Morgunblaðið - 18.09.2003, Side 64

Morgunblaðið - 18.09.2003, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla dagaSími 588 1200 MIKIL aukning hefur orðið á uppgreiðslu húsbréfalána hjá Íbúðalánasjóði það sem af er árinu. Þannig var á fyrstu átta mánuðum ársins fram til ágúst- loka búið að greiða upp hús- bréfalán að verðmæti 3,2 millj- arðar króna í tengslum við íbúðakaup, en á sama tíma í fyrra höfðu verið greidd upp lán að verðmæti 998 milljónir sem jafngildir 220% aukningu á tíma- bilinu. Formaður Félags fast- eignasala segir að þessa aukn- ingu megi einkum rekja til yfirverðs á húsbréfum á verð- bréfamarkaði. Uppgreiðslurnar hafa farið stigvaxandi það sem af er árinu. Þær voru 161 milljón í jan- úarmánuði sem var 31% aukning frá sama mánuði í fyrra, en 566 milljónir í ágúst síðastliðnum sem er 405% aukning frá sama mánuði í fyrra. Samkvæmt þeim reglum sem gilda um húsbréfa- lán er hægt að greiða þau upp hvenær sem er á lánstímanum án þess að því fylgi aukakostn- aður. Hins vegar er ekki hægt að taka ný lán nema í tengslum við kaup á fasteignum. Yfirverð hef- ur verið á húsbréfum eftir að ávöxtunarkrafa þeirra á verð- bréfamarkaði fór niður fyrir nafnvexti bréfanna síðastliðið vor og hefur yfirverðið lengst af verið í kringum 4% og allt upp undir 6%. Á móti vegur að við töku á nýjum lánum þarf að greiða lántökugjald og stimpil- gjald sem samanlagt nema 2,5%. Björn Þorri Viktorsson, for- maður Félags fasteignasala, seg- ir að það yfirverð sem verið hafi á húsbréfum á verðbréfamarkaði undanfarið hafi virkað mjög hvetjandi á uppgreiðslur eldri húsbréfalána. Þetta sé þróun sem eigi sér stað fyrst og fremst á þessu ári. Þá taki fólk gjarnan ný lán til að greiða upp eldri lán og óhagstæðari eða lán sem séu með hærri greiðslubyrði. Kaup- endur og seljendur á fasteigna- markaði séu sér meðvitandi um að greiðsla í húsbréfum sé verð- meiri en í peningum eins og ástandið sé í dag og það komi fram í verðlagningu eignarinnar hvernig greiðslum sé háttað. Skilyrði til vaxtalækkunar? „Maður veltir því fyrir sér hvort ekki fari að skapast skil- yrði til vaxtalækkana miðað við þetta ástand ef það er komið til að vera að ávöxtunarkrafa hús- bréfanna sé lægri en nafnvextir bréfanna,“ sagði Björn Þorri ennfremur. Hann bætti því við að kaup- endur fasteigna væru einnig að horfa til þess að greiðslubyrðin væri sem lægst af þeim lánum sem þeir þyrftu að taka. 220% aukning á upp- greiðslu húsbréfalána Yfirverð á húsbréfum hefur virkað hvetjandi í þessum efnum, segir formaður Félags fasteignasala ! %       $  %& ' (   - . < - * - . . )   (0:  :   % " ÞAÐ ber margt fyrir augu á Laugavegi. Sem sjá má á þessari mynd hefur Bónus fengið sam- keppni. Á götunni framan við verslunina hefur lítil stúlka raðað upp álitlegum varningi sem hún býður. Hér virðir hún fyrir sér með tveimur við- skiptavinum einn kuldaskó en ekki fara sögur af hvort skórinn var seldur stakur eða með öðrum. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Í samkeppni við Bónus ÞORSKTONNIÐ af krókakvóta hefur að und- anförnu verið selt á 950 þúsund krónur, þ.e.a.s. óveidd varanleg hlutdeild. Verðið hefur ekki farið svo hátt áður, en á sama tíma í fyrra var söluverð- ið hæst um 600 krónur fyrir kílóið. Ekki er mikið magn til sölu eða leigu hjá skipasölum og eft- irspurnin hefur verið mikil undanfarna mánuði. Verðið hefur ekki farið svo hátt áður og nokkur hreyfing hefur verið í sölumálum, að sögn Egg- erts Sk. Jóhannessonar hjá skipamiðluninni Bát- um og kvóta. Jafnframt er að sögn Eggerts skortur á óveidd- um þorskkvóta í aflamarkskerfi, „stóra kerfinu“ svokallaða, og hefur verðið fyrir kílóið af óveidd- um þorskkvóta verið um 1,25 krónur. „Það bráð- vantar kvóta á skrá til sölu eða leigu í báðum kerfum. Leiguverð á krókaaflamarki í þorski er 96 til 100 krónur fyrir kílóið og í aflamarkskerfi frá 125 til 129 krónur. Leiguverðið er reyndar alltaf lægra á þessum árstíma en hækkar svo yfirleitt þegar vertíðin byrjar, samhliða verðhækkunum á fiskmörkuðum. Verð á þorskkvóta bæði í króka- kerfi og aflamarkskerfi hefur aldrei verið hærra og það eru margir sem eru til í að kaupa var- anlegar aflaheimildir. Nokkur bjartsýni virðist vera ríkjandi í greininni og lánastofnanir hafa ver- ið nokkuð duglegar að veita fjármagn til kaupa á veiðiheimildum.“ Eggert segir stöðuna hins vegar allt aðra þegar kemur að ýsunni. Ýsukvóti fiskveiðiársins sé nú meiri en nokkru sinni fyrr og þar af leiðandi hafi verð á ýsu á fiskmörkuðum snarlækkað. Þess vegna hafi framboð af ýsukvóta stóraukist en eft- irspurnin sé að sama skapi lítil. Hátt verð á krókakvóta  Mikil spurn/C3 PLATAN með sönglögunum vinsælu úr leikritinu Dýrunum í Hálsaskógi hefur selst í vel yfir 40 þús- und eintökum. Um er að ræða útgáfuna margfrægu sem fyrst kom út árið 1967 með upptöku sem gerð var í Rík- isútvarpinu í desem- ber 1966 þar sem þeir Árni Tryggva- son og Bessi Bjarnason fóru m.a. með hlutverk Lilla klifurmúsar og Mikka refs. Kom hún þá út á vegum SG-hljómplatna, fyrst á vínylplötu, svo á snældu og síð- ast á geislaplötu á vegum Skífunnar árið 1991. Að sögn Aðalsteins Magnússonar, sölu- stjóra Skífunnar, hafa nú yfir 12 þúsund eintök selst af geislaplötunni auk þess sem vel yfir 30 þúsund ein- tök munu hafa selst af vínylplötunni og snældunni. Telur Aðalsteinn fullvíst að fáar íslenskar plötur hafi selst í þvílíku magni hérlendis en aðrar plötur sem komist hafa þar nærri eru m.a. vísnaplatan Einu sinni var, tónlistin úr leikritinu Kardemommubæn- um og djassplata Bjarkar Guðmundsdóttur og Tríós Guðmundar Ingólfssonar Gling-gló. Dýrin í Hálsaskógi seld í yfir 40 þúsund eintökum  Yfir 40 þúsund/58 ÍA lagði KA að velli, 4:1, í undanúrslitum bik- arkeppni KSÍ í gær. Þetta verður í 18. sinn sem Skagamenn leika til úrslita, en liðið hefur sigrað átta sinnum í keppninni. ÍA mætir FH í úrslita- leiknum. Pálmi Haraldsson og Kári Steinn Reyn- isson fögnuðu vel en Kári skoraði tvisvar í leiknum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skagamenn í úrslit í 18. sinn  ÍA afgreiddi / 55 ♦ ♦ ♦ ENN ER handmjólkað í einu fjósi á Íslandi og í átján fjósum er mjólkað með fötumjaltakerfi. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Landssambands kúa- bænda á fjósgerðum hérlendis. Unnið var upp úr gögnum Bændasamtaka Íslands og úr upplýsingum frá búnaðarsam- böndum, héraðsdýralæknum og frá Búnaðarsambandi Suður- lands. Frumniðurstöður sýna að fjós hérlendis eru nú 869 og þar af eru hefðbundin básafjós 635 eða 73%. Básafjós með mjaltabás eru nú 114 eða 13%, en lausagöngu- fjós eru 120 eða tæp 14%. Handmjólkað í einu fjósi NORSKA strandgæslan segist hafa fengið staðfest að Seløy Undervannsservice, sem unnið hefur að björgun Guðrúnar Gísladóttur fyrir Íshús Njarð- víkur, sé hætt öllum aðgerðum og verði ekki lagðar fram neinar trúverðugar áætlanir um björg- unina á fundi á mánudaginn muni norsk stjórnvöld taka hana yfir og þá á kostnað íslensku eigendanna. Guðjón Jónsson, talsmaður björgunarmanna, sagði að alltaf hefði legið fyrir og frá því greint í fjölmiðlum að Seløy þyrfti að sinna öðru verkefni og gæti ekki unnið að björgun Guðrúnar á meðan. Kallað hefði verið eftir fundinum á mánudaginn að ósk Íslendinga en norska strand- gæslan beðin um að boða til hans. Guðjón sagðist gera ráð fyrir að á fundinum mundi koma endanlega í ljós hvernig færi með björgun Guðrúnar, hann væri vongóður en eðlilegast væri þó að segja sem minnst. Úrslitafund- ur vegna björgunar ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.