Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 44

Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 44
✝ GuðmundurÁgúst Guðnason var fæddur á Land- spítalanum í Reykja- vík hinn 13. júlí 1973. Hann lést á Egils- stöðum 6. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðni Ing- ólfur Gestsson, f. 5. febrúar 1937, búsett- ur á Fáskrúðsfirði, og Halla Sylvía Svan- bergsdóttir Hjelm, f. 24. apríl 1937, d. 22. septenber 1989. Þau skildu. Guðmundur kemur úr stórum systkinahópi og er elstur hálfbróð- ir hans Ásgeir Svan Vagnson, f. 16. júlí 1955, maki Elínrós Eyfjörð Ei- ríksdóttir og eiga þau þrjú börn, steinsdóttir, eiga þau eitt barn, Ellert. Eybjörg Guðný, f. 19. október 1968, maki Vilhelm Páll Pálsson, þau eiga eitt barn, Láru, fyrir á Eybjörg dæturnar Guðdísi Maríu Jóhannsdóttur og Ragnhildi Sylvíu Óskarsdóttur; Svanberg Hjelm, f. 7. mars 1970, maki Sigíður Þor- valdsdóttir; Guðbjörg Júlía Guðna- dóttir, f. 13. júlí 1973, maki Ólafur Guðjón Reynisson og á hann þrjú börn, Guðrúnu Sigurlín sem á eitt barn, Sunnevu Emblu, Rúnar Sig- urð og Guðjón Ársæl. Fjölskyldan bjó fyrstu æviár Guðmundar í Keflavík en fluttist þaðan 1975 til Seyðisfjarðar þar sem hún bjó í eitt ár en flutti síðan til Fáskrúðsfjarðar. Guðmundur bjó í foreldrahúsum til ársins 1981 en flutti þá til Egilsstaða og bjó þar til æviloka. Guðmundur stundaði vinnu á verndaða vinnustaðnum Stólpa, og um tíma starfaði hann einnig hjá Sundlaug Egilsstaða og Kaup- félagi Héraðsbúa. Útför Guðmundar fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Eirík Guðna, sonur hans er Alexander, Halldór Inga og Birg- ittu Bjargey. Alsystk- ini Guðmundar eru: Aðalsteinn Björgvin, f. 18.júlí 1958, maki Ingibjörg Þórdís Frið- geirsdóttir, þau eiga tvö börn, Aðalstein Ingva og Sylvíu Björk; Jóhanna, f. 26. júní 1960, maki Sigurður Elisson, þau eiga tvö börn, Aðalbjörgu Evu og Arnór Ara; Þórunn Elfa, f. 22. ágúst 1964, maki Kristján Eiríkur Pétursson, þau eiga eitt barn, Kristínu Höllu, fyrir á Þórunn Elfa soninn Guðna Þór Einarsson; Gestur Ellert, f. 18. júlí 1966, maki Svanhvít Guð- Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Nú er hann Gummi, bróðir minn, farinn yfir móðuna miklu eftir skyndilegt fráfall. Gummi minn, þú hlýtur að eiga mikilvægt hlutverk fyrir höndum, hinum megin, þar sem þú varst kall- aður svo skyndilega frá okkur. Það var um miðjan dag í síðustu viku að hringt var í mig og ég beðin um að fara til Akureyrar til að taka á móti þér og vera hjá þér því þú varst mjög veikur. En ég komst aldrei svo langt, því rúmum klukkutíma seinna var aftur hringt og mér sagt að þú hefðir aðeins náð á flugvöllinn og þá gat þitt veika hjarta ekki barist leng- ur. Stórt skarð er nú í okkar systk- inahópi og pabbi hefur misst mikið. Alltaf hafið þið verið miklir félagar og það er margt sem þið hafið brall- að saman í gegnum árin. Yfirleitt þegar þú varst hjá pabba hringduð þið í mig til að spjalla. Það var orðinn árviss viðburður að þú komst til okkar á Sauðárkrók eft- ir að hafa verið í sumarbúðunum á Laugarvatni. Oft þreyttur, en samt gafstu þér nokkra daga með okkur. Við vorum farin að skipuleggja sum- arfríin okkar líka þannig að þú varst með í myndinni. Mér fannst það svo merkilegt hvað börnin mín báru mikla virðingu fyrir þér. Alltaf þegar þú komst fann ég hvað þú hafðir róandi áhrif á þau og náðir til þeirra þótt þau séu á mis- munandi aldursskeiði. Til dæmis voru íþróttir mikið ræddar hjá ykk- ur Guðna og stundum fórstu með honum í körfubolta og á fótboltaleik, en samt varstu ekki alltaf sammála um að halda með liðinu hans og al- veg vonlaust að snúa því. Það voru margir tímarnir sem þú sast með Kristínu og skoðaðir fjöl- skyldumyndir, aftur og aftur. Einnig sunguð þið mikið saman. Á