Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 24
LISTIR
24 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINKASONURINN fer aðra leið ílífi sínu en foreldrarnir höfðu séðfyrir sér. Hann elskar annan karl-mann, vill búa með honum og
njóta hans. Hvernig á að taka þessu? Af opn-
um huga, auðvitað! Sýna umburðarlyndi og
samkennd. Samt spyrja foreldrarnir bæði
upphátt og í hljóði: Af hverju þarf sonur
minn endilega að vera hommi? Er þetta
kannski mér að kenna? Og hvað er ég þá?
Hver er ég?
Þannig hljóðar kynning Þjóðleikhússins á
Pabbastrák, nýju leikriti Hávars Sigurjóns-
sonar, sem verður frumsýnt á Litla sviði
Þjóðleikhússins í kvöld kl. 20.00.
Þetta er fyrsta leikrit Hávars sem Þjóð-
leikhúsið tekur til sýninga, en fyrir tveimur
árum frumsýndi Hafnarfjarðarleikhúsið Her-
móður og Háðvör leikrit hans Englabörn,
sem vakti mikla athygli. Leikstjóri Engla-
barna var Hilmar Jónsson, og hann er aftur
við stjórnvölinn í Pabbastrák.
„Þetta er fjölskyldusaga um margt. Sagan
hleypur yfir nokkurn tíma og verkið þannig
upp byggt að tími og rúm renna saman,
þannig að við fáum glefsur úr lífi og sam-
skiptum þessa fólks. Við sjáum samskipti eig-
inmannsins og eiginkonunnar; – þau eiga son
sem eignast kærasta, og fáum að fylgjast
með atburðarás í fjölskyldunni með smá-
myndum. Þegar upp er staðið höfum við
nokkuð heillega mynd af tímabili í lífi þess-
arar fjölskyldu. Þetta er skemmtilega
raunsæisleg sýn á samskipti fólks og trúverð-
ug lýsing á atburðarás innan veggja heimilis
einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu, eða
bara hvar sem er. Þetta er frábært leikverk
og hægt að fá mörg svör við því um hvað það
er,“ segir Hilmar.
Hann segir Pabbastrák ekki endilega snú-
ast um samkynhneigð, þótt verkið komi
vissulega inn á þann þátt mannlegra kennda.
„Það komu unglingar á æfingu hjá okkur í
fyrradag, og þá áttaði ég mig á því hvað
verkið snýst í raun mikið um samskipti for-
eldra og barna. Það virðist allt vera að fara í
mola hjá hjónunum, þau hafa misst hvort af
öðru í hjónabandinu, og þegar í harðbakkann
slær hafa þau ekki hvort annað að styðjast
við í þeim vandamálum sem upp koma.“
Eðlilegt skref fram á við
Hilmar segist vel greina ákveðin höf-
undareinkenni Hávars Sigurjónssonar eftir
að hafa sett upp tvö stærstu verk hans.
„Verkin eiga það sameiginlegt að vera fljót-
andi í tíma og rúmi og það finnst mér mjög
góð inspírasjón fyrir leikuppsetningu. Bæði
eru fjölskylduleikrit, þótt fjölskyldurnar séu
ólíkar – þetta er allt íslenskt fólk – fólk sem
við þekkjum. Maður þekkir Hávar líka af
díalógnum – samræðunni. Mér finnst Pabba-
strákur eðlilegt skref fram á við frá Engla-
börnum, sem þó var mjög flott sem fyrsta
verk höfundar.“
Sviðsmynd verksins er óvenjuleg, og rýmið
á Litla sviðinu nýtt til fullnustu. Hver per-
sónanna fjögurra á sinn skáp fyrir miðjum
vegg; áhorfendur sitja upp við veggina á milli
þeirra og allt gólfplássið er undir fyrir leik-
inn. Skápar hafa mjög ákveðna málfarslega
skírskotun þegar samkynhneigð er annars
vegar og þegar línurnar milli skápanna sker-
ast, skapast kross. Finnur Arnar Arnarsson
er höfundur leikmyndarinnar. Hilmar segir
að þeir Finnur hafi lagt hausinn í bleyti um
hvernig sniðugast væri að útfæra verkið,
enda vilji hann að hver uppsetning sé einstök
og sérstök. „Maður reynir auðvitað að búa
hverju verki þann ramma sem manni þykir
best henta, en hvort það er einhver symból-
ismi í því eða ekki áttar maður sig kannski
ekki á fyrr en á seinni stigum – og jafnvel
aðrir betri en maður sjálfur að lesa í hann.
