Morgunblaðið - 18.09.2003, Síða 38
MINNINGAR
38 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Vallaður Pálssonsendibílstjóri
fæddist á Stóru-Völl-
um í Landsveit í
Rangárvallasýslu
hinn 16. mars 1928.
Hann lést á líknar-
deild L-5 á Landakoti
11. september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin Páll
Jónsson, bóndi á
Stóru-Völlum, f. 10.
janúar 1890 á Ægis-
síðu í Holtum, d. 29.
október 1943, og Sig-
ríður Guðmundsdótt-
ir húsfreyja, f. 9. ágúst 1900 á
Stóru-Völlum, d. 26. febrúar 1988.
Systkini Vallaðs eru: Jens Ríkharð-
ur, f. 18. janúar 1924; Jón, f. 20. jan-
úar 1925, d. 12. ágúst 1958; Sigríð-
ur, f. 21. janúar 1926; Óðinn, f. 7.
febrúar 1927; Þór, f. 7. febrúar
1927; Gunnur, f. 4. janúar 1930;
Þýðrún, f. 19. janúar 1931; Atli, f.
18. ágúst 1933; Ragnheiður, f. 18.
ágúst 1933; Ása, f. 19. janúar 1935;
hennar voru Brandur Einarsson, f.
8. ágúst 1889, d. 1. febrúar 1969, og
Guðbjörg Árnadóttir, f. 5. mars
1893, d. 7. október 1956. Dætur
Vallaðs og Ólafar eru: 1) Guðbjörg,
f. 21. febrúar 1955, gift Jóni Norð-
mann Engilbertssyni, f. 29. janúar
1953. Börn þeirra eru; Kristinn, f.
10. janúar 1979, og Bjarnrún, f. 21.
febrúar 1981, í sambúð með Ragn-
ari Vilhjálmssyni. Fyrir átti Jón
dótturina Brynhildi, f. 14. desem-
ber 1975. 2) Guðný Bjarnrún, f. 30.
júní 1956, d. 30. nóvember 1956. 3)
Sigrún, f. 5. nóvember 1957. Dætur
hennar og Kristjáns Björnssonar, f.
6. desember 1958, eru; Ólöf, f. 18.
janúar 1980, í sambúð með Pétri
Vilhjálmssyni, og Kristín Rut, f. 25.
nóvember 1983, unnusti hennar er
Heiðar Ingvi Eyjólfsson.
Vallaður fluttist til Reykjavíkur
fljótlega upp úr tvítugu og starfaði
m.a. á Langholtsbúinu þar til hann
hóf störf á Sendibílastöðinni Þresti
árið 1955. Hann var þó mikið til í
Múla á sumrin fyrstu árin eftir að
fóstri hans dó. Hann starfaði sem
sendibílstjóri til ársins 2001, er
hann lét af störfum 72ja ára að
aldri.
Útför Vallaðs verður gerð frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
og Guðrún, f. 9. júní
1938.
Á sjötta aldursári
fór Vallaður í fóstur að
Múla í Landsveit. Fóst-
urforeldrar hans voru
hjónin Guðmundur
Árnason, bóndi og
hreppsstjóri, f. 3. júní
1879, d. 20. júní 1950,
og Bjarnrún Jónsdótt-
ir húsfreyja, f. 4. mars
1885, d. 21. ágúst 1965.
Áttu þau hjón eina
dóttur, Auði, f. 13.
ágúst 1907, d. 1. maí
1908.
Vallaður ólst upp í Múla ásamt
sex fóstursystkinum. Af þeim er nú
eitt á lífi, Brynhildur Jónsdóttir, f.
12. september 1933. Þau sem nú
eru látin voru: Ágústa Einarsdóttir,
Tómas Jochumsson, Dagbjartur
Hannesson, Guðmundur Hannes-
son og Guðrún Þórðardóttir.
Eftirlifandi eiginkona Vallaðs er
Ólöf Brandsdóttir, f. 26. maí 1926 á
Suður-Götum í Mýrdal. Foreldrar
Elsku pabbi. Það er skrýtið að
hafa þig ekki lengur hérna hjá okkur.
En þú varst aldrei langt undan.
Þú undir hag þínum ásamt fjöl-
skyldunni á þínum æskustöðvum í
Landsveitinni. Af tólf systkinum
varst þú sjötti í röðinni. Fæddur á
Stóru-Völlum í Landsveit. Á 6. ald-
ursári varstu sendur í fóstur hjá
þeim sæmdarhjónum í Múla, Guð-
mundi og Bjarnrúnu, sem í allt tóku
að sér sjö uppeldisbörn. Þau eignuð-
ust eina dóttur, Auði, sem lést á
fyrsta ári. Eftir lát Guðmundar árið
1950, varst þú Bjarnrúnu fóstru þinni
alltaf innan handar, þú fórst oft aust-
ur til hennar, en hún lést árið 1965.
Eftir hennar dag eignaðist þú einn
þriðja hlut í Múla og Litla-Klofa. Öll-
um frístundum eyddirðu fyrir aust-
an, bæði í Múla og síðar í Litla-Klofa,
eftir að þið mamma reistuð þar bú-
staðinn Klofaból. Þar er nú notalegur
gróðurreitur, því vart sést í bústað-
inn fyrir háum trjágróðri. Þið höfðuð
yndi af því að gróðursetja og var það
gert af mikilli alúð. Þú varst fé-
lagslyndur og hafðir gaman af því að
hitta fólk. Það kom líka til ykkar,
bæði heim og ekki síst í sveitina. Á
hinum ýmsu skemmtunum er við
vorum saman fjölskyldan varst þú
uppáhalds dansherrann minn, dans-
aðir svo vel bæði gömlu- og sam-
kvæmisdansana.
Í 45 ár starfaðir þú sem sendibíl-
stjóri á Þresti og varst lengst af nr. 1
á stöðinni. Þú varst bæði lipur og
bóngóður í starfi. Ekki var verra að
eiga pabba sem átti sendibíl og flutti
allt sem þurfti fyrir okkur. Bæði okk-
ur systrunum og barnabörnunum
þótti ekkert jafn skemmtilegt og að
fá að sitja í sendibílnum með þér í
vinnunni þegar við vorum lítil.
Þú barst ekki tilfinningar þínar á
torg, en þú sýndir svo sannarlega
væntumþykju þína í framkomu og
verki. Alltaf varstu kominn þegar við
Donni vorum eitthvað að sýsla, bæði
heima og fyrir austan. Þau voru ekki
fá handtökin sem þú hjálpaðir okkur
með og þau minna á þig um ókomna
tíð. Erum við þér ævinlega þakklát.
Síðasta ár er búið að vera erfitt. Þú
greindist með þann sjúkdóm er að
lokum tók þig frá okkur.Við áttum þó
góðar stundir saman sem voru vel
nýttar. Fórum til útlanda í þrjár vik-
ur saman, grunnfjölskyldan, ásamt
góðri vinkonu. Á meðan heilsan
leyfði gast þú notið þess að vera fyrir
austan með aðstoð fjölskyldunnar.
Ógleymanlegar minningar eigum við
frá því á sunndaginn sl. þegar þú gast
komið heim til okkar, þá orðinn fár-
sjúkur, og áttir með allri fjölskyld-
unni yndislegan dag.
Þú varst heppinn að eiga mömmu
að. Hún stóð eins og klettur þér við
hlið og annaðist þig af sinni einstöku
alúð í þínu veikindastríði. Nú er kom-
ið að okkur að styðja við bakið á
henni og það munum við gera.
Guð geymi þig, elsku pabbi.
Þín dóttir,
Guðbjörg Vallaðsdóttir.
„Þá mælti Almítra: Mál er nú að
spyrja um dauðann.
Og hann sagði: Þú leitar að leynd-
ardómi dauðans. En hvernig ættir þú
að finna hann, ef þú leitar hans ekki í
æðaslögum lífsins?
Uglan, sem sér í myrkri, en blind-
ast af dagsbirtunni, ræður ekki gátu
ljóssins.
Leitaðu að sál dauðans í líkama
lífsins, því að líf og dauði eru eitt eins
og fljótið og særinn.
Í djúpi vona þinna og langana felst
hin þögla þekking á hinu yfirskilvit-
lega, og eins og fræin, sem dreymir
undir snjónum, dreymir hjarta þitt
vorið.
Trúðu á draum þinn, því hann er
hlið eilífðarinnar.
Óttinn við dauðann er aðeins ótti
smaladrengsins við konung, sem vill
slá hann til riddara.
Er smalinn ekki glaður í hjarta
sínu þrátt fyrir ótta sinn við að bera
merki konungsins?
Og finnur hann þó ekki mest til
óttans?
Því að hvað er það að deyja annað
en standa nakinn í blænum og hverfa
inn í sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga and-
ann annað en að frelsa hann frá frið-
lausum öldum lífsins, svo að hann
geti risið upp í mætti sínum og ófjötr-
aður leitað á fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni
þagnarinnar, mun þekkja hinn vold-
uga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindin-
um, þá fyrst munt þú hefja fjallgöng-
una.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa í fyrsta sinn.“
(Kahlil Gibran.)
Ég kveð þig nú í hinsta sinn, pabbi
minn, og þakka þér samfylgdina í
gegnum lífið.
Einnig vil ég fyrir hönd fjölskyld-
unnar þakka öllum þeim sem önnuð-
ust föður minn og heimsóttu hann í
veikindum hans.
Sigrún Vallaðsdóttir.
Elsku afi minn. Ég verð að viður-
kenna að nú er nokkuð langt liðið síð-
an ég byrjaði að festa þessar hugs-
anir mínar til þín niður á blað. Þá var
sumar og flatirnar okkar loðnar af
gróðri. Ég og trén höfum vaxið sam-
an í sveitinni okkar. Um leið og þú
hefur byggt upp þessa jörð hefur þú
mótað hluta af mér. Því það er hluti
af mér sem vill aðeins vera sterkur
og hraustur eins og afi sinn. En sá
hluti af þér hafði lagt sig til hvílu fyr-
ir nokkru og þegar sumarið hófst
bjóst sveitin mín við því að þú kæmir
til að vinna hörðum höndum. En þá
byrjuðum við að sakna, ég og sveitin
mín. Ég sakna afans sem nennti allt-
af að hafa mig með sér í vinnunni þar
sem ég fékk að reyna mig við þunga
kassa, því ég vildi helst geta borið
þyngstu kassana eins og hann afi
minn gerði. Og ég og Litli-Klofi
gleymum því ekki þegar þú leyfðir
mér að hjálpa til við að dytta að hinu
og þessu og ég get ennþá sagt full af
stolti: ,,Þetta hlið gerðum við afi.“
Þetta eru nokkrar af eftirminnileg-
ustu æskuminningum mínum og það
situr í mér nú þegar ég og trén sem
við settum niður erum orðin svona
ótrúlega stór. Ég er heppin að hafa
átt svona góðan afa.
Kristín Rut Kristjánsdóttir.
Annað hvort prins póló og kók eða
kókómjólk og snúður, eftir því hvort
var nær, sjoppa eða bakarí, en aðeins
ef maður hafði vit á að hitta á rétta
tímann til að segjast vera svangur.
Ekki rétt fyrir hádegið, þá sagði afi
að við værum alveg að fara heim í
mat, heldur ekki of stuttu eftir há-
degið, þá trúði hann ekki að maður
væri orðinn svangur strax.
Þetta er bara ein af ótalmörgum
dýrmætum minningum frá því þegar
ég fékk að fara með afa í vinnuna og
þvælast fyrir eða hjálpa til, líklega
bara þvælast fyrir.
Ég á minningu um hraustan afa,
fílhraustan. Afa sem gat allt, lyft öllu,
byggt hvað sem var og lagað allt.
Góði guð, þakka þér fyrir góðan afa.
Ólöf.
Það er erfitt að trúa því að þú, afi,
sért farinn frá okkur eftir stutt veik-
indi. Þú varst alltaf svo hraustur.
Það er ekki langt síðan þú sveifl-
aðir þér í sperrunum í bústaðnum
sem þér þótti svo vænt um. Þar eydd-
uð þið amma mestum ykkar frítíma.
Við systkinin munum vel hvað það
var gaman að fá að koma með þér í
vinnuna og reyna hjálpa til, þó það
væri nú oft takmarkað.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku afi, takk fyrir allt liðið.
Kristinn og Bjarnrún.
Mig langar að minnast elsku
frænda míns Valla með örfáum orð-
um, þakka honum og fjölskyldu hans
alla tryggð og greiðasemi við mig og
mína fjölskyldu alla tíð. Alveg sama á
hverju þurfti að halda, alltaf var Valli
tilbúinn til hjálpar, hvort sem var að
flytja eitthvað á sendibílnum eða eitt-
hvað annað, allt var sjálfsagt.
Ég veit að það eru margir sem
hafa notið lipurðar hans og dugnaðar
í gegnum árin.
Svona einstaklingar eru ómetan-
legir í þjóðfélaginu og mikil eftirsjá
þegar þeir hverfa af sjónarsviðinu.
Sagt er að maður komi í manns stað
en það kemur enginn í staðinn fyrir
Valla. Hann var einstaklega léttur á
fæti og í lund og gaman að vera í ná-
vist hans, það vissu allir sem til
þekktu. Það var mjög ánægjulegt
þegar bústaðurinn var reistur í ná-
grenninu í Litla-Klofa, þá hittumst
við miklu oftar. Það verður aldrei
fullþakkað allt sem Valli, Óla og fjöl-
skyldur hafa gert fyrir okkur. Mér
flugu í hug tvær vísur til minningar
um Valla:
Kærleiksríkur, kætir lund,
kunni ei við glingur.
Iðjusamur alla stund
enda verkaslyngur.
Alltaf varstu fótafrár,
feikna lyndisglaður.
Jafnan ætíð kátur, knár,
karskur greiðamaður.
Elsku Óla, dætur og fjölskyldur,
hafið mína dýpstu samúð. Guð gefi
ykkur og öllum öðrum ættingjum og
vinum Valla styrk og blessun.
Sigurbjörg Elimarsdóttir.
Hræddist ég, fákur, bleika brá,
er beizlislaus forðum gekkstu hjá.
Hljóður spurði ég hófspor þín:
hvenær skyldi hann vitja mín
Loks þegar hlíð fær hrím á kinn
hneggjar þú á mig fákur minn.
Stíg á bak og burt ég held,
beint inn í sólarlagsins eld.
(Ólafur Jóhann Sig.)
Í dag kveðjum við vin okkar og ná-
granna Vallað Pálsson. Kynni okkar
og Vallaðs eða Valla eins og hann var
gjarna kallaður, hófust fyrir um það
bil tug ára, er við settum niður sum-
arbústaði í landi hans að Litla-Klofa í
Landsveit. Valli var fæddur og upp-
alinn í Landsveitinni. Þó svo hann
byggi lengst af í Reykjavík sótti hann
löngum austur þar sem hann og fjöl-
skyldan byggðu sér fallegan sum-
arbústað og hófu gróðursetningu.
Þar undi hann sér allra best og fár-
sjúkur heimsótti hann æskustöðv-
arnar í síðasta sinn nokkrum vikum
fyrir andlát sitt.
Valli var góður nágranni, ævinlega
reiðubúinn að rétta hjálparhönd ef á
þurfti að halda. Því hafa öll kynni
okkar af honum og fjölskyldunni ver-
ið einstaklega ánægjuleg.
Við nágrannar hans af flötunum í
Litla-Klofalandi kveðjum hann með
söknuði og þökkum fyrir þann tíma
sem leiðir okkar lágu saman.
Við sendum Ólöfu konu hans,
dætrum og fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um Guð að blessa þau.
Nágrannar í sumarhúsalandi
Litla-Klofa.
VALLAÐUR
PÁLSSON
Það er ekki óalgengt
og kannski frekar venja
að forystumenn í fé-
lagasamtökum svipist
um eftir góðu fólki til
þátttöku í forystu fé-
lagsins eða til annarra starfa. Þetta á
við um verkalýðsfélög rétt eins og öll
önnur félög. Þannig kom það til að
Hildur Kjartansdóttir, sem við kveðj-
um í dag, var kölluð til forystu í stétt-
arfélagi sínu, Iðju félagi verksmiðju-
fólks.
HILDUR ARNDÍS
KJARTANSDÓTTIR
✝ Hildur ArndísKjartansdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 25.
desember 1936. Hún
lést á heimili sínu 27.
ágúst síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Bústaða-
kirkju 2. september.
Þegar hún sneri aftur
út á vinnumarkaðinn
eftir að hafa verið
heimavinnandi um
nokkurt skeið hóf hún
störf hjá Sjóklæðagerð-
inni og fljótlega var hún
valin af vinnufélögum
sínum til að hafa forystu
á vinnustaðnum og var
kosin trúnaðarmaður.
Eftir það leiddi hvað af
öðru og allar götur upp
frá því gegndi hún trún-
aðarstörfum í verka-
lýðshreyfingunni.
Fljótlega eftir að
Hildur hafði tekið forystu fyrir vinnu-
félögum sínum var hún kölluð til frek-
ari trúnaðarstarfa. Hún var kosin í
stjórn Iðju 1983 og sat í stjórninni þar
til félagið var sameinað öðrum. Um
tíma ritari en þó lengst varaformaður
eða í 14 ár. Einnig var hún árum sam-
an í stjórn Landssambands iðnverka-
fólks auk ýmissa annarra trúnaðar-
starfa, t.d. á vettvangi ASÍ.
Hildur byrjaði að starfa á skrif-
stofu Iðju á þeim ágæta degi 1. maí
1986. Það má segja að þá hæfist okkar
langa og góða samstarf og stóð þar til
yfir lauk. En eftir sameininguna við
Eflingu hélt hún áfram störfum þar.
Hún var góður starfsmaður en þó
ekki síður góður vinnufélagi og vinsæl
hjá félagsmönnum. Fólki þótti gott að
eiga samskipti við Hildi, koma á skrif-
stofuna þótt ekki væri til annars en að
rabba við hana um hugðarefni sín.
Á litlum vinnustað, þar sem mest
unnu fimm manns, kynnist fólk mjög
vel. Og þegar samstarfið stendur ár-
um saman og jafnvel í áratugi kynnist
fólk oft fjölskyldum hvert annars. Ég
kynntist því börnum hennar allvel,
myndarlegu fólki og vel gerðu sem
hefur nú mikið misst og einnig Sig-
urjón Guðbjörnsson sambýlismaður
hennar hin síðari ár.
Sambýlismanni hennar, börnum,
barnabörnum og öðrum ættingjum
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guðmundur Þ. Jónsson.
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is