Morgunblaðið - 06.07.2003, Síða 15
komið verður á félagslegu jafnvægi.
Ísland er ekki aðili að þessari at-
vinnustefnu en Ungverjaland mun
innleiða hana,“ segir Lilja.
Hún segir að í seinni hluta verk-
efnisins sé ætlunin einnig að skoða
tölulegar upplýsingar um hvort að-
ildarlönd ESB, Ísland og Ungverja-
land séu í raun á leið inn í þekking-
arsamfélagið. Að lokum mun
hópurinn koma með tillögur um úr-
bætur bæði hvað varðar aðgerðir og
tölfræðilegar upplýsingar.
„Í Evrópu hefur verið farin sú leið
að sjá til þess að allir borgarar fái að-
gang að tækninni og læri að nýta sér
hana. Einnig að þjónusta borgarana
til dæmis með rafrænum samskipt-
um við stofnanir og fleira og að skapa
störf. Í Bandaríkjunum hefur verið
lögð áhersla á að neytendur og fyr-
irtæki fái aðgang og að einkaréttur
til tækninnar og hugverka sé tryggð-
ur.“
Auknar kröfur um sérhæfingu
„Í ljós hefur komið að dæmi eru
um hagvöxt í þekkingarsamfélaginu
sem þó leiðir ekki af sér fjölgun
starfa og óhagkvæm störf eru lögð
niður. ESB hefur miklar áhyggjur af
þessu. Einnig hefur komið í ljós að í
þekkingarsamfélaginu ríkir oft mikill
ójöfnuður því störfin verða aðallega
til á afmörkuðum svæðum, t.d. í
kringum stórborgir og launamunur
hefur aukist. Ekki endilega á milli
ófaglærðra og þeirra sem eru með
starfsmenntun heldur einnig innan
stétta faglærðra. Viðskiptafræðing-
ur sem útskrifast núna getur ekki
verið viss um að fá laun að einhverri
ákveðinni upphæð. Hann getur hugs-
anlega verið með allt frá 300 þúsund-
um króna upp í milljón krónur á
mánuði. Svona mikill munur hefur
ekki áður sést innan stéttarinnar
enda er þetta ný þróun. Víða um
heim er fólk sem er með háskóla-
menntun að byrja neðar í launastig-
anum og þarf frekar að vinna sig upp.
Sumir tala um ofmenntun, en aðrir
hallast að því að menntun hafi verið
ofmetin áður fyrr. Núna er ekki nóg
að vera með menntun heldur þarf
fólk einnig að hafa sérhæfingu og
starfsreynslu. Menntun er orðin al-
mennari og atvinnurekendur geta
því frekar valið úr hæfu fólki.
Rannsóknir sýna að misræmi er á
milli framboðs og eftirspurnar eftir
vinnuafli í mörgum aðildarlöndum
ESB. Atvinnurekendur eru farnir að
gera meiri kröfur um háskólamennt-
un og sérþekkingu á ákveðnum svið-
um. Á sama tíma eru nemendur að
verða íhaldssamir í námsvali því
hlutdeild þeirra í kostnaði við mennt-
un eykst stöðugt. Þeir vilja síður
taka áhættu og mennta sig í fagi á
þröngu sérsviði. Sem dæmi má nefna
að nú er farið að bjóða upp á við-
skiptalögfræði hér á Bifröst. Upp-
haflega hugmyndin gekk út á að sér-
hæfa nemendur í lögum sem tengjast
viðskiptum, en ekki útskrifa fólk sem
ætlaði að flytja mál fyrir rétti. Nú
gera nemendur þá kröfu að hljóta al-
menn lögmannsréttindi að loknu
náminu sem er líklega einhvers kon-
ar trygging fyrir störfum þegar námi
líkur. Spurningin er sú hvort ekki
þurfi frekar að auka möguleika á
námsstyrkjum í sérhæfðar greinar
svo fólk hætti sér frekar út í slíkt
nám án þess að eiga á hættu að sitja
uppi atvinnulaust með miklar náms-
skuldir á herðunum.“
Lilja hefur sjálf vissulega sérhæft
sig í sínu námi og segir að mögu-
leikar hennar til að starfa á sínu sviði
hafi byggst á því að vinna ekki ein-
ungis á Íslandi heldur vera tilbúin til
að starfa einnig erlendis.
„Mér finnst nemendur einblína yf-
irleitt of mikið á íslenskan vinnu-
markað. Tengslin við Evrópu eru
orðin mikil í gegnum samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið og útrás
íslenskra fyrirtækja. Til að geta
fylgst með því sem er að gerast úti í
Evrópu þurfum við að taka mun
meiri þátt í umræðunni þar, til dæm-
is um atvinnustefnu ESB. Mér finnst
ég eiga fullt í fangi með að halda
þekkingu minni við eftir að ég flutti
heim þrátt fyrir að fara oft til Bruss-
el.“
Launamunur kynjanna
– En hvernig sér Lilja fyrir sér
þróunina og tengsl Íslands við Evr-
ópu?
„Nú leggjum við Íslendingar
áherslu á að fjölga störfum fyrir
ófaglærða til dæmis með virkjana-
framkvæmdum. Á sama tíma er ekki
víst að það verði nógu mikil fjölgun í
þekkingarstörfum. Ef margt há-
skólamenntað fólk verður atvinnu-
laust verður mikill þrýstingur á að
við göngum í ESB því þetta fólk sér
atvinnumöguleika í auknu samstarfi
við ESB. Þetta gerðist einmitt í Sví-
þjóð þar sem menntað fólk sá ekki
fram á nein ný störf við hæfi. Þegar
þjóðin gekk í ESB má eiginlega
segja að sumir bæir í Svíþjóð hafi
tæmst af menntafólki og ungu fólki
sem sótti til Evrópu til að leita að
spennandi störfum. Þekkingarstörf-
um hefur fjölgað mun meira í Banda-
ríkjunum en í Evrópu. Innan ESB
hefur fólk áhyggjur af því að í Evr-
ópu fjölgar slæmum störfum á
kostnað góðu starfanna. Vondu
störfin eru þau störf þar sem fólk
nýtir ekki hæfni sína eða menntun.
Það er ekki nóg að hafa menntað
vinnuafl. Það þarf að skapa því góð
störf. Víða hefur verið beitt skamm-
tímaráðningum þar sem fólk er að-
eins ráðið til skamms tíma í einu og
nýtur því ekki réttinda á sama hátt
og fastráðið fólk.
Margir telja þekkingarsamfélagið
vera kjörið tæki til að draga úr ójöfn-
uði til dæmis milli karla og kvenna.
Fræðimenn, margir hverjir, telja að
ýmislegt komi í veg fyrir það. Konur
eru ekki nema 15% þeirra sem starfa
við þekkingarsköpun og þekkingar-
úrvinnslu. Hér á ég við verkfræð-
inga, tölvunarfræðinga, arkitekta og
fleiri. Kynskiptingin er því meiri í
nýja hagkerfinu en í gamla hagkerf-
inu. Þetta er ótrúlegt og varla hægt
að tala um þetta nýja samfélag sem
einstakt tækifæri til að jafna hlut
karla og kvenna. Kynbundinn launa-
munur er um 16% að meðaltali innan
ESB og hefur lítið breyst í Evrópu
síðastliðin fimm ár, þrátt fyrir að
konur hafi aukið menntun sína og at-
vinnuþátttöku. Sumir halda því fram
að eftir ákveðna þróun upp á við og
síðan stöðnun í fimm ár sé hætta á
því að launamunur milli kynja fari
vaxandi á næstunni ef ekkert verður
að gert.“
Lilja telur vinnustaðasamninga
bjóða upp á aukinn launamun. Hún
segir að Svíar hafi tekið á því með því
að skylda fyrirtæki til að skila inn
upplýsingum um hver kynbundinn
launamunur í fyrirtækinu sé. Þetta
fer síðan áfram til stofnunar, nokk-
urs konar embættis sáttasemjara.
Stofnunin fer yfir gögnin og sendir
síðan fyrirtækjunum upplýsingar
um hvernig staðan er og bendir þeim
á nauðsyn aðgerða eftir því sem þörf
er á. Stofnunin ein hefur aðgang að
þessum upplýsingum.
