Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.09.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 33 MAÐURINN sem nú er íhaldi sænsku lögregl-unnar, grunaður um aðhafa stungið Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð- ar, til bana, er sagður smáglæpa- maður og fótboltabulla, sem hallur er undir skoðanir nýnazista, án þess þó að tengjast neinum hægriöfga- samtökum. Sakaskrá mannsins, sem er 35 ára að aldri, kvað vera löng. Að sögn sænska síðdegisblaðsins Aftonbladet hefur hann átján sinn- um hlotið dóm fyrir alls 49 brot og setið fjórum sinnum í fangelsi. Með- al afbrotanna eru fjársvik, líkams- árásir og að hafa ógnað fólki með hnífi. Hófst afbrotaferillinn árið 1987, þegar maðurinn var 19 ára. Hann kvað aldrei hafa haft neina fasta vinnu og vitað er að hann er fíkniefnaneytandi, er sagður nota eða hafa notað kókaín. Anna-Lena Lodenius, sænskur rithöfundur sem sagður er sérfróð- ur um nýnazisma í Svíþjóð, tjáði TT-fréttastofunni að hefði ódæðis- maðurinn hrærzt í félagsskap ný- nazista sé vel hugsanlegt að hann hefði haft pólitískar ástæður fyrir að myrða Önnu Lindh. Formælend- ur Evrópusambandsins, fólk sem berst gegn kynþáttaandúð og jafn- aðarmenn eru ofarlega á lista yfir þá sem nýnazistar hata, að sögn Lodenius. Allt þetta átti við um Önnu Lindh. Svenska Dagbladet hefur hins vegar eftir Lodenius, að Anna Lindh hafi sér vitanlega aldr- ei verið nein sérstök hatursfígúra nýnazista; andúðin á henni meðal þeirra hafi aldrei orðið neitt í lík- ingu við það sem til dæmis Mona Sahlin varð fyrir, en hún var um skeið aðstoðarforsætisráðherra og áberandi frammámaður Jafnaðar- mannaflokksins. Afbrotafræðingar gera enda lítið úr líkunum á því að pólitískar ástæður hafi legið að baki morðinu. Svenska Dagbladet hefur eftir Jerzy Sarnecki, prófessor í afbrota- fræði sem sérstaklega hefur rann- sakað hvernig tengslanet afbrota- manna verða til og verka, að margir venjulegir glæpamenn séu í snert- ingu við hægriöfgahópa. „Ég tel að rétt sé að líta þannig á, að margir afbrotamenn þurfi á ein- hverri æðri réttlætingu á gerðum sínum að halda. (...) Til að létta hinni sálrænu pressu af sér sem brotin gegn reglum samfélagsins skapa hjá afbrotamönnunum geta þeir geta sagt að þeir lifi í skítaþjóð- félagi sem lúti stjórn vinstrimafíu og júðasvína. Þess vegna gera margir slíkir venjulegir afbrota- menn skoðanir hægriöfgamanna að sínum,“ segir Sarnecki, og bætir við: „Líti maður til baka til þeirrar kynslóðar sem fór langt út á glæpa- brautina á áttunda áratugnum voru það vinstriöfgaskoðanir sem glæpa- mennirnir gerðu þá að sínum. Í samfélaginu eins og það er nú er al- gengara að leitað sé langt til hægri.“ Vel gefinn en ofbeldishneigður Sænsk og önnur norræn dagblöð hafa birt margvíslegar lýsingar á hinum handtekna, hafðar eftir fólki sem segist þekkja hann. Virðist frá- sögnunum bera saman um að mað- urinn sé vel gefinn og víðlesinn, en stundað fínustu krárnar og næturklúbbana í kring um Sture- plan í miðborg Stokkhólms og um- gengizt í þessu „hinu lífi“ sínu unga, ríka og fræga fólkið, þar á meðal Madeleine prinsessu, yngri dóttur konungshjónanna, og vinahóp hennar. „Hann elskaði að sitja til dæmis á útikaffihúsi Sturehof og drekka kampavín og skála við alla sem gengu hjá,“ hefur blaðið eftir mann- eskju sem segist hafa þekkt hann í þessu „næturlífsljóns-gervi“ sínu og sögð er í nánum tengslum við konungsfjölskylduna. „Það skilur enginn neitt í þessu. Vissulega var hann á köflum undarlegur, en eng- um hefði dottið í hug að hann gæti verið fær um að gera annað eins og hann hefur nú gert,“ skrifar Ex- pressen eftir sama viðmælanda. „Já, hann og Madeleine prinsessa voru málkunnug,“ segir viðmæl- andinn. Enginn í þeirra hópi hefði þó þekkt hann af myndunum úr ör- yggismyndavél NK-vöruhússins, sem birtar voru á sunnudag. „Þetta er alveg óskiljanlegt. Drap hann hana virkilega? Guð minn góður. Ég skil þetta ekki,“ hefur Expressen eftir 23 ára gam- alli stúlku sem segist hafa verið kærasta hins handtekna í hálft ár. Einn kunningi hans, sem Ex- pressen segir að hafi hitt hann síð- ast fyrir nokkrum vikum, segir um hann: „Einn greindasti maður sem ég þekki. En hann er jafnframt klikkaður.