Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 23 Fátt virðist ætla að hafa eins mikil áhrif á tölvuþróun framtíðarinnar og LINUX og hugmyndafræðin á bak við opinn hugbúnað. Eftirspurn eftir starfsfólki með sérfræðiþekkingu á þessum grundvelli hefur aukist og vaxandi atvinnutækifæri bíða þeirra sem ljúka þessu námi. Sérfræðingum ber saman um að LINUX stýrikerfið sé komið til að vera. Með þessu námskeiði mætum við þörf atvinnulífsins fyrir starfsfólk með sérþekkingu á rekstri og umsjón netkerfa m.t.t. sérþekkingar á Linux. Inntökuskilyrði Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa haldgóða undirstöðumenntun, eða starfsreynslu. Þeir þurfa einnig að hafa grunnþekkingu á tölvum og notkun Internetsins. Góð enskukunnátta er nauðsynleg þar sem kennslubækur eru á ensku. Næsta námskeið, sem er tvær annir, byrjar 30. september. Gríptu tækifærið og skráðu þig núna! BORÐ, stóll og bók, - í hugum flestra einföldustu tákn siðmenn- ingar og upplýsingar. Þetta eru þeir hlutir sem mynda verk Elínar Hans- dóttur á sýningu hennar í dverg- vöxnu rými Gallerís Dvergs, Garða- stræti 21. Bókin er lykillinn að verkinu og hún er sérstök. „Í bók- inni eru upplýsingar sem ég hef safnað saman af Netinu,“ segir Elín. „Sýningin fjallar einmitt um mátt upplýsinga og hvort þær séu af hinu góða, eða til vandræða. Það er margt að finna á Netinu, bæði alls konar vitleysu, en líka margt fræð- andi. Upplýsingarnar í bókinni hvetja mann til umhugsunar um sið- ferðismörk - mörkin sem mann- eskjan með siðferðisvitund sína set- ur sjálfri sér. Þekkingunni fylgir vald, sem við þurfum að læra að beita. Það gerum við með siðferð- isvitundinni.“ Sprengjur - í tíma og ótíma, út um allan heim hafa verið eitt helsta um- fjöllunarefni fjölmiðla síðustu miss- erin, og þar segir Elín hugmyndina hafa kviknað að verkinu. „Við heyr- um um þessar sprengjur dag eftir dag, - erum orðin vön þeim, en fyrir Íslendinga er þetta ekki mikill raun- veruleiki. Við erum ekki mikið að hugsa um það dags daglega að ein- hver úti í bæ sé að útbúa TNT sprengju á okkur. Þó er það eitthvað sem gæti alveg eins gerst, - en ger- ist ekki þó. Ég varð líka fyrir mjög miklum áhrifum af frétt á forsíðu Morgunblaðsins fyrir nokkru, um það að Bandaríkjaher notaði lag úr barnaþættinum Sesame Street til að pynta stríðsfanga. Bandaríkjaher er einn stærsti styrktaraðili Sesame Street, og þátturinn er sýndur út um allan heim. Múslimar hafa haldið því fram að þátturinn sé áróð- ursmaskína fyrir kapítalisma og am- erísk gildi og hafa bannað þættina. Þessi frétt hafði mikil áhrif á mig og það má finna keim af þeim áhrifum í verkinu.“ Elín kallar sýninguna Big Bird, í höfuðið á einni þekktustu persón- unni í Sesame Street. „Big Bird er oft skilinn útundan - getur ekki ver- ið á vegasalti, því það er enginn nógu þungur á móti honum. Hann er furðuleg fígúra - sérstaklega í tengslum við þessar pyntingar. Maður horfir á hann tvisvar næst þegar maður sér hann og spyr hvort manni sé óhætt.“ Elín Hansdóttir útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands í vor og er á förum til Berlínar í framhaldsnám. Hún hefur tekið þátt í ýmsum sýningum bæði heima og erlendis. Gallerí Dvergur er rekið af Birtu Guðjónsdóttur og í sumar hafa verið þar fimm sýningar. Sýning Elínar Hansdóttur verður opnuð í dag kl. 17 og verður opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 17 - 19 og lýkur 4. október. Elín Hansdóttir opnar sýningu í Galleríi Dvergi Þekkingunni fylgir vald sem við þurfum að læra að beita Morgunblaðið/Ómar Elín Hansdóttir: Eru upplýsingar af hinu góða eða til vandræða? Árbók Ólafs- fjarðar 2002 er komin út. Hún kom út í fyrsta sinn árið 2000, þá fyrir árið 1999. Í Árbókinni er ávarp Stefaníu Traustadóttur bæjarstjóra Ólafs- fjarðar. Þá eru í ritinu fastir pistlar, s.s. Ýtt úr vör, Annáll Ólafsfjarðar 1900–2000, hálfur eða heill áratugur í senn, Völvuspá, Heiðraðir aldraðir sjómenn, Saga hússins, annálar fé- laga og klúbba, viðtöl við brottflutta Ólafsfirðinga eða einhvern heima- manninn, Saga skipsins, Gengnir Ólafsfirðingar, fréttaannáll liðins árs og margar fleiri greinar, þættir og ljós- myndasyrpur. Í bókinni er fjöldi ljós- mynda sem margar hverjar hafa ekki birst á prenti fyrr. Meðal greinahöfunda eru Friðrik G. Olgeirsson, Þórir Jónsson, Jóhannes Jóhannesson, Gísli M. Gíslason, Gísli Gíslason, K. Haraldur Gunnlaugsson og Jón Árni Konráðsson, Hilmar Jó- hannesson, Sveinn Magnússon, Gunnar Bergur Árnason og Hannes Garðarsson. Ritstjóri Árbókar Ólafsfjarðar 2002 er Hannes Garðarsson en í ritnefnd með honum eru Friðrik G. Olgeirsson og Þórir Jónsson. Útgefandi er Hornið. Ritið er 102 bls. Árbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.