Egilsstöðum áttir þú marga vini og kunningja og varst þekktur í samfélaginu þar. Ég var stolt af því að segja við þá, sem þekktu þig, að ég væri systir Gumma á Egilsstöð- um. Alls staðar var hugsað vel um þig, hvort sem það var á Vonarlandi, sambýlinu eða eftir að þú fluttir á Ranavaðið. Mig langar til að þakka öllu því góða fólki, sem hugsaði um þig og lét þér líða vel á Egilsstöðum, sérstak- lega Tótu, sem var með þér síðustu stundirnar og ég veit að þú vildir vera hjá henni því hún var þér alltaf svo góð, eins konar mamma í þínum augum. En nú ert þú kominn til mömmu okkar og Dísu frænku, sem þú hélst alltaf upp á. Ég kveð þig með söknuði og þakk- læti í hjarta, en það er nóg að hugsa um allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Það kemur manni til að brosa. Elfa systir. Elsku besti Gummi bróðir minn. Allt í einu ert þú farinn burt frá mér og ég get ekki skilið af hverju þú varst tekinn svo snöggt, við sem átt- um eftir að gera svo margt saman. Ég er mjög þakklát fyrir þann tíma sem þú áttir í þessari stuttu jarðvist og mér er heiður að geta sagt það að þú sért tvíburabróðir minn, ég gæti skrifað endalaust um hvað ég sakna þín mikið en ég efast um að ég kæmi því niður á blað sem mér virkilega býr í brjósti. Þú varst alltaf svo glaður og kátur og ef það var einhver sem gat virkilega látið mann brosa þá varst það þú. Þú lýst- ir upp tilveru mína en nú er þetta ljós slökknað. Ég mun alltaf minnast þín með bros á vör, en enginn getur fyllt upp í það skarð sem varð eftir þegar þú kvaddir. Það eru mér ómetanlegar stundir að fá að hafa ykkur pabba hjá okkur á jólunum og allan þann tíma sem við fengum þó að vera saman. Það mun enginn komast nær hjarta mínu en þú og þú átt þar alltaf vísan stað. Ég veit að þú ert við hliðina á mömmu okkar núna, og ef til vill veifar þú okkur með bros á vör. Guð geymi þig og varðveiti þig uns við hittumst á ný. Við munum aldrei gleyma þér. Júlía systir og fjölskylda. Kæri bróðir. Með þessum fátæk- legu orðum langar okkur að kveðja þig hinstu kveðju, þungbær kveðja sem erfitt er að koma koma á blað, því að það er satt sem sagt er að orð fá ekki lýst tilfinningum og trega og það er með miklum söknuði sem að við ritum þessi orð. Það var okkur mikið áfall þegar við fengum hringingu 6. maí sl. og okkur var tjáð að Gummi væri dáinn. Hann Gummi yngsti bróðir minn, hvernig getur lífið verið svona órétt- látt? GUÐMUNDUR ÁGÚST GUÐNASON Gummi, þú varst alltaf svo góður strákur, alltaf svo lífsglaður og létt- ur í lund. Þú hafðir svo afskaplega gaman af léttri stríðni og varst alltaf til í létta kerskni. Til að mynda kvaddir þú alltaf Svönu með þessum orðum „I love you“ bara til að stríða mér og alltaf hlóst þú jafn innilega þegar ég þótt- ist vera sár yfir því að þú ætlaðir að stela konunni frá mér. Þú komst yfirleitt til okkar í nokkra daga á sumri hverju og hafð- ir gaman af og ekki síst höfðum við gaman af því og okkur kom alltaf vel saman. Það þurfti ekki mikið að hafa fyrir þér, þér fannst gott ef það var til nóg að borða og drekka og ekki skemmdi fyrir ef tekin var videóspóla og poppað, þá var nú aldeilis kátt í koti. En nú kemur þú ekki oftar til okk- ar í Borgarfjörðinn. Þessar alltof fáu stundir sem við áttum með þér eru nú minningar einar. Við kveðjum þig með tár á hvarmi og þökkum þér fyrir allt sem þú hef- ur gefið okkur í gegnum tíðina, þú varst alltaf glaður og skemmtilegur og sú mynd af þér er og verður alltaf til staðar í hjarta okkar. Guð blessi þig og varðveiti, elsku Gummi minn. Gestur Ellert og fjölskylda. Ég banka á hurðina á Ranavaði 1. Gardína er dregin til hliðar og pír- eyg augu gægjast út um gluggann, það sést í stutt nefið og ég sé í hönd og stutta putta. Eftir nána athugun á því hver er að koma eru dyrnar opnaðar og húsbóndinn Gummi Guðna segir: „Kom inn, elskan, litla fitubollan mín með stóran rass a ha ha, ég er bara að stríða þér.