Morgunblaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 51
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 20.
september, er fimmtug
Margrét Thorarensen, leið-
beinandi við Leikskólann
Bergheima í Þorlákshöfn.
Eiginmaður hennar er Ægir
E. Hafberg, útibússtjóri í
Þorlákshöfn. Margrét mun
verja deginum með fjöl-
skyldu sinni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú tekur vel eftir, sýnir út-
sjónarsemi og kannt að
þrauka. Aðrir vita að þeir
geta treyst á þig. Þú ert oft
snjall/snjöll í fjárfestingum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Breytt staða Merkúrs gerir
að verkum að smávægileg
glappaskot og tafir, sem
hafa gert þér lífið leitt í
vinnunni svo vikum skiptir,
eru nú úr sögunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er óhætt að gera áætl-
anir um frí, íþróttir og
skemmtanalíf vegna þess að
ákveðin fyrirstaða er horfin.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert á valdi Merkúrs og nú
er beinn og breiður vegur
framundan eftir ýmis vanda-
mál. Líf þitt verður auðveld-
ara fyrir vikið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það hefur verið erfitt að ná
sambandi við aðra upp á síð-
kastið, en nú verður breyt-
ing þar á. Tölvu- og síma-
vandræði eru frá.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Runninn er upp réttur tími
til að kaupa bíla eða önnur
farartæki. Þú munt nú eiga
auðveldara með taka réttar
ákvarðanir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Líkt og tvíburinn ert þú á
valdi Merkúrs, sem veldur
því að þrisvar á ári kemur
bakslag í seglin, en nú er
góður tími í vændum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er rétt að snúa sér að al-
vöru lífsins og ljúka mik-
ilvægum verkefnum. Einnig
er óhætt að leggja drög að
spennandi ævintýrum og
láta metnaðinn ráða för.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú er rétt að gera ferða-
áætlanir, þar á meðal til út-
landa. Sem betur fer þarf
ekki lengur að hafa áhyggj-
ur af vinum, sem héldu aftur
af þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hæfileiki þinn til að ganga í
augun á mikilvægu fólki með
hugmyndum þínum nýtur
sín þessa dagana. Ekki horfa
um öxl, það er fylgst með
þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er rétt að huga að ferða-
áætlunum, sem hafði verið
slegið á frest eða aflýst. Allt
sem snertir ferðalög, útgáfu
og æðri menntun verður nú
auðveldara.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hindrunum fyrir því að ná
samkomulagi um sameig-
inlegar eignir er rutt úr
vegi. Þú ert nú eigin herra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það hefur ekki verið auðvelt
að eiga við fyrri maka eða fé-
laga. Þitt besta svar er að
njóta lífsins. Nú getur þú
komið fram við aðra með
opnari hætti en áður.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HÁFJÖLLIN
Þú, bláfjalla geimur! með heiðjökla hring,
um hásumar flý ég þér að hjarta,
ó, tak mig í faðm, minn söknuð burt ég syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.
Þín ásjóna, móðir! hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristals dagga;
und miðsumars himni sé hvílan mín,
hér skaltu, Ísland! barni þínu vagga.
Hér andar Guðs blær og hér verð ég svo frjáls,
í hæðir ég berst til ljóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum himinbáls,
unz leiðist ég í sólu fegri drauma.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 20.
september, er áttræð frú
Guðrún B. Jónsdóttir, fyrr-
um umboðsmaður Morg-
unblaðsins, Vesturgötu
105, Akranesi. Eiginmaður
hennar var Valdimar
Ágústsson, stýrimaður á
Akraborginni, sem nú er lát-
inn. Hún tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í dag frá
kl. 14-17 í sal eldri borgara á
Kirkjubraut 40.
50 ÁRA afmæli. Í gær,19. september, varð
fimmtug Margrét Hálfdán-
ardóttir, Bjarkarholti 3,
Mosfellsbæ. Hún tekur á
móti vinum og vandamönn-
um á heimili sínu í dag, laug-
ardaginn 20. september, frá
kl. 18.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 20. september, eiga
50 ára hjúskaparafmæli hjónin Guðrún Rósa Sigurðardóttir
og Hjörtur Guðmundsson, Löngubrekku 47, Kópavogi.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. Rf3 b6 5. Bg5 Bb7
6. Rd2 h6 7. Bh4 c5 8. a3
Bxc3 9. bxc3 d6 10. e3 De7
11. f3 e5 12. d5 g5 13. Bf2
Rbd7 14. Bd3 O-O-O 15.
Dc2 h5 16. O-O-O h4 17.
Bf5 Kc7 18. g3 hxg3 19.
hxg3 Hdg8 20. g4 De8 21.
Da4 a6 22. Hde1
Hxh1 23. Hxh1 Hh8
24. Dd1 b5 25. e4
Rb6 26. Be3 Hg8
27. Db3 Kd8 28.
Kc2 Bc8 29. Bxc8
Rxc8 30. cxb5 axb5
31. Hb1 Rb6 32.
Dxb5 Dxb5 33.
Hxb5 Kc7 34. Kb3
Rfd7 35. a4 f6 36.
a5 Rc8 37. Rc4 Hh8
38. a6 Rcb6 39.
Rxb6 Rxb6
Staðan kom upp á
Skákþingi Norð-
urlanda sem lauk
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
fyrir skömmu í Danmörku.
Evgeny Agrest (2603)
hafði hvítt gegn Helga
Ólafssyni (2498). 40. Bxc5!
Bráðsnjöll mannsfórn sem
tryggir hvítum unnið tafl.
40...dxc5 41. Hxc5+ Kb8
42. Hc6 Rd7 43. c4 Ka8 44.
c5 Hf8 45. Kc4 Rb8 46.
He6 Ka7 47. Kb5 Hf7 48.
d6 Rxa6 49. He7+ Hxe7
50. dxe7 og svartur gafst
upp.
NOSTUR er eiginleiki
sem kemur með aldrinum
og liggur nokkuð fjarri
ákafa þeirra sem yngri eru.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ K8
♥ D876
♦ Á10
♣K9543
Vestur Austur
♠ 5 ♠ G643
♥ ÁKG42 ♥ 1095
♦ 975 ♦ G862
♣DG87 ♣Á10
Suður
♠ ÁD10972
♥ 3
♦ KD53
♣62
Spilið er frá HM ung-
menna og iðulega varð suð-
ur sagnhafi í fjórum spöð-
um, oft eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass 2 hjörtu 2 spaðar
Pass 2 grönd Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Algeng byrjun var hjarta-
ás út og tígull í öðrum slag.
Bandaríkjamaðurinn Joe
Grue var sá eini sem fékk
tíu slagi, reyndar með góðri
aðstoð varnarinnar. En með
þolinmæði og nostri ætti að
vera hægt að fá tíu slagi
hjálparlaust. Til dæmis
þannig:
Tígulslagurinn er tekinn
heima og laufi fyrst spilað á
kónginn (ásinn gæti legið
rétt). En austur tekur slag-
inn og annan slag á lauftíu.
Spilar svo hjarta. Suður
trompar, spilar tígli á ásinn
og trompar aftur hjarta.
Staðan er nú:
Norður
♠ K8
♥ D
♦ –
♣954
Vestur Austur
♠ 5 ♠ G643
♥ KG ♥ –
♦ 9 ♦ 86
♣D8 ♣–
Suður
♠ ÁD109
♥ –
♦ D5
♣–
Nú er öruggast að spila
tígli og trompa með áttu
blinds. Stinga svo hjarta eða
lauf heim, trompa frítíg-
ulinn með kóng og yf-
irtrompa svo austur í enda-
stöðunni. Með þessu móti
fást átta slagir á tromp og
tveir á tígul.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
BRIDSSKÓLINN
Námskeið Briddskólans í byrjenda-
og framhaldsflokki hefjast í næstu viku, á mánudag og miðvikudag.
Byrjendur: Hefst 22. september og stendur yfir í 10 mánudagskvöld,
þrjár klst. í senn, frá kl. 20-23.
Framhald: Hefst 24. september og stendur yfir í 10 miðvikudags-
kvöld, þrjár klst. í senn, frá kl. 20-23.
Upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 um helgina.
Síðustu innritunardagar
Sjúkranuddstofan
á tveggja ára afmæli mánudaginn 22. september.
Gerðu eitthvað gott fyrir sjálfan þig. Gerðu það núna
Afmælisglaðningur: frír tími fyrir þá sem eiga afmæli 22. september
Afmælistilboð: 2 meðferðartímar á verði eins.
AFMÆLI - AFMÆLI
Anton Wurzer,
lögg. sjúkranuddari
Síðumúli 15,
sími/fax 588 1404
Moonstartherapy
Orkumeðferð - Akupoint massage Heilnudd - Body massage
Bandvefsnudd - Connective tissue massage Ristilnudd - Colon massage
Svæðanudd - Feetreflexzonetheraphy Sogæðameðferð - Lymphdrainage
Bakmeðferð - Back and Spine therapy
Útsala
50-70%
afsláttur
Bankastræti 11 sími 551 3930
VANTAR STRAX
Íbúðareigendur í Bökkunum!
Höfum verið beðnir að kaupa tvær íbúðir
í þínu hverfi.
Hafir þú áhuga á viðskiptum vinsamlegast
hafðu samband við Þorbjörn,
sími 898 1233 milli kl. 8.00 og 22.00.
Kveðja, Þorbjörn Pálsson.
Þorbjörn Pálsson
sölufulltrúi RE/MAX Mjódd
símar 520 9555/898 1233
thorbjorn@remax.is Hans Pétur Jónsson lögg. fasteignasali
MJÓDD
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu brids, tví-
menning, á ellefu borðum í Gull-
smára 13 fimmtudaginn 18. septem-
ber. Miðlungur 220. Beztum árangri
náðu:
NS
Kristinn Guðm. og Halldór Jónss. 250
Björn Björnsson og Heiðar Þórðarson 250
Sigurpáll Árnas. og Sigurður Gunnl. 246
Valdimar Lárus. og Einar Elías. 238
AV
Sigtryggur Ellerts. og Þórarinn Árnas. 290
Gunnar Bjarnas. og Guðm. Tryggvas. 239
Haukur Bjarnas. og Hinrik Lárus. 233
Þórhildur Magnúsd. og Helga Helgad. 227
– Brids í Gullsmára alla mánu- og
fimmtudaga. Mæting kl. 12.45 á há-
degi.
Bridsfélag Kópavogs
Fyrsta kvöld af þremur í Hamra-
sports-tvímenningnum var spilað sl.
fimmtudag á 8 borðum. Staða efstu
para:
NS:
Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson 188
Heimir Tryggvas. – Sigurjón Tryggvas. 172
Halldóra Magnúsd. – Soffía Daníelsd. 171
Dröfn Guðmundsd. – Ásgeir Ásbjörnss. 171
AV:
Magnús Aspelund – Steingrímur Jónass.
195
Jens Jensson – Jón St. Ingólfsson 192
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 173
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson