana, hvernig stendur þá á því að Háskóli Íslands er eins illa staddur fjár- hagslega og raun ber vitni? Hvers vegna er þá ekki hægt að taka svo sem andvirði hálfs háskóla úr þess- um auði okkar og láta í skólann NÚNA. Hvers vegna getur heimspeki- deild ekki ráðið prófessor í íslenskri málfræði vegna fjárskorts? Er ekki orðið ansi lágkúruleg menningin hér ef við getum ekki haldið pró- fessorsstöðum í ástkæra ylhýra málinu? Þessi auglýsing er hrein móðgun við fólk sem starfar við mennta- og heilbrigðismál. Það er vitað mál að um 100 hjúkrunarfræðinga vantar í dag til að hægt sé að reka LSH þannig að ekki sé stöðugt verið að nudda í fólki að vinna aukavaktir eða loka plássum eða fella niður hjartaað- gerð vegna þess að sjúklingur varð veikari á gjörgæslunni en æskilegt hefði verið! Við fórum í kynningar- átak í fyrra til að hvetja ungt fólk til að koma í hjúkrunarfræði og 130 nemendur skráðu sig í haust, 86 náðu öllum prófum en eftir mikið þóf var ákveðið að láta 75 fara í gegn. Þannig eru 10 manns sem ekki fengu að halda áfram í janúar vegna fjárskorts! Hvernig gengur það upp að við höfum allan þennan afgang en getum ekki rekið mennta- og heilbrigðiskerfið betur en raun ber vitni?! Hvernig stendur á því að starfsfólk heimahjúkrunar taldi sig ekki geta unnið við heima- hjúkrun ef það missti aksturspen- ingana? Eiga aksturspeningar að vera úrslitaatriði í launakjörum þessa fólks? Við erum vön háum sköttum hér á landi. Ég vil fyrst láta skattinn fara í að mennta fleiri hjúkrunar- fræðinga og skapa þeim góð starfs- skilyrði að námi loknu og síðan má athuga með skattaafsláttinn! HRAFN ÓLI SIGURÐSSON, hjúkrunarfræðingur, Laufásvegi 10, Reykjavík. Menntum fyrst fleiri hjúkrunarfræðinga Frá Hrafni Óla Sigurðsyni: við það að gróðurinn hvarf en ekki öf- ugt. 4. Veist þú að það er talið að 75% landsins hafi verið þakin gróðurhulu við landnám? Í dag eru 75% landsins gróðurlaus. Stutt í algjöra eyðimörk. Er ekki ástæða til að hafa áhyggjur? Ég vildi bara leiðrétta þennan mis- skilning hjá unga manninum. Mér finnst það leiðinlegt þegar fólk eignar mér eitthvað sem ég ekki á, meira að segja nýjan föður. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Melteigi 4, Akranesi. EYJÓLFUR Ingvi Bjarnason skrif- aði grein í blaðið í dag, 8. maí, þar sem hann upplýsti mig um hvaða flokk ég ætti að kjósa. Þakka ég honum kær- lega fyrir það. Þar græddi Samfylk- ingin mitt atkvæði. Ég var í svo mikl- um vafa. Góðar svona atkvæðaveiðar. 1. Mig langar til að benda honum á að ég er Jónsdóttir en ekki Hauks- dóttir. 2. Hvar segi ég að ég vilji útrýma bændum og sauðkindinni? 3. Það var hitastigið sem lækkaði Margrét „Hauksdóttir“ Frá Margréti Jónsdóttur: ÞEIR sem fjalla um skatta hér á landi gera það oftar en ekki litaðir af flokkslínum.Þetta á reyndar við um svo margt í okkar samfélagi. Skattbreytingar sl. áratug: 1. Tekjuskattshlutfall var 32,8% árið 1990 hefur lækkað um 7 pró- sentur í 25,7% að sögn valdhafa. Það vill hins vegar gleymast að þegar staðgreiðsla skatta var tekin upp ár- ið 1988 var staðgreiðsluhlutfallið 35,20% en er nú 38,55%. Hæst fór hlutfallið í 41,94% árið 1996. Stað- greiðsluhlutfallið hækkaði tíu ár í röð eftir að staðgreiðslunni var komið á. Til að bæta gráu ofan á svart var svo 5% „hátekjuskatti“ bætt ofan á skatthlutfallið árið 1994. Þetta átti að vera tímabundinn skattur (en skatt- ar virka ekki þannig) og árið 1999 var hann hækkaður úr 5 í 7% en lækkaði aftur í 5% um síðustu áramót. Menn greiða því hæst 43,55% tekjuskatt nú en greiddu „einungis“ 35,20% árið 1998. 2. Virðisaukaskattur á matvæli var lækkaður árið 1994 úr 24,5% í 14% sem er góð kjarabót fyrir allan al- menning en hefði að sjálfsögðu alveg átt að falla niður til að ná matarverði í líkingu við það sem er hjá ná- grannaþjóðum okkar. Þetta var gert í sambandi við kjarasamninga 1993 3. Aðstöðugjald á fyrirtæki var fellt niður árið 1993 til að létta þeim að ná betri tökum á rekstri en síðan átti það að sjálfsögðu að koma al- menningi til góða þar sem þetta átti að stuðla að lækkun rekstrarkostn- aðar fyrirtækja, en hefur það gerst og hvar sér þess stað? Var ekki há- tekjuskatturinn tekinn upp til að fjármagna aðstöðugjaldið? 4. Tekjuskattur fyrirtækja,s em var 50% árið 1991, hefur verið lækk- aður í 18%. Hvernig kemur það fram í rekstri fyrirtækja? Frá árinu 1995 hafa stjórnvöld fylgt þeirri stefnu að hvetja atvinnulífið til sóknar með því að lækka skatta á fyrirtæki. Þessi stefna hefur skilað mjög góðum ár- angri fyrir bæði fyrirtækin og rík- issjóð. Einstaklingar njóta að sjálf- sögðu góðs af því þegar skattar á fyrirtæki eru lækkaðir enda hefur raunhækkun launa verið allmikil á þessum árum. En hvað með skatta á einstaklinga? Nú greiða landsmenn 24% launa sinna í tekjuskatt (beina skatta) en greiddu 17,4% fyrir ára- tug. Þessi hækkun er að nokkru vegna aukinna útgjalda sveitarfé- laga en útsvarið er sífellt stærri hluti tekjuskattsins (ríkið hefur fært verkefni til sveitarfélaga og því hefur fylgt lækkun á tekjuskatti en hækk- un á móti hjá sveitarfélögum). Nú má segja að komið sé að einstakling- unum að fá hliðstæða hvatningu frá stjórnvöldum með lækkun skatta til að rétta af erfiðan rekstur heimil- anna í landinu. 5. Húsaleigubætur eru nú skatt- frjálsar, en jafnframt tekjutengdar þannig að þeir sem fá bætur eiga á hættu að tryggingabætur skerðist. Þetta er ein hringavitleysan. 6. Persónuafsláttur er að fullu millifæranlegur á milli hjóna og kem- ur þeim til góða sem hafa það góðar tekjur að ein fyrirvinna nægir. Lág- launafólk hefur í fæstum tilvikum gagn af þessu. 7. Skattafrádráttur hefur verið hækkaður vegna viðbótarlífeyris- sparnaðar úr 4% í 8% af launum. Varla getur lægst launaða fólkið not- fært sér það þar sem ekki er afgang- ur af launum til sparnaðar og því er þetta tóm óskhyggja. 8. Eignaskattar hafa verið lækk- aðir um helming úr 1,2% í 0,6%. Þeir sem þurfa að leigja húsnæði hafa ekki gagn af þessari lækkun því ekki kemur fram að húsaleiga hafi lækkað. 9. Sérstakur eignaskattur hefur verið felldur niður. Sama og í gr. 8. Gagnast ekki þeim sem eignalaus- ir eru. 10. Sum sveitarfélög hafa lækkað fasteignaskatt hjá öldruðum og ör- yrkjum og þá kemur það fram sem mismunun fyrir þegnana. Nær væri að hækka persónuafslátt. SVAVAR GUÐNI GUNNARSSON, Borgarhrauni 21, Hveragerði. Skattar á Íslendinga Frá Svavari Guðna Gunnarssyni, kennara: Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.