Morgunblaðið - 18.09.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú
einstakt tækifæri til borgarinnar eilífu, í beinu flugi þann 1. október frá Íslandi til
Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd
fararstjóra Heimsferða og upplifað árþúsundamenningu og andrúmsloft sem er
einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku þrepin,
katakomburnar, Kóloseum, Circus Max-
imus eða ferð til Tívolí, þar sem fræg-
ustu rómversku höllina er að finna, Villa
Adriana. Eða einfaldlega að rölta um
þessa stórkostlegu borg, drekka í sig
mannlífið, njóta frægra veitinga- og
skemmtistaða og upplifa hvers vegna
allar leiðir liggja til Rómar.
Aðalfararstjóri: Ólafur Gíslason
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.950
Flugsæti með flugvallarsköttum.
Verð kr. 59.950
Verð m.v. 2 í herbergi, flug, gisting á
Hotel Center, skattar, íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Forfallagjald, kr. 1.800,
valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli, kr.
1.800.
Kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða
· Borgarferð – hálfur dagur
· Keisaraborgin – hálfur dagur
· Tívolí – hálfur dagur
Beint morgunflug - Síðustu 18 sætin
Róm
helgarferð - 1. október
frá kr. 39.950
ÓMAR Ragnarsson, fréttamaður á
Ríkisútvarpinu, hlaut í gær NORD-
FAG-verðlaunin 2003 og afhenti
Vigdís Finnbogadóttir, formaður
dómnefndar, honum verðlaunin við
athöfn í útvarpshúsinu. NORDFAG
eru regnhlífarsamtök næstum allra
starfsmanna ríkisútvarpa á Norð-
urlöndunum eða 10–11.000 starfs-
manna.
Í umsögn dómnefndarinnar sagði
að Ómar væri frumkvöðull í sjón-
varpsfréttamennsku á Íslandi og
hann hefði átt ríkan þátt í að stuðla
að almennum áhuga Íslendinga á
náttúru landsins og gera þjóðina
læsa á sitt eigið land. „Smitandi
áhugi hans á eigin landi, þjóð og
menningu ásamt eldmóði sem ekki
hefur dvínað í þá áratugi sem hann
hefur starfað sem frétta- og dag-
skrárgerðarmaður við íslenskt
sjónvarp eru aðalsmerki hans og
marka honum algera sérstöðu.“
Fólk og náttúra
fyrir fólk
Ómar sagðist auðvitað vera
þakklátur fyrir þessa viðurkenn-
ingu en hún hefði komið honum al-
gerlega í opna skjöldu. „Það er
kannski réttara að orða það svo að
ég hafi orðið undrandi og efins en
þakklátur fyrir það að hugsanlega
hafi ég ekki verið bara að vinna fyr-
ir vindinn.“
Ómar segir að auðvitað sé nátt-
úran einksis virði án fólksins, hann
hafi alltaf leitast við að fjalla um
fólk og náttúru, fyrir fólkið. Hann
segir næg verkefni vera framundan
hjá sér.
„Ég er með ótalmargt í takinu
fyrir utan fréttirnar en þau þrjú
verkefni sem ber hæst hérna í sjón-
varpinu eru Hans Nick, Þrændalög-
in og Eþíópía. Hans Nick var Sviss-
lendingur sem kom til Ísland á
sjöunda áratugnum og tók alveg
sérstaklega góðar myndir sem ekki
hafa sést áður. Ég fór til Noregs og
er að leggja drög að þætti um
Þrændalögin og hátíðina í Þránd-
heimi. Þá fór ég til Eþíópíu fyrir
Hjálparstarf kirkjunnar, en RÚV
lagði mig til sem starfsmann, og ég
ætla að gera tvo til þrjá þætti um
það ferðalag. En þess fyrir utan er
ég margt annað í takinu á eigin
vegum.“
Ómar Ragnarsson fær
norræn fréttamannaverðlaun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vigdís Finnbogadóttir afhendir Ómari Ragnarssyni verðlaunin.
Þá hækkuðu laun kvenna meira en
laun karla á tímabilinu eða um 6,1%
samanborið við 4,7% hjá körlum.
Laun á höfuðborgarsvæðinu hækk-
uðu einnig ívið meira en laun utan
höfuðborgarsvæðisins. Launahækk-
un í fyrrnefnda tilvikinu var 5,4% en
í því síðarnefnda 4,7%.
Samkvæmt könnuninni voru
regluleg laun allra starfsstétta að
meðaltali 192.900 kr. síðastliðið vor
og heildarlaunin þegar yfirvinna hef-
ur verið tekin með í reikninginn kr.
247.600.
Regluleg laun verkafólks voru
142.500 kr. á mánuði, þjónustu-,
sölu- og afgreiðslufólks 159.200,
skrfistofufólks 183.700 kr., iðnaðar-
manna 219.500 kr., tækna og sér-
menntaðs starfsfólks 296.200 kr. sér-
fræðinga 350.800 kr. og stjórnenda
390.900 kr.
