Morgunblaðið - 18.09.2003, Page 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 39
Elsku afi.
Það er svo erfitt að
sætta sig við að þú sért
farinn. Það er svo
skrýtið að koma í heimsókn og sjá
stólinn þinn auðan í stofunni. Það er
svo stutt síðan fjölskyldan hittist og
þú söngst með okkur fram á rauða
nótt. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að þekkja þig og að hafa átt
svona góðan mann sem afa. Nú er
þér ekki lengur kalt á fótunum og nú
geturðu aftur gert allt það sem hug
þinn hefur langað svo lengi, en lík-
aminn ekki leyft. Þú varst vanur að
kveðja með því að bjóða okkur ofan í
nammidósina sem aldrei virtist
verða tóm og nú kveðjum við þig
með tár í augum og sorg í hjarta. Við
vitum að þú vakir yfir okkur öllum
og fyrir það erum við þakklát.
Ég er kominn upp á það,
allra þakka verðast,
að sitja kyrr í sama stað,
og samt að vera að ferðast.
(Jónas Hallgrímsson.)
Elsku amma, guð veiti þér styrk
til að takast á við þennan mikla
missi.
Hjördís, Ragnhildur,
Þórður og Ómar Páll.
Elsku afi minn.
Það eru svo margar góðar minn-
ingar sem þú skilur eftir hjá okkur
því að þú varst með svo gott hjarta
og vildir gera allt fyrir alla. Ég
þakka mikið fyrir að hafa átt síðustu
10 ár ævi þinnar svo nálægt mér í
Elliðaárdalnum og fengið að kynnast
þér svona vel, elsku afi minn. Það
verður skrýtið að halda næstu jól án
þín, en ég veit að þú verður hjá okk-
ur.
Þú varst alltaf svo hress og dug-
legur. Þegar þú tókst þér eitthvað
fyrir hendur þá var það gert með
glæsibrag. Eins og til dæmis þegar
þér fannst þú vera farinn að fitna
ákvaðstu að halda í við þig og borða
bara morgunmat, hádegismat og
kvöldmat. Þetta gerðir þú af svo
mikilli ákveðni að þó að þú værir í
veislum þá fékkstu þér ekki einu
sinni kökur, nema þá bara til að gera
fólkinu til geðs. Þú passaðir svo vel
upp á línurnar síðustu 15 árin að allir
öfunduðu þig af því að geta verið
svona ákveðinn í þessu. En þannig
varst þú, það sem aðrir gátu ekki
hugsað sér að gera, það fórst þú létt
með.
Elsku afi, ég hef alltaf dáðst að
þér og mun alltaf gera. Þú hefur
gengið í gegnum svo margt og öðlast
heilan hafsjó af visku og reynslu í
þínu stórbrotna og í marga staði
merkilega lífi. Þú gekkst í gegnum
marga hluti bæði góða og slæma en
þú gerðir það alltaf með miklum
sóma.
Ég kveð þig afi minn með söknuð í
hjartanu og fögrum minningum.
Þín
Sigrún Lilja.
Afi.
Þá ertu farinn á vit ævintýranna,
eftir langa og stranga ævidaga hefur
þú kvatt þína jarðnesku dvöl og
haldið áfram leið þinni til betri stað-
ar, staðar þar sem þú getur notið þín
til fullnustu.
Þín styrka hjálparhönd var alltaf á
lausu fyrir þann hvern, sem á þurfti
að halda.
Gæsku þinni og umhyggju voru
engin takmörk sett.
Og þó svo að þú hafir sjaldan sagt
SIGURBJARTUR
GUÐJÓNSSON
✝ SigurbjarturGuðjónsson
fæddist í Bala í
Þykkvabæ í Rangár-
vallasýslu 7. mars
1918. Hann lést að
heimili sínu í Reykja-
vík 31. ágúst síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Árbæj-
arkirkju 9. septem-
ber.
frá því hvernig þér leið,
þá veit ég og þeim sem
þér var annt um, að þú
hefur stórt hjarta.
Þú ert trúr, þú ert
sannur, þú ert, varst og
verður ávallt sá sem þú
ert; höfðingi.
Minning þín lifir í
hjarta mínu að eilífu.
Ástarkveðja,
Dóra Björt.
Ég fluttist með for-
eldrum mínum í
Þykkvabæ vorið 1949
og kynntist þá frændfólki mínu í
Hávarðarkoti. Sigurbjartur Guð-
jónsson var kvæntur móðursystur
minni, Halldóru G. Magnúsdóttur,
en alls voru þær þrjár systurnar frá
Vestmannaeyjum sem giftust í
Þykkvabæinn. Þær voru, auk Dóru,
móðir mín, Sigríður, sem giftist
Yngva Markússyni, og Klara, sem
giftist Hákoni Hafliðasyni í Búð. Sig-
urbjartur Guðjónsson var fremstur
meðal jafningja í Þykkvabænum og
mikill sómamaður, enda var hann og
hans fólk fjölskyldu minni stoð og
stytta þegar við fluttum í Þykkvabæ
eftir tveggja ára búsetu í Vest-
mannaeyjum.
Á þessum fyrstu árum var mikil
samvinna milli pabba og Sigurbjarts,
upphaflega varðandi heyskapinn en
síðar kartöfluupptöku. Þeir voru
með þeim fyrstu til að vélvæðast í
Þykkvabænum og keyptu saman
fyrstu kartöfluupptökuvélina ásamt
tveimur öðrum. Það var ekki ein-
göngu samvinna varðandi búskapinn
heldur var mikil samgangur milli
fjölskyldnanna.
Ég á margar og góðar minningar
um Sigurbjart. Hann var óþreytandi
að leiðbeina mér og kenna sem barni
og ungum manni og hjálpa til ef
þurfti.
Eitt sinn sem oftar var Sigur-
bjartur í heimsókn og vorum við
pabbi og hann í skúrnum austur af
fjósinu, þegar ég krakkinn spurði
svona út í loftið: „Af hverju er Hafliði
í Búð svona ríkur?“ Það varð smá-
þögn og svo svaraði pabbi: „Það er
vegna þess að hann sker ekki
hnúta.“ Sigurbjartur horfði á pabba
um stund og sagði: „Þetta var gott
svar.“ Sárasta minningin er þó þegar
þau misstu son sinn, Guðjón, aðeins
12 ára gamlan árið 1953.
Kæra Dóra, missir þinn er mikill
og ég samhryggist þér innilega. Þið
Sigurbjartur voruð mér alltaf alveg
einstaklega hlý og góð. Ein minning
kemur upp í hugann. Eitt sinn þegar
ég var að ganga um hlaðið í
Hávarðarkoti kallaðirðu á mig og
spurðir: „Svenni, áttu nokkuð hjól?“
Ég svaraði neitandi og þá spurðirðu
hvort ég vildi ekki eiga hjólið hans
Guðjóns heitins. Og hvort ég vildi!
Jú, takk. Ég gleymi ekki þakklæti
mínu og stolti. Þetta eru aðeins brot
af þeim minningum sem ég á en hin-
ar geymi ég.
Ég votta Dóru frænku minni, Gísl-
ínu, Hjördísi, Guðjóni Ó. og fjöl-
skyldum þeirra mína dýpstu samúð.
Sveinn Yngvason.
Stundum er því þannig varið, að
tæplega er hægt að komast hjá að
mæla eftir látinn mann, vegna ná-
inna kynna eða samskipta á einhvern
hátt. Að láta þögnina eina um að tala,
ef svo má að orði kveða, er sjálfsagt
einhverra háttur og mjög átakalaus.
Ég hef minnst margra við leiðar-
lok, og á ég þá við þá, sem mér hafa
þótt á einhvern hátt athyglisverðir
og boðið af sér góðan þokka. Þeirra
er ánægjulegt að minnast.
Síðasta dag ágústmánaðar andað-
ist Sigurbjartur Guðjónsson, fyrrum
bóndi og hreppsnefndaroddviti í
Þykkvabæ í Rangárþingi, 85 ára að
aldri. Hann var fæddur í Bala í
Þykkvabæ, en missti föður sinn í
spönsku veikinni 1918. Honum var
þá komið í fóstur að Bryggjum í
Austur-Landeyjum, en þar bjó föð-
ursystir hans, Sesselja Guðmunds-
dóttir frá Búð, systir Hafliða bónda
þar og þeirra systkina. Maður Sess-
elju var Tyrfingur Björnsson, sem
fluttist að Hávarðarkoti og var odd-
viti hreppsnefndar þar um skeið.
Mátti segja, að Sigurbjartur tæki við
því starfi af fóstra sínum. Hann var
lengi í þeirri vandasömu og um-
deildu stöðu. Það er ekki vanda-
minna að stýra litlu sveitarfélagi en
stóru. Þar er návígið gleggra og
meira mæðir á einstaklingnum. Það
reyndi Sigurbjartur í Hávarðarkoti.
Heimili hans og konu hans, Halldóru
Magnúsdóttur, var jafnframt skrif-
stofa hreppsins. Slíkt skapaði að
sjálfsögðu mikla áníðslu á heimilinu,
en gestum var oftast boðið í kaffi. Ég
þurfti að hafa mikil skipti við oddvit-
ann í Hávarðarkoti um árabil, vegna
þess að ég var skólastjóri. Þykkvi-
bær er sérkennileg blanda af þorpi
og sveit. Þar er kartöflurækt aðalat-
vinnugreinin nú og hefur lengi verið.
Velmegun hefur ríkt þar, þótt komið
hafi erfið ár við og við. Sigurbjartur
oddviti sá um það að sínu leyti, að
þessi sveit blómgaðist. Hann varð
sýslunefndarmaður fyrir Djúpár-
hrepp, þegar Hafliði Guðmundsson í
Búð, föðurbróðir hans, hætti vegna
aldurs, og þótti það sjálfsögð ráð-
stöfun.
Yfirleitt voru samskipti okkar Sig-
urbjarts jákvæð. Hann gat verið stíf-
ur og þrár og haldið fast á sínu, en
alltaf hreinskilinn og hreinskiptinn.
Þetta er mín reynsla. Hann mat afar
mikils skilvísi og reglusemi, hinar
gömlu og góðu dyggðir. Hann var
nýtur fulltrúi þeirra um langa ævi.
Þykkbæingar kveðja traustan mann,
sem helgaði sveit sinni starfskrafta
sína, á efnislegu og andlegu sviði. Því
má ekki gleyma, sem hann vann
söngmálum á heimaslóðum sem org-
anisti Hábæjarkirkju í áratugi. Nýt-
ur maður er kvaddur eftir farsælt
ævistarf. Ættmennum vottast sam-
úð við fráfall hans.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug vegna andláts föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki hjúkrun-
arheimilisins Holtsbúðar.
Þóra Valg. Jónsdóttir, Einar Steingrímsson,
Anna Björg Jónsdóttir, Garðar Guðmundsson,
Ólafur Helgi Jónsson, Sigurbjörg Níelsdóttir,
Jóna Jónsdóttir, Óskar Örn Óskarsson,
Ágúst Haukur Jónsson, Þórunn Þorsteinsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON,
Víðihlíð,
Grindavík,
áður til heimilis að Valhöll, Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju
laugardaginn 20. september kl. 11.00.
Sigurveig Sigurðardóttir,
Hafsteinn Sigurðsson, Olga Siggeirsdóttir,
Svanfríður Sigurðardóttir, Ásgeir Magnússon,
Birgir Sigurðsson, Kristín Þórðardóttir,
Þórður Sigurðsson, Kristín Sigurjónsdóttir,
Ólína Herdís Sigurðardóttir,
Steinunn Sigurðardóttir, Ísak Þórðarson,
Hlíf Sigurðardóttir, Árni Sigurðsson,
Jóhannes A. Sigurðsson, Þorbjörg Berg,
Kristinn A. Sigurðsson, Laufey Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELÍSABET MAACK THORSTEINSSON,
Smáraflöt 22,
Garðabæ,
sem andaðist sunnudaginn 7. september,
verður jarðsungin frá Garðakirkju í dag,
fimmtudaginn 18. september, kl. 13.30.
Ragnar Thorsteinsson,
Geir Thorsteinsson, Helga S. Helgadóttir,
Pétur Thorsteinsson, A. Anna Stefánsdóttir,
Hallgrímur Thorsteinsson, Ragnheiður Óskarsdóttir,
Sigríður Thorsteinsson, Þórhallur Andrésson,
Ragnheiður Thorsteinsson, Einar Rafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur ómetanlegan stuðning, samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns og föður okkar,
PÁLS GUÐMUNDSSONAR,
Fagradal 1,
Vogum.
Guð blessi ykkur öll.
Olga Sif Guðgeirsdóttir,
Alexander, Elvar Orri og Thelma Lind.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT ELÍASDÓTTIR
frá Haugi,
Gaulverjabæjarhreppi,
sem lést að kvöldi sunnudagsins 14. septem-
ber, verður jarðsungin frá Gaulverjabæjarkirkju
laugardaginn 20. september kl. 13.30.
Hafsteinn Steindórsson, Lovísa Jónsdóttir,
Magnús Steindórsson, Þóra Ragnarsdóttir,
Ester Steindórsdóttir, Sigurgeir Jóhannsson,
Guðrún Steindórsdóttir,
Guðmundur Steindórsson, Svala Bjarnadóttir,
Sigurður Steindórsson, Rannveig Jónsdóttir,
Steindór Steindórsson, Ingibjörg Eggertsdóttir,
Gréta Steindórsdóttir, Tryggvi Marteinsson,
Gyða Steindórsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Steindór Kári Reynisson, Erna Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir og kveðjur sendum við
safnaðarnefnd og presti Ingjaldshólskirkju,
ásamt öðrum sem sýndu okkur samúð og vin-
arhug við andlát og útför
GÍSLA KETILSSONAR,
Hellissandi.
Kristinn Breiðfjörð Eiríksson, Sólveig G. Eiríksdóttir,
Jón Þ. Eiríksson, Albert Guðlaugsson,
Guðrún Guðlaugsdóttir, Gunnar B. Guðlaugsson,
Kristinn B. Guðlaugsson, Laufey Guðlaugsdóttir,
Líneik Guðlaugsdóttir, Sæberg Guðlaugsson
og börn Þóris Guðlaugssonar.