Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 12
ERLENT 12 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNARERINDREKAR arabaríkja fordæmdu í gær þá ákvörðun Bandaríkjanna að beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn ályktun- artillögu um að hvetja Ísraela til að reka ekki Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í útlegð eða ráða hann af dögum. John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, varði ákvörðunina. Hann sagði að ályktunardrögin, sem Sýr- lendingar og Súdanar lögðu fram fyrir hönd arabaríkja, hefðu verið „gölluð“, þau hefðu ekki falið í sér „kröftuga fordæmingu á hryðju- verkum“ hreyfinga Palestínumanna á borð við Hamas og Jíhad. Talsmaður franska utanríkisráðu- neytisins, Cecile Pozzo di Borgo, sagði hins vegar að ályktunardrögin hefðu ekki verið hlutdræg, heldur falið í sér skilaboð til Ísraela og Pal- estínumanna um að binda enda á of- beldið og hryðjuverkin og snúa sér aftur að Vegvísinum til friðar í Mið- Austurlöndum. Ellefu af fimmtán aðildarríkjum öryggisráðsins greiddu atkvæði með tillögunni og aðeins Bandaríkin á móti. Bretland, Þýskaland og Búlg- aría sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Fulltrúi Palestínumanna hjá Sam- einuðu þjóðunum, Nasser al-Kidwa, sagði að ákvörðun Bandaríkjanna myndi hafa „alvarlegar afleiðingar“ sem þau bæru ein ábyrgð á. Sendiherra Sýrlands, Fayssal Mekdad, sagði að niðurstaðan væri „hörmuleg“ og aðeins til þess fallin að gera ástandið í Mið-Austurlönd- um, sem væri nú þegar „afar flókið“, enn verra. Utanríkisráðherra Egyptalands, Ahmed Maher, sagði að ákvörðun Bandaríkjanna væri „óréttlætanleg“ og hvetti aðeins Ísr- aela til að halda áfram árásum sínum á Palestínumenn. „Þögnin veikir okkur ekki“ Talsmaður palestínsku heima- stjórnarinnar, Saeb Erekat, sagði eftir að Bandaríkin beittu neitunar- valdinu að þetta væri „svartur dagur í sögu Sameinuðu þjóðanna“. Hann kvaðst vona að Ísraelar túlkuðu ekki niðurstöðuna sem heimild til að ráða Yasser Arafat af dögum. Arafat lét hins vegar engan bilbug á sér finna þrátt fyrir niðurstöðuna í öryggisráðinu. „Þögn heimsins veik- ir okkur ekki,“ sagði hann við stuðn- ingsmenn sína í Ramallah á Vestur- bakkanum. „Okkur er sama um ályktanir hér og þar og við erum öfl- ugri en allar ályktanir.“ Arabar fordæma af- stöðu Bandaríkjanna Segja andstöðu við ályktun um Ara- fat í öryggisráðinu óréttlætanlega Sameinuðu þjóðunum. AFP. Reuters Maður, sem reynir að líkja eftir Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna, á útifundi til stuðnings leiðtoganum á Gaza í gær. ARABÍSKA sjónvarpsstöðin al-Ar- abiya birti í gær segulbandsupptöku sem sögð var vera frá Saddam Huss- ein, fyrrum forseta Íraks. Röddin á bandinu hvetur Íraka til að herða baráttuna gegn bandaríska hernámsliðinu í Írak og heyja heilagt stríð með öllum ráðum. „Ó, íraska þjóð, ég færi ykkur gleðifréttir,“ sagði röddin sem virtist rám og þreytuleg. „Þreytan er að buga her- sveitir óvinanna.“ Írakar voru hvattir til að fara út á götur og mótmæla hernáminu og láta fé af hendi rakna til andspyrnu- sveita. Bandaríkjaher var hvattur til að fara án tafar frá Írak. „Við hvetj- um ykkur til að draga heri ykkar til baka eins fljótt og unnt er, án skil- yrða því það er tilgangslaust að þið verðið fyrir meira manntjóni sem yrði hræðilegt fyrir Bandaríkja- menn,“ sagði mælandinn. Óháð staðfesting á því hvort Sadd- am var á ferð liggur ekki fyrir. Tals- menn al-Arabiya sögðu ávarpið hafa verið tekið upp um miðjan mánuð- inn. Það er 20 mínútna langt. Fréttaritari breska ríkisútvarps- ins, BBC, í Mið-Austurlöndum hlýddi í gær á upptökuna og kvað hana minna um margt á aðrar sem borist hafa og eignaðar hafa verið Saddam Hussein. Saddam enn á ferð? Bagdad. AFP. SÓLBRENNI barn einu sinni kann það að auka verulega hættuna á að það fái húðkrabba- mein síðar á ævinni. Við þessu varar Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin, WHO, í tilefni af nýju átaki stofnunarinnar út um allan heim, sem miðar að því að bæta fræðslu barna um hættur sól- skinsins. „Við vitum að barnshúðin er viðkvæmari og sé hún jafnvel aðeins í stuttan tíma óvarin í sterku sólskini getur það valdið alvarlegum sólbruna,“ tjáði Mike Repacholi, talsmaður WHO, blaðamönnum í höfuð- stöðvum stofnunarinnar í Genf í vikunni. „Einn einasti sólbruni í æsku getur aukið verulega á hættuna á að fá húðkrabbamein síðar á ævinni,“ sagði hann. WHO í herferð Herferð WHO, sem skipulögð er í samvinnu við UNEP, Umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna, miðar að því að hjálpa skólum að vekja betur athygli á hættunum sem fylgja því að verða fyrir of mikilli útfjólu- blárri geislun sólarinnar og gera meira til að draga úr sortuæxlis- og augnskaðatilfellum og fleiri mannlegum kvillum sem sólar- ljósið getur valdið eða ýtt undir. Einn sól- bruni get- ur valdið krabba- meini Genf. AFP. LÖGREGLAN í Kaupmannahöfn hefur borið kennsl á mann sem fórst í bílsprengju við Glostrup-sjúkra- húsið í gær. Hann var 32 ára Dani, Mickey Borgfjord Larsen og var þekktur í hópi bifhjólagengja. Hann afplánaði dóm en hafði útivistarleyfi, að sögn Jyllandsposten. „Við vinnum út frá þeirri kenningu að einhver hafi komið sprengju fyrir í bílnum í því augnamiði að granda ákveðnum manni sem lést í spreng- ingunni,“ sagði Steen Skovgaard rannsóknarlögreglumaður. Larsen afplánaði átta ára fangels- isdóm frá árinu 2000 fyrir mannrán, gróft ofbeldi, hótanir, fyrir að skjóta á ökumann bíls með skammbyssu og einnig fyrir þjófnað á um 20 milljón sígarettum. Er hann var 18 ára var hann dæmdur fyrir manndráp. Lar- sen hafði leyfi til að fara á amts- sjúkrahúsið í Glostrup þar sem hann var í endurhæfingu hjá iðjuþjálfa. Lögreglan þekkti Larsen, er einn- ig gekk undir nöfnunum Nicklas Bent Larsen og Mickey Hochheim, sem félaga í bifhjólasamtökunum Bandidos. Hann er sagður hafa lent í rifrildi við félaga sína fyrir tveim ár- um og segir lögreglan í samtali við Berlingske Tidende að þeir hafi gef- ið út eins konar veiðileyfi á hann. Talið er að árásin hafi verið persónu- legt uppgjör við Larsen en ekki upp- hafið á stríði milli bifhjólasamtaka. AP Rannsóknarmaður gengur framhjá sundurtættu bílflakinu á bílastæðinu við Glostrup-sjúkrahúsið í gær. Afbrotamaður myrt- ur með bílsprengju ♦ ♦ ♦ FRÉTTAMAÐUR breska ríkisút- varpsins, BBC, Andrew Gilligan, seg- ist hafa gert margvísleg mistök í fréttapistlum þar sem hann fullyrti að sérfræðingar teldu bresku stjórnina hafa vís- vitandi látið ýkja hættuna af ger- eyðingarvopnum