Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 252. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Á enda
heimsins
Leikrit Kristínar Ómarsdóttur
frumsýnt í Hafnarfirði | Listir 24
Keppt í
aflraunum
Jón Valgeir Williams keppir í
Sterkasta manni heims | Fólk 61
Fiskur í
fyrirrúmi
Kristján Davíðsson nýr í brúnni
hjá Granda | Úr verinu 2
ÞÝSKUR dómstóll úrskurðaði í gær, að
heimilt væri að birta þau skjöl og upplýs-
ingar, sem Stasi, austur-þýska leyniþjónust-
an, hefði safnað saman um Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslara Þýskalands.
Með dóminum hefur verið hnekkt úr-
skurði tveggja annarra dómstóla en í Þýska-
landi er mikil umræða um það hvort eða hvað
mikið eigi að birta af Stasi-skjölunum. Kohl
var kanslari frá 1982 til 1998 og vitað er, að
Stasi hleraði síma hans frá 1982 að minnsta
kosti og þar til Berlínarmúrinn féll 1989. Eru
skjölin um hann nærri 9.000 blaðsíður.
Við fyrri réttarhöld, sem voru Kohl í vil,
hélt hann því fram, að virða bæri einkalíf
hans þar sem hann hefði verið fórnarlamb
Stasi en ekki samverkamaður. Aðrir segja,
að eitt eigi yfir alla að ganga og benda á, að
hundruð manna, einkum í Austur-Þýska-
landi, hafi verið sett út á kaldan klaka með
því að vera bendluð við Stasi. Lögfræðingur
Kohls sagði í gær, að dóminum yrði áfrýjað.
Þjóðverjar fengu nýlega í hendur svoköll-
uð „Rosewood“-skjöl en CIA, bandaríska
leyniþjónustan, komst yfir þau eftir 1989.
Eru þau sögð mikil náma upplýsinga um
Kaldastríðsárin í Þýskalandi.
Birta má
Stasi-skjöl
um Kohl
Berlín. AFP.
WESLEY Clark, fyrrum hershöfðingi, til-
kynnti í gær, að hann ætlaði að taka þátt í for-
kosningabaráttu Demókrataflokksins og
sækjast eftir því að verða
frambjóðandi hans í for-
setakosningunum í
Bandaríkjunum annað
haust.
„Við ætlum að reka
kosningabaráttu, sem
verður til að þoka þessari
þjóð fram á veg en ekki
aftur,“ sagði Clark er
hann tilkynnti þátttöku
sína í Little Rock í Ark-
ansas. Beindi hann strax spjótum sínum að
George W. Bush forseta og sagði, að hann ætl-
aði að endurheimta þær þrjár milljónir starfa,
sem tapast hefðu í forsetatíð Bush.
Clark er á seinni skipunum með ákvörðun
sína og hann hefur ekki enn komið sér upp
stuðningsmannakerfi í lykilríkjunum. Þá er
honum einnig fjár vant og hann hefur enga
reynslu sem stjórnmálamaður. Það hjálpar
honum hins vegar, ekki síst á þessum tímum,
að hann er fyrrverandi hershöfðingi og var yf-
irmaður NATO-hersins í Kosovo-stríðinu.
Hann var aftur á móti andvígur innrásinni í
Írak.
Skoðanakönnun, sem birt var í gær, sýnir,
að Bush myndi vinna auðveldan sigur á þeim
níu demókrötum, sem fyrir voru í forkosninga-
baráttunni áður en Clark tilkynnti framboð
sitt. Fengi Bush nú 53% atkvæða en öldunga-
deildarþingmaðurinn Joseph Lieberman, sem
var efstur demókratanna, 41%.
Clark sæk-
ist eftir
útnefningu
Little Rock. AP.
Wesley Clark
Herforinginn/14
AUÐUR Valdimarsdóttir er tíu og hálfs mán-
aðar gömul stúlka sem er nýkomin heim frá
Bandaríkjunum þar sem í hana var grædd lif-
ur úr öðru barni. Hún er yngsti íslenski lifr-
arþeginn hingað til, en eftir að ljóst varð að
hún ætti ekki mikla lífsmöguleika vegna sjald-
gæfs en alvarlegs lifrarsjúkdóms var ákveðið
að senda hana í lifrarígræðslu til Pittsburg í
Pennsylvaníu.
Aðgerðin og batinn hafa gengið vonum
framar og starfar nýja lifrin nú á eðlilegan
hátt. „Hún er eins og nýtt barn, kát og hress
um og lýsir sér þannig að hægt og rólega
skemmir hann lifrina. Hjá tveimur af hverjum
þremur börnum sem fá sjúkdóminn er lifr-
arígræðsla eina úrræðið.
Auður er eina barnið hér á landi sem hefur
farið í lifrarígræðslu vegna sjúkdómsins, að
sögn Lúthers Sigurðssonar, sérfræðings í
meltingar- og lifrarsjúkdómum barna, sem
hafði umsjón með undirbúningi fyrir aðgerð
Auðar hér á landi.
og hefur fengið eðlilegan litarhátt,“ segja þau
Valdimar Jónsson og Ásdís Ásgeirsdóttir, for-
eldrar Auðar, en þau komu heim 10. sept-
ember. Fjölskyldan fór öll til Pittsburg í júlí en
þar tók við bið eftir líffæri.
„Við vorum ótrúlega heppin því á 22. degi
var hringt í okkur og sagt að lifur úr barni á
svipuðum aldri væri komin inn. Við rukum
skjálfandi út í bíl og eftir minna en einn og
hálfan tíma vorum við búin að kveðja hana og
aðgerðin hófst.“
Sjúkdómurinn kemur upp í nýfæddum börn-
Lifur grædd í níu mánaða gamalt íslenskt barn í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Kristinn
„Er eins og nýtt barn“
Eini möguleikinn/32
MAÐURINN, sem er í haldi
grunaður um morðið á Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar, var yfirheyrður í gærkvöld en
sænska ríkisútvarpið sagði, að
hann neitaði sök en gæti þó ekki
gert grein fyrir ferðum sínum
morðdaginn.
„Við erum í kapphlaupi við
tímann,“ sagði Stina Wessling,
talsmaður lögreglunnar, í gær en
samkvæmt sænskum lögum er
ekki hægt að hafa mann í haldi
lengur en í þrjá sólarhringa án
þess að ákæra hann á grundvelli
sannana eða sterkra vísbendinga.
morðið á Önnu Lindh endi ekki
sem óleyst gáta eins og morðið á
Olof Palme forsætisráðherra 1986
en margir furða sig á því, að mað-
urinn skuli hafa verið tekinn
sallarólegur á veitingastað eftir að
lýst hafði verið eftir honum um
landið allt.
Angelica Bjerring, 21 árs hjúkr-
unarkona, sem reyndi að hlúa að
Lindh eftir morðárásina, segist
ekki vera viss um, að maðurinn,
sem nú er í haldi, sé morðinginn.
„Það er eins og þetta sé bara allt of
einfalt, að hann skyldi bara sitja
þarna,“ sagði hún.
Lögreglan leitar að auki fimm
manna og leggur áherslu á, að
rannsóknin snúist ekki aðeins um
manninn, sem er í haldi.
Opinber minningarathöfn um
Önnu Lindh verður á morgun í ráð-
húsi Stokkhólmsborgar. Hún verð-
ur síðan borin til grafar á laugar-
dag að viðstaddri fjölskyldu sinni,
nánustu ættingjum og vinum.
Verður það að gerast fyrir klukkan
22.00 annað kvöld.
Mestar vonir eru bundnar við, að
unnt verði að tengja manninn
morðinu með DNA-rannsókn á
lífsýnum, sem fundust á húfu, sem
líklegt er, að morðinginn hafi bor-
ið, og var von á niðurstöðum henn-
ar í dag. Lífsýni á hnífnum, sem
notaður var, eru lítil og rannsókn á
þeim tekur því lengri tíma.
Svíar vona heitt og innilega, að
Maður grunaður um morðið á Önnu Lindh sagður neita allri sök
„Við erum í kapp-
hlaupi við tímann“
DNA-niðurstaða í dag en gæslu-
varðhald rennur út á morgun
Ofbeldishneigður/33
Stokkhólmi. AP, AFP.
♦ ♦ ♦