Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 20

Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 20
ERLENT 20 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Gunnlaugur Scheving Verið velkomin að skoða verkin í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 - 16, í dag kl. 10.00 - 17.00, og á morgun kl. 12.00 - 17.00. Boðin verða upp um 100 verk, þar á meðal óvenjumörg verk gömlu meistaranna. Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is Rauðarárstíg 14-16 sími 551 0400 LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið annað kvöld kl. 20.00 á Hótel Sögu Súlnasal. TILLÖGUR að nýjum stjórnarskrár- sáttmála fyrir Evrópusambandið (ESB) munu ekki gera það að evr- ópsku sambandsríki – eða „ofur-ríki“ eins og æsifréttapressan í Bretlandi hefur gjarnan talað um. Né heldur munu tillögurnar leiða til þess að beinkjörinn forseti safni stjórnar- taumum ESB í hendur sér. Þetta full- yrti Valery Giscard d’Estaing, forseti svokallaðrar Framtíðarráðstefnu Evrópu, sem er e.k. stjórnlagaþing ESB, en sú samkunda hefur það verk- efni að setja saman drög að stjórn- arskrársáttmála sem leggjast eiga fyrir leiðtogafund sambandsins í Grikklandi 20. júní nk. Í viðtali við brezka útvarpið, BBC, sagði Giscard að sáttmáladrögin myndu hjálpa til við að samhæfa stefnu þjóðríkjanna sem aðild eiga að ESB, án þess þó að ganga á fullveldi þeirra eins og sumir óttist, ekki sízt í Bretlandi. „ESB verður áfram banda- lag sjálfstæðra ríkja; þau munu öll halda áfram að vera til sem slík og hafa sitt valdsvið og mikilvægi,“ sagði Giscard. „En þessi ríki munu deila vissum valdsviðum með sér. Það hefur ekki svo mikið sem verið rætt um sameinað sambandsríki, það hefur enginn lagt slíkt til,“ bætti ráð- stefnuforsetinn við, sem sjálfur er fyrrverandi forseti Frakklands. Fulltrúarnir 105, sem sæti eiga á ráðstefnunni, komu saman í Brussel á fimmtudag til að ræða nokkur hinna u.þ.b. 300 ákvæða sem markmiðið er að verði að finna í nýja sáttmálanum, sem ætlað er að geta þjónað sem stjórnlagalegur grundvöllur ESB á næstu árum, eftir að aðildarríkjunum fjölgar í 25 og síðar fleiri. Öll núver- andi og tilvonandi aðildarríki eiga fulltrúa á ráðstefnunni, auk helztu stofnana ESB. Saka stærri ríkin um að reyna að auka áhrif sín Á fundinum á fimmtudaginn virtist hagsmunatogstreita milli hinna smærri og stærri aðildarríkja sam- bandsins koma betur í ljós. 16 minni ríki úr hópi hinna 25 núverandi og til- vonandi aðildarríkja lögðu fram sam- eiginlega áskorun til Giscards, þar sem þau mótmæla tillögu um stofnun nýs varanlegs ESB-forsetaembættis, sem hugmyndin er að taki við af for- mennskunni í ráðherraráðinu sem nú gengur á hálfs árs fresti milli aðild- arríkjanna. Segjast fulltrúar smærri ríkjanna sjá í tillögunni, ásamt hug- myndum um að veikja framkvæmda- stjórnina og stofna valdamikið „utan- ríkisráðuneyti“ ESB, tilraun fjölmennustu aðildarríkjanna til að tryggja sér meiri áhrif á stjórnun ESB, á kostnað þeirra smærri. Fulltrúar allra Norðurlandanna í ESB, Danmerkur, Svíþjóðar og Finn- lands, voru á meðal ríkjanna 16 sem skrifuðu undir áskorunina. Fulltrúar stærri ríkjanna, svo sem Bretlands, Þýzkalands og Frakk- lands, styðja hugmyndina um varan- legan ESB-forseta, með þeim rökum að verði haldið í hálfsársleg skipti á formennskunni eftir að aðildarríkin verða orðin 25 sé skilvirkni ESB-sam- starfsins stefnt í voða. Hver sem niðurstaðan úr starfi Framtíðarráðstefnunnar verður munu engar ákvarðanir verða teknar um hinn nýja stjórnarskrársáttmála ESB fyrr en á ríkjaráðstefnu, sem væntanlega verður kölluð saman í haust. Má vænta þess að þar muni reyna mjög á hæfni ráðamanna ESB til að komast að málamiðlunum. Giscard verst gagnrýni Smærri ESB-ríki mörg óhress með tillögur að stjórnarskrársáttmála Brussel, Lundúnum. AFP, AP. FORSETI Lýðveldisins Kongó, Jos- eph Kabila, hafði í gær milligöngu um samkomulag fimm stríðandi fylk- inga í Iturihéraði í norðausturhluta landsins um að virða vopnahlé sem samið var um í mars en hefur und- anfarið ítrekað verið rofið. Meðal þeirra sem skrifuðu undir samkomulagið í Dar Es Salam, höf- uðborg Tansaníu, í gær voru fulltrú- ar vopnaðra hópa úr röðum Hema- þjóðflokksins, sem er í minnihluta í Ituri, og Lendu, sem er í meirihluta. Einn þeirra sem skrifuðu undir var Thomas Lubanga, leiðtogi Samtaka föðurlandsvina Kongó, þar sem Hemar eru í forystu. Á mánudaginn tóku samtökin höfuðstað Ituri, Bunia, á sitt vald. Einnig skrifaði undir samkomulagið fulltrúi Þjóð- ernis- og sameiningarfylkingarinn- ar, sem er hópur Lendua er hafa ár- angurslaust reynt að ná Bunia aftur. Óttast fjöldamorð Átök þjóðflokka í Ituri hafa kostað um 50 þúsund mannslíf, að því er tal- ið er, síðan 1999. Flestir íbúar Bunia hafa flúið bæinn, en hjálparstofnanir reyna að sjá þeim sem enn eru þar fyrir vatni og mat, og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa beðið um liðs- auka til að geta styrkt gæslulið sitt í Lýðveldinu. Í gær sendu SÞ nokkra liðsmenn til viðbótar til Bunia. Mannréttindafulltrúi SÞ, Sergio Vieira de Mello, óttast að vígaferlin í Ituri geti orðið að fjöldamorðum á við þau sem framin hafa verið í Rú- anda og Bosníu á undanförnum ára- tug, sagði fulltrúi de Mello í gær. Því hefði hann haft samband við fjölda ríkisstjórna í því skyni að fá þær til að senda gæsluliði SÞ liðsauka. AP Barnungir hermenn vopnaðir AK-47 rifflum skammt frá bækistöð Samein- uðu þjóðanna í Bunia, höfuðborg Iturihéraðs í Lýðveldinu Kongó, í gær. Samkomulag í Lýðveldinu Kongó Dar Es Salam, Genf. AFP. PALESTÍNSKI ráðherrann Saeb Erekat, sem á undan- förnum árum hefur verið einn helsti talsmaður palestínskra ráðamanna, hefur sagt af sér ráðherraembætti. Engin skýr- ing hefur verið gefin á afsögn Erekats en hann var ekki skip- aður í sendinefnd Palestínu- manna sem mun taka þátt í fundi Abbas og Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, í dag, laugardag. Erekat, sem er harður stuðningsmaður Yassers Ara- fats leiðtoga Palestínumanna, hefur verið aðalsamningamað- ur Palestínumanna í viðræðum við Ísraela frá 1992. Arafat hafnaði í gær afsögninni og bað Erekat um að snúa aftur til starfa. Heimildir AFP- fréttastofunnar hermdu að af- sögnin væri til komin sökum ágreinings innan stjórnarinn- ar. Tilteknir ráðamenn vildu ekki að Erekat héldi áfram sem „ráðherra samningamála“ og hefðu neitað að taka þátt í fundum um þau efni sem hann stýrði. Látnir úr HABL YFIRVÖLD í Taívan greindu frá því í gær að þrír til við- bótar hefðu látist af völdum heilkenna alvarlegrar og bráðrar lungnabólgu (HABL). Meðal fórnarlambanna eru tveir læknar sem sinntu HABL-sjúklingum. Samþykkt hefur verið að hiti verði kann- aður hjá öllum farþegum á flugvöllum Asíu. Kínversk yfirvöld hófu að refsa fólki fyrir að brjóta gegn þeim hömlum sem settar hafa verið á vegna HABL. Kona hlaut eins árs fangelsisdóm fyrir að leiða mótmælendur sem unnu skemmdarverk á byggingu sem breytt hafði ver- ið í sóttkví. Að minnsta kosti 605 manns víðs vegar um heiminn hafa látist vegna HABL og ríflega 7.700 sýkst frá því veikinnar varð fyrst vart í suðurhluta Kína í nóv- ember. ESB-kosn- ingar í Slóvakíu SLÓVAKAR gengu að kjör- borðinu í gær og greiddu at- kvæði um aðild að Evrópusam- bandinu (ESB). Kosningunni verður framhaldið í dag, laug- ardag. Búist er við að 80–90% kjósenda reynist hlynnt aðild. Óvissa ríkir hins vegar um kjörsókn. Verði hún innan við 50% verður niðurstaðan ómarktæk. 4,2 milljónir manna eru á kjörskrá og hafa kann- anir gefið til kynna að þátttaka verði lítil. STUTT Erekat hættir BANDARÍKJAMENN telja sig hafa fundið megnið af þeim peningum sem hermt er að fjöl- skylda Saddams Husseins hafi stolið nokkrum klukkustundum áður en stríðið í Írak hófst, að því er fram kom í frétt í Int- ernational Herald Tribune í gær. Haft var eftir bandarískum embættismönnum að pening- arnir, andvirði 950 milljóna dala, eða 69 milljarða króna, hefðu fundist í Írak í vikunni sem leið. Bandarískir herfor- ingjar í Bagdad höfðu áður leitt getum að því að peningarnir hefðu verið fluttir til Sýrlands. Þrír milljarðar dala hafa fundist Bandarísku embættismenn- irnir skýrðu enn fremur frá því að yfirvöld í Líbanon hefðu fall- ist á að frysta 495 milljónir dala, andvirði 36 milljarða króna, sem stjórn Saddams Husseins hefði lagt inn á leyni- lega bankareikninga þar í landi. Þeir sögðu að peningun- um hefði verið stolið frá seðla- banka Íraks og ríkisfyrirtæki. Yfirvöld í Líbanon hafa fallist á að senda peningana aftur til Íraks. Að sögn bandarísku embætt- ismannanna hafa alls þrír millj- arðar dala, andvirði 210 millj- arða króna, af stolnu fé fundist í Írak, meðal annars 900 millj- ónir dollara í reiðufé sem bandarískir hermenn fundu ná- lægt höll í Bagdad í síðasta mánuði. Stolnu peningarn- ir fundust í Írak

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.