Saddams Huss- eins í Írak. Kom þetta fram í gær er Gilligan kom öðru sinni fyrir Hutton-nefndina svonefndu sem rannsakar dauða vopnasérfræðings- ins Davids Kellys. Gilligan byggði fréttir sínar eink- um á samtölum við Kelly en nefndin rannsakar nú aðdraganda þess að Kelly svipti sig lífi. Fram kom á vef- síðu BBC, að Gilligan sagðist hafa mismælt sig í tveimur pistlum sem hann flutti, þegar hann sagði að heim- ildarmaður sinn væri háttsettur leyniþjónustumaður. Kelly starfaði fyrir breska varnarmálaráðuneytið. Þá baðst fréttamaðurinn einnig af- sökunar á því að hafa sent þingmanni í nefnd sem rannsakaði fréttaflutning BBC tölvupóst um að Kelly hefði lík- lega verið heimildarmaður þáttarins BBC Newsnight. Gilligan vissi ekki hver heimildarmaðurinn var. „Háttsettur og trúverðugur“ Aðalfréttastjóri BBC, Richard Sambrook, kom einnig fyrir nefndina. Sagði hann að mistök hefðu verið gerð þegar stofnunin svaraði ásökun- um stjórnar Tony Blairs um að rang- færslur hefðu verið í fréttum Gillig- ans. BBC hefði átt að kanna betur ásakanirnar. Einkum hefði verið rangt að segja að heimildarmaður Gilligans væri „háttsettur og trúverð- ugur maður“ í leyniþjónustunni. Þegar spurt var hvers vegna þau ummæli hefðu ekki verið leiðrétt strax sagðist Sambrook hafa verið í vanda. Leiðrétting hefði getað auð- veldað öðrum að átta sig á því hver heimildarmaðurinn væri og hefði BBC þá rofið nafnleynd Kellys. Gilligan viðurkenn- ir mistök Yfirheyrslur Hutton-nefndarinnar Andrew Gilligan London. AFP. ANASTASÍA Volotsjkova, ein af þekktustu ballerínum Rússlands, hefur verið rekin úr Bolshoj-ballettflokknum á þeirri forsendu að hún sé svo hávaxin og þung að dansfélagar hennar geti ekki lyft henni. Talsmaður Volotsjkovu sagði að ekkert væri hæft í því að ballerínan væri of þung. Hún væri aðeins 55 kíló- grömm á þyngd og um 170 cm á hæð. Talsmenn Bolshoj segja hins vegar að hún sé mun hærri vexti og þyngri. „Ég tel að nú þegar menn reyna að bæta 10 eða 20 cm við hæð mína, og tala um breidd mína, þykkt og hæð, þá ættu þeir að muna að það er ekki stærðin sem gerir konu að mikilli ballerínu,“ sagði Volotsjkova í sjónvarps- viðtali. Hún viðurkenndi þó að hún væri ólík flestum ball- erínum, sem forðast fitandi mat eins og heitan eldinn, að því leyti að hún gæti ekki hugsað sér að lifa án rjómaíss. Bolshoj getur hins vegar vel hugsað sér að lifa án Vol- otsjkovu sem hafði sakað dansflokkinn um að hafa falið dansfélaga hennar, Jevgení Ívantsjenkó, í því skyni að losna við hana úr dansflokknum. Talsmenn Bolshoj segja á hinn bóginn að Ívantsjenkó hafi aðeins falið sig fyrir ballerínunni sjálfri því að hann hafi verið lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyr- ir bakmeiðslum þegar hann reyndi að lyfta henni. Rússneska dagblaðið Kommersant segir að deilan snú- ist í raun ekki aðeins um þyngd ballerínunnar, heldur telji stjórnendur dansflokksins að vinsældir hennar hafi stigið henni til höfuðs, hún hafi verið ráðrík og viljað að allt snerist um hana eina. Þegar Ívantsjenkó hafi neitað að dansa með henni hafi dansflokkurinn fengið kjörið tækifæri til að losa sig við prímadonnuna. Ballerínan Anastasía Volotsjkova „Of þung“ ballerína rekin úr Bolshoj
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.