Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, spurði Þórólf Árnason borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld um mikinn hallarekstur félaga í eigu Orkuveitu Reykjavíkur á síðasta ári. Í máli Guðlaugs Þórs kom fram að tekjur félagsins Línu Net voru 300 milljónir, tapið 157 milljónir og gengishagnaðurinn 122 milljónir. Tekjur félagsins Tetra Ísland voru 93 milljónir, tapið 214 milljónir en gengishagnaður 50 milljónir. Tekjur félagsins Rafmagnslína voru 13 milljónir, tapið 10 milljónir og gengishagnaður 5 milljónir. Fé- lagið Feying hafði engar tekjur en í máli Guðlaugs Þórs kom fram að tap félagsins hafi numið sjö milljónum króna. „Þessi hallarekstur Línu Nets-fjölskyldunnar er greiddur með peningum Reykvíkinga með einum eða öðrum hætti. Þetta er það sem orkugjöldin fara meðal annars í,“ sagði hann við Morgunblaðið. Gagnrýndi hallarekst- ur félaga í eigu OR GUÐRÚN Helga Arn- arsdóttir lést aðfara- nótt föstudags á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Guðrún Helga fædd- ist í Reykjavík 15. júlí 1964. Foreldrar henn- ar eru Arnar Jónsson og Þórhildur Þorleifs- dóttir og átti hún fjög- ur systkini. Guðrún Helga giftist 5. júní 1993 Geir Sveinssyni og eiga þau saman börnin Arnar Svein og Ragnheiði Katrínu Rós. Guðrún Helga ólst upp í Reykja- vík og á Akureyri. Eftir að hafa stundað nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð lagði hún stund á nú- tímadans í München í Þýskalandi veturinn ’84–’85 og í The Place – London Contemporary Dance School veturinn ’85–’86. Frá hausti ’86 til ’89 tók hún sér ýmis störf fyrir hendur svo sem leiklistar- og sýningarstörf auk skrifstofustarfa hjá Hafnarskrifstof- unum í Reykjavík. Guðrún Helga starfaði sem flug- freyja hjá Flugleiðum með hléum á árunum 1989 til 1997. Var hún búsett ásamt eiginmanni sínum á Spáni á ár- unum 1990 til 1994 og í Frakklandi frá 1995 til 1997. Frá þeim tíma til ársins 2001 starfaði Guðrún Helga við kvikmynda-, auglýs- inga- og þáttagerð m.a. hjá Ríkisútvarp- inu, Panartica og Hug- sjón. Guðrún Helga nam svæðanudd á árunum 1999–2001 og starfaði sem nuddari til ársins 2003. Hún var ein af þeim sem byggðu upp KRAFT – stuðningsfélag fyrir ungt fólk, sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur. Guð- rún Helga vann mjög óeigingjarnt starf í Krafti frá upphafi. Hún miðl- aði af reynslu sinni til þeirra sem til hennar leituðu, veitti þeim stuðning og ráðgjöf. Hún var formaður markaðs- og kynningarnefndar Krafts og var með símaráðgjöf fyrir félagið. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Guðrúnar Helgu Arnarsdóttur sem stofnaður hefur verið innan KRAFTS, kt. 571199-3009, reikn.nr. 0327-13- 800900. Andlát GUÐRÚN HELGA ARNARSDÓTTIR JACK Welch, fyrrverandi forstjóri bandaríska fyrirtækisins General Electric, og unnusta hans, Suzy Wetlaufer, heimsóttu forsetahjónin á Bessastöðum, Ólaf Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, í gærdag. Welch er mjög vinsæll fyrirles- ari og er einmitt hér á landi í þeim erindagjörðum. Í gær hélt hann fyrirlestur um hugmyndir sínar um rekstur fyrirtækja fyrir fullu húsi á Hótel Nordica. Þá hélt hann einnig fyrirlestur í Háskóla Reykjavíkur fyrir MBA-nema og starfsfólk skólans. Welch kom til landsins á fimmtudag og fór þá í Bláa lónið og snæddi á Humarhús- inu. Þá skoðaði hann hesta í Víði- dal og var að sögn hrifinn. Í gærkvöldi snæddi hann hátíð- arkvöldverð í Perlunni ásamt for- setanum og forsvarsmönnum og helstu viðskiptamönnum Kaup- þings og Baugs en hann er hér staddur í boði þeirra fyrirtækja. Welch og Wetlaufer fara af landi brott í dag. Welch í heimsókn á Bessastöðum Morgunblaðið/Brynjar Gauti SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík féllst í gær á kröfu Símans um lög- bann við því að Og Vodafone notaði vörumerkið „Frelsi“ eitt og sér í tengslum við fjarskiptaþjónustu sína. Og Vodafone hefur ákveðið að bregðast við lögbanninu með því að taka í notkun orðið „Málfrelsi“, fyr- ir fyrirframgreidda farsímaþjón- ustu sína. Félagið segist engu að síður ósammála úrskurði sýslu- manns og hyggst fá lögbanninu hnekkt. Landssíminn segir „Frelsi“ skráð vörumerki fyrir fyrirfram- greidda farsímaþjónustu Símans og ljóst væri að notkun Og Voda- fone hefði brotið í bága við rétt Símans til þess að nota vörumerkið. Segir fyrirtækið að þess hafi verið óskað við Og Vodafone að það hætti notkun á vörumerkinu, en á það hafi ekki verið fallist. Af þeim sök- um var ákveðið að fara fram á lög- bann. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Og Vodafone að fyrirtækið telji „frelsi“ vera algengt orð og eitt mest notaða orð íslenskrar tungu, sem og í öðrum tungumálum. „Ekki verður lagt almennt bann við notk- un þess orðs, ekki einu sinni á ein- stökum sviðum eins og t.d. á sviði fjarskipta. Orðið verður ekki tekið frá fyrir einn aðila og honum veitt- ur einkaréttur til að nota það. Eitt af markmiðum nýrra fjarskiptalaga er að gera fjarskipti frjáls eftir ald- arlanga einokun og ófrelsi í fjar- skiptum. Það kann að reynast erfitt að fjalla um það frelsi, ef Landssími Íslands fær einkarétt á að nota það á þessu sviði.“ Þá kemur fram að Tal, sem ný- verið sameinaðist Íslandssíma og Halló, undir merkjum Og Vodafone hafi boðið upp á fyrirframgreidda símaþjónustu undir merkinu Tal- frelsi. „Almennt gengur þessi þjón- usta undir nafninu Frelsi og nýta tugir þúsunda landsmanna þessa þjónustu. Landssíminn fékk hins vegar nýverið „Frelsi“ skráð sem vörumerki undir flokknum fjar- skiptaþjónusta. Þessu hefur Og Vodafone mótmælt og krafist fyrir dómstólum afskráningar á vöru- merkinu,“ segir í fréttatilkynningu. Síminn segir hins vegar að mörg fyrirtæki noti skráð vörumerki til þess að kynna sína vöru og þjón- ustu. Fyrirtækið hafi ákveðið að nota orðið „Frelsi“ og byggt upp markaðssetningu í kringum það. Því telur Síminn að Og Vodafone hafi með ólögmætum hætti notað orðið og því eðlilegt að þeir finni eigið vörumerki. Og Vodafone má ekki nota „Frelsi“ ANNA Svavarsdóttir fjallgöngukona náði tindi Cho Oyu í Himalayafjöllunum í gærmorgun og varð þar með fyrst íslenskra kvenna til að klífa einn hinna 14 tinda í heiminum yfir 8.000 metra hæð og jafnframt sló hún fjallahæðarmet íslenskra kvenna með uppgöngunni. Hæðarmetið átti hún raunar sjálf þegar hún hækkaði sig á fjallinu í vikunni en gamla metið setti nafna henn- ar Anna Lára Friðriksdóttir 6.768 er hún kleif Husc- aran í Perú árið 1987. Anna Svavarsdóttir náði tindi Cho Oyo klukkan 10 að staðartíma eða um kl. 4 að íslenskum tíma aðfaranótt föstudags, en hún lagði af stað úr 7.700 metra hæð ásamt erlendum félögum sínum og komst vandræða- laust á tindinn. Leiðangursmenn höfðu haft áhyggjur af óhagstæðri veðurspá rétt fyrir lokaatlöguna en þegar til kom rættist úr veðrinu og hópurinn lagði af stað. Feikigott útsýni var af fjallrisanum þegar hópurinn komst upp. Fjallafólkið tók síðan stefnuna niður í 2. búðir í 7.100 metra hæð og var gert ráð fyrir að Anna kæmist í símasamband í dag, laugardag. Félagi hennar tilkynnti sigurinn til Íslands um hádegið í gær úr grunnbúðum, en hann náði tindinum fyrir nokkrum dögum. Anna Svarsdóttir er fjórði Íslendingurinn sem kemst á tind Cho Oyu, en fjallið klifu fyrst Íslendingarnir Björn Ólafsson, Einar Stefánsson og Hallgrímur Magn- ússon árið 1995. Anna Svavarsdóttir er tæplega þrítugur húsasmíða- nemi og hefur áður gengið á Himalayatinda á borð við Island Peak í 6.476 metra hæð og Lobuche East 6.119 metra hæð. Árið 2001 gerði hún tilraun til að klífa há- tindinn Pumori sem er í 7.161 metra hæð, en varð frá að hverfa í 6.500 metra hæð. Anna Svavarsdóttir komst á tind Cho Oyu í gær Fyrst íslenskra kvenna til að klífa tind yfir 8.000 m hæð Anna Svavarsdóttir í hlíðum Pumori 2001. ♦ ♦ ♦ ÁRLEGT landgræðsluflug Land- græðslunnar hefst þriðjudaginn 20. maí ef veður leyfir. Að sögn Guðjóns Magnússonar, sviðsstjóra hjá Land- græðslunni, verður áburði dreift á Reykjanesi og með Suðurstrandar- vegi vestur af Þorlákshöfn. Guðjón segir að um 90 tonnum verði dreift, þar af 24 tonnum sem Áburðarverksmiðjan hefur gefið Landgræðslunni í tilefni af 60 ára af- mæli landgræðsluflugvélarinnar, þristsins Páls Sveinssonar. Gjöfin frá Áburðarverksmiðjunni verður notuð til gróðurstyrkingar innan landgræðslugirðingarinnar við Þor- lákshöfn. Flugfélag Íslands gaf land- græðslunni flugvélina árið 1972 og hefur hún verið notuð til áburðar- dreifingar síðan. Flugmenn í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna hafi flogið Páli Sveinssyni án endurgjalds frá upphafi landgræðsluflugsins. Dreifa 90 tonn- um í sumar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.