Morgunblaðið - 20.09.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 11
ÍSLANDSBANKI hef-
ur eignast eða gert
samning um kaup á
samtals 56,2% hlut í
Sjóvá-Almennum
tryggingum og fyrir
þennan hlut greiðir
bankinn með pen-
ingum. Á fundi með
markaðsaðilum í gær-
morgun sagði Bjarni
Ármannsson forstjóri
bankans að þetta
þýddi að CAD-eiginfjárhlutfall
bankans lækkaði. CAD-hlutfallið
færi niður í um 9%, en það var
10,8% um mitt ár. A þáttur eig-
infjárhlutfallsins færi niður í um
7%, en hann var 8,5% um mitt ár.
Markmið bankans er að CAD-
hlutfallið sé yfir 10% og eiginfjár-
þáttur A sé um 8%.
Þar sem Íslandsbanki er kominn
með yfir 40% eignarhlut í Sjóvá-
Almennum ber honum skylda til að
gera öðrum hluthöfum Sjóvár-
Almennra yfirtökutilboð innan fjög-
urra vikna, og hefur bankinn til-
kynnt að það verði gert. Þá ber
honum að bjóða að minnsta kosti
hæsta verð sem hann hefur greitt
fyrir bréf í Sjóvá-Almennum á síð-
ustu sex mánuðum. Greint hefur
verið frá því að í kaupum Íslands-
banka á bréfum Sjóvár-Almennra
sé gengi bréfanna 37. Eins og að
ofan segir hafa þau 56,2% sem
bankinn hefur þegar tryggt sér
verið greidd með peningum, en
jafnframt hefur verið upplýst að í
yfirtökutilboði bankans verði greitt
fyrir bréf tryggingafélagsins með
bréfum í bankanum, en að tilboðið
hafi ekki verið útfært. Eitt af því
sem ekki hefur verið útfært er á
hvaða gengi hlutabréf í Íslands-
banka verða metin í tilboðinu, en
það verð ræður mestu um hve mik-
ið hluthafar í Sjóvá-Almennum geta
vænst að fá út úr tilboðinu í pen-
ingum.
CAD-hlutfall Íslands-
banka lækkar
Morgunblaðið/Sverrir
Viðskiptin með bréf í Eimskipa-
félaginu voru á genginu 7,3 og var
söluverð bréfanna tæpir 10,3 millj-
arðar króna.
Viðskiptin með hlutabréf í Sjóvá-
Almennum til Íslandsbanka voru á
genginu 37 og nam söluverð þeirra
2,2 milljörðum króna. Straumur
keypti bréf í Flugleiðum af Burðar-
ási í stað bréfa í Eimskipafélaginu. Í
þeim viðskiptum voru bréf Flugleiða
á genginu 5,35 og nam kaupverð
þeirra um 3,9 milljörðum króna. Ís-
landsbanki keypti eigin bréf af Burð-
arási á genginu 5,95 og nam kaup-
verðið 2,6 milljörðum króna.
Eignarhlutir Burðaráss í öðrum
félögum s.s. Marel, SH og fjölmörg-
um öðrum eru áfram í eigu Burðar-
áss.
Landsbankinn selur ásamt tengd-
um aðilum, Samson og Otec, allan
sinn hlut í Straumi, sem var 37% af
heildarhlutafé Straums, á verðinu
4,33. 10% af þessum 37% eru keypt
af Straumi og 27% hlutur var keypt-
ur af Íslandsbanka sem þegar hefur
selt 13,74% af þessum hlut til Lífeyr-
issjóðanna Bankastræti 7, Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna og Lífeyris-
sjóðs sjómanna auk þess að hafa selt
fleiri lífeyrissjóðum minni hluti. Alls
á Íslandsbanki 29,5% í Straumi nú.
Ef Íslandsbanki hefði ekki selt hluta
af bréfunum hefði bankinn þurft að
gera yfirtökutilboð í allt hlutafé
Straums þar sem eignarhlutur bank-
ans hefði farið yfir 40%.
Alls nema viðskiptin með hluta-
bréf í Eimskipafélaginu, Straumi,
Flugleiðum, Íslandsbanka og Sjóvá-
Almennum 25,6 milljörðum króna.
Skýrara eignarhald
Að sögn Sigurjóns Þ. Árnasonar,
bankastjóra Landsbankans, hefur
eignarhald á Eimskipafélaginu
skýrst að nokkru leyti eftir þessi við-
skipti. Í stað margra stórra hluthafa
þá eru stórir hluthafar nú þrír;
Landsbankinn, Samson og Trygg-
ingamiðstöðin.
Aðspurður segir Halldór J. Krist-
jánsson, bankastjóri Landsbankans,
að Landsbankinn og Tryggingamið-
stöðin eigi gott samstarf um hluta-
fjáreignina í Eimskipafélaginu líkt
og á fleiri sviðum.
Að sögn Halldórs gera allir sér
grein fyrir því að innan Eimskipa-
félagsins sé þríþættur rekstur sem
er að hluta allóskyldur: Flutninga-
starfsemi í dótturfélaginu Eimskip,
sjávarútvegsstarfsemi í dótturfélag-
inu Brimi og fjárfestingafélagið
Burðarás.
Varanleg tengsl milli
Landsbanka og Burðaráss
„Það er ljóst að hið síðastnefnda
er í sama þætti viðskipta og bank-
arnir og þar koma Landsbankinn og
Burðarás auðvitað til með að hafa
varanleg tengsl. Það er sá þáttur
starfseminnar sem tengist banka-
starfsemi og þá sérstaklega fjárfest-
ingarbankastarfsemi. Síðan er bank-
inn inni í hinum tveimur, Eimskip og
Brimi, sem umbreytingaraðili. Það
er því verkefni framundan að halda
áfram að gera Eimskipafélagið og
þætti í rekstri Eimskipafélagsins að
skýrari valkostum. Í dag er Eimskip
orðið miklu skýrari valkostur en það
var áður. Það er búið að selja þrjár
stórar eignir út úr Eimskipafélaginu
sem að mestu leyti eru í allt öðrum
rekstri en þessir þrír þættir sem eru
innan Eimskipafélagsins,“ segir
Halldór.
Hann segir að það verði hlutverk
Landsbankans sem kjölfestufjár-
festis ásamt öðrum hluthöfum að
halda áfram að gera félagið að góð-
um fjárfestingarkosti og efla það.
Steinhólar seldir síðar
Á fimmtudag var um það rætt að
Burðarás myndi selja 25% eignar-
hlut sinn í Eignarhaldsfélaginu
Steinhólum, sem á olíufélagið Skelj-
ung, til Straums eða Íslandsbanka
en ekki varð af því. Aðspurður segir
Sigurjón að ástæðan fyrir því að
Steinhólar voru ekki seldir nú séu
flóknir samningar í kringum það fé-
lag milli Kaupþings Búnaðarbanka,
sem á helmingshlut, Sjóvá-Al-
mennra sem á 25% hlut og Burðar-
áss sem á 25%.
Hann segir að þeir samningar
renni út í lok febrúar og þá muni
annaðhvort Kaupþing Búnaðarbanki
kaupa hlut Burðaráss í Steinhólum
eða hann verða seldur öðrum. Það
liggi fyrir að Burðarás muni selja
sinn hlut í félaginu.
Sigurjón segir að Landsbankinn
horfi á Eimskipafélagið sem þrjú fé-
lög; Brim, Burðarás og Eimskip. „Til
lengri tíma séð þá er þarna eitt félag
sem á reyndar hlut í Marel, SH og
fleiri eignir, sem Landsbankinn mun
eiga til lengri tíma ásamt fleiri fjár-
festum og vinna að umbreytingar-
verkefnum líkt og Straumur hefur
gert.“
Meiri verðmæti í hverri
einingu fyrir sig
Hann segir að ekki liggi fyrir að
fjárfestingarfélagið Burðarás verði
hluti af Landsbankanum heldur
muni það verða áfram hluti af Eim-
skipafélaginu.
Aðspurður segir Sigurjón að ekki
hafi verið teknar ákvarðanir um
hvort Brim verði til í óbreyttri mynd,
né heldur Eimskip. „Við höldum að
það séu meiri verðmæti í hverri ein-
ingu fyrir sig heldur en í þeim öllum
saman.“ Sigurjón bætir því við að
ekki sé tímabært að ræða frekari út-
færslur á framtíð Eimskipafélagsins
þar sem slíkt eigi eftir að skoða bet-
ur auk þess sem Landsbankinn sé
ekki eini hluthafinn í félaginu, þeir
séu alls um tuttugu þúsund talsins.
Hvað varðar stjórnarkjör í Eim-
skipafélaginu þá segir hann ekki
liggja fyrir hverjir bjóði sig fram fyr-
ir hönd Landsbankans. Hins vegar
sé ljóst að þeir sem séu fulltrúar
þeirra félaga sem hafa nú selt hlut
sinn í Eimskipafélaginu muni fara út
úr stjórninni.
Stjórn Eimskipafélags Íslands
skipa: Benedikt Jóhannesson, for-
maður, Garðar Halldórsson, varafor-
maður, Jón Ingvarsson, Inga Jóna
Þórðardóttir, Einar Sveinsson, Kol-
beinn Kristinsson, og Páll Sigurjóns-
son.
!"
# !"
$%&'(
$
$ )
*
$ )+)!*,) *
- ./ *0)
1*
$(23(#$
4 "1
!* # !* $%&'( * $
4 "
!"
# !"
$%&'(
$
$ )
*
$ )+)!*,) *
- ./ *0)
1*
$(23(#$
5* 4 " *
* !*
5* # !*
5* $%&'( *
* $
4 "1
*
*
*
2
$ &
$ !""
6 $"
!"
-
%
" $%&(
$,
!"#$# !%$#
&
!"#$#
'()*+
',)-+
-),+
.),+
&)(+
/0)0+
%
*
*$
$%&'(
*
# !"
$ )+)!*,) *# *
3
7 8 $(23(#$
'
1
*
/
&
2
1')*+
'/)-+
.),+
&)(+
*)*+
&1)'+
*
# !"
$ )+)!*,) *# *
3
7 8 ,"&%*4 "1
$(23(#$
'
1
*
/
&
&
!%$#
hlut í Landsbanka Íslands, en kaup-
verðið var um 12,3 milljarðar
króna.
Ljóst hefur verið af yfirlýsingum
Björgólfs Guðmundssonar, stjórn-
arformanns Landsbankans, að ætl-
un hans og aðila honum tengdum,
hefur verið að hafa áhrif á hluta-
bréfamarkaðinn hér á landi. Þeir
hafa komið með fjármagn inn á
markaðinn og því komið ýmsum
hlutum af stað.
Hvort ætlunin hjá Björgólfi Guð-
mundssyni og aðilum honum tengd-
um var frá upphafi að hrinda af
stað þeirri atburðarás sem orðin
er, er erfitt að segja til um. Hins
vegar er víst að þeir félagar vinna
hratt að stórum verkefnum og
hugsanlega á öðrum hraða en
gengur og gerist. Þeir hafa afl til
að gera það sem þeir hafa gert og
því verið í betri stöðu en flestir aðr-
ir.
ÞÓRÐUR Már Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags-
ins Straums, segist ánægður með
þau viðskipti sem
átt hafa sér stað
undanfarna daga
með Straum. „Ég
fagna því sér-
staklega hvað líf-
eyrissjóðirnir
koma sterkir að
Straumi en Líf-
eyrissjóðirnir
Bankastræti 7,
Lífeyrissjóður
verslunarmanna og Lífeyrissjóður
sjómanna juku verulega við eign-
arhlut sinn ásamt kaupum fleiri líf-
eyrissjóða í gær. Þetta er enn ein
vísbendingin um að það sem hefur
verið gert innan félagsins sé að falla
fjárfestum vel í geð,“ segir Þórður.
Alls eiga lífeyrissjóðir og aðrir
fagfjárfestar um 33% eignarhlut í
Straumi auk 24,31% hlutar Íslands-
banka.
Þórður segir mikilvægt að ró
skapist um félagið eftir miklar um-
ræður síðustu vikna. „En mörg
áhugaverð verkefni bíða úrlausna
hjá félaginu. Ljóst er að eftir sölu
Landsbankans og kaup stærstu líf-
eyrissjóða landsins á hlutabréfum í
Straumi hefur myndast ný kjölfesta
í hluthafahópi félagsins.“
Aðspurður segir Þórður að engin
ákvörðun hafi verið tekin um að
óska eftir hluthafafundi í Flug-
leiðum en eftir þessi viðskipti á
Straumur 32,46% hlut í Flugleiðum
og er stærsti hluthafi þess félags.
Hann segir að ekki hafi verið tekin
nein ákvörðun um sölu á bréfum í
Flugleiðum eða um frekari kaup.
„Að okkar mati sjáum við ákveðin
tækifæri í félaginu og teljum það
áhugaverðan fjárfestingarkost.“
Sé miðað við það verð sem
Straumur hefur greitt fyrir bréf í
Eimskipafélaginu á undanförnum
misserum þá má áætla að innleystur
hagnaður félagsins af sölunni á
Eimskipafélagsbréfunum sé í
kringum einn milljarð króna en
Straumur seldi Landsbankanum
16,3% hlut sinn í Eimskipafélaginu í
gær.
Þórður segir að söluhagnaður
Straums af bréfum í Eimskipafélag-
inu sé skýrt dæmi um að arðsem-
ismarkmið ráði för hjá félaginu við
fjárfestingar.
Innleystur
hagnaður 1
milljarður
Þórður Már
Jóhannesson