Morgunblaðið - 19.09.2003, Page 22
AUSTURLAND
22 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HREINDÝRAVEIÐITÍMABILI árs-
ins lauk í vikunni og voru veiddir
330 tarfar og 410 kýr, eða 740 dýr af
800 dýra kvóta.
Ekki náðist að fella alla tarfa á
svæði 8 norðan Hornafjarðar og að-
eins 33 kýr af svæðum 8 og 9 austan
Vatnajökuls.
Fjórða svæði, sem liggur upp af
Seyðisfirði, Mjóafirði og Reyð-
arfirði, hefur að sögn Karenar Erlu
Erlingsdóttur, starfsmanns Um-
hverfisstofnunar, gefið minnst í
haust og má einkum rekja ástæður
þess til veðurfars.
Nú er verið að yfirfara veiðispjöld
frá leiðsögumönnum og færa heild-
arupplýsingar um veiðar ársins inn
á vef hreindýraráðs, hreindyr.is.
Ljósmynd/VB
Nú er hreindýraveiðitímanum er lokið veiddust 740 af 800 dýra kvóta ársins. Kári V. Hjörvarsson heldur hér í
hornin á 50 kílóa hreinkú sem hann felldi upp af Sandvík undir Tregaskarði. Dýrið var áætlað um 4 vetra gamalt.
Veiddu 740 hreindýr
Egilsstaðir
SIGFINNUR Mikaelsson, fram-
kvæmdastjóri Austlax ehf., segir
að með ákvörðun umhverfisráð-
herra að fyrirhugað fiskeldi fyr-
irtækisins í sjókvíum í Seyðisfirði
skuli háð mati á umhverfisáhrifum
sé verið að hindra frekari áform
um fiskeldi í landinu og að þetta
geri Austlaxi mjög erfitt um vik,
ef ekki ókleift að hefja fyrirhugað
eldi.
Umhverfisráðuneytið hefur úr-
skurðað að fyrirhugað eldi Aust-
lax á laxi, regnbogasilungi og
þorski í sjókvíum í Seyðisfirði
skuli háð mati á umhverfisáhrif-
um. Telur ráðuneytið líklegt að
framkvæmdin kunni að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif. Þá hefur ráðuneytið fellt úr
gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar
frá 4. apríl 2003 um að ekki skuli
framkvæmt mat á umhverfisáhrif-
um vegna fiskeldisins.
Annað áfallið á stuttum tíma
í atvinnumálum Seyðisfjarðar
Ákvörðun umhverfisráðherra
hefur vakið hörð viðbrögð á Seyð-
isfirði, þar sem búið var að leggja
umtalsverða vinnu í rannsóknir og
undirbúning til að uppfylla þau
skilyrði sem Skipulagsstofnun
setti vegna eldisins.
Austlax hefur leyfi fyrir allt að
átta þúsund tonna eldi árlega.
Segir Sigfinnur Mikaelsson að
með þessu sé verið að hindra frek-
ari áform um fiskeldi í landinu og
að þetta geri Austlaxi mjög erfitt
um vik, ef ekki ókleift að hefja
fyrirhugað eldi. Rannsóknir þær
sem kveðið sé á um í úrskurðinum
séu svo viðamiklar, að ekkert fyr-
irtæki geti staðið undir þeim.
Er því alls óljóst hvort af fisk-
eldi Austlax í Seyðisfirði verður.
Seyðfirðingar glíma nú einnig við
hugsanlega lokun ÚÁ á frystihús-
inu Dvergasteini og eru því mikl-
ar sviptingar í atvinnulífi bæjar-
ins.
Nýr úrskurður umhverfisráðuneytis um umhverfismat
í fiskeldi setur áform um eldi í Seyðisfirði í uppnám
Ólíklegt að Austlax hefji
fiskeldi í Seyðisfirði
Seyðisfjörður
KOSIÐ verður um nýja sveitar-
stjórn í sameinuðu sveitarfélagi
Búða- og Stöðvarhrepps á morgun.
Þá verður einnig kosið um nafn á hið
nýja sveitarfélag.
Tveir listar eru í framboði, B-listi
Framsóknarfélaga Fáskrúðsfjarðar
og Stöðvarfjarðar og S-listi Samfylk-
ingarinnar og óháðra.
Efstu menn á lista frambjóðenda
eru Guðmundur Þorgrímsson,
B-lista og Björgvin Valur Guð-
mundsson, S-lista. Oddvitar listanna
hafa báðir lýst því yfir að samein-
ingin verði til góðs og fjölmörg tæki-
færi skapist í kjölfar uppbyggingar á
álveri í Reyðarfirði og með opnun
Fáskrúðsfjarðarganga. Þá muni hið
nýja sveitarfélag njóta góðs af fjár-
framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga, en Búða- og Stöðvarhreppur
hafa glímt við fjárhagsþrengingar á
liðnum árum.
Bitamunur en ekki fjár virðist
vera á stefnuskrám framboðanna,
þar sem einkum munar um á hvern
hátt staðið skuli að uppbyggingu og
eflingu hins nýja sveitarfélags.
Tveir listar í framboði
Búða- og Stöðvarhreppur
Kosið í sveitarfélagi Búða- og Stöðvarhrepps á morgun
Guðmundur
Þorgrímsson
Björgvin Valur
Guðmundsson
ALMA J. Árnadóttir myndhönnuður
sýnir nú 49 ný grafíkverk í Galleríi
Klaustri á Skriðuklaustri. Sýningin
ber heitið Letur-
verk og stendur
fram til 5. októ-
ber n.k.
Alma segir um
sýninguna að
vert sé að gefa
letri gaum, því
það sé stór
áhrifavaldur í
menningu okkar.
„Letur er allt í kringum okkur og
við tökum því eins og sjálfsögðum
hlut. Ég velti fyrir mér hvort letur
sé allt í senn tungumál, myndmál og
myndlist. Ég hugsa í þessum verk-
um um letur sem myndrænt form og
um að það hefur ákveðið viðmót.
Það er ekki sama hvernig þú notar
letur. Í ritmáli er það ekki bara inni-
hald orðanna sem hefur fúnksjón
heldur líka áferð textans. Letur get-
ur hjálpað innihaldinu en einnig ver-
ið á skjön við það.“
Alma segir verk sín tilraun til að
fá áhorfandann til að gíra sig niður
úr ofgnótt umhverfisins og rýna í
hin fínni blæbrigði.
Unnið með sjálfsmynd
foreldra og barna
Alma útskrifaðist með fullt hús
stiga frá listhönnunardeild Mynd-
listarskólans á Akureyri sl. vor.
Lokaverkefni hennar vakti mikla at-
hygli, en kjarni þess er alvarleg
hvatning til foreldra um að hlúa bet-
ur að sjálfsmynd barna sinna, svo
þau hafi persónulegan styrk til að
takast á við öldurót unglingsáranna.
„Sjálfsmyndin er eitt það mik-
ilvægasta sem við eigum“ segir
Alma. „Sú sjálfsmynd sem við mót-
um strax í barnæsku fylgir okkur
allt lífið, segir til um hvernig við
upplifum okkur og hefur áhrif á lífs-
leikni okkar.
Ég hef unnið mikið með ungling-
um í félagsmiðstöðvum og tekið eft-
ir því að sjálfsmyndin er aðalmálið.
Unglingarnir upplifa sig eins og um-
hverfið segir þeim að þeir séu og
þeir hafa svo óendanlega brothætt
sjálf.“
Alma bjó til ímynd og umgjörð ut-
an um samtök áhuga- og fagfólks
um bætta sjálfsmynd. „Börn eru
samtökunum hugleikin,“ segir
Alma, „en þau hugsa líka um for-
eldrana þar sem sjálfsmynd uppal-
enda endurspeglast í þeim uppeldis-
aðferðum sem þeir beita.“
Alma skapaði áróðursherferð fyr-
ir samtökin sem felst annars vegar í
hvetjandi kynningarefni á geisla-
diski og hins vegar í áminnandi
plakötum og kynningarmyndbandi.
Kynningarefnið á disknum er leið-
beinandi fyrir foreldra og gefur ým-
is góð ráð um jákvæðar uppeldis-
aðferðir. Auglýsingaefnið felur
aftur á móti í sér ótvíræð skilaboð til
foreldra. „Þau voru eins og önnur
börn, sem treystu á að alin yrði önn
fyrir þeim. Nú er sjálfsmynd hans í
hassi og hennar í fokki. Hefur þú trú
á þér?“ er dæmi um texta á einu
veggspjaldinu.
„Unglingsstúlkan er að sofa hjá til
að finnast hún vera elskuð og pilt-
urinn fer í hassið til að öðlast við-
urkenningu meðal jafningja, því
þeim var ekki sýnd nægileg ást og
umhyggja í uppvextinum,“ útskýrir
Alma.
„Slagorðinu „Hefur þú trú á þér?“
er beint til foreldra. Hafa þeir trú á
sér sem uppalendum og sem per-
sónum yfirleitt? Auðvitað elska
flestir foreldrar börnin sín, en við
getum gert hluti óafvitandi sem sá
fræi óöryggis hjá þeim.“
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
sálfræði, m.a. boðskap Húgós Þór-
issonar sálfræðings, sem ég held
mikið upp á. Vinna mín með ung-
lingum vakti mig einnig til umhugs-
unar um hvað það er sem veikir
sjálfsmynd okkar í æsku. Þar fyrir
utan er ég uppalandi sjálf og því
eðlilegt að þetta sé mér hugleikið,
því uppeldi er mikið ábyrgðarstarf.
Með aukinni þekkingu eykst
skilningur á mannlegu eðli og við-
urkenning á að tilfinningar séu það
sem skiptir öllu máli,“ segir Alma.
Sýningin Letur-verk stendur til 5.
október og er opin um helgar frá kl.
13 til 18.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Á myndinni má sjá hluta af lokaverkefni Ölmu sem ber nafnið Sjálfsmynd.
Letrað í sálina
Egilsstaðir
Alma J. Árnadóttir