Morgunblaðið - 18.09.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 11
t.d. var þar veiðimaður á mánu-
daginn sem fékk 30 birtinga, allt
að 4 punda,“ bætti Jakob við.
Skoska aðferðin
Sl. sunnudag var greint frá
væntanlegri tilraun Stangaveiði-
félagsins Lax-á að koma á hinni
hefðbundnu skosku veiðiaðferð
„loch fishing“ í íslenskum stöðu-
vötnum þar sem lax gengur um.
Þessi umræða hefur vakið athygli
sem vonlegt er, en rétt mun vera
að engin vötn hafa verið valin í
þessu sambandi. Vötnin sem nefnd
voru í fréttinni og birtust á heima-
síðu Lax-á, Laugarbólsvatn og
Svínavatn, eru til athugunar sem
og fleiri sem bjóða upp á skilyrði
fyrir þennan veiðiskap.
EFSTA svæði Grenlækjar, svo-
kallað svæði 7, sem áður var nán-
ast lokað fyrir stangaveiði, er nú
komið í notkun og síðustu tíu daga
hafa menn verið að fá þar góða
veiði og vænan fisk, enda þarf
birtingur sem þangað gengur að
stökkva fremur strembinn foss og
það gera bara þroskaðir hrygning-
arfiskar.
Jakob Hrafnsson, annar leigu-
taka svæðisins sagði í samtali við
Morgunblaðið að svæðið hefði
komið vel út að undanförnu, „Veið-
in hefur tekið kipp á svæðinu síð-
ustu tíu dagana og menn verða
varir við mikinn fisk og hefur
hann dreift sér vel um svæðið. Það
er auðvelt að gleyma sér þarna í
hrauninu og menn hafa verið að fá
nokkra fiska á dag, væna fiska, og
missa líka talsvert því fiskur hefur
tekið grannt. Það hefur verið mik-
ið vatn að undanförnu, en farið
sjatnandi,“ sagði Jakob.
Önnur sjóbirtingsverstöð á
svæðinu er Víkurflóð og hafði Jak-
ob einnig haft spurnir þaðan, „það
hafa komið góð skot í Víkurflóði,
Menn hafa verið að fá góð skot í
Þverá í Fljótshlíð, Vignir Arn-
arson sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði farið þang-
að góða ferð fyrir skömmu við
annan mann. Fengu þeir á stutt-
um tíma 4 laxa og eina 6 punda
bleikju. Nokkuð á annað hundrað
laxar hafa veiðst og sagði Vignir
talsvert af laxi í ánni, en hún væri
erfið, vatnslítil og viðkvæm. Það
þyrfti að læðast og skríða um
bakka.
Þá höfum við fregnað að Kvísla-
veitur hafi gefið vel í haust, en
stutt mun í yfirfallsvatn þar ef það
er ekki þegar brostið á. Fyrir
stuttu fóru tveir saman og fengu
tólf urriða hvor. Höfðu farið áður
og veitt mjög vel, sem og fleiri.
Birtingur
dreifir sér
um Grenlæk
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Falleg kvöldstemning við Skógá.
5–8 punda laxar og 6 punda bleikja
úr Þverá í Fljótshlíð.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
ÁRIÐ 2020 geta konur vænst þess
að verða 82,3 ára og karlar 79,1; 2040
verður meðalævilengd kvenna 82,6
ár og karla 80,1. Dánartíðni hefur
verið töluvert hærri meðal karla en
kvenna í öllum aldurshópum. Á allra
síðustu áratugum hefur hins vegar
dregið saman með kynjunum og sú
þróun mun halda áfram, ef marka
má framreikning mannfjöldans á Ís-
landi til ársins 2040 sem Hagstofan
hefur gefið út. Munar hér mestu um
lækkun dánartíðni af völdum hjarta-
og æðasjúkdóma og af völdum slysa.
Á fyrri hluta 8. áratugarins var 6
ára munur á ævilengd karla og
kvenna en var aðeins rúmlega 4 ár í
lok 10. áratugarins. Standist for-
sendur framreiknings verður munur
milli kynjanna rúmlega 3 ár árið
2020 og aðeins 2,5 ár 2040.
Samkvæmt spánni fjölgar Íslend-
ingum í 300.000 á árinu 2007. Árið
2020 verða landsmenn tæplega
326.000 að tölu og liðlega 351.000 ár-
ið 2040.
Árið 2040 verður hlutfall aldraðra,
reiknað sem hlutfall 60 ára og eldri
af íbúum 20-59 ára, verða 0,55 en það
er 0,28 í dag sem er lágt samanborið
við önnur Evrópulönd.
Samkvæmt framreikningi mun Ís-
land ná hlutfalli þessara landa í
kringum 2020.
Hlutfall barna og unglinga 0-19
ára af íbúum 20-59 ára er aftur á
móti hátt á Íslandi eða 0,57, saman-
borið við 0,41 í Evrópusambands-
löndunum. Hér á landi verður þetta
hlutfall 0,50 í lok spátímabilsins.
Forsendur framreikningsins gera
ráð fyrir að frjósemi haldist óbreytt
út allt tímabilið og sé jafnhá og 1998-
2002. Þá er gert ráð fyrir að fjöldi að-
fluttra umfram brottflutta til og frá
landinu haldist óbreyttur miðað við
það sem var á árabilinu 1993-2002.
Við útreikning á dánarlíkum var tek-
ið mið af þróun dánartíðni síðustu
fjögurra áratuga og leitnin skoðuð
eftir kyni og aldri. Ekki var gert ráð
fyrir bættum lífslíkum 85 ára og
eldri en dánartíðni þessa aldurshóps
hefur verið nánast óbreytt síðustu
tvo áratugi. Í flestum aldurshópum
var gert ráð fyrir meiri lækkun á
dánarlíkum karla en kvenna.