Hún hefur lagt áherslu á vinnu-
markaðs- og jafnréttismál og segir
að ekki séu margir hagfræðingar
sem hafa sérhæft sig í þessum mála-
flokkum. Þetta hafi orðið til þess að
hún hafi oft verið valin til að vinna
ýmis verkefni á þessum sviðum og til
að meta umsóknir fólks sem sækir
um styrki í rannsóknaráætlanir
ESB. ESB beitir kynjakvóta við val
á fólki til að meta umsóknir eftir að í
ljós kom að 8,3% þeirra sem fengu
verkefnastyrki voru konur.
Unir sér vel í Borgarfirðinum
Þrátt fyrir að Lilja sé búin að
vinna mikið á vegum ESB og hafi
hlotið styrk sjálf sé hún í óvissu með
framhaldið vegna þess að hún er
ekki frá aðildarlandi sambandsins.
En nóg sé framundan og margt
spennandi að gerast í sambandi við
starfið á Bifröst.
„Ég er mjög ánægð með að hér
skuli að vera hefjast meistaranám,“
segir Lilja. „Rannsóknarsamfélagið
á Íslandi er mjög smátt í sniðum og
því nauðsynlegt að hafa meistara-
nemendur til að ræða við um nýjar
kenningar og rannsóknarhugmynd-
ir. Markmið okkar hér á Bifröst er
að skapa öflugan rannsóknarvett-
vang í Evrópu- og nýsköpunarfræð-
um. Ég hlakka virkilega til að fá fólk
sem búið er að ljúka grunnmennt-
uninni og er komið með ákveðna
reynslu.“
Lilja segist vera mjög heppin með
að Nonni, 11 ára sonur þeirra Ívars,
unir sér mjög vel á Bifröst og ekki
síður í skólanum sínum, Varma-
landsskóla. Fjölskyldan flutti í
kennarabústað á Bifröst í haust eftir
að Lilja hóf störf við skólann. Ívar
er búinn að starfa þar í eitt og hálft
ár og keyrði á milli frá Reykjavík.
„Ég vildi flytja hingað eftir að
hafa sjálf fengið stöðu hérna og uni
mér mjög vel. Ég bjó á stúdenta-
garði í Bandaríkjunum og lífið hér á
Bifröst minnir mig á þann tíma.
Þegar ég fæ heimsóknir frá útlönd-
um ætlar fólk varla að trúa því að til
sé svona staður eins og Bifröst, þar
sem er að finna frábært útivistar-
svæði, kaupfélag, kaffihús, leik-
skóla, grunnskóla í nágrenninu,
þráðlausa nettengingu, breiðbands-
tengingu, ungmennafélag og fl.
Nonni hefur fengið að kynnast
sveitalífinu hér í Borgarfirði í gegn-
um bekkjarfélagana á Varmalandi
og er mjög ánægður með það. Það
eru færri krakkar í hverjum bekk í
Varmalandsskóla en í flestum skól-
um á höfðuborgarsvæðinu. Krakk-
arnir fá fyrir bragðið mun betri
kennslu og þá aðstoð sem þau þurfa.
Við skólann starfa jafnframt mjög
áhugasamir kennarar.
Það verður skemmtilegt að taka
þátt í starfinu hérna á Bifröst á
næstunni og fyrir mig persónulega
finnst mér meistaranámið skipta
mestu máli.“
’ Mér finnst nemendur einblína yfirleitt ofmikið á íslenskan vinnumarkað. Tengslin
við Evrópu eru orðin mikil í gegnum samn-
inginn um Evrópska efnahagssvæðið og út-
rás íslenskra fyrirtækja. ‘
asdish@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 15
Bein útsending
frá Frakklandi í Sjónvarpinu
kl. 11.30 á sunnudag
Fegurðardrottning Íslands,
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
spjallar um Formúlu 1 og
þátttöku í Miss Europe í
Frakklandi.
Tónlistarmyndband um
Þýskalandskappaksturinn.
Ralf Schumacher á Williams
BMW spjallar um
aksturstækni í máli og myndum.
Frumsýning á nýjum Formúla 1 2003 Playstation leik.
Öryggisbúnaður ökumanna,
brautarlýsing og fagleg umfjöllun.
Fréttir af Formúlunni á ruv.is, í Textavarpinu,
á Rás 2 og í Sjónvarpinu alla helgina.
skifan.is
renault.is
Fernando Alonso og Jenson Button
prófa nýja Playstation Formula 1 2003 leikinn.
bmw.is