“ honum í fyrra, í tengslum við eitt dómsmálið, er því slegið föstu að hann þjáist ekki af neinum eiginleg- um geðsjúkdómum. En hann eigi við persónuleikaraskanir að stríða, með sjálfhverfu- og sjálfsupphefð- areinkennum. „Þeir sem þekkja (...) hafa lýst honum sem sérlunduðum, lokuðum, með hneigð til að flýja undan vanda- málum, óþroskuðum, uppstökkum, tilfinningaköldum og kaldranaleg- um. Skapsmunalegt ójafnvægi hans veldur því að þegar í móti blæs bregzt hann oft við með offorsi,“ segir í skýrslu félagsráðgjafa sem samin var um hann í nóvember 1991, eftir því sem Aftonbladet greinir frá. Sálfræðingurinn Ulf Åsgård tjáði TT að margt benti til þess að hinn grunaði þjáðist af sálsýkiseinkenn- um. „Ég hef allan tímann trúað því að ódæðismaðurinn væri sjúkari á geði en sá grunaði lítur út fyrir að vera. Það sem ég hef heyrt um hann passar við næstlíklegustu tilgátu mína, að maðurinn sé sálsjúkur,“ segir Åsgård. Vitað er að hann hafi notað mörg nöfn; hann hafi meira að segja látið falsa fyrir sig vegabréf undir fölsku, erlendu nafni. Í raun heiti hann hins vegar mjög venjulegu, sænsku nafni. Í vinfengi við vinahóp Madeleine prinsessu? Á fréttavef æsifréttablaðsins Ex- pressen er fullyrt að maðurinn hafi með alvarlega skapgerðarbresti og haldinn ofbeldishneigð, sem hann fái meðal annars útrás fyrir í stuðn- ingsmannaliði Djurgården-knatt- spyrnuliðsins í Stokkhólmi. Kváðu vera til myndir af honum í slags- málum í kring um knattspyrnuleiki. Hann var handtekinn á þriðjudags- kvöld á krá við Råsunda-knatt- spyrnuleikvanginn í Solna í Stokk- hólmi. Að sögn Dagbladet var maðurinn þekktur í hópi stuðningsmannaliðs Djurgården ýmist sem „Nazista- Per“ eða „Kamikaze“, en síðara við- urnefnið vísaði til þess að hann gekk jafnan fram fyrir skjöldu þeg- ar til átaka kom við aðrar fótbolta- bullur. En maðurinn á sér greinilega fleiri hliðar en líf sem fótboltabulla. „Einu sinni varð ég vitni að því hvernig hann heillaði nokkrar eldri frúr með því að tala af þekkingu um klassíska tónlist. En hann var líka heillaður af nazistatímanum í Þýzkalandi og var mjög vel að sér um síðari heimsstyrjöld,“ hefur Dagbladet eftir manni sem segist hafa þekkt hinn handtekna í yfir 20 ár. Annar vinur hans segir uppá- haldsbókina hans vera „Utangarðs- manninn“ (L’etranger) eftir Albert Camus (sem til er í íslenzkri þýð- ingu undir titlinum „Útlendingur- inn“). Þegar í æsku er maðurinn sagður hafa átt erfitt með að aðlagast sam- félaginu. Í niðurstöðum réttarsál- fræðirannsóknar sem gerð var á Ofbeldishneigður smáglæpamaður Afbrotafræðingar segja ósennilegt að pólitískar ástæður hafi legið að baki morðinu á Önnu Lindh, þrátt fyrir ný- nazistatengsl meints morðingja hennar. Reuters Forvitnir vegfarendur fyrir utan veitingastaðinn „East End Company“ við Råsunda-leikvanginn í Stokkhólmi, þar sem hinn grunaði var handtekinn í fyrrakvöld. Maðurinn gekk m.a. undir gælunafninu „Nazista-Per“. Reuters Mynd af hinum grunaða úr upp- töku öryggismyndavélar í NK-vöruhúsinu í Stokkhólmi. ’ Einn greindastimaður sem ég þekki. En hann er jafn- framt klikkaður. ‘ MAÐURINN sem grunaður er um morðið á Önnu Lindh var handtekinn eft- ir að faðir hans og fleiri í