Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími: 11-18 mánudag-föstudags
12-16 laugardag
Gallabuxur,
bolir, peysur
full búð af
glæsilegum
fatnaði
„Ég lít ekki á þetta sem andúð á
Arnold,“ hrópaði hún. „Ég tek
þetta alls ekki persónulega.“ Davis
og stéttarfélögin telja að Wal-Mart
sjái starfsmönnum fyrirtækisins
ekki fyrir nægilega ódýrum sjúkra-
tryggingum en í Bandaríkjunum
eru það yfirleitt vinnuveitendur
sem sjá starfsmönnum fyrir þeim.
Aðstoðarmenn Shriver fengu hana
til að yfirgefa staðinn áður en færi
gafst á að spyrja hana út í stefnu
eiginmannsins, þ.á m. viðhorf hans
til kvenna, hvernig hjónin færu að
því að sætta sig við að vera hvort í
sínum flokki og hvernig henni fynd-
ist að vinna fyrir andstæðingana.
Þekktur sjónvarps-
fréttamaður
Shriver er 47 ára gömul og hefur
árum saman verið þekktur sjón-
varpsfréttamaður, hún hefur þó
hætt störfum fyrir NBC-sjónvarps-
stöðina í bili meðan hún helgar sig
kosningabaráttunni. Shriver er að
jafnaði demókrati. Hún á fjóra
bræður og tekur enginn þeirra þátt
í baráttu Schwarzeneggers, það
gerir reyndar enginn frændi eig-
inkonunnar af Kennedyættinni.
„Þetta er svolítið snúið,“ segir
einn bróðirinn, Bobby Shriver,
demókrati sem býr í Los Angeles.
„Telur hún að Arnold sé heiðar-
legur náungi, að hann muni berjast
ákaft fyrir því að verða ríkisstjóri,
að standa sig vel? Ég held að henni
finnist það.“
Hjónin komu fram í hinum vin-
sæla spjallþætti Oprah Winfrey sl.
mánudag en þær Winfrey og Shriv-
er eru gamlar vinkonur. Hin síð-
arnefnda geislaði af ást og stuðn-
ingi við eiginmanninn þrekvaxna
sem sat við hliðina á henni. Hún
hrukkaði ennið af skelfingu og
EIGINKONA leikarans Arnolds
Schwarzeneggers, Maria Shriver,
er af þekktri og auðugri ætt demó-
krata, faðir hennar, Sargent Shriv-
er, var háttsettur embættismaður í
Hvíta húsinu í stjórnartíð Johns F.
Kennedys forseta á sjöunda ára-
tugnum. Og móðirin, Eunice Kenn-
edy Shriver, er systir Kennedy-
bræðranna. En Schwarzenegger,
sem býður sig fram til embættis
ríkisstjóra í Kaliforníu, er repúblik-
ani. Maria Shriver segist þó ekki
finna fyrir neinni togstreitu, segir í
frétt The Washington Post, og styð-
ur hún mann sinn af miklu kappi í
kosningabaráttunni.
Hún kippti sér ekki einu sinni
upp við það að baráttukonur úr
röðum femínista í heimaborg
Schwarzenegger-hjónanna, Santa
Monica, skyldu setja þar upp skilti
með áletrunum eins og „Mótmælum
karlrembu!“ og „Mótmælum
Schwarzenegger!“ þegar hún
hleypti af stokkunum stöð fyrir
sjálfboðaliða sem vilja starfa fyrir
Schwarzenegger.
Hún virtist ekki heldur láta það á
sig fá þegar liðsmenn stéttarfélaga
í höfuðstað Kaliforníu, Sacramento,
hrópuðu hana niður nokkrum mín-
útum eftir að hún kom í eina af
verslunum Wal-Mart-keðjunnar til
að afla þar stuðnings við að ríkis-
stjórakosningarnar í fyrra yrðu
endurteknar til að hægt væri að
steypa núverandi ríkisstjóra, demó-
kratanum Gray Davis, af stóli.
greip fyrir munninn á honum þegar
hann áræddi að ræða um alræmt
viðtal sem birtist í tímaritinu Oui
fyrir mörgum árum en andstæðing-
arnir rifjuðu upp þegar Schwarzen-
egger skýrði frá framboði sínu.
