Morgunblaðið - 20.09.2003, Síða 1
Sérblaðið Börn hefur göngu sína á ný:
Daglegt líf |Lesbók |Börn á laugardögum
STOFNAÐ 1913 254. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR í Stokkhólmi framlengdi
síðdegis í gær um viku gæsluvarðhald yfir
Per Olof Svensson, 35 ára gömlum Svía, sem
handtekinn var vegna gruns um að hann væri
morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, að sögn AFP-fréttastofunnar. Dag-
blaðið Dagens Nyheter og fleiri fjölmiðlar í
Svíþjóð forðast enn að nafngreina manninn
enda þótt það sé gert í öðrum löndum.
Dagens Nyheter lýsti því í gær á vefsíðu
sinni er maðurinn var færður fyrir réttinn og
ákæruatriðin lesin upp.
„Hann sýndi aldrei andlitið og sagði ekki
eitt einasta orð meðan fjölmiðlafólk fékk að
vera viðstatt. Hann iðaði dálítið í sætinu þeg-
ar ásökun saksóknara um morð var lesin
upp.“ Gunnar Falk, verjandi Svenssons, sagð-
ist eftir fund sinn með saksóknurum og hér-
aðsdómurum skilja að dómurinn veitti sak-
sóknurunum, Agnetu Blidberg og Krister
Petersson, aukinn frest. Hann má ekki segja
frá því hvaða gögn hafi verið lögð fram.
„En svo mikið get ég sagt að ekki finnst
mér mikið til um þau. Fátt bitastætt er í sönn-
unargögnunum og ekkert sem tengir skjól-
stæðing minn við glæpinn,“ sagði Falk sem
útilokar ekki að hann muni kæra handtökuna.
Sænska lögreglan mun nota næstu daga til
að afla frekari og traustari gagna en mistakist
það getur farið svo að manninum verði sleppt.
Einkum binda lögreglumenn vonir við
rannsóknir á DNA-erfðaefnissýnum sem
fundust í fatnaði við morðstaðinn. Gera þarf
nokkrar rannsóknir á DNA-efninu til að
tryggja að niðurstaðan gildi fyrir rétti.
Fá viku til að sanna
sekt meints morðingja
Gæsluvarðhald
mannsins framlengt
BOÐAÐUR hefur verið hluthafafundur í Eim-
skipafélaginu 9. október í kjölfar þeirra víðtæku
umskipta í viðskiptalífinu sem endanlega urðu ljós
í fyrrinótt, þar sem Landsbanki Íslands og tengdir
aðilar eignuðust um 27% hlut í Eimskipafélagi Ís-
lands. Á fundinum munu fulltrúar þeirra félaga
sem ekki eiga lengur hlut í félaginu ganga úr
stjórn og fulltrúar nýrra eigenda taka við.
Tveir stærstu hluthafar félagsins, Fjárfesting-
arfélagið Straumur og Sjóvá-Almennar, seldu í
fyrrinótt allan sinn hlut í félaginu. Auk þess á
Tryggingamiðstöðin 5,6% hlut í Eimskipafélaginu
en að sögn Halldórs J. Kristjánssonar, banka-
stjóra Landsbankans, eiga félögin gott samstarf
um hlutafjáreignina í Eimskipafélaginu.
Forsvarsmenn Fjárfestingarfélagsins Straums,
sem er orðinn stærsti hluthafinn í Flugleiðum,
hafa hins vegar ekki tekið neina ákvörðun um
hvort óskað verði eftir hluthafafundi þar sem ný
stjórn Flugleiða yrði kosin. Jafnframt hefur ekki
verið ákveðið hvort Straumur muni eiga þennan
hlut áfram í Flugleiðum.
Atorka og Afl með 17% í Sjóvá-Almennum
Íslandsbanki hefur eignast eða samið um kaup á
56,2% hlut í Sjóvá-Almennum og fyrir þennan hlut
er greitt með peningum. Við þetta lækkar eig-
infjárhlutfall bankans úr 10,8% í 9%.
Íslandsbanki ætlar að gera yfirtökutilboð í aðra
hluti í Sjóvá-Almennum og greiða fyrir með hluta-
bréfum í Íslandsbanka. Ekki er gefið upp á hvaða
verði hlutabréf í Íslandsbanka eru í tilboðinu sem
hefur valdið óánægju meðal smærri hluthafa.
Meðal hluthafa í Sjóvá-Almennum sem hafa lýst
yfir óánægju með tilboð Íslandsbanka í trygginga-
félagið eru fjárfestingarfélögin Afl og Atorka. Þau
keyptu í gær aukinn hlut í Sjóvá-Almennum og
eiga samkvæmt heimildum Morgunblaðsins sam-
anlagt um 17% hlut í tryggingafélaginu.
