Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 27
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 27
Sumarhús í Hrísey
Nýlegt 180 fm einbýlishús (timbur),
eitt það fallegasta, á góðum stað er til sölu.
Tilvalið fyrir einstaklinga eða félagasamtök.
Upplýsingar gefur Birgir í síma 893 1604.
SKÁKVERTÍÐ Skákfélags Akur-
eyrar fer senn að ljúka en eitt af síð-
ustu mótum vertíðar er Coca Cola
hraðskákmótið. Þar bar Guðmundur
Gíslason sigur, hlaut 13 vinninga af
14 mögulegum. Næsta mót er para-
keppni sem verður á sunnudags-
kvöld og hefst kl. 20.00 í Íþróttahöll-
ini. Tefldar verða tíu mínútna skákir.
Uppskeruhátið félagsins verður á
uppstigningardag kl. 20.00 en þar
verða veitt verðlaun fyrir árangur á
mótum félagsins frá áramótum.
Guðmundur
sigraði
Aglow, kristileg samtök kvenna
halda opinn fund í félagsmiðstöðinni
Víðilundi á mánudagskvöld, 19. maí
kl. 22. Miriam Óskarsdóttir flytur
ræðu, söngur, fyrirbænaþjónusta og
kaffihlaðborð.
Á NÆSTUNNI
Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju
lýkur á morgun, sunnudaginn 18.
maí, en hún hefur staðið yfir alla síð-
ustu viku með fjölda viðburða.
Hátíðarmessa verður í Akureyr-
arkirkju kl. 11 á morgun, sunnudag
þar sem sr. Sigurbjörn Einarsson
biskup predikar. Málmblásarakv-
artett leikur, Kór Akureyrarkirkju
syngur og einsöngvarar eru Sól-
björg Björnsdóttir og Sigríður Að-
alsteinsdóttir. Stjórnandi er eyþór
Ingi Jónsson og organisti Björn
Steinar Sólbergsson. Síðasti liður
Kirkjulistaviku er æðruleysismessa
sem verður kl. 20.30 annað kvöld.
Á MORGUN
KVENNAKÓR Hafnarfjarðar held-
ur tónleika í Glerárkirkju í dag,laug-
ardaginn 17. maí, kl. 17.30. Björg Þór-
hallsdóttir sópran kemur fram með
kórnum og Helga Bryndís Magnús-
dóttir píanóleikari. Gestir tónleikanna
verða Karlakór Akureyrar Geysir
undir stjórn Erlu Þórólfsdóttur.
Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarð-
ar er Hrafnhildur Blomsterberg. Í
kórnum, sem stofnaður var árið 1995,
eru 55 konur. Kórinn á að baki ferða-
lög innanlands og utan, m.a. til Ítalíu
og Tékklands. Efnisskrá tónleikanna
verður fjölbreytt, m.a. sígildar kór-
perlur, þjóðlög, negrasálmar og söng-
leikjalög.
Kvennakór
Hafnarfjarðar
Tónleikar í
Glerárkirkju
AÐEINS eitt tilboð barst í fram-
kvæmdir við Sundlaug Akureyrar og
var það nokkuð yfir kostnaðaráætlun.
Blikkrás ehf. bauð 42,8 milljónir
króna í verkið, eða 114% af kostnaðar-
áætlun, sem hljóðaði upp á um 37,6
milljónir króna. Nær öll tilboð sem
opnuð hafa verið á vegum bæjarins að
undanförnu hafa verið yfir kostnaðar-
áætlun og helgast það m.a. af góðri
verkefnastöðu byggingafyrirtækja á
Akureyri. Blikkrás á Akureyri er
fyrst og fremst blikksmiðja og þetta
mun vera í fyrsta skipti sem fyrirtæk-
ið býður í svona verk sem aðalverk-
taki en fyrirtækið hefur undirverk-
taka á sínum snærum. Helstu
framkvæmdir í sundlauginni eru upp-
steypa og frágangur á barnapottum,
frágangur við eldra sundlaugarkar,
barnapotta og vaktturn. Frágangur á
vaktturni, útigeymslu og snyrtingum
og fleira.
Framkvæmdir við
Sundlaug Akureyrar
Aðeins eitt
tilboð barst
VORSÝNING Myndlistaskóla Arnar
Inga verður í Klettagerði 6 á Akur-
eyri á morgun, sunnudaginn 18. maí,
og stendur frá kl. 14 til 18. Sýningin
samanstendur af verkum sem unnin
eru með blandaðri tækni og er um að
ræða úrval verka vetrarins, en um 15
manns eiga myndir á sýningunni.
Vorsýning
KARLAKÓR Dalvíkur heldur vor-
tónleika sína í Dalvíkurkirkju annað
kvöld, sunnudagskvöldið 18. maí, kl.
20.30.
Dagskrá er fjölbreytt að vanda,
m.a.: Syrpa eftir Árna Björnsson,
Svarfaðardalur kæri, nýtt lag eftir
Guðmund Óla Gunnarsson, fimm
vinsæl rússnesk þjóðlög með leik-
rænni tjáningu, Gullvagninn, í út-
setningu Þóris Baldurssonar og tvö
Stuðmannalög.
Davíð Ólafsson bassasöngvari
syngur með kórnum Old man river
og Hraustir menn, einnig flytur
hann Nirfilinn og Ef ég væri ríkur.
Stjórnandi er Guðmundur Óli
Gunnarsson, einsöngvari Davíð
Ólafsson bassi og píanóleikari er
Daníel Þorsteinsson.
Karlakór Dalvíkur
Vortónleikar
LYFJA- og snyrtivörufyrirtækið
PharmArctica var formlega opnað á
Grenivík í gær, en það var Val-
gerður Sverrisdóttir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra sem það gerði.
Hún sagði blað brotið í atvinnusögu
byggðarlagsins í kjölfar þess að fyr-
irtækið hefur þar starfsemi. „Fyr-
irtækið er kærkominn gestur hér í
hreppnum,“ sagði ráðherra. Hún
nefndi að næst þegar atvinnusagan
yrði skrifuð gæti hún borið nafnið
„Krem í krukku“, og vísaði til ný-
legrar bókar Björns Ingólfssonar
um efnið en hún heitir „Bein úr
sjó“. Valgerður kvaðst hafa lagt á
það áherslu í starfi sínu sem ráð-
herra byggðamála að ný atvinnu-
tækifæri yrðu til við hlið hinna
hefðbundnu. Hún sagði að miklu
skipti að sveitarfélagið hefði verið
tilbúið að leggja hinu nýja fyrirtæki
lið með hlutafé. Valgerður sagði það
afar ánægjulegt að nú yrðu fram-
leiddar á Grenivík snyrtivörur sem
seldar yrðu á markaði t.d. í Frakk-
landi.
Fyrirtækið var stofnað í október
á liðnu ári og hefur verið unnið að
því í vetur að koma starfseminni í
gang. Fyrirtækið er til húsa á
Lundsbraut 2, þar sem áður var
slökkvistöð og áhaldahús, en sú
starfsemi var færð í annað húsnæði
við Hafnarbraut. Nú starfa fimm
manns við fyrirtækið en áætlanir
gera ráð fyrir að starfsmenn verði á
bilinu tíu til tuttugu manns þegar
fram líða stundir eða eftir tvö til
þrjú ár. Búist er við að þriðjungur
starfsfólks verði háskólamenntað
fólk.
Bjartsýni á að fyrirtækið vaxi
Torfi Rafn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri PharmArctica, sagð-
ist bjartsýnn á vöxt fyrirtækisins,
baklandið væri gott, m.a. í kjölfar
samninga við Lyfju og fleiri fyr-
irtæki. „Okkur hefur verið afar vel
tekið hér í byggðarlaginu og ég er
viss um að það á sinn þátt í hversu
vel hefur gengið að koma fyrirtæk-
inu upp,“ sagði Torfi Rafn, en mikil
vinna hefði verið innt af hendi til að
svo mætti verða.
Við þetta tækifæri var undirrit-
aður samningur milli PharmArctica
og Lyfju um að fyrrnefnda fyrir-
tækið sjái um framleiðslu á for-
skriftarlyfjum, svonefndum mag-
istrel-lyfjum, og öðrum skyldum
vörum fyrir apótek Lyfju. Pharm-
Arctica sérhæfir sig í framleiðslu á
svokölluðum „blautum“ vörum,
kremum, áburðum, lausnum og
mixtúrum, og fer öll starfsemi fé-
lagsins fram samkvæmt ströngustu
reglum sem gilda um lyfjafram-
leiðslu á evrópska efnahagssvæð-
inu. PharmArctica starfar í nánu
samstarfi við franska félagið Cosm-
alia en hluti af þróunarvinnu á
vörum PharmArctica á sér stað í
Frakklandi. Þá mun félagið setja af
stað eigin vörulínur, þrjár talsins,
Apotheke, Gaia og Olympe, en mun
auk þess framleiða samkvæmt
samningi vörur fyrir önnur fyrir-
tæki. Lyfjaverksmiðjan á Grenivík
er þannig t.d. í samstarfi við Heilsu-
verslun Íslands, Íslensk fjallagrös
og Urtasmiðjuna.
Kostnaður við að koma starfsem-
inni í gagn nemur um 70 milljónum
króna, en Grýtubakkahreppur á ríf-
lega þriðjung hlutafjár, 34%, í
gegnum félag sitt, Sænes. „Þetta er
verulega stór biti, en við þolum
hann,“ sagði Jóhann Ingólfsson.
Aðrir eigendur félagsins eru tveir
lyfjafræðingar, Torfi Rafn Hall-
dórsson, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri, og Jónína Freydís
Jóhannesdóttir sem og Bergþóra
Stefánsdóttir snyrtifræðingur, en
þau búa öll á Akureyri. Guðný
Sverrisdóttir sveitarstjóri sagði það
afar mikilvægt fyrir byggðarlagið
að fyrirtækið hæfi þar starfsemi.
„Þetta er afskaplega spennandi og
skiptir okkur miklu máli hér í sveit-
arfélaginu, hér skapast ný störf, at-
vinnulífið verður fjölbreyttara og
vonandi mun fyrirtækið svo skila
okkur árangri síðar sem við getum
lagt inn í ný sprotafyrirtæki,“ sagði
Guðný. Íbúar sveitarfélagsins fjöl-
menntu í grillveislu sem efnt var til
á þessum tímamótum og voru hinir
ánægðustu með ný atvinnutækifæri
í heimabyggð.
Lyfja- og snyrtivörufyrirtækið PharmArctica hefur starfsemi á Grenivík
Blað brotið í
atvinnusögu
hreppsins
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra ræsir blöndunarvélina fyrir
framleiðslu PharmArctica á Grenivík. Með henni á myndinni eru Jean
Francois, franskur lyfjafræðingur, Jónína Freydís Jóhannesdóttir fram-
leiðslustjóri, Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri, Þórbergur Egilsson, mark-
aðsstjóri Lyfju, og Þórður Stefánsson, oddviti Grýtubakkahrepps.
Áætlað að starfsmenn verði
allt að 20 eftir 2–3 ár
Torfi Rafn Halldórsson, framkvæmdastjóri PharmArctica, og Þórbergur
Egilsson, markaðsstjóri Lyfju, handsala samninginn.
MARGAR nýjar sýningar verða
opnaðar í Safnasafninu – Alþýðu-
listasafni Íslands á Svalbarðsströnd
í Eyjafirði laugardaginn 17. maí kl.
14. Sýndir verða fjölbreytilegir list-
munir eftir heimilisfólk á Sól-
heimum í Grímsnesi, klippimyndir
eftir Einar Árnason á Breiðdalsvík
og Maríu Jónsdóttur á Hvolsvelli,
tálgaðir fuglar og dýr eftir Gunnar
Einarsson á Breiðdalsvík, teikn-
ingar eftir Ásu Ketilsdóttur á
Langadalsströnd, fólk úr tré eftir
Ragnar Hermannsson á Húsavík,
pappírsblóm eftir Atla Viðar Eng-
ilbertsson á Akureyri, glermunir
skreyttir af Heiðbjörtu Lilju Hall-
dórsdóttur á Blönduósi og málverk
eftir Gunnþór Guðmundsson á
Hvammstanga.
Þá eru sýnd bílalíkön, útsaumur
og minjagripir frá ýmsum löndum.
Í bókasafninu eru um 60 nýir titlar.
Við innganginn standa sem endra-
nær styttur eftir Ragnar Bjarna-
son. Brúðusafnið er nokkuð breytt
frá fyrra ári, með nýjum aðföngum.
Í júní verða opnaðar sýningar á
málverkum eftir Sigurð Einarsson í
Hveragerði, trjáköttum í garði eftir
Aðalheiði Eysteinsdóttur á Ak-
ureyri og kynjadýrum eftir nem-
endur í 5. og 6. bekk í Valsárskóla. Í
júlí verður opnuð sýning á krít-
armyndum eftir Daða Guðbjörns-
son í Reykjavík og í ágúst sýning á
teikningum sem fjöldi listamanna
gerði af Ragnari Kjartanssyni
myndhöggvara í Reykjavík, gefnar
af ekkju hans og börnum. Gefin
hefur verið út veglegri sýning-
arskrá en áður og er hluti hennar í
enskri þýðingu.
Safnasafnið er opið alla daga frá
kl. 10–18 en hægt er að panta tíma
fyrir hópa kvölds og morgna, segir
í fréttatilkynningu. Aðgangseyrir
er 400 krónur en upplýsingar eru
veittar í síma 461-4066.
Margar nýj-
ar sýningar í
Safnasafninu
Safnasafnið á Svalbarðsströnd.