Morgunblaðið - 20.09.2003, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket
kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Green Frost kemur í
dag. Atlas og Rainbow
Warrior fara í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga er frá Hraun-
seli kl. 10. Rúta frá
Firðinum kl. 19.50.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Heilsa og
hamingja á efri árum,
fræðslufundur í dag,
laugardag, í Ásgarði
Glæsibæ og hefst kl.
13.30. Umfjöllun um
þjónustu Trygg-
ingastofnunar ríkisins
við eftirlaunaþega á líf-
eyris- og heilbrigð-
issviði. Framsögn ann-
ast sérfræðingar TR
undir forystu Karls
Steinars Guðnasonar.
Fundarstjóri: Guðrún
Helgadóttir. Allir vel-
komnir.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug á
mánudögum kl. 9.30 og
miðvikudögum kl.
10.30. Þriðjudagar kl.
13 boccia. Fimmtudag-
inn 25. september,
kynslóðir saman í
Breiðholti, kl. 13.15 fé-
lagsvist í samstarfi við
Fellaskóla og Essó, all-
ir vekomnir.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-Samtök spilafíkla,
fundir spilafíkla. Höf-
uðborgarsvæðið:
Þriðjudagur kl 18.15 –
Seltjarnarneskirkja,
Valhúsahæð, Seltjarn-
arnes. Miðvikudagur
kl. 18 – Digranesvegur
12, Kópavogur.
Fimmtudagur kl. 20.30
– Síðumúla 3–5,
Göngudeild SÁÁ,
Reykjavík. Föstudagur
kl.20 – Víðistaðakirkja,
Hafnarfjörður. Laug-
ardagur kl. 10.30 –
Kirkja Óháða safn-
aðarins, v/ Háteigsveg,
Reykjavík. Austur-
land: Fimmtudagur
kl.17 – Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Neyðarsími
GA er opinn allan sól-
arhringinn. Hjálp fyrir
spilafíkla. Neyðarsími:
698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is
og síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Blóðbankabíllinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is.
Minningarkort
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562-1581 og hjá
Kristínu Gísladóttur, s.
551-7193 og Elínu
Snorradóttur, s. 561-
5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá
skrifstofunni, Grens-
ásvegi 16, Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9–
17. S. 553-9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyfjum og heilsu,
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar kr. 500.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552-4994 eða síma
553-6697, minning-
arkortin fást líka í Há-
teigskirkju við Há-
teigsveg.
Í dag er laugardagur
20. september, 263. dagur ársins
2003. Orð dagsins: Verið ávallt
glaðir í Drottni. Ég segi aftur:
Verið glaðir.
(Fl. 3, 4-4.)
Einar Kristinn Guð-finnsson alþing-
ismaður fjallar um línu-
ívilnun á heimasíðu sinni
www.ekg.is. Þar segir
hann m.a.: „Stjórn-
arflokkarnir báðir settu
inn í stefnuyfirlýsingar
sínar ákvæði um svo kall-
aða línuívilnun. Þetta var
hluti af kosningafyr-
irheitum beggja flokk-
anna og áréttað af okkur
frambjóðendum. Þess
vegna er nú unnið að því
að koma þessum málum í
framkvæmd. Þau orð
standa, eins og annað það
sem við stefnum að með
ríkisstjórnarsamstarfinu.
Algjörlega er ástæðulaust
að gera öðru skóna.Það
er líka gott að menn hafi í
huga að einskis er að
vænta frá stjórnarand-
stæðingum í þessum efn-
um...“
„...Málið er vitaskuld á
forræði ríkisstjórn-
arflokkanna. Þar verður
það klárað. Til þess þurf-
um við að komast að póli-
tísku samkomulagi og
verður það meðal annars
verkefni komandi mán-
aða að ná slíku sam-
komulagi. Oft hefur mað-
ur staðið frammi fyrir
lakari stöðu við undirbún-
ing framfaramála en
núna. Nú erum við þó
með í farteski okkar sam-
þykktir beggja stjórn-
arflokkanna. Sá ágrein-
ingur sem nú er verið að
reyna að ýfa upp var í
Sjálfstæðisflokknum út-
kljáður á Landsfundi
flokksins.“
Einar segir að ákveðaverði hvenær línu-
ívilnun taki framkvæmd,
hver prósentan verði og
hverjir geti verið með.
„Þarna eru stjórnarflokk-
arnir ekki alveg sam-
mála. Í samþykktum okk-
ar sjálfstæðismanna er
talað um dagróðrabáta
sem róa með línu. Fram-
sóknarmenn tala um dag-
róðrabáta sem róa með
línu og beita og stokka
upp í landi. Í samþykkt
framsóknarmanna er því
klárlega ekki átt við
beitningavélabáta. Dag-
róðrabátur þarf út af fyr-
ir sig ekki að beita í landi
og strangt til tekið gæti
landsfundarsamþykkt
okkar sjálfstæðismanna
því náð til vélabáta sem
landa daglega.
En hitt verða menn auð-vitað að virða að dag-
róðrar þýða ekki róðra-
lag þar sem landað er
annan hvorn dag, þriðja
hvern dag, eða vikulega,
eins og stundum er haldið
fram. Orðið verður bara
skilið bókstaflega.
Það er alveg augljóst
mál að önnur helsta rétt-
læting línuívilnunar er
skírskotunin til hags-
muna byggðanna. Menn
benda á (og þar á meðal
sá er þessar línur ritar)
að línuútgerð sé mjög
stunduð út um landsins
dreifðu sjávarútvegs-
byggðir. Enginn njóti
ívilnunarinnar nema að
sækja sjóinn. Sókn-
artengd aðferð sé líklegri
til þess að skapa útvegs-
byggðum sem eru nærri
miðunum ákveðið for-
skot.“
STAKSTEINAR
Línuívilnun
Víkverji skrifar...
EITT það skemmtilegasta viðNetið er að gramsa og
verða öllu nær um allt og ekk-
ert. Víkverji rakst á þessa
klausu í einni af mörgum
gramsferðum sínum á Netinu í
vikunni. Hreint stórmerkileg
staðreynd sem sýnir manni enn
og einu sinni að við erum alls
ekki svo galnar mannskepn-
urnar:
Svmkmaæt rnsanókn við
Cmabrigde hkóásla þá stkpiir
ekki mlái í hðvaa röð stfiar í
oðri eru, það enia sem stikipr
mlái er að frtsyi og stíasði sti-
naurfn séu á rtéutm satð. Aillr
hniir sfitarnir gtea vireð í aöljrgu
rlgui en þú gtuer smat lseið það
aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er
að mnnashgrniuun les ekki hