Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 132. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Torgið á
sér turn
Rýnt í ljóðaþýðingar Jóhanns
Hjálmarssonar Lesbók 4
Heiða Jóhannsdóttir sá nýju
Matrix-myndina Fólk 66
Hlutirnir ger-
ast á morgun
Jack Welch messaði yfir ís-
lenskum viðskiptajöfrum 12
Eftirbátur
forverans
uðum þorskafla í umrædd veiðar-
færi. Brottkast þorsks var 3814 tonn
árið 2001, eða 1,8%, og hefur því
minnkað verulega. Enda þótt gögn
um brottkast þorsks á fyrri árum
séu takmörkuð, má þó álykta að
brottkast þorsks árið 2002 hafi verið
með allra minnsta móti miðað við
undanfarin ár.
Tæp 5% af ýsunni í sjóinn aftur
Samanlagt brottkast ýsu var 2315
tonn, eða 4,9% af lönduðum afla.
Brottkast ýsu árið 2001 var 1016
tonn, eða 3%, og hefur aukist tals-
vert. Þessi aukning á aðallega rætur
að rekja til aukins brottkasts í botn-
vörpuveiðum. Brottkastshlutfall ýsu
í dragnótaveiðum er að vísu hátt en
vegur ekki þungt í heildarbrottkasti
vegna lítils afla í dragnót. Brottkast
ýsu í línuveiðum minnkaði á hinn
bóginn mikið.
„Brottkast ýsu árið 2002 er ekki
hátt miðað við ástandið á síðasta
áratug þegar hlutfallið fór oft yfir
BROTTKAST á ýsu hefur aukist á
síðasta ári, en mun minna var þá
hent af þorski en áður. Talið er að
brottkast á þorski hafi á síðasta ári
verið með allra minnsta móti, ríflega
1.800 tonn eða 1% heildaraflans.
Brottkast af ýsu er talið um 2.315
tonn, eða 4,9%. Það er veruleg aukn-
ing frá árinu 2001, en er þó mun
minna en á síðasta áratug. Brottkast
af ufsa og gullkarfa var lítið sem
ekkert á síðasta ári.
Þetta kemur fram í mælingum
Hafrannsóknastofnunar á brott-
kasti fiska. Þessar mælingar voru
fyrst gerðar fyrir árið 2001 og
byggjast á því að mæla lengd fiska
sem landað er úr ákveðnum veiðar-
færum annars vegar og hins vegar
lengd þeirra fiska sem dregnir eru
um borð úr sömu veiðarfærum á
sömu veiðisvæðum.
10% þorsksins hent
Samanlagt brottkast þorsks árið
2002 var 1822 tonn eða 1% af lönd-
10%. Engu að síður er óásættanlegt
að brottkast á ýsu aukist meðan það
minnkar eða er nánast ekkert á öðr-
um tegundum,“ segir í skýrslu stofn-
unarinnar. Sérstakar brottkasts-
mælingar hafa nú staðið yfir í tvö ár
og fara vaxandi. Gagnasöfnun hefur
aukist að umfangi og beinist að æ
fleiri veiðarfærum og fisktegundum.
Minna hent af þorski
Brottkast þorsks og ýsu minnkaði um 800 tonn milli áranna 2001 og 2002
!
"
"
"
#
$%$ &#' ' (
(
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, og Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sendu
í gær frá sér sameiginlega áskorun
um að viðskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna á Írak yrði aflétt sem fyrst.
Yfirlýsingin var afrakstur fundar
þeirra Schröders og Powells í Berlín
og þykir hún vottur um að samskipti
stjórnvalda í Berlín og Washington
kunni að vera að batna.
Powell sagði að sá samstarfsvilji
sem hann hefði orðið áskynja af
hálfu þýzkra stjórnvalda, sem ann-
ars beittu sér mjög gegn hernaðin-
um í Írak, og annarra meðlima ör-
yggisráðs SÞ yki með sér bjartsýni á
að ráðið kæmist fljótt að samkomu-
lagi um að aflétta viðskiptabanninu.
Þýzkir ráðamenn höfðu vonazt til
að Berlínarheimsókn Powells yrði
mikilvægur áfangi að því að bæta
samskipti landanna og jafnvel leggja
grunninn að því að Schröder og
George W. Bush Bandaríkjaforseti
töluðu aftur saman, sem þeir hafa
ekki gert frá því í nóvember. Banda-
ríski utanríkisráðherrann virtist
frekar slá á slíkar vonir; hann sagði
forsetann myndu hafa lítinn tíma til
samræðna við kanzlarann á leiðtoga-
fundi G-8-hóps helztu iðnríkja
heims, sem fram fer í Frakklandi
1.-3. júní nk.
Undir þessum kringumstæðum
fór það fyrir brjóstið á ráðamönnum
í Berlín er fréttist að Bush hefði í
Washington í gær óvænt átt viðræð-
ur við Roland Koch, forsætisráð-
herra Hessen og einn æðsta mann
kristilegra demókrata sem fara fyrir
stjórnarandstöðunni gegn ríkis-
stjórn Schröders kanzlara. Koch er
fyrsti þýzki stjórnmálamaðurinn
sem Bush ræðir persónulega við frá
því Íraksstríðið hófst.
