Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 30
ÚR VESTURHEIMI
30 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VERSLUNARMIÐSTÖÐIN West
Edmonton Mall í Edmonton, höfuð-
borg Albertafylkis, hefur verið nefnd
„áttunda undur veraldar“ og það fór
vel á því að halda Þjóðræknisþingið
þar 1. til 4. maí, því þetta þing sló öll
önnur þjóðræknisþing út. Í fyrra fór
þing INL fram í Minneapolis í Banda-
ríkjunum og var það í fyrsta sinn sem
þingið var haldið utan Kanada, en það
þótti takast sérstaklega vel og töldu
flestir að ekki yrði gert betur. Walter
Sopher, 1. varaforseti INL og einn
helsti drifkrafturinn í Íslendinga-
félaginu Norðurljósum í Edmonton,
var þó bjartsýnn. „Þingið okkar verð-
ur ekki tilþrifaminna og ég á von á um
300 þátttakendum,“ sagði hann þá við
Morgunblaðið, en Walter öðrum
fremur hefur komið félögum í Norð-
urljósum upp í um 330 manns. „Hvað
sagði ég,“ sagði hann nú, en 222
fulltrúar voru skráðir á þingið og 427
mættu í hátíðarkvöldverð á þriðja
degi þingsins.
Fjölbreytt dagskrá
Boðið var upp á mjög fjölbreytta
dagskrá í Edmonton auk hefðbund-
inna þingstarfa. Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra og Sigrún Magnús-
dóttir, eiginkona hans, voru
heiðursgestir þingsins og flutti Páll
hátíðarræðuna, en Hjálmar W. Hann-
esson, sendiherra Íslands í Kanada,
og Kornelíus Sigmundsson, aðalræð-
ismaður í Winnipeg, voru einnig
ræðumenn á þinginu. Á meðal dag-
skráratriða má nefna að Gail-Einar-
son-McCleery greindi frá störfum
verkefnisnefndarinnar International
Visits Program og tilkynnti að hún
ætlaði að hætta að vera í forsvari
hennar en yrði henni innan handar.
Erla Wankling fjallaði um deildina
Jon Sigurdson og verk hennar frá
stofnun 1916, Harley Jonasson kynnti
Íslendingadagshátíðina í Gimli,
Snorraverkefnið og ferðina „Heim í
átthagana 2004“, Paul Westdal skýrði
frá framtíðarhugmyndum vinnuhóps
INL, Markús Örn Antonsson, forseti
Þjóðræknisfélags Íslendinga, flutti
kveðju félagsins og gerði ýtarlega
grein fyrir störfum þess og framtíð-
arsýn, Viðar Hreinsson fjallaði um
Stephan G. Stephansson, Wincie Jó-
hannsdóttir upplýsti um nýtt net-
verkefni Vesturfarasetursins á Hofs-
ósi, Jón Hermannsson sagði frá
íslenskukennslu fyrir útlendinga í
nýrri þáttagerð, sem Sjónvarpið hef-
ur sýnt að undanförnu, Robert As-
geirsson útskýrði vef INL og ýmsa
notkunarmöguleika, Lillian Vilborg
talaði um vikublaðið Lögberg-Heims-
kringlu, Lorna Tergesen um tímaritið
Icelandic Canadian Magazine, Fred
Woods ræddi um íslensku mormón-
ana í Utah og Michael B. Cummings
fjallaði um vetnisrannsóknir á Íslandi
í stað Hjálmars Árnasonar alþingis-
manns sem komst ekki vegna alþing-
iskosninganna á Íslandi.
Snorraverkefnið
mikilvægt
Kynntar voru bækur um vestur-ís-
lensk málefni, handverk, listaverk
sýnd og fleira. Hjálmar W. Hannes-
son, sendiherra, var skipuleggjendum
innanhandar og vann m.a. að því að
Halla’s Travel, tónlistartríó skipað
Birni Thoroddsen gítarleikara, Agli
Ólafssyni söngvara og Gunnari
Hrafnssyni, kontrabassa, kæmi og
skemmti en auk þess kom sönghóp-
urinn Saga Singers fram og ung-
menni frá Edmonton, sem hafa tekið
þátt í Snorraverkefninu á Íslandi.
Reyndar sveif Snorri yfir vötnum og
kom fram hjá mörgum að Snorra-
verkefnið, bæði á Íslandi og í Kanada,
væri það mikilvægasta í starfseminni
og tengingunni um þessar mundir, en
um er að ræða gagnkvæmar heim-
sóknir ungmenna til Íslands og Kan-
ada auk þess sem verið er að skipu-
leggja svipaða ferð til Íslands í haust
fyrir 35 ára og eldri Kanadamenn af
íslenskum ættum, Snorri +.
Samstaða var yfirskrift hátíðarinn-
ar og fór ekki á milli mála að mikill
samhugur ríkti á meðal manna. Í und-
irbúningsnefnd voru forstjórinn
Jerry Kristjanson, formaður, Gordon
J. Reykdal ræðismaður, og Del
Sveinsson fasteignasali. Connie Clark
sá m.a. um kynningarmálin og Edie
Brewster hélt utan um sérstakt kynn-
ingarrit, en Bob Rennie, formaður
Norðurljósa, og Walter Sopher voru
ábyrgðarmennirnir fyrir hönd félags-
ins. „Það höfðu ekki margir trú á að
okkur tækist að standa við stóru orðin
í fyrra en þetta þing sýnir styrk Norð-
urljósa og í raun styrk allra Íslend-
ingafélaganna í Alberta,“ sagði Walt-
er Sopher.
Björt framtíð
Sigrid Johnson hætti sem forseti
INL eftir þriggja ára starf og var
Paul Westdal í Winnipeg kjörinn í
hennar stað. Walther Sopher er 1.
varaforseti og Harley Jonasson 2.
varaforseti.
„Framtíðin er mjög björt og lofar
góðu,“ sagði Paul Westdal við Morg-
unblaðið og benti á að mikil vinna
hefði verið lögð í framtíðarsýn INL
undanfarna mánuði. Rætt hefði verið
við forsvarsmenn allra félaga til að
finna farveg til framtíðar sem allir
gætu sætt sig við og stefnt væri að
aukinni samvinnu og samstarfi milli
einstaklinga og félaga auk þess sem
unnið yrði að enn frekari samskiptum
við Ísland.
Ýmsar hugmyndir voru viðraðar á
þinginu í Minneapolis í fyrra og m.a.
var rætt um að til greina kæmi að
hafa sérstakt þjóðræknisfélag í
Bandaríkjunum. Paul sagði að niður-
staðan hefði orðið sú að öll félögin í
Norður-Ameríku störfuðu undir ein-
um hatti INL. „Fjöldinn hér sýnir að
INL byggist á sterkum grunni og allt
það sem ríkisstjórn Íslands gerði fyr-
ir okkur árið 2000 hefur skilað sér og
á þessu byggjum við í framtíðinni.“
Næsta þjóðræknisþing verður
haldið á Heclueyju í Manitoba 23. til
25. apríl 2004. Íslendingafélagið Brú-
in í Selkirk sér um undirbúninginn í
samvinnu við félögin í Nýja-Íslandi.
84. ársþing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi haldið í Edmonton í Kanada
Samstaða og
samhugur
Hið árlega þing Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga
í Vesturheimi fór fram í
Edmonton í Kanada fyr-
ir skömmu. Steinþór
Guðbjartsson var á
meðal á fimmta hundrað
gesta og ræddi við
mann og annan.
Sönghópurinn Saga Singers söng, en Calvin Krenbrenk stjórnandi tók þátt í Snorraverkefninu á Íslandi í fyrra.
Walter Sopher og Del Sveinsson hafa haft í nógu að snú-
ast og fengu mikið lof fyrir framtakið og starfið.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
var heiðursgestur Norðurljósa og
flutti hátíðarræðuna.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Paul Westdal, nýkjörinn forseti INL, Sigrid Johnson, fráfarandi forseti, og
Markús Örn Antonsson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga, á þinginu.
Aðalræðismannshjónin í Calgary, Hallgrímur Bene-
diktsson og Guðrún Jörundsdóttir, létu sig ekki vanta.
Gordon Reykdal, aðalræðismaður í Edmonton, færði Jerry Kristjanson
gjöf frá Norðurljósum fyrir frábært starf við undirbúning og skipulagn-
ingu þingsins, en hann fór fyrir fjölda fólks í þeirri vinnu.
steg@mbl.is
NEIL Ófeigur Bardal, aðalræð-
ismaður í Gimli, fékk æðstu við-
urkenningu Þjóðræknisfélagsins á
þinginu í Edmonton.
Viðurkenning fyrir frábær
störf í þágu íslenska samfélags-
ins, The Lawrence Johnson Lif-
etime Achievement Award, var
nú veitt í fyrsta sinn og var Neil
fyrstur til að veita henni móttöku.
Neil er þekktur í íslenska sam-
félaginu í Vesturheimi og hefur
verið óþreytandi í störfum sínum
fyrir menn og málefni undanfarin
ár. Í mörg ár hefur hann komið
að nánast öllum málum sem
snerta íslenska samfélagið í Mani-
toba og er vel að þessari við-
urkenningu kominn.
Ljósmynd/Markant
Neil Ófeigur Bardal og Sigrid Johnson með heiðursviðurkenningu Neils.
Neil Bardal
verðlaunaður
Lawrence Johnson-viðurkenningin veitt í fyrsta sinn