Morgunblaðið - 19.09.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 39
Það er skammt
stórra högga á milli í
okkar vinahópi. Fyrst
Þórólfur og nú þú,
elsku Skúli okkar. Eng-
um hefði dottið það í hug að þú mynd-
ir ekki snúa heim úr þessum göngum
eins og lífið virtist blasa við öllum
þennan fagra haustmorgun þegar
lagt var af stað í þína hinstu ferð.
Það ryðjast yfir okkur minningar
um þig og allt sem við gerðum með
ykkur Brynju. Allar heiðarferðirnar,
gæsaskytteríið, selaveiðar, bílavið-
gerðir og svo mætti lengi telja. Einna
SKÚLI MÁR
NÍELSSON
✝ Skúli Már Níels-son fæddist í
Reykjavík 13. októ-
ber 1978. Hann lést
af slysförum 4. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Melstaðar-
kirkju 16. septem-
ber.
kærast í minningunni
er sú hefð sem við höfð-
um komið okkur upp að
þið strákarnir veidduð
gæsir og við stelpurnar
elduðum þær. Allar
þessar stundir geymum
við í hjarta okkar.
Það eru erfiðir tímar
hjá okkur öllum en það
er huggun harmi gegn
að minningarnar um
þig eiga eftir að lifa og
ylja okkur um ókomna
tíð. Þú varst mikill véla-
og tækjakall og það eru
ófáar stundirnar sem fóru í að gera
við hverja beygluna á fætur annarri
ýmist í skúrnum hjá okkur, heima hjá
þér eða uppi á Reykjum sem oft og
tíðum var einhvers konar athvarf til
að fá frið og hittast.
Það er erfitt að skilja hvers vegna
svona vel gerður drengur í alla staði
sem átti framtíðina fyrir sér með
konu og barn á leiðinni er hrifsaður
frá öllu saman, en eflaust bíða þín
stærri og meiri verkefni fyrir hand-
an.
Þú varst sérlega vel lundaður og
það var nánast sama á hverju gekk,
alltaf tókstu á því með þinni einstöku
ró og yfirvegun.
Elsku Skúli, við viljum þakka þér
fyrir þann tíma sem okkur var gefinn
með þér. Þú varst einstakur vinur.
Við biðjum algóðan Guð um að
blessa ykkur Níels, Jónínu, Evu, litla
Róbert, Friðbjörn, Guðrúnu og
Helgu Rós. Elsku Árný, Skúli, Guð-
rún og aðrir aðstandendur, við biðj-
um góðan Guð um að styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Elsku Brynja, við biðjum fyrir þér
og litla ófædda barninu ykkar. Megi
Guð leiða ykkur í gegnum þessa erf-
iðu tíma. Minning um yndislegan
dreng lifir.
Þórarinn, Kristín og börn.
Hann Skúli okkar er látinn, aðeins
24 ára er hann tekinn burt í blóma
lífsins. Hann og unnusta hans voru
nýbúin að festa kaup á húsi á Laug-
arbakka og barn á leiðinni. Þetta er
sárt, mörg brostin hjörtu og engin
leið að skilja þetta né sætta sig við.
Við hjónin fengum þá ánægju að
kynnast Skúla betur og öðruvísi en
margur því við bjuggum á næsta bæ.
Hann var eins og eitt af okkar ömmu-
og afabörnum.
Hann var barn að aldri þegar hann
og systir hans komu í nágrenni við
okkur.
Það kom snemma í ljós þvílíkur
ljósgeisli hann Skúli var.
Eftir að okkar börn fluttu að heim-
an var hann mættur óumbeðinn að
hjálpa ef hann vissi af okkur tveimur
að baksa eitthvað t.d. við gjafir á
fénu, í fjósinu, rúningum og fleira.
Það var alltaf hægt að leita til hans ef
á þurfti að halda.
Eftir að við fluttum búferlum feng-
um við þá ánægju að hafa hann aftur í
nágrenni við okkur og þá á Laugar-
bakka.
Hann vann með okkur í girðinga-
vinnu og til marks um gæsku hans þá
beið hann eftir mér gamalli kellu, ef
mýri eða aðrar hindranir voru fyrir
til að athuga hvort ég væri nú ekki
örugglega að koma og hvort hann
mögulega gæti aðstoðað á annan
hátt. Betri vinnufélaga var vart hægt
að hugsa sér. Hann var góður verk-
maður, einstaklega ósérhlífinn og
mikið náttúrubarn.
