Morgunblaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 33
vígir upptöku evrunnar og konur á dri sömuleiðis. ngsmenn Evrópusamrunans remb- ð útskýra að nei hafi í raun alls nei, heldur kannski eða seinna. nnar hér á landi eru þar engin kning. plýstum sænskum kjósendum er ar vel ljóst að já er endanlegt og æft að óbreyttum Rómarsáttmála gerir ráð fyrir því að ríki geti yf- úbbinn. yndir um úrsagnarákvæði hafa pi í stjórnarskrárvinnunni sem nú yfir en það er önnur saga. Kjós- r einnig ljóst að ákvörðun um að tan myntbandalagsins nú þarf ekki að svo verði um aldur og ævi. Þess- ður gefa hins vegar ekkert tilefni engja eða túlka það í hálfgerða u sína að Svíar hafi hafnað upp- unnar. Minnumst þess einnig að ur við aðild að Evrópusambandinu hefur lengi verið af skornum í Svíþjóð. Það er og kaldhæðn- skoðanakannanir hafa nær sam- meirihlutaandstöðu við aðild bæði m áður en Svíar gengu í Evrópu- ið og lengst af eftir það einnig. Helsta undantekningin er tíminn í kringum sjálfa aðildarkosninguna 1994. Þá kusu Sví- ar m.a. undir áhrifum þess að nágrannar þeirra Finnar höfðu þegar samþykkt aðild og flestir bjuggust við að Norðmenn myndu einnig gera það stæðu þeir frammi fyrir bæði finnskri og sænskri aðild. Þann- ig átti hringekja skandinavísku Evr- ópukratanna að virka með því að kjósa fyrst í því landi þar sem fyrir lá að almenn- ingsálitið var jákvæðast í garð aðildar og svo koll af kolli. Almenningur í Noregi, Danmörku og nú í Svíþjóð hefur í kosn- ingum valið sínar eigin leiðir þótt ýmsum gangi erfiðlega að kyngja því. Mergurinn málsins er sá að meðal Svía eru uppi miklar efasemdir um ágæti Evrópusamrunans sem slíks, eins og hann er knúinn áfram af ráðandi öflum. Áhrifin annars staðar Úrslit kosninganna í Svíþjóð hafa aug- ljóslega þau áhrif að nokkuð sljákkar í samrunasinnum í Danmörku að reyna aftur við evruna. Slíkar kosningar hafa legið í loftinu í anda þeirrar sérkennilegu hefðar sem mótast hefur í kosningum um Evrópu- sambandsmál, þá sjaldan að almenningur fær að láta álit sitt í ljós, að já þýði end- anlega já, en nei þýði að það verði bara að kjósa aftur. Í Bretlandi er kosning um evr- una nánast út úr myndinni þegar saman leggjast áhrifin af sænska neiinu og erf- iðleikum Blairs vegna blekkinganna í Írak. Enn síður gerist það sem aðildarsinnar hér og í Noregi höfðu vonast eftir að keðju- verkandi áhrif þess að fyrst Svíar, þá Danir og loks Bretar tækju upp evru myndu auka svo þrýsting á málin í Noregi og á Íslandi að aðildarundirbúningur hæfist. Í Noregi og á Íslandi munu nú vötnin róast en athyglin ekki síst verða á Dönum því þar fær þó almenningur a.m.k. að kjósa um nýju stjórnarskrána. Einnig verður spennandi að sjá hvort danskir aðild- arsinnar, eins og venjulega með Anders Fogh Rasmussen í fararbroddi, leggja jafn- framt til atlögu við hinar frægu und- anþágur og jafnvel evruna, allt í sömu kosningunum. Og spurningin er hvort danskur almenningur á enn eftir að koma á óvart og velja sínar eigin leiðir við litla hrifningu samrunaarkitektanna eins og kunnugt er. ferðar Höfundur er alþingismaður, formaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og fulltrúi í utanríkismálanefnd. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 33 S LÁTURTÍÐ stendur sem hæst og hin ár- lega umræða um slæma stöðu sauð- fjárbænda er áberandi í fjölmiðlum. Sala dilkakjöts hefur dregist hratt saman á und- anförnum árum. Árið 1985 var sala kindakjöts, mæld í kg á hvern íbúa, rúmlega 40 kg á ári. Nú tæplega tveimur áratugum síðar er hún helmingi minni. Ætla má að á bilinu 400 til 500 þúsund fjár verði slátrað í haust og að kjötið af þeim vegi rúmlega sex þúsund tonn. Það segir sig sjálft að sam- dráttur í sölu dilkakjöts hefur haft mikil áhrif til hins verra á af- komu sauðfjárbænda. Fáar, ef nokkrar, stéttir á Íslandi búa við jafnlök kjör og sauðfjárbændur og fjölskyldur þeirra. Á síðasta ári námu meðaltekjur þeirra á mánuði 60–70 þúsundum króna. Þau laun eru ekki mönnum sæm- andi. En hvað er til ráða? Landbún- aðarráðherra og forystumenn bænda hafa ítrekað bent á aukinn útflutning dilkakjöts sem svarið við vanda sauðfjárræktarinnar. Ég er þeirrar skoðunar að það leysi engan vanda hvorki í bráð né lengd að einblína á útflutning kindakjöts sem bjargráð ís- lenskra sauðfjárbænda. Íslensk kjötframleiðsla er tæplega sam- keppnishæf á heimsmarkaði. Lambakjötið selur sig ekki sjálft og ekkert bendir til þess að kostn- aðurinn við að vinna markaðs- hlutdeild úti í hinum stóra heimi geti skilað sér í smásöluverði í New York eða Kaupmannahöfn. Það er einfaldlega óraunhæft að ætla að íslenskt lambakjöt geti keppt við risana á heimsmarkaði, t.d. Nýja-Sjáland og Argentínu. Til þess er íslenska framleiðslan bæði of lítil og of dýr. Þetta þýðir ekki að ég sé þeirr- ar skoðunar að leggja eigi niður sauðfjárrækt á Íslandi. Alls ekki. Framleiðsla kindakjöts þarf hins vegar að minnka mikið og taka mið af eftirspurn og þörfum ís- lenskra neytenda. Þeir vilja og munu vilja gott íslenskt lamba- kjöt á sinn disk. En þeir gera einnig kröfur um hæfilegt verð sem er í samræmi við gæði kjöts- ins. Hvíta kjötið er tiltölulega ódýrt og því er samkeppnisstaða dilkakjöts gagnvart kjúklinga- og svínakjöti á innanlandsmarkaði veik. Margt kemur til. Sviptingar hafa verið í eignarhaldi fyrirtækja í framleiðslu hvíts kjöts. Svo virð- ist sem þessi fyrirtæki séu tilbúin til þess að greiða með hverju kíló- grammi út úr búð og selja, t.d. kjúklinga, undir kostnaðarverði. Þessi staða getur varla varað að eilífu. Nema að framleiðendur hvíta kjötsins eigi mjög digra sjóði og hafi ótakmarkaðan að- gang að lánsfé. En er sanngjarnt að tala um beina samkeppni á milli sauð- fjárbænda og svo þeirra sem stunda verksmiðjuframleiðslu á svínum og kjúklingum? Þessir framleiðendur standa þegar nán- ar er að gáð á gjörólíkum grunni. Íslenska kindin er vissulega ekki villibráð en hún vex upp við kjör- aðstæður þegar tekið er tillit til umhverfis hennar og fæðu. Slát- urtíminn er bundinn við haustið en neytendur vilja gjarnan geta keypt ferska afurð allt árið um kring. Kjúklingar sem ala sinn stutta aldur í verksmiðju flokkast sem fjöldaframleidd matvæli. Sums staðar í nágrannalöndum okkar gera neytendur grein- armun á því hvort keyptur er „frjáls og hlaupandi“ kjúklingur eða sá sem alinn er í búri. Og víða eru neytendur tilbúnir til þess að greiða hærra verð fyrir kjöt af dýrum sem alin eru við aðstæður sem þeim hugnast betur en verk- smiðjuframleiðslan. Í þessari ójöfnu stöðu liggur hins vegar sóknarfæri fyrir ís- lenska sauðfjárbændur. Með nán- ari tengslum við markaðinn og þarfir neytenda að leiðarljósi geta sauðfjárbændur væntanlega náð stærri markaðshlutdeild á kjöt- markaði. Ég ætla ekki að halda því fram að þjóðin snúi aftur til fyrri matarvenja og fari að fúlsa við svína- og kjúklingakjöti en ég hygg að lambakjötið megi selja í meira mæli en nú er gert og með öðrum hætti. Þetta haustið eru austfirskir bændur að gera merkilega markaðstilraun í sölu á lambakjöti. Neytendur geta keypt beint af bóndanum af netinu og kjötið er að auki upprunamerkt. Þessir menn eru á réttri leið. Það er hins vegar ekki sú stefna stjórnvalda að jafn- vægi skuli náð á markaði dilkakjöts með útflutningi. Útflutningsskyldan er að verða myllusteinn um háls sauðfjárbænda sem í haust þurfa að flytja út 36% fram- leiðslunnar og fá fyrir hana lágt verð. Afleiðing útflutn- ingsskyldunnar er m.a. óheppileg þróun í uppbygg- ingu sláturhúsa hér á landi. Með hinni miklu áherslu á út- flutning er það orðið kappsmál sláturhúsanna að fá vottun og við- urkenningu frá Evrópusamband- inu og Bandaríkjunum. Til þess hafa menn ráðist í kostn- aðarsamar breytingar við upp- setningu fláningslína samkvæmt erlendum stöðlum. Þetta hefur leitt til fækkunar sláturhúsa, sem aftur leiðir af sér að rollum er stundum ekið um hálft landið til slátrunar. Er eitthvert hagræði í því? Varla þurfa öll sláturhús á Ís- landi að hafa útflutningsleyfi? Væri ekki nær að sum þeirra ein- beittu sér algjörlega að mark- aðnum innanlands og fjölbreyti- legum kröfum íslenskra neytenda? Íslendingum virðist ein- staklega lagið að koma sér upp flóknum og illskiljanlegum op- inberum kerfum. Þetta á bæði við í sjávarútvegi og landbúnaði. En það er með landbúnaðarkerfið eins og önnur mannanna verk að því má breyta til betri vegar. Markmið sauðfjárframleiðenda hlýtur að vera að „væn flís af feit- um sauð“ rati á disk allra lands- manna að lokinni sláturtíð, enda skiptir heimamarkaðurinn ís- lenska sauðfjárbændur mestu. Útflutningur dilkakjöts hefur hins vegar reynst vonarpeningur sem litlu skilar í vasa bænda sjálfra. Væna flís af feitum sauð… Eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur Höfundur situr í landbúnaðarnefnd Alþingis. ’ Ég er þeirrar skoð-unar að það leysi engan vanda hvorki í bráð né lengd að einblína á út- flutning kindakjöts sem bjargráð íslenskra sauð- fjárbænda. Íslensk kjöt- framleiðsla er tæplega samkeppnishæf á heimsmarkaði. ‘ Í DAG eru um 1.100 einstaklingar og fjölskyldur á biðlista eftir fé- lagslegu íbúðarhúsnæði í Reykja- vík. Því má gera ráð fyrir að tæp- lega 3.000 manns séu í brýnni þörf eiguhúsnæði. Auk þess er sá hópur em ekki hefur sótt um félagslegt húsnæði en leitar fyrir sér á almenn- úsnæðismarkaði. Ein helsta ástæða að fjölgað hefur verulega á biðlistum élagslegu leiguhúsnæði er að mínu ú að húsaleiga á almenum húsnæð- kaði hefur hækkað gríðarlega á und- num árum. Nauðsynlegt er að greina tana nákvæmlega og aðstoða þá sem nlega gætu nýtt sér önnur úrræði. si þróun hefur meðal annars átt sér egna mikillar hækkunar lóðargjalda í haldi af ákvörðun um uppboð lóða. hefur leitt til þess að bygging- tnaður, söluverð íbúða, fasteignamat teignagjöld, hafa hækkað um tugi nta á skömmum tíma. bótarlán, sem sveitarfélögin veita uðveldað mörgum fjölskyldum og klingum að eignast þak yfir höfðið. rsbyrjun 1999 hafa samtals verið um 8.700 viðbótarlán og þarf af hefur avíkurborg samþykkt tæplega 4.000. arfélögin hafa gengið lengra en reglu- gerð um viðbótarlán segir til um, en þar er miðað við að þeir sem búa við félagslega erfiðleika eigi rétt á úthlutun slíkra lána. Verklagsregla flestra ef ekki allra sveitar- félaga hefur verið sú að samþykkja lán til þeirra sem uppfylla greiðslumat og eru undir ákveðnu launa- og eignaviðmiði án tillits til félagslegra erfiðleika. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að húsnæð- islán verði hækkuð í 90% á kjörtímabilinu. Ég er þeirrar skoðunar að þegar fyrsti áfangi hækkunar húsnæðislána kemur til framkvæmda verði viðbótarlánin felld nið- ur, enda yrði húsnæðislánið jafnhátt eða hærra en húsnæðislán auk viðbótarláns getur orðið í dag. Gera þarf eftirsóknarvert fyrir ein- staklinga og byggingafyrirtæki að byggja og leigja út félagslegar leiguíbúðir og leiguíbúðir á hinum almenna húsnæð- ismarkaði. Mætti hugsa sér að ríki og sveitarfélög gerðu skattalegt umhverfi fyr- ir slíka starfsemi hagstæðara en nú er og að sveitarfélögin gerðu samninga um leigu á hluta þess húsnæðis fyrir skjólstæðinga sína. Tímabært er að borgaryfirvöld taki sér tak og skoði vel allar hugsanlegar leiðir til úrbóta. Í því sambandi verður að auka lóðaframboð fyrir minni íbúðir, meðal ann- ars einstaklingsíbúðir, á viðráðanlegu verði, en þess var t.d. ekki gætt í skipulagi Grafarholts. Ég tel mikilvægt að hrint verði af stað átaki til að draga úr þeim hús- næðisvanda sem til staðar er og að það verði gert í góðri samvinnu borgarinnar, ríkis, byggingaraðila, lífeyrissjóða og verkalýðsfélaga, sem sett hafa fram ákveðnar tillögur í þessum efnum. Tryggja verður þeim er búa við óöryggi í húsnæðismálum möguleika á viðunandi húsnæðisaðstöðu, sem er undirstaða þess að einstaklingar og fjölskyldur geti búið við mannsæmandi aðstæður og nýtt sér með eðlilegum hætti þau lífskjör sem sam- félagið hefur upp á að bjóða. Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna lýsa sig reiðubúna til að taka þátt í átaki í þeim tilgangi að stytta biðlista eftir félagslegu húsnæði verulega og fjölga leiguíbúðum á almenum húsnæðismarkaði. Þörfin er afar brýn og húsnæðiserfiðleikar alltof margra íbúa í Reykjavík eru óviðunandi. Reykja- víkurborg og ríkisvaldið verða að hafa for- ystu um að leita leiða til að koma húsnæðis- málum þúsunda íbúa borgarinnar í viðunandi horf. Þörf nýrra úrræða í húsnæðismálum Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson Höfundur er oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna. 34$#   $  7 9$3:(#; 0 (: 3- - < /$ 3$ = > : /3 4: $ $? < @ /0 (3 4  ABB 0 ) > .)   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.