“ Ég horfi á eftir þér ganga inn í stofu, þú ert lágvaxinn og þéttur og vaggar svo fallega þegar þú gengur og ég sé ekki betur en þú sért sjálfur með stóran rass, a ha ha, bara grín. Þú ert að flýta þér því að Leiðarljós er að byrja í sjónvarpinu og þá er ávallt verkfall hjá okkur. Ég sit og horfi á þig þar sem þú situr í sófanum. And- lit þitt er kringluleitt, hár þitt er stuttklippt og dökkskollitað, augun með glampa, nefið er vel formað, eyrun lítil, hraustlegar freknur á andlitinu og um líkamann, munnur- inn meðalstór en mjúklegur, hakan stutt og hálsinn breiður. Þú lifir þig inn í róman myndarinnar en verður jafnan reiður þegar ósætti ríkir í henni. Þú hringir í pabba þinn og Júlíu systur þína og segir þeim helstu fréttir og jafnframt hve þú elskir þau mikið. Þú biður að heilsa Óla. Síminn hringir, það er pabbi þinn. Ég sé ekki betur en komi glettn- isglampi í augu þín. Þú ferð í verslun á föstudögum og kaupir kók, popp og snakk, þá finnst þér gott að fá ekki vini það kvöldið. Þú og Stebbi vinur þinn sitjið í sófanum og mallið í blöðum, horfið á sjónvarpið og hlustið á útvarpið. Allt í einu kemur Presley-lag eða annað stuðlag og ég sé ykkur spretta fram á gólfið, þrífa til míkrófónsins og/eða annars nærliggjandi tækis, taka ykkur stöðu og syngja dúett af raust. Ég sé þig fyrir mér sitja með penna og blað, horfa á fótbolta í sjónvarpinu, halda með öðru hvoru liðinu og ég með hinu. Oftast nær vann þitt lið, það var eins og þú fynd- ir fyrirfram með hvoru liðinu borg- aði sig að standa. Þú skrifaðir nið- urstöðuna á blaðið og eru ófáir miðarnir til því þeim mátti sjaldnast henda. Ég horfi á eftir þér þar sem þú ert kominn í svörtu sparibuxurnar þín- ar, bláu skyrtuna, svarta leðurjakk- ann og sólgleraugun, jafnvel þótt dimmt sé í lofti, ilmandi af rakspíra, kominn í betri skóna á leiðinni á ball eða út á djammið. Mér finnst þú hafa sett lit á bæinn okkar, Egilsstaði. Minningar streyma fram í hug- ann, margs er að minnast, en þeim verða ekki gerð hér skil. Kvöldið áður en þú kvaddir jarð- vistina sagðir þú okkur Kary vin- konu þinni að þú vildir skipta um nafn, þú vildir ekki lengur heita Gummi heldur vildirðu heita eitt- MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Þórður Elíassonfæddist í Hóls- húsum 8. október 1915. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi 12 maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Elías Árnason, f. 31.12. 1884, d. 25.9. 1966, og Guðrún Þórðar- dóttir, f. 29.8. 1885, d. 9.3. 1969. Systkini Þórðar eru Margrét, f. 1914, Árni, f. 1917, d. 1995, Guð- rún Júlía, f. 1918, Elín, f. 1920, d. 1992, Júlía Svava, f. 1922, Guðrún, f. 1923, d. 1990, Bjarni, f. 1926, d. 1927, Guðlaug, f. 1928, d. 2000. Þórður var ókvæntur og barn- laus. Þórður stundaði ýmis störf á sínum yngri árum, meðal annars sjómennsku og byggingarvinnu. Frá árinu 1950 bjó Þórður með for- eldrum sínum og frá 1965 í félagsbúi með systursyni sín- um Gunnari E. Þórðarsyni og eig- inkonu hans Elísa- betu Zóphóníasdóttur. Útför Þórðar verður gerð frá Gaulverjabæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Okkur systkinin langar að minn- ast hans Tóta. Hann var stór þáttur í lífi okkar, við áttum mömmu, pabba og Tóta. Þetta var iðulega sagt í einni bunu. Það voru fáir eins heppnir og við. Mamma hefur sagt okkur að við sem börn spáðum oft í hvort önnur börn ættu engan Tóta, okk- ur fannst þetta sjálfsagt. Þótt hann hafi ekki verið að bera á borð tilfinningar eða hrós, þá vissi maður að hann átti í okkur hvert bein og hrósaði okkur út á við þegar færi gafst. Hann tók líka þátt í uppeldinu á okkur systkinun- um