Frumkvæðið að þeim miklu sviptingum sem átt
hafa sér stað undanfarna sólarhringa í nokkrum af
stærstu fyrirtækjum landsins kemur frá Íslands-
banka og Sjóvá-Almennum. En samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins fóru forsvarsmenn Ís-
landsbanka og Sjóvár-Almennra að ræða í alvöru í
kringum síðustu helgi hvernig best væri að standa
að þeirri skiptingu á hlutabréfum í félögum, sem
síðan varð niðurstaðan með undirskriftinni á næt-
urfundi í Landsbankanum í fyrrinótt.
Endahnútur rekinn á uppstokkun fyrirtækjasamsteypa í viðskiptalífinu
Breytt um stjórn í Eimskip
Landsbankinn/10–11
GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, flutti fyrsta ávarpið
í gær í ráðhúsi Stokkhólmsborgar þegar um 1.300 manns, þar af
margir tignir gestir frá öðrum löndum, heiðruðu minningu Önnu
Lindh utanríkisráðherra. Mynd af Lindh er vinstra megin við
Persson á sviðinu. „Hún elskaði heiminn og heimurinn elskaði
hana,“ sagði Chris Patten sem fer með erlend samskipti í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins. Anna Lindh verður jarðsett í
dag.
Heiðruðu minningu Lindh
Látlaus/4
AP
DANSKA stjórnin kynnti í gær áætlun sem miðar
að því að gera bókstafstrúuðum múslímaklerkum
erfiðara að flytjast til Danmerkur og reka þar
áróður meðal trúbræðra sinna
í landinu. Verður þeim meðal
annars gert skylt að sýna fram
á að þeir geti framfleytt sér
sjálfir, talað dönsku og „virt
vestræn gildi“, annars verður
þeim sennilega vísað úr landi.
Múslímar eru þrjú prósent
íbúa Danmerkur eða um
170.000 manns. Peter Skaar-
up, einn af þingmönnum
Danska þjóðarflokksins er
styður tillöguna, segir að sam-
kvæmt orðanna hljóðan eigi
reglurnar við leiðtoga allra trúarbragða en í reynd
sé þeim beint gegn íslömskum klerkum.
„Við lögðum fram tillöguna um þessi mál vegna
þess að ímamar [múslímaklerkar] hafa valdið
vanda í landinu með því að stuðla að því að stúlkur
séu umskornar, þeir hvetja stuðningsmenn sína til
að styðja al-Qaeda og predika á eigin tungu,“ sagði
Skaarup. „Hvernig er hægt að fá innflytjendur til
að laga sig að dönsku samfélagi ef trúarleiðtogar
þeirra tala ekki einu sinni dönsku?“
Tillagan er hluti af nýrri og hertri reglugerð um
innflytjendur sem ríkisstjórnin kynnti á fimmtu-
dag. Auk Danska þjóðarflokksins, sem er yst á
hægri væng og veitir minnihlutastjórn hægri- og
miðjumanna stuðning á þingi, styðja jafn-
aðarmenn, sem eru í stjórnarandstöðu, hana einn-
ig. Er gert ráð fyrir að tillagan fari auðveldlega í
gegn á danska þinginu í október.
„Góður dagur fyrir ástina“
Slakað verður á sumum nýlegum ákvæðum inn-
flytjendalaga, t.d. þeim sem ætlað er að hindra svo-
nefnd nauðungarhjónabönd en hafa einnig komið
niður á Dönum sem hafa gifst erlendum mökum.
Múslímafjölskyldur þvinga oft ungt fólk til að
ganga að eiga framandi maka frá múslímalandi og
að sögn ráðherra innflytjendamála, Bertel
Haarder, hafa um 400 innflytjendastúlkur farið í
felur til að losna við þessa kvöð en þær óttast hefnd
náinna ættingja sinna. Framvegis fá allir sem hafa
verið ríkisborgarar í minnst 28 ár að taka með sér
til landsins erlendan maka. Ljóst er að mjög fáir
innflytjendur fullnægja skilyrðinu.
Blaðið Jyllandsposten hafði eftir talsmanni jafn-
aðarmanna, Anne-Marie Meldgaard, í gær að þetta
væri „góður dagur fyrir ástina“.
Þrengt að
múslímaklerk-
um í Danmörku
Kaupmannahöfn. AFP.
Peter Skaarup,
þingmaður Danska
þjóðarflokksins.
RÁÐHÚSIÐ í borginni Mont-
beliard í austanverðu Frakk-
landi mun í október hleypa af
stokkunum þjónustu sem gerir
kleift að senda myndir af borg-
aralegri hjónavígslu beint á
Netið.
Myndavél mun á þriggja sek-
úndna fresti senda upptökur á
vef borgarinnar frá því sem
gerist í salnum þar sem vígsl-
urnar fara fram. Geta þá fjar-
staddir ættingjar og vinir brúð-
hjónanna „tekið þátt“ í at-
höfninni, að sögn embættis-
manna hjá borginni. Einnig
geta væntanleg hjón afþakkað
útsendinguna.
Gift í beinni
á Netinu
Montbeliard. AFP.