Sagðist hann í viðtalinu við ritið
hafa tekið þátt í fjöldasamförum
með hópi annarra vöðvatrölla og
blökkustúlku. En nú segist fram-
bjóðandinn hafa verið að skrökva
þessu til að vekja athygli á vaxtar-
rækt.
Kvennafar
Schwarzeneggers
Winfrey spurði Shriver um meint
kvennafar Schwarzeneggers en
miklar sögur hafa lengi farið af því.
„Ég er kona og á mig sjálf,“ svaraði
Shriver. „Mér hefur ekki verið
kennt að láta eins og ekkert sé. Ég
horfi ekki framhjá því sem hann
gerir baksviðs. Ég sætti mig við
hann með öllum kostum og göllum,
á sama hátt og hann sættir sig við
mig.“
Þau hafa verið gift í 17 ár og er
Shriver sögð hafa verið ómissandi
ráðgjafi manns síns í Hollywood,
hún hafi lesið með honum handrit
að myndum og jafnvel haft hönd í
bagga þegar hann skipti um um-
boðsmann.
Shriver féll kylliflöt fyrir Tortím-
andanum, sem síðar varð, þegar
hún hitti hann á tenniskeppni er
hún var aðeins 21 árs gömul. Hann
var þá orðinn methafi í vaxtarrækt
og þekktur maður, eitilharður eig-
inhagsmunaseggur, afar metn-
aðarfullur og ekki beinlínis hlynnt-
ur auknum réttindum kvenna.
Hann var þá alræmdur kvennabósi
en hún hafði gengið í kaþólskan
skóla.
Shriver hefur viðurkennt að upp-
haflega hafi hún alls ekki verið
hrifin af þeirri hugmynd að eig-
inmaðurinn byði sig fram í ríkis-
stjóraembættið. „Ég sem reyndi að
finna einhvern sem gæti tryggt að
stjórnmál kæmu aldrei upp á borð-
ið,“ sagði hún í viðtalinu.
Sagt er að þegar Schwarzen-
egger, sem er orðinn stórauðugur
af kvikmyndaleik sínum, hafi oftar
en einu sinni sagt í viðtölum að
„fólk“ spyrði sig hvers vegna hann
vildi nú gefa upp á bátinn notaleg-
an lífsstíl, leikaraferil og einkalíf
með því að bjóða sig fram hafi hann
í reynd verið að endursegja viðvar-
anir eiginkonunnar. En Schwarz-
enegger svaraði sjálfur að hann
teldi sig verða að gera það fyrir
Kaliforníubúa.
„Helltu þér út í þetta“
Og þegar Shriver var orðin viss
um að hann vildi eindregið feta
þessa braut ákvað hún að hvetja
hann. „Að lokum sagði ég: helltu
þér út í þetta, láttu hjartað ráða,
gerðu það sem þig langar svo mikið
að gera,“ segir Shriver.
Hún er sögð hafa með aðstoð for-
eldra sinna haft nokkur áhrif á póli-
tískar skoðanir Schwarzeneggers
sem nú styður rétt kvenna til að fá
fóstureyðingu, meðmæltur því að
eftirlit sé haft með skotvopnaeign
almennings, styður réttindi sam-
kynhneigðra og hefur beitt sér
ákaft fyrir því að börn sem eiga
undir högg að sækja fái aðstoð.
Konur og buxur
Er tímaritið Playboy birti viðtal
við Schwarzenegger árið 1988
sagðist hann ekki leyfa eiginkonu
sinni að ganga í buxum. „Ég erfði
þetta frá föður mínum,“ sagði
Schwarzenegger sem er fæddur og
uppalinn í Austurríki. „Tímarnir
eru breyttir núna, þá var karlmað-
urinn miklu fremur húsbóndi á sínu
heimili. En mér finnst þetta ennþá
og hvorki móðir mín né Maria mega
fara út með mér í buxum.“ Hann
sagðist þó skilja að flugfreyjur
vildu ganga í buxum vegna þess að
þær vildu ekki að menn gætu kíkt
upp undir. „En Maria myndi aldrei
ganga í buxum, sannaðu til,“ bætti
hann við.
Erfitt mun að finna myndir frá
þessum árum af Shriver í buxum en
aðspurð á fundi fyrir skömmu gaf
hún í skyn að eiginmaðurinn hefði
verið að spauga í viðtalinu við
Playboy. „Sjáið þið, ég er í buxum,“
sagði hún á næsta baráttufundi sín-
um.
Eðaldemókrati faðmar
sjálfan erkifjandann
Eiginkona Arnolds Schwarzenegg-
ers er systurdóttir Kennedybræðra
en styður mann sinn í Kaliforníu
Reuters
Repúblikaninn Arnold Schwarzenegger, frambjóðandi til embættis ríkis-
stjóra Kaliforníu, á fundi fyrir skömmu með stuðningsmönnum ásamt eig-
inkonunni, Mariu Shriver, en hún er harður demókrati.
’ Mér hefur ekkiverið kennt að láta
eins og ekkert sé.
Ég horfi ekki
framhjá því sem
hann gerir bak-
sviðs. ‘
BORGARSTJÓRNIN í Los Angel-
es, næststærstu borg Bandaríkj-
anna, bannaði í vikunni nektar-
dansmeyjum að stunda svonefndan
kjöltudans. Einnig verður fram-
vegis krafist að minnst sex fet, um
183 sentimetrar, séu á milli dans-
meyjanna á sviðinu og áhorfenda
og öll líkamleg snerting milli þeirra
verður bönnuð.
Skylt verður að láta öryggisverði
fylgjast með því allan sólarhringinn
að reglunum sé hlítt. Talsmenn yf-
irvalda segja að nektarstaðirnir ýti
undir vændi, fíkniefnaneyslu og
annað ólöglegt athæfi. Beitt verður
sektum eða fangelsisvist ef regl-
urnar verða brotnar.
„Sveitarfélögin í kringum okkur
leyfa þetta ekki og þess vegna er-
um við nú orðin að Mekka [klám-
iðnaðarins],“ sagði Cindy Misc-
ikowski sem situr í borgarstjórn-
inni.
Dansmeyjarnar og eigendur um-
ræddra staða eru fokvond og segja
fótunum kippt undan starfi þeirra
með nýju reglunum. Megnið af
tekjum meyjanna er seðlar sem
viðskiptavinir stinga oftast undir
G-strenginn svonefnda sem þær
klæðast í stað efnismeiri nærfatn-
aðar séu þær yfirleitt í nokkru.
Vegna reglunnar um bann við
snertingu er þessi aðferð nú úr sög-
unni.
Banna kjöltudans í Los Angeles
Los Angeles. AFP.
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hefur beðið gyðinga í
landinu afsökunar á því að hafa sagt,
að fasistaleiðtoginn Benito Mussol-
ini hefði aldrei drepið nokkurn
mann.
Berlusconi vakti mikla hneykslun
í síðustu viku er blöð höfðu eftir hon-
um, að svartstakkaleiðtoginn hefði
aðeins „sent fólk í frí innan landa-
mæra ríkisins“. Sannleikurinn er
hins vegar sá, að eftir 1938 voru
nærri 8.000 ítalskir gyðingar fluttir í
útrýmingarbúðir nasista í Þýska-
landi og Póllandi.
Talsmaður ítalskra gyðinga
kveðst vera sáttur við afsökunar-
beiðni Berlusconis en sjálfur segist
hann aðeins hafa viljað gera grein-
armun á Mussolini og Saddam Huss-
ein, fyrrverandi Íraksforseta, en vit-
að er að sá síðarnefndi hefur skotið
fólk til bana eigin hendi.
Reuters
Berlusconi heilsar Leone Passer-
man, oddvita gyðinga í Róm, í gær.
Berlusconi
iðrast orða
sinna
Róm. AFP.