Morgunblaðið - 20.09.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA var látlaus og hófstillt en
mjög þokkafull athöfn,“ sagði
Össur Skarphéðinsson, sem var
viðstaddur minningarathöfn um
Önnu Lindh í Stokkhólmi í gær
auk annarra leiðtoga jafnaðar-
mannaflokka á Norðurlöndum.
Guðmundur Árni Stefánsson, tals-
maður Samfylkingarinnar í utan-
ríkismálum, var einnig viðstaddur
athöfnina auk Sivjar Friðleifs-
dóttur umhverfisráðherra og
samstarfsráðherra Norðurlanda,
sem var fulltrúi íslenskra stjórn-
valda í fjarveru utanríkisráð-
herra, Halldórs Ásgrímsonar.
Ennfremur sótti Svavar Gestsson,
sendiherra í Stokkhólmi, athöfn-
ina fyrir Íslands hönd.
„Þetta var mjög falleg og virðu-
leg athöfn en afar sorgleg og ein
sú sorglegasta sem ég hef verið
viðstödd,“ tjáði Siv Friðleifsdóttir
Morgunblaðinu. „Þarna voru
haldnar mjög hjartnæmar ræður
um framlag Önnu til stjórnmála,
ekki bara í Svíþjóð heldur á al-
þjóðavísu. Það var komið inn á
hversu dugleg hún var að sam-
tvinna fjölskyldulíf og stjórnmála-
líf. Hún var mjög dugleg og til fyr-
irmyndar í stjórnmálum og
fyrirmynd margra kvenna,“ sagði
Siv.
Össur sagði Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, hafa
flutt tilfinningaþrungna ræðu þar
sem hann minntist Önnu Lindh og
samskipta sinna við hana á um-
liðnum árum.
Gestir úr mörgum áttum
„Það var til marks um stjórn-
málaferil hennar að þeir sem
þarna voru samankomnir komu
víðs vegar að úr heiminum. Chris
Patten, sem fer með utanríkismál
í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, minntist Lindh með fal-
legum hætti en tókst jafnframt að
koma brosi á vör viðstaddra með
því að minnast þess hversu gam-
ansöm Anna var. George Papand-
reou, utanríkisráðherra Grikk-
lands, sem ólst upp í Svíþjóð sem
barn og bjó þar sem ungur maður,
þegar fjölskylda hans átti þess
ekki kost að búa í Grikklandi,
minntist hennar einnig. Hann tal-
aði á lýtalausri sænsku og minnt-
ist þeirra nánu og persónulegu
kynna.
Menn eru harmi lostnir
Hann, líkt og bæði fulltrúar
samtaka kvennahreyfingar jafn-
aðarmanna og ungliðahreyfingar
flokksins, lögðu áherslu á að það
yrði að verða arfleifð Önnu Lindh
að hin opnu samfélög Norður-
landanna myndu ekki skaðast
vegna morðsins á henni og að hið
nána samband borgara og kjós-
enda myndi ekki bíða hnekki. Þá
fyrst myndi morðinginn ná ár-
angri,“ sagði Össur.
„Það er sérkennilegt andrúms-
loft í Svíþjóð. Menn eru harmi
lostnir og greinilegt að þetta hef-
ur haft mjög djúp áhrif á Svía.
Mönnum finnst eins og einhver
hluti hins norræna sakleysis sé
horfinn. Það er þó einmitt það sem
þarf að varðveita og endurheimta
eftir þetta.“
Látlaus, hóf-
stillt og þokka-
full athöfn
AP
Margot Wallström, fulltrúi í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins og náinn vinur Önnu
Lindh, táraðist við athöfnina.
sem er æskilegt að keyra á til að þurfa sem sjaldnast að
stoppa á rauðu ljósi innan viðkomandi ljósahóps. Þetta
hefur fengið hið lýsandi heiti „Græna bylgjan“.
UMFERÐARLJÓS í Reykjavík eru mörg hver samstillt
til að auðvelda umferðarflæðið, og kortið sýnir hvaða
ljós eru stillt saman, auk þess að sýna viðmiðunarhraða
„Græna bylgjan“ í Reykjavík
ALMENNINGI bauðst að kynna
sér svokallaðan vistakstur á vegum
Ökukennarafélags Íslands í gær, en
vistakstur byggir m.a. á því að keyra
sparlega og minnka þannig eldsneyt-
isnotkun og þar af leiðandi mengun.
Guðbrandur Bogason, formaður
Ökukennarafélags Íslands, segir að
vistakstur hafi verið þróaður í Finn-
landi og hafi verið kenndur þar frá
1997, en sé nú að ryðja sér til rúms á
Norðurlöndunum og Þýskalandi.
„Þetta eru aðeins breyttar
áherslur í aksturslagi sem byggjast
á því að gíra bílnum hratt og ákveðið
upp og nýta svo þá hreyfiorku sem
bíllinn er með,“ segir Guðbrandur.
„Bílstjórinn reynir svo að lesa um-
ferðina og sýna fyrirhyggju í akstr-
inum, til dæmis að nýta hina svoköll-
uðu grænu bylgju umferðarljósa svo
maður sé ekki alltaf að stoppa og
taka af stað. Þetta byggist mikið á
það að ökumaður skipuleggi sig og
virki orkuna á réttan hátt.“
Tengdamömmukassar
auka orkunotkun
Önnur atriði sem þarf að hafa í
huga er að passa að réttur þrýst-
ingur sé í dekkjum, og nota raf-
magnshitara þegar hitinn úti fer
undir 5°C.