fjölskyldu hans báru kennsl á hann á myndum, sem yfirvöld höfðu dreift, og bentu lögreglunni á hann, að sögn sænska dag- blaðsins Expressen í gær. Fráskildir foreldrar hans hafa báðir fengið dæmt nálgunarbann á son sinn vegna ofbeldis og hótana sem hann hafði beitt þau, hvort fyrir sig – fað- irinn í desember 2001 og móðirin þremur mánuðum síðar, í febrúar 2002. Sænskir fjölmiðlar höfðu birt myndir úr öryggiskerfi verslunarmiðstöðv- arinnar þar sem Lindh var stungin til ólífis og þær voru teknar þremur mín- útum áður en morðið var framið. Myndirnar voru af manni sem lögregluna grunar að hafi myrt utanríkisráðherrann. Að sögn Expressen báru ættingjar mannsins, sem var handtekinn í fyrra- kvöld, kennsl á hann á myndunum, þeirra á meðal faðirinn. „Ábending hans var mjög traust,“ hafði blaðið eftir heimildarmanni í lög- reglunni í Stokkhólmi. Lögreglan staðfesti þetta þó ekki. „Hægt var að handtaka manninn vegna ábendinga og aðstoðar almennings,“ sagði Leif Jennekvist, sem stjórnar rannsókn morðmálsins. Hann vildi ekki greina frekar frá aðdraganda hand- tökunnar. Lögreglan er með skýrari myndir af manninum og þær eru á meðal gagna sem sýnd verða lykilvitnum að lokinni sakbendingu. Sænskir fjölmiðlar sögðu í gær að yfirsaksóknarinn Agneta Blidberg hefði ákveðið á mánudagskvöld að gefa út handtökutilskipun á hendur manninum. Tilskipuninni var þó haldið leyndri þar til daginn eftir og nokkr- um klukkustundum eftir að skýrt var frá henni var hinn grunaði handtekinn á veitingahúsi í Solna í Stokkhólmi. Maðurinn var þá að horfa á knattspyrnuleik sænsku grannliðanna Hammarby og Djurgården. Hann veitti enga mótspyrnu þegar hann var handtekinn og reyndi ekki að villa á sér heimildir, að sögn sænskra fjöl- miðla. Faðir hans benti lögreglunni á hann ðgerðina em var rei gert i hún kandi og dís. m augum a að eftir kið í mun æragjöf á a lítil. hefði ð í þeirri gefa líf- ákomn- n núna tvisvar m alla fylgst egir Ás- ólk taki sé það gefa úr r það ar farið inn á heimasíðu landlæknisemb- ættisins og látið skrá sig sem líf- færagjafa en fæstir viti af því og ákaflega fáir hugsi út í það. „Maður hugsar ekkert út í þetta fyrr en maður lendir allt í einu í að barnið manns þarf lífs- nauðsynlega líffæri úr einhverjum öðrum. Barnið okkar hefði ekki lif- að af ef enginn hefði viljað gefa henni lifur.“ Þau segja að þótt Auði vegni vel sé hættan þó ekki liðin hjá, hún þurfi að vera á lyfjum alla ævi og þau þurfi að huga afar vel að hreinlæti. Hún sé sérstaklega næm fyrir sjúkdómum því hún sé á lyfjum sem bæla ónæmiskerfið en það er gert til að minnka lík- urnar á að líkami hennar hafni lifrinni. „Það má segja að við séum dálítið móðursjúk þegar kemur að hreinlæti í kringum hana,“ segja þau Ásdís og Valdimar brosandi, „en það er ekki neitt til að hafa áhyggjur af miðað við hvað hún er búin að ganga í gegnum.“ ski lifrarþeginn stöðunni“ Morgunblaðið/Kristinn g Ásu og Margréti Valdimarsdætrum. dgæfur mur upp ýsir sér í tja gall eyðast á gu, að nar, sér- lifr- hann búningi á landi. a sem fá t að búa rnanna ilvikum eikjast og þá er eina ráðið lifrar- ígræðsla. „Guluefni sem er í lifr- inni safnast fyrir í henni og börnin verða gul á lit. Við þetta skemmist lifrin hægt og rólega og skorpulifur hlýst af,“ útskýrir Lúther. Lúther segir að hjá Auði hafi aðgerðin og batinn gengið von- um framar, lifrin í henni starfi nú á eðlilegan hátt. Hann bendir á að Auður sé eina barnið hér á landi sem hafi farið í lifrar- ígræðslu vegna sjúkdómsins og að hún sé jafnframt yngsti lifr- arþeginn hér á landi. rður skorpulifur ir aðgerðina en hún var orðin græn og skorpin. ur úr heilbrigðri manneskju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.