Aftur á móti þykir það annað teikn
um þíðu í samskiptunum, að von er á
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, í opinbera
heimsókn til Þýzkalands 11. júní.
Reuters
Colin Powell og Gerhard Schröder kanslari takast í hendur eftir viðræður sínar í þýsku höfuðborginni í gær.
Schröder styður af-
nám viðskiptabanns
Berlín. AFP.
Fregnir hermdu seint í gærkvöldi
að a.m.k. 20 manns hefðu beðið bana
þegar sjö sprengjur hefðu sprungið í
Casablanca í Marokkó. Sjónarvottar
sögðu að mikið manntjón hefði orðið
í sprengjuárás á samkomuhús félags
gyðinga í borginni. A.m.k. sex aðrar
sprengjur sprungu, m.a. í hverfi
fólks af spænskum uppruna, veit-
ingahúsahverfi og við þrjú hótel.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
kvaðst hafa fengið óstaðfestar upp-
lýsingar um að al-Qaeda-menn hygð-
ust fremja hryðjuverk í ákveðnu
hverfi í borginni Jeddah í Sádi-Arab-
íu á næstunni.
Varað við ferðum
til Austur-Afríku
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur einnig varað Bandaríkjamenn
við því að ferðast til Kenýa nema
nauðsyn beri til og ráðlagt þeim að
endurskoða áform um ferðir til ann-
arra ríkja í Austur-Afríku.
Breska stjórnin ráðlagði í gær
Bretum í Djíbútí, Erítreu, Eþíópíu,
Sómalíu, Tansaníu og Úganda að
vera á varðbergi vegna hættu á
hryðjuverkum. Áður höfðu bresk
stjórnvöld bannað allt farþegaflug
Hryðjuverka-
ógnin eykst
Manntjón í nokkrum sprengjutil-
ræðum í Casablanca í Marokkó
Dubai. AFP.
breskra flugvéla til og frá Kenýa og
varað við hugsanlegum hryðjuverk-
um í landinu. Stjórnin í Kenýa mót-
mælti flugbanninu, sagði það til
marks um „óðagot“ og kvaðst hafa
gert nægar ráðstafanir til að vernda
erlenda borgara.
Stjórnvöld í fleiri löndum, m.a.
Danmörku og Þýskalandi, vöruðu í
gær við ferðum til Kenýa.
Stjórnvöld í Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi ráðlögðu borgurum sínum
að vera á varðbergi í sex löndum í
Suðaustur-Asíu – Malasíu, Taílandi,
Singapúr, Filippseyjum, Austur-
Tímor og Brúnei.
STJÓRNVÖLD í nokkrum löndum vöruðu í gær við því að hryðju-
verk kynnu að vera yfirvofandi í ríkjum í Austur-Afríku, Suðaustur-
Asíu og Mið-Austurlöndum. Óttast er að al-Qaeda, hryðjuverka-
samtök Osama bin Ladens, séu að undirbúa fleiri hryðjuverk í Sádi-
Arabíu eftir þrjú sprengjutilræði á mánudag sem kostuðu 34 lífið.
„ÞESSAR mælingar benda til þess
að talsvert hafi áunnist í því að
stemma stigu við brottkasti á helstu
botnfiskum, að ýsu undanskilinni,“
segir í skýrslu Hafró. „Brottkast
hefur almennt minnkað en er enn
til staðar í ýmsum veiðum og losar
4000 tonn í heild í umræddum veið-
um á helstu botnfiskum. Brottkast
þorsks og ýsu árið 2001 var metið
4.830 tonn. Brottkast á flestum öðr-
um fisktegundum er óþekkt stærð.
Þær niðurstöður sem hér liggja
fyrir ná aðeins til afmarkaðs hluta
brottkastsins, þ.e. þess hluta sem
mælist með þeirri aðferð sem beitt
er. Ekki er unnt að meta hversu
stór þessi hluti er af heildarbrott-
kasti. Niðurstöðurnar ber því að
skoða sem lágmarksmat á brott-
kasti á Íslandsmiðum.“
Talsvert
áunnist PAUL Bremer, yfirmaðurbandaríska hernámsliðsins í
Írak, bannaði í gær öllum hátt
settum félögum í flokki Sadd-
ams Husseins, Baath-flokkn-
um, að gegna opinberum störf-
um í landinu.
Áður hafði Bremer sagt að
Baath-flokkurinn yrði upprætt-
ur með öllu.
Bandarískur embættismað-
ur í Bagdad sagði að bannið
kynni að ná til 15.000-30.000 fé-
laga í Baath-flokknum en bætti
við að líklega myndu tiltölulega
fáir þeirra sækja um þau störf
sem þeir gegndu fyrir stríðið.
Hann viðurkenndi að umsækj-
endur um opinber störf kynnu
að verða ranglega sakaðir um
að hafa verið í Baath-flokknum
og það gæti tekið langan tíma
að rannsaka slíkar ásakanir.
AP
Paul Bremer, nýr yfirmaður
hernámsliðsins í Írak.
Baath-
menn sett-
ir í bann
Bagdad. AFP.