Við höfðum enga löngun til að skapa íbúð á
sviðinu, enda litlir arkitektar. En það er gam-
an hvað Litla sviðið verður öðru vísi fyrir vik-
ið og rýmið skemmtilega nýtt, – sem er
markmið í sjálfu sér.“ Leikendur í Pabba-
strák eru fjórir.
Ívar Örn Sverrisson þreytir frumraun sína
í Þjóðleikhúsinu í hlutverki sonarins; Atli
Rafn Sigurðarson er vinur hans, en Valdimar
Örn Flygenring og Edda Heiðrún Backman
eru hjónin. Tónlistina við Pabbastrák samdi
Jóhann Jóhannsson, en hann samdi líka tón-
listina við Englabörn sem hefur notið mikilla
vinælda bæði hér heima og erlendis eftir að
hún var gefin út á geisladiski.
Hávar Sigurjónsson er kunnur fyrir störf
sín við leikhús og fjölmiðla. Hann lauk meist-
aranámi í leikstjórn og leikhúsfræðum í Bret-
landi og hefur verið mikilvirkur leikstjóri á
sviði, í útvarpi og sjónvarpi. Hávar var um
skeið fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið
en meðal leikstjórnarverkefna hans þar eru
leikgerð hans eftir sögu Vigdísar Gríms-
dóttur, Ég heiti Ísbjörg. Ég er ljón, sem var
opnunarsýning Smíðaverkstæðisins, Gauks-
hreiðrið og Taktu lagið, Lóa. Hávar hefur
starfað sem leiklistarráðunautur hjá Út-
varpsleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu og þýtt
leikrit fyrir svið og útvarp, auk þess sem
hann hefur samið nokkur útvarpsleikrit og
sjónvarpsleikrit. Hávar hefur löngum starfað
við fjölmiðla og er nú blaðamaður á Morg-
unblaðinu. Hann hefur skrifað talsvert um
leiklist og leikhúsmál, í blöð, tímarit og upp-
lýsingarit um leiklist.
Leikritið Englabörn hefur verið flutt í svið-
settum leiklestrum á leiklistarhátíðum víða
um heim frá frumsýningunni í Hafnarfirði í
hitteðfyrra, meðal annars í Soho-leikhúsinu í
London og við Schaubühne-leikhúsið í Berlín.
Það verður frumsýnt í nýrri uppfærslu við
Borgarleikhúsið í Göttingen í Þýskalandi nú í
lok september. Leikfélag Sauðárkróks frum-
flutti gamanleik Hávars, Ertu hálf-dán?, á
Sæluviku Skagfirðinga síðastliðið vor.
eftir Hávar Sigurjónsson.
Leikstjórn: Hilmar Jónsson.
Sviðsmynd: Finnur Arnar Arnarsson.
Lýsing: Kjartan Þórisson.
Búningar: Finnur Arnar Arnarsson og
Margrét Sigurðardóttir.
Tónlist: Jóhann Jóhannsson.
Leikarar: Ívar Sverrisson, Atli Rafn Sig-
urðarson, Valdimar Örn Flygenring og
Edda Heiðrún Backman.
Pabbastrákur
begga@mbl.is
„Þetta er allt
fólk sem við
þekkjum“
Morgunblaðið/Kristinn
Edda Heiðrún Backman, Atli Rafn Sigurðarson og Valdimar Örn Flygenring í Pabbastrák.
Sonurinn og kærastinn. Ívar Sverrisson og
Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum.
Nýtt íslenskt leikrit, Pabbastrákur, eftir Hávar
Sigurjónsson verður frumsýnt á Litla sviði
Þjóðleikhússins í kvöld. Bergþóra Jónsdóttir hitti
leikstjórann, Hilmar Jónsson, að máli.
ÞJÓÐHETJA Frakka, Jeanne
D’Arc, eða Jóhanna af Örk eins og
hún hefur verið nefnd upp á ís-
lensku, hefur orðið fjölmörgum
skáldum að yrkisefni. Meðal leik-
ritahöfunda sem hafa skrifað leik-
rit byggð á æviatriðum hennar eða
innblásin af henni eru jafn ólíkir
höfundar og Schiller, George Bern-
ard Shaw, Bertolt Brecht og Jean
Anouilh. Hún hefur einnig verið
vinsælt viðfangsefni kvikmynda-
leikstjóra, allt frá hinum danska
Carl Dreyer til nú síðast hins
franska Luc Besson.
Ólöf Sverrisdóttir nálgast per-
sónu Jóhönnu af Örk á allt annan
hátt en ofangreindir karlmenn.