á sinn hátt, við munum eftir að hann gat hastað á okkur þegar mikið gekk á og líka hlegið að vit- leysunni og látunum í okkur. Við elstu systkinin skriðum oftar en ekki upp í til hans á næturnar og þótt dívaninn sem hann svaf á væri ekki breiður kvartaði hann aldrei undan okkur. Við fengum líka að heyra hjá honum sögu af henni Búkollu, og minnumst við þess hversu spennandi og gaman það var að hlusta á hann segja þá sögu aftur og aftur. Síðan var það líka ógleymanlegt á jólunum þegar hann var búinn að safna gjöfum handa öllum í fjöl- skyldunni á bak við hurð í herberg- inu sínu. Og við gátum ekki beðið eftir því að hann stæði upp eftir jólamatinn, sem engan enda ætlaði að taka, og gengi inn í herbergi og kallaði á okkur. Og þótt gjafirnar kæmu óinnpakkaðar úr pokunum, skipti það engu máli, þetta átti að vera svona. Þótt Tóti hafi aldrei átt börn var hann margfaldur afi. Börnin okkar kölluðu hann afa áð- ur en þau höfðu vit á því að kalla hann Tóta, og ég held að honum hafi þótt vænt um það. Og honum hefur líka þótt gaman að fá okkur í heimsókn þótt lítið væri um róleg- heit þegar stórfjölskyldan var sam- an komin. Við munum sakna hans og það er skrýtið eftir að hann flutti á Ljós- heima, að hann sé ekki inni í her- berginu sínu og heyra ekki ískrið í stólnum, eða heyra útvarpið glymja inni í herberginu hans. Þótt erfitt sé að kveðja hann Tóta þá getum við glaðst yfir því að hafa haft hann í lífi okkar og orðið ríkari í staðinn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Blessuð sé minning hans. Systkinin í Hólshúsum. Þegar ég frétti að Þórður Elías- son, eða bara Tóti í Hólshúsum, minn gamli góði húsbóndi væri fall- inn frá, komu gamlar minningar streymandi í hug minn frá ung- lingsárum í Flóanum. Ég sem var fæddur og uppalinn í Bæjar- hreppnum eins og Tóti, var vetr- armaður hjá honum tvo fyrstu vet- urna eftir að ég fermdist. Það fór vel um mig hjá Tóta og Guðrúnu móður hans, þeirri öðlingsman- neskju, sem ekkert mátti aumt sjá og sífellt gat hlegið og gert að gamni sínu þrátt fyrir bágt heilsu- far. Tóti erfði hið góða lundarfar móður sinnar. Glaðlyndi hans var viðbrugðið. Mér er sem ég heyri enn hlátursrokurnar sem Tóti gat rekið upp þegar okkur tókst að snúa á keppinautana í spilum í bað- stofunni í Hólshúsum. Tóti sneri betri hliðinni að fólki, hann var kátur í fjölmenni, ræðinn og mál- hress hvort sem við vorum tveir saman eða fleiri í hópnum. Hann kunni kynstur af vísum og kvæðum og oft var sungið við raust í Hóls- húsafjósinu þegar bóndinn og vinnumaðurinn sátu við mjaltirnar. Svo var troðið í pípuna og sagðar skemmtilegar sögur. Tóti var frjálslyndur við ung- linga og hafði gott lag á þeim. Hann taldi sjálfsagt að ég færi með honum á hjónaballið 14 ára gamall, en þá var óskráð aldurstakmark að slíkum skemmtunum 16 ár. Eftir þetta hittumst við Tóti á hverju einasta hjónaballi í 40 ár allt þar til í vetur að heilsan leyfði honum ekki að mæta. Tóti var ókvæntur og barnlaus alla ævi. Hann vann foreldrum sín- um og tók við föðurleifðinni, Hóls- húsum, þegar stundir liðu fram. Systursonur hans, Gunnar, ólst upp í Hólshúsum og þegar hann kom með konuefnið sitt, kornunga stúlku frá Stokkseyri, þangað að lokinni vorvertíðinni 1964 var framtíðin tryggð. Gunnar og Ellý settust að í Hólshúsum, áttu börn og buru og Tóti eignaðist stóra fjölskyldu og var sem afi allra barnanna. Hann var ekki minna stoltur af þeim en hann hefði átt þau sjálfur. Tóti var beinn í baki og hár- makkinn þétti sem hann kembdi beint aftur brá varla lit með ár- unum. Þótt líkaminn hrörnaði var stutt í brosið og hláturinn hans Tóta og þannig minnist ég hans. Blessuð sé minning Tóta í Hóls- húsum. Jón M. Ívarsson. ÞÓRÐUR ELÍASSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.