Guðbrandur bendir einnig á að
loftmótstaða hafi mikil áhrif á elds-
neytisnotkun: „Tengdamömmukass-
ar eru t.d. sagðir auka notkunina um
allt að 20% og skiltin á leigubílunum
eru sögð auka eldsneytisnotkun um
5%.“
Með því að nýta sér þessa tækni
má spara eldsneyti, og þar af leið-
andi minnka mengun, segir Guð-
brandur, en einnig er mun minna
álag á bremsur.
Guðbrandur segir ekki mikið mál
að tileinka sér þessa tækni, og að
flestir ökumenn geti náð þessu með
því að fara í 90 mínútna verklega
kennslu og annað eins af bóklegri
kennslu. Enn sem komið er er ekki
mikið um að einstaklingar læri vis-
taksturinn en fyrirtæki hafa sent
starfsmenn sína í kennslu í einhverj-
um mæli.
Reynsla fyrirtækja af námskeið-
unum er mjög góð, að sögn Guð-
brands, og hann nefnir sem dæmi að
eitt rútufyrirtæki segist hafa minnk-
að olíunotkun um 10% eftir að starfs-
menn fóru á námskeiðið. Flestir öku-
skólar og einhverjir ökukennarar
bjóða upp á námskeið í vistakstri.
Kynntu vistakstur á Evr-
ópsku samgönguvikunni
GRÆNFRIÐUNGAR segjast
ánægðir með viðtökur Íslendinga á
hringferð sinni um landið, og eru
vongóðir um að stjórnvöld taki til-
boði þeirra um að hvetja ferðamenn
til að heimsækja landið gegn því
m.a. að stjórnvöld hætti hvalveiðum
fyrir fullt og allt.
Frode Pleym, talsmaður Græn-
friðunga, segir það hafa komið nokk-
uð á óvart hversu góðar móttökur
Grænfriðungar fengu hér á landi:
„Við hefðum átt að vinna þetta starf
með almenningi á Íslandi fyrir
löngu. Við gerum okkur grein fyrir
því að sennilega er enn meirihluti Ís-
lendinga fylgjandi hvalveiðum í at-
vinnuskyni en teljum engu að síður
að margir, bæði einstaklingar og
menn tengdir iðnaðinum, sjái að það
eru betri og gróðvænlegri mögu-
leikar til í stöðunni, svo sem hvala-
skoðun og ferðamennska.“
Pleym segir að tilboðið sem
Grænfriðungar gerðu stjórnvöldum
standi enn, og hann eigi allt eins von
á því að stjórnvöld átti sig á því
hversu gott það er og taki því tilboði.
„Ég tel þetta rétta kostinn fyrir Ís-
land og ég er á þeirri skoðun að rík-
isstjórn landsins komist að sömu
niðurstöðu.“
Aðspurður segir Pleym að Græn-
friðungar muni ekki funda með
stjórnvöldum áður en Rainbow
Warrior lætu úr höfn seinnipartinn á
sunnudag. Hann segir að stjórnvöld
þurfi tíma til að hugsa um tilboðið,
en að Grænfriðungar komi ef til vill
aftur í október til að funda um málið
og ræða við fleiri Íslendinga.
„Græða meira á
ferðamennsku“
Íslendingar hafa sterkar skoðanir
á Grænfriðungum, og rugla þeim
gjarnan saman við Paul Watson og
félaga í Sea Shepherd, segir Pleym.
„Flestir Íslendingarnir sem við töl-
uðum við eru sammála því að hval-
veiðar borgi sig ekki út frá efna-
hagslegum þáttum. En við erum að
sjá breytingu í almenningsáliti. Ég
held við sjáum ekki neina stóra
breytingu í skoðanakönnunum, enda
er það ekki neitt sem skiptir okkur
máli. Við viljum sýna fólki fram á að
Íslendingar hafi annan valkost en
hvalveiðar, og að sá valkostur sé já-
kvæður. Íslendingar munu græða
meira á ferðamennsku en hval-
veiðum.“
Klukkan níu í gærmorgun höfðu
5.569 einstaklingar lýst yfir áhuga á
því að ferðast til Íslands á heimasíðu
Grænfriðunga, og gefið upplýsingar
um hvernig hægt væri að ná í þá til
að senda upplýsingar.
Pleym segir að þetta fólk muni allt
fá upplýsingar um ferðalög til lands-
ins ef hvalveiðum verður hætt og
fleiri skilyrði Grænfriðunga uppfyllt.
„Augljóslega munu ekki allir þessir
einstaklingar koma [þó að skilyrðin
verði uppfyllt] en af fenginni reynslu
af vefsvæði okkar gefur fólk ekki all-
ar upplýsingar um sig til að fá upp-
lýsingar um einhver atriði nema það
sé líklegt til að koma. Við höfum því
sterkar vísbendingar um að stór
hluti þessa fólks muni koma, og
sennilega taka vini og fjölskyldu
með.“
Pleym segir að Grænfriðungar
muni einnig stunda öflugt markaðs-
starf og vera í sambandi við ferða-
skrifstofur til að auka áhuga á Ís-
landi.
Gróft áætlað segir Pleym að mikil
verðmæti muni liggja eftir þessa
ferðamenn, á bilinu sex til átta millj-
ónir bandaríkjadala, 470 til 620 millj-
ónir króna. Hann segir það mun
meira en hægt sé að fá fyrir hval-
veiðar, hvernig sem dæmið sé reikn-
að.
Grænfriðungar fara frá landinu á sunnudag
Vongóðir um að stjórn-
völd taki tilboði þeirra