Morgunblaðið - 20.09.2003, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.09.2003, Qupperneq 21
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 21 KARLMAÐUR á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skil- orðsbundið, fyrir fjölda þjófnaða, aðallega úr bílum, og innbrot, fyrr á þessu ári. Frestun fullnustu refsingar mannsins er bundin þeim skil- yrðum að ákærði sæti á skilorðs- tímanum sérstakri umsjón, að hann hlíti fyrirmælum um dval- arstað og vistun og greiði eftir getu fébætur fyrir tjón, sem hann hefur valdið með brotum sínum. Fram kemur í dómnum að í mörgum tilvikum voru brot mannsins fólgin í því að fara inn í ólæstar bifreiðar að næturlagi. Hann hefur áður verið dæmdur fyrir slíka háttsemi en líkt og í þessu máli var afrakstur þá oft tiltölulega rýr. Í öðrum tilvikum voru þjófnaðarbrot mannsins fólgin í því að taka fjármuni úr yfirhöfnum fólks, en undir það síðasta var hann farinn að brjót- ast inn í verslanir og veitingahús. Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi átt mjög erfitt í uppvexti og sé haldinn persón- uröskun. Hann hafi ávallt játað brot sín undanbragðalaust og virðist nú reiðubúinn til að hlíta leiðbeiningum, en ekki síst með hliðsjón af sérfræðiáliti lækna þyki fært að skilorðsbinda 12 mánuði af refsingunni. Héraðsdómur Norðurlands eystra Fangelsi vegna fjölda þjófnaða RÚNA K. Tetzschner sýnir á Kaffi Karólínu við Kaup- vangsstræti, en á sýningunni má sjá úrval myndskreytinga sem hún vann að á árunum 1999 til 2003 við skrautskrifuð ljóð Rúnu og Þorgeirs Rúnars Kjartanssonar. Myndirnar eru unnar í anda fornra hand- ritaskreytinga en ljóðin vísa á nútímann og fela verkin þann- ig í sér sameiningu hins gamla og nýja. Rúna starfar hjá Þjóð- minjasafni Íslands og við fornleifarannsóknir á Hólum í Hjaltadal og sér m.a. um að lesa handrit fyrri alda og koma skrift þeirra á læsilegt form. Þar eru tengsl við list- sköpun Rúnu sem starfar sjálfstætt við ljóðagerð, skrautritun og skreytilist. Hún stofnaði fyrirtækið Lítil ljós á jörð í minningu Þorgeirs Rúnars Kjartansson- ar, en eftir lát hans hóf hún að skrautskrifa ljóð eftir hann. Tilganginn með verkum sínum segir hún vera að kynna ljóð sjónrænt og einnig hljómrænt með upplestri og tónlist. Sýningunni lýkur 3. október næstkomandi og er hún opin á sama tíma og kaffihúsið. Skraut- skrifuð ljóð á Karólínu KOMUR skemmtiferðaskipa til Ak- ureyrar voru 44 í sumar, eða fleiri en nokkru sinni. Farþegar hafa heldur aldrei verið fleiri en með skipunum í sumar komu samtals um 23.500 manns og um 11.800 áhafn- armeðlimir. Stærsta skipið sem sótti Akureyri heim var Adonia, alls um 77.500 brúttótonn. Farþegar með skipinu voru um 1.950 en í áhöfn voru um 870 manns. Að sögn Péturs Ólafssonar, skrif- stofustjóra Hafnasamlags Norðlend- inga, hafa nú þegar verið bókaðar komur 37 skemmtiferðaskipa næsta sumar. Pétur sagðist sáttur við sum- arið í ár og hann vonast eftir svip- uðum fjölda skipa næsta sumar. Morgunblaðið/Kristján Farþegar um 23.500 talsins Komur skemmtiferðaskipa aldrei verið fleiri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.