Minningarnar eru óteljandi, þær
eru ljósið og hlýjan í hjörtum okkar,
við erum ríkari af að hafa þekkt þig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér sinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Brynja, Jónína, Níels, Eva,
Guðrún, Helga og aðrir aðstendend-
ur, við sendum ykkur innilegustu
samúðarkveðjur okkar. Megi Guð
gefa ykkur styrk.
Kveðja
Jóhannes og Soffía, Finnmörk.
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
ⓦ á Aragötu
í Reykjavík
Upplýsingar
í síma
569 1116.
Heilsdagsstarf
Framtíðarstarf
Undirfataverzlun í Kringlunni óskar eftir lífleg-
um og reglusömum starfskrafti til afgreiðslu-
starfa, á aldrinum 20—45 ára.
Umsækjendur sendi umsóknir til auglýsinga-
deildar Morgunblaðsins eða á box@mbl.is
merkt: „Framtíð — 03“ fyrir mánudaginn
22. sept. nk.
NIFCA - Norræna stofnunin um samtímalist er vettvangur fyrir lista-
menn, almenning, safnstjóra og gagnrýnendur til að sjá og rannsaka
sjónmenningu samtímans á Norðurlöndum og á alþjóðavísu. NIFCA
heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Starfsemi NIFCA fer fram í
húsnæði sem finnska ríkið útvegar í Sveaborg, rétt við Helsinki.
Norræna samtímalistastofnunin
leitar að forstöðumanni
NIFCA leitar að forstöðumanni sem hefur framtíðarsýn
um hlutverk og markmið stofnunarinnar í samtímanum,
og uppfyllir eftirfarandi hæfniskröfur:
- skarpa sýn á list og listamenn
- stjórnunarhæfileika og margra ára staðfesta reynslu af
stjórnun og skilning á starfsemi stofnana og reynslu af
starfsmanna- og fjármálastjórnun
- hæfni til að þróa og vinna með upplýsingar, gagnrýni og
kynningarform um sjónmenningu
- góð þekking á norrænni og alþjóðlegri list
- menntun á háskólastigi eða sambærileg hæfni
Stjórn NIFCA ber yfirábyrgð á stofnuninni og forstöðumaður
heyrir undir hana, en í henni sitja fulltrúar frá öllum Norður-
löndunum. Staðan er samningsbundin til 4ra ára með mögu-
leika á framlengingu, lengst í önnur fjögur ár. Laun og starfs-
kjör eru ákveðin af Norrænu ráðherranefndinni í samræmi við
reglur um starfsmenn við samnorrænar stofnanir.
Umsækjandi skal hefja störf eins fljótt og hægt er eftir 1. jan-
úar 2004. Umsókn (engin sérstök eyðublöð) ásamt ferilskrá
og meðmælum skal berast í síðasta lagi 15. október 2003 til:
NIFCA, Sveaborg B 28, FIN-00190, Helsinki, Finnland. Merk-
ið umslagið „Ny Direktör“.
Nánari upplýsingar fást hjá stjórnarformanni NIFCA,
Bitte Nygren í síma 00-46-8-58727007 eða stjórnarmeðlimi
Maaretta Jaukkuri í síma 00-358-9-17336537.
Nánari upplýsingar á www.nifca.org
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Beinverndar
verður haldinn fimmtudaginn 2. október nk.
í Turnherberginu á Landakoti kl. 16.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sjórnin.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brekkugata 3, versl. 01-0101, 1. hæð, Akureyri, þingl. eig. Brekkubúð-
in ehf., gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, miðvikudaginn 24.
september 2003 kl. 10:30.
Mýrargata 2, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Þrb. Jarðverk ehf., gerðar-
beiðandi Landsbanki Íslands hf., miðvikudaginn 24. september 2003
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
18. september 2003,
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
ÝMISLEGT
Sævarhöfði —
land og húsnæði
Ríkissjóður, í samvinnu við Sementsverksmiðj-
una hf., býður til leigu u.þ.b. 10.000 m² land
undir iðnaðar- og athafnastarfsemi ásamt skrif-
stofuhúsnæði og skemmu á Sævarhöfða. Um
er að ræða hluta af landi í eigu Sementsverk-
smiðjunnar.
Upplýsingar verða veittar á fjárreiðu- og eigna-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins Arnarhvoli,
150 Reykjavík, og skulu tilboð send þangað
fyrir 25. september nk.
Fjármálaráðuneytið,
19. september 2003.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Miðill sem svarar þér í dag.
Hringdu og fáðu einkalestur og
svör við vandamálum í starfi
eða einkalífi í síma 001 352 624
1720.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 1849198½
I.O.O.F. 1 1849198
Í kvöld kl. 20.00
Bæn og lofgjörð í umsjón Elsa-
betar og Miriam.
Allir velkomnir.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is