Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 78
ÍÞRÓTTIR
78 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Sunnudagur:
Úrslit karla, þriðji leikur:
Ásvellir: Haukar - ÍR ............................16.15
Staðan er 1:1.
Fjórði leikur verður í Austurbergi á
þriðjudaginn kl. 20.
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikarkeppni kvenna, úrslit:
Kópavogur: Breiðablik - Valur.............16.30
Deildabikarkeppni karla, úrslit í neðri
deild:
Kópavogur: Breiðablik - Njarðvík............14
Deildabikarkeppni kvenna, neðri deild:
Garður: RKV - FH .....................................11
Sunnudagur:
Deildabikarkeppni kvenna, neðri deild:
Ásvellir: Þróttur/Haukar - Tindastóll ......14
Egilshöll: Fjölnir - HK/Víkingur ..............17
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Fyrsta stigamótið af fjórum sem FH-ingar
standa fyrir í sumar fer fram í dag og á
morgun á Kaplakrikavelli. Keppni hefst kl.
13 í dag og kl. 16 á morgun.
RÓÐUR
Hinn árlegi kappróður Kayakklúbbsins,
sem undanfarin fimm ár hefur verið kennd-
ur við Bessastaði – er nú nefndur Reykja-
víkurbikar, fer fram í dag. Ræst verður út
frá eyðinu við Geldinganes kl. 11 og koma
menn í mark á sama stað rúmlega klukku-
stund síðar.
UM HELGINA
HUGSANLEG vistaskipti varn-
armannsins Helga Vals Daníels-
sonar eru í biðstöðu að sögn
Ámunda Halldórssonar, formanns
knattspyrnudeildar Fylkis. Fylk-
ismenn höfðu gert sér vonir um
að geta fengið Helga Val til liðs
við sig fyrir átökin í efstu deild
karla í knattspyrnu í sumar.
Ætluðu Fylkismenn þá að leysa
Helga undan samningi við enska
2. deildar liðið Peterborough,
sem hann hefur leikið með und-
anfarin ár.
Peterborough hefur átt í fjár-
hagserfiðleikum eins og svo mörg
félög á Englandi en nú virðast
betri tímar vera framundan hjá
félaginu.
Í lok apríl komu nýir eigendur
að Peterborough og kjölfarið var
ákveðið að ekki yrðu seldir leik-
menn frá liðinu að svo komnu
máli, alltént á meðan nýir eig-
endur og knattspyrnustjóri færu
yfir málin.
„Það má segja að mál Helga
Vals sé því biðstöðu og á meðan
svo er verður ekkert af því að
hann komi til okkar,“ sagði
Ámundi í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Félagaskipti Helga
Vals eru í biðstöðu
Heimir sagði við Morgunblaðið aðfyrirfram hefði hann reiknað
með sigri Hauka í einvíginu og hann
væri enn á þeirri
skoðun. „Þeir eru
með sterkara lið í
heildina en það má
alls ekki afskrifa ÍR-
inga. Það kom mér á óvart hve auð-
veldur sigur Hauka var í fyrsta
leiknum, en ÍR-ingar bættu það upp
í leik númer tvö þar sem hungrið hjá
þeim kom í ljós. Að sama skapi
fannst mér eins og Haukarnir kæmu
værukærir í Breiðholtið og létu
grimman varnarleik ÍR-inga trufla
sig. ÍR er með samansafn af ungum
strákum sem gefa sig alla í leikina og
það hefði ekki átt að koma Haukum á
óvart. Það sem þó var gleðilegt að sjá
í leik Hauka þar var hve vel ungu
strákarnir, Andri Stefan og Ásgeir
Örn Hallgrímsson, léku.“
Heimir sagði að eftir þennan sigur
ÍR væri einvígið opið. „Ef Haukarnir
endurvekja viljann og ákveðnina
eiga þeir að hafa betur á sínum
heimavelli og ná 2:1 forystu. Ég trúi
því ekki að þeir láti ÍR-inga vinna í
annað skiptið í röð. Aftur á móti hafa
ÍR-ingar sýnt í vetur að það getur
ekkert lið bókað sigur á móti þeim og
ef þeir halda sama dampi og í
fimmtudagsleiknum eigum við von á
miklu fjöri á Ásvöllum. ÍR hefur leik-
ið vörnina framarlega gegn Haukum
og það hefur gefist vel. Núna ræðst
mikið af því hvernig Haukum gengur
að finna svör við þessum varnarleik,“
sagði Heimir Ríkharðsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Ásgeir Örn Hallgrímsson, skyttan unga í liði Hauka, ræðir málin við dómara í viðureigninni við ÍR á
fimmtudagskvöldið. Ásgeir og félagar fá ÍR í heimsókn á morgun.
HAUKAR og ÍR mætast á morgun
í þriðja úrslitaleik sínum um Ís-
landsmeistaratitil karla í hand-
knattleik. Eftir öruggan sigur
Hauka í fyrsta leiknum hleyptu
ÍR-ingar spennu í einvígið með
góðum sigri á sínum heimavelli í
fyrrakvöld og staðan er jöfn, 1:1.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari
Fram, á von á því að Haukar verði
sterkari á heimavelli á morgun
og nái forystunni á nýjan leik.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Aldrei hægt
að bóka sigur
gegn ÍR
ÞÓRÐUR Þórðarson, markvörður,
fagnaði endurkomu sinni í
heimabæinn, Akranes, með því að
færa Skagamönnum deildabik-
arinn í gærkvöld. Þórður, sem er
kominn aftur í raðir ÍA eftir nokk-
urra ára útlegð, varði þrjár víta-
spyrnur frá Keflvíkingum í úr-
slitaleiknum á Valbjarnarvelli í
Laugardal. Eina frá Þórarni Krist-
jánssyni á 68. mínútu leiksins og
tvær í vítaspyrnukeppni, frá Adolf
Sveinssyni og Kristjáni H. Jó-
hannssyni. Þórður var haltur,
þurfti tvívegis aðhlynningu í leikn-
um vegna meiðsla, en harkaði af
sér og reyndist liði sínu dýrmætur.
Leikurinn sjálfur endaði 1:1 eftir
framlengingu en Skagamenn sigr-
uðu í vítaspyrnukeppninni, 4:2, og
unnu þar með deildabikarinn í
þriðja skipti í átta ára sögu hans.
„Þessi sigur gefur vonandi góð
fyrirheit fyrir sumarið og hann
eflir sjálfstraustið í okkar hópi.
Við stefndum á að komast alla leið
í þessari keppni sem skiptir stöð-
ugt meira máli, ekki síst þegar að-
stæðurnar eru eins og núna og síð-
ustu fjórir leikirnir fara fram á
grasi. Það er einmitt besti und-
irbúningurinn fyrir Íslandsmótið.
Ég held að bæði lið geti verið
þokkalega sátt við leikinn, sem var
nokkuð kaflaskiptur, og Keflvík-
ingar voru virkilega erfiðir því
þeir eru með vel spilandi og gott
lið,“ sagði Gunnlaugur Jónsson,
fyrirliði ÍA, við Morgunblaðið.
Leikurinn var opinn og fjör-
ugur, mörg færi á báða bóga, en
bæði mörkin komu á fyrstu 13
mínútunum. Pálmi Haraldsson
kom ÍA yfir með skoti í þverslána
og inn af 25 metra færi en Magnús
S. Þorsteinsson braust inn í víta-
teig ÍA og jafnaði með góðu skoti
fimm mínútum síðar.
Þórður varði þrjár víta-
spyrnur Keflvíkinga
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna, lyftir deildabik-
arnum og eignabikar sem fylgir honum eftir sigurinn á Keflvík-
ingum í gærkvöld.
BREIÐABLIK sendir lið í 1. deild-
arkeppni karla í handknattleik
næsta vetur en það var ákveðið á
fundi hjá félaginu í gærkvöld. Kópa-
vogsliðið spilaði í utandeildakeppni
HSÍ í vetur, undir stjórn Brynjars
Freys Stefánssonar, sem væntan-
lega þjálfar það áfram. Þar með er
útlit fyrir að liðum í 1. deild fjölgi úr
14 í 16, svo framarlega sem einhver
þeirra sem voru með í vetur heltast
ekki úr lestinni, þar sem Fylkismenn
hyggja einnig á þátttöku í deildinni.
Breiðablik
sendir lið
KNATTSPYRNA
Deildabikar kvenna
Neðri deild:
Þróttur/Haukar - Fjölnir......................... 3:1
Staðan:
Þróttur/Haukar 4 3 1 0 14:6 10
FH 4 3 0 1 22:9 9
HK/Víkingur 4 2 1 1 8:8 7
RKV 4 2 0 2 7:10 6
Fjölnir 4 1 0 3 9:15 3
Tindastóll 4 0 0 4 7:19 0
Deildabikar karla
Efri deild, úrslitaleikur:
ÍA - Keflavík ............................................. 1:1
Pálmi Haraldsson 8. - Magnús S. Þor-
steinsson 13.
ÍA sigraði 4:2 í vítaspyrnukeppni.
Vináttulandsleikur
Bandaríkin - Mexíkó ................................0:0
69.582.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslitakeppnin, átta liða úrslit:
Austurdeild:
Detroit – Philadelphia.........................104:97
Eftir framlengingu.
Detroit er yfir 2:0.
Vesturdeild:
Dallas – Sacramento .........................132:110
Staðan er jöfn 1.1.
Evrópudeildin
Lokakeppni í Barcelona, undanúrslit:
Siena (Ítalíu) - Treviso (Ítalíu) .............62:65
Barcelona - CSKA Moskva...................76:71
Úrslitaleikur Siena og Barcelona fer
fram á sunnudag og einnig leikurinn um
þriðja sætið.
ÍSHOKKÍ
HM í Finnlandi
Undanúrslit:
Kanada – Tékkland..................................8:4
(1:0, 2:2, 5:2)
Svíþjóð - Slóvakía .....................................4:1
(1:0, 1:1, 2:0).
Kanada og Svíþjóð leika til úrslita eins og
á HM 1997, en þá sigruðu Kanadamenn.
ÚRSLIT