Spá Hagstofunnar um þróun mannfjölda
Íslendingar
300 þúsund
árið 2007?
!
" !
#
" #
$
" $
#
#
#
!#
!%
!
!
!
#%
!" #
& ' (
)
*+
, ,
ÞOTU Flugleiða var snúið við eftir
um 45 mínútna flug áleiðis til Lund-
úna í gærmorgun vegna tæknilegrar
bilunar og flogið aftur til Keflavíkur.
Þotan, sem er af gerðinni
Boeing-757, fór frá Keflavík til
Lundúna um klukkan 7:45 en lenti
aftur í Keflavík klukkan 9:20.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða, var
vélin að hækka úr 33 þúsund fetum í
37 þúsund fet þegar bilunarinnar
varð vart. „Flugstjóranum fannst
vélin ekki hafa nægt afl og að höfðu
samráði við flugvirkja á jörðu niðri
var ákveðið að snúa við og athuga
hvað væri að. Það kom strax í ljós
hvað var að og það var lagað og farið
í loftið aftur.“ Bilunin mun hafa
tengst eldsneytisdælu í vélinni.
Snúið við vegna bilunar
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt karlmann á þrí-
tugsaldri í 15 mánaða fangelsi, þar
af 12 mánuði skilorðsbundið, fyrir
innbrot og fjölda þjófnaða, aðal-
lega úr bílum, fyrr á þessu ári.
Frestun fullnustu refsingar
ákærða er bundin þeim skilyrðum
að hann sæti á skilorðstímanum
sérstakri umsjón, að hann hlíti fyr-
irmælum um dvalarstað og vistun
og greiði eftir getu fébætur fyrir
tjón, sem hann hefur valdið með
brotum sínum.
Fram kemur í dómnum að í
mörgum tilvikum voru brotin fólg-
in í því að fara inn í ólæstar bif-
reiðar að næturlagi. Ákærði hefur
áður verið dæmdur fyrir slíka
háttsemi en líkt og í þessu máli
hafði hann lítið upp úr krafsinu. Í
öðrum tilvikum voru þjófnaðar-
brotin fólgin í því að taka fjármuni
úr yfirhöfnum fólks, en undir það
síðasta var ákærði farinn að brjót-
ast inn í verslanir og veitingahús.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
dæmdi málið. Verjandi ákærða var
Þorsteinn Hjaltason hdl. Málið
sótti Eyþór Þorbergsson sýslu-
mannsfulltrúi.
15 mánaða
fangelsi fyr-
ir innbrot
og þjófnaði
BÓKIN Saga Hljóma, sem gefin
var út árið 1969, er talin fyrsta ís-
lenska bókin
sem gagngert
var skrifuð um
dægurlaga-
tónlist. Hana
ritaði Ómar
Valdimarsson,
blaðamaður, og
einn helsti popp-
penni landsins á
þeim tíma, en þá
var hann ekki nema nítján ára
gamall. Var þetta gert að und-
irlagi athafnamanns nokkurs, þess
sama og stóð fyrir frægri „pop-
hátíð“ í Laugardalshöll sama ár.
Allar helstu popp- og rokk-
sveitir landsins komu fram á þess-
um tónleikum og þar var Björgvin
Halldórsson valin vinsælasta
poppstjarna landsins. Athafna-
maðurinn fór hins vegar af landi
brott með ágóðann og skildi popp-
ara, svo og Ómar, eftir með sárt
ennið.
Bókin er talin fyrsta alvöru
„heimildin“ um íslenska dæg-
urtónlist, skrifuð um það leyti er
Hljómar voru að hætta. Óttar Fel-
ix Hauksson hjá Sonet, sem var
þátttakandi í poppmenningu sjö-
unda áratugarins, festi á dögunum
kaup á nokkur hundruð eintökum,
upplagi sem legið hafði í geymslu í
yfir þrjátíu ár. Bækurnar eru
ósnertar.
Bókin var prentuð á sínum tíma
í Víkingsprenti. Stafli af bókum
fór aldrei úr prentsmiðjunni og
var um síðir seldur á uppboði. Það
var svo bakarameistarinn Sverrir
Sigþórsson sem keypti staflann
„sennilega ’71 eða ’72,“ að mati
Óttars. Hann heldur áfram: „Hann
ætlaði sér líkast til að gera sér
einhvern mat úr þessu. En öldin
var orðin önnur, hárið síðara og
tónlistin þyngri. Bækurnar enduðu
því uppi á háalofti.“
Óttar segist hafa farið af stað í
sumar í einskonar rannsóknarleið-
angur, og ætlunin hafi verið að
reyna að komast að afdrifum bók-
arinnar. Óttar hafði svo uppi á
Sverri að lokum, keypti af honum
bækurnar og eru þær nú í hans
varðveislu. Að sögn Ómars Valdi-
marssonar vakti bókin mikla
lukku á sínum tíma og giskar
hann á að hátt í tuttugu þúsund
eintök hafi selst á sínum tíma; á
hljómleikum, í búðum og í póst-
kröfu.
Óttar segist búast við því að
hann reyni að tengja bókina við
væntanlega plötu Hljóma, sem
kemur út 5. október næstkomandi,
á fjörutíu ára starfsafmæli sveit-
arinnar. Fimm hundruð stykki
verði líklega látin fylgja með disk-
um sem ákveðið fágæti.
Hljómabók fram í dagsljósið
Ómar Valdimarsson og Gunnar Þórðarson í Hljómum blaða í bókinni góðu.
Morgunblaðið/Ómar
Óttar Felix Hauksson hjá upplaginu af bókinni.
Ósnert eintök af bók um Hljóma frá 1969 finnast