Þegar vinnutíminn er skoðaður
kemur í ljós að verkafólk vinnur
lengsta vinnutímann eða 49,4 stundir
að meðaltali á viku. Stjórnendur
vinna stysta vinnutímann í viku
hverri eða 40,3 stundir.
KAUPMÁTTUR launa jókst að
meðaltali um 3,2% á einu ári milli
vormánaða í ár og sama tímabils í
fyrra samkvæmt nýútkominni launa-
könnun Kjararannsóknanefndar,
sem tekur til þess fólks sem vinnur á
almennum vinnumarkaði.
Samkvæmt könnuninni sem mælir
launabreytingar milli annars árs-
fjórðungs í ár og sama tímabils í
fyrra hækkuðu regluleg laun, sem
eru grunnlaun að viðbætum föstum
aukagreiðslum, um 5,2% að meðal-
tali á tímabilinu. Vísitala neyslu-
verðs hækkaði um 2% á sama tíma
og því jókst kaupmáttur launanna að
meðaltali um 3,2%.
Laun kvenna hækkuðu
meira en karla
Mest hækkuðu laun þjónustu-,
sölu- og afgreiðslufólks um 7,4% á
tímabilinu, en iðnaðarmenn hækk-
uðu minnst um 3,8%. Þá hækkaði
verkafólk um 5%, skrifstofufólk um
4,5%, tæknar og sérmenntað starfs-
fólk um 4,4%, sérfræðingar um 4,6%
og stjórnendur um 4,5%.
!"#!
$ %
%
"&"
!
"#$
"%$%
#%'
"#"%
#$"
"##$
#!"$
" &
#"
"!'&
( )
!
! !
!#
!&!
!#!
!
!!
!$#
Launakönnun Kjararannsóknanefndar
Kaupmáttur
hefur aukist
um 3,2% í ár
ÓVENJULEGUM málflutningi á
vegum Héraðsdóms Suðurlands lauk
á Hótel Geysi í Haukadal í gær. Til-
efnið var málshöfðun ríkisins á hend-
ur landeigendum í uppsveitum Ár-
nessýslu vegna úrskurðar óbyggða-
nefndar á sínum tíma. Hófst mál-
flutningurinn á mánudag á því að
lögmenn og dómarar fóru á vettvang
og skoðuðu þau landamerki og land-
svæði sem deilt er um. Dóms er að
vænta innan fjögurra vikna.
Í málinu er tekist á um lögfræðileg
grundvallaratriði, m.a. þau hver skuli
bera hallann af óljósum heimildum
um landnám og hvort aðilar hafi full-
komna eignarhefð á landi eða einung-
is afnotarétt.
Ríkið vill ekki una úrskurði
óbyggðanefndar frá því í mars árið
2002 en landeigendur vilja að hann
verði staðfestur. Telja landeigendur
að ríkið geri tilraun til eignaupptöku
með kröfugerð sem nær inn á þing-
lýstar jarðir bænda. Bændur telja að
kröfur þessar standist hvorki 72. gr.
stjórnarskrárinnar né eignarvernd-
arákvæði mannréttindasáttmála
Evrópu. Kröfugerð ríkisins sé hvorki
í samræmi við vilja Alþingis né til-
gang laga um óbyggðanefnd. Jörð
með þinglýstum landamerkjum sé
eignarland nema ríkið sanni annað.
Vísað til dómafordæma
Ríkið vísar til dómafordæma
Hæstaréttar sem gert hafa strangar
sönnunarkröfur til þeirra sem halda
fram beinum eignarrétti á öræfa-
landi. Land hafi ekki verið numið til
jökla, og ævinlega hafi verið fyrir
hendi stór landssvæði sem enginn
hafi haft beinan eignarrétt á, en það
land teljist nú þjóðlenda eftir gild-
istöku þjóðlendulaga nr. 58/1998.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð læt-
ur reyna á 150 ára gamalt afsal sitt
fyrir afrétti norðan Hvítárvatns sem
hreppurinn keypti landið af kirkjun-
um í Biskupstungum. Áttu þær land-
ið samkvæmt heimildum í fornum
máldögum.
Málið dæma Ingveldur Einars-
dóttir, settur dómstjóri við Héraðs-
dóm Suðurlands, ásamt Sigurði Tóm-
asi Magnússyni héraðsdómara og
Arngrími Ísberg héraðsdómara. Af
hálfu landeigenda fluttu málið
hæstaréttarlögmennirnir Ólafur
Björnsson og Ragnar Aðalsteinsson.
Skarphéðinn Þórisson ríkislögmaður
flutti mál ríkisins og honum til að-
stoðar var Einar Hallvarðsson hrl.
Áfrýjun ríkisins á úrskurði óbyggðanefndar
Málflutningur í upp-
sveitum Árnessýslu
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Áður en málflutningur hófst kynntu dómarar og lögmenn sér umdeild landamerki og landsvæði með vettvangs-
ferð um uppsveitir Árnessýslu. Á myndinni er hópurinn staddur í Úthlíð í Biskupstungum.