Hún reynir að gefa áhorfendum
tækifæri til að
nálgast persónuna
innanfrá með því
að túlka hana blátt
áfram með ein-
lægnina að vopni
og forðast allar
málalengingar,
hvað þá utanað-
komandi skilgrein-
ingar eins og dýr-
ling, hetju, píslar-
vott, norn. Hún
bregður upp at-
hyglisverðri svip-
mynd af innri
veruleika persón-
unnar og hve
raunveruleg utan-
aðkomandi áreiti
koma flatt upp á
Jóhönnu á sama
tíma og hún fagn-
ar þeim sýnum/
ranghugmyndum
sem hún upplifir í
einrúmi.
Ólöf tekur mið af kenningum
pólska leikhúsfrömuðarins Jerzys
Grotowskys í þessari sýningu og
leggur sig alla fram. Það er greini-
legt að hún hefur lært mikið af ný-
legri námsdvöl í Englandi, hún lifir
sig sterkt inn í persónuna og nær
vel að miðla tilfinningum hennar til
áhorfenda. Jerri Daboo leikstýrði
ensku sýningunni sem Ólöf Sverr-
isdóttir vann sem meistaraverkefni
í leiklist en Ólöf Ingólfsdóttir leik-
stýrir sýningunni hér á landi og
sér þess merki í mýkt hreyfinga
leikarans og hve létt hún á með að
bregða fyrir sig danssporum.
Sviðið er nær autt ef undanskilið
er krossmark í bakgrunni, sem
leikarinn hlutar svo niður í vopna-
leit. Þessar athafnir við krossmark-
ið/píningarstaurinn setja sterkan
táknrænan svip á sýninguna,
marka þáttaskil og ljá henni form.
Umfangsmikil notkun ljósanna í
þessu auða rými er allt að því
grimmdarleg, leikarinn stendur
sérstaklega varnarlaus í öflugri
ljóskeilunni.
Auk þess að leita í smiðju
franska skáldsins Anouilh og í sýn-
ir miðaldakvenna semur Ólöf text-
ann frá eigin brjósti. Þetta er veik-
asti punktur sýningarinnar, hvorki
þýddur né frumsaminn texti stenst
samanburð við leikstíl hennar eða
tónlistina, en Einhorn samdi
„Voices of Light“ eftir að hafa séð
kvikmynd Carls Dreyers um Jó-
hönnu af Örk. Textinn er of ein-
faldur, flatneskja hans verður hjá-
kátleg í samanburði við tilþrifin á
sviðinu og stórbrotinn tónvefinn.
Sýningin er stutt, aðeins rétt rúm-
ur hálfur tími, en það nægir til að
ná fram ætlunarverki Ólafar Sverr-
isdóttur: að hægt sé að veita áhorf-
endum nýja sýn inn í sálarlíf Jó-
hönnu frá Örk og um leið taka nýja
stefnu bæði sem höfundur og leik-
ari.
Með einlægnina að vopni
LEIKLIST
Furðuleikhúsið í Tjarnarbíói
Höfundur: Ólöf Sverrisdóttir, sem byggir
að hluta á broti úr Lævirkjanum (L’Alou-
ette), leikriti Jean Anouilh, og textum úr
bókinni „Medieval Women’s Visionary
Litterature“ sem safnað var af Elizabeth
Alvilda Petroff. Höfundar tónlistar: Bill
Douglas og Richard Einhorn. Leikstjórn
og hreyfingar: Ólöf Ingólfsdóttir og Jerri
Daboo. Ljósahönnun: Móeiður Helgadótt-
ir. Leikari: Ólöf Sverrisdóttir. Sunnudagur
14. september.
ELDURINN
Ólöf Sverrisdóttir í hlutverki Jóhönnu af Örk.
Sveinn Haraldsson
Morgunblaðið/Þorkell
Gallerí Skuggi
Sýningu Kristins Pálmason-
ar lýkur á sunnudag.
Galleríið er opið fimmtudag
til sunnudags kl. 13–17.
Sýningum
lýkur
STEINLAUG Sigurjónsdóttir opn-
ar myndlistarsýningu í Félagsstarfi
Gerðubergs í dag kl. 16.00.
Félagar úr Tónhorninu og Gerðu-
bergskórinn, undir stjórn Kjartans
Ólafssonar, syngja og leika við opn-
unina.
Steinlaug Sigurjónsdóttir er fædd
1935. Hún hefur sótt nokkur nám-
skeið í vatnslitamálun og akrílmálun
og tekið þátt í nokkrum samsýn-
inugm. Á sýningunni sem er önnur
einkasýning Steinlaugar verða að
mestu sýndar vatnslitamyndir.
Sýningin stendur fram í nóvember
2003. Opnunartímar sýningarinnar:
mán.–föst. kl. 10–17. og lau.–sunnud.
13–16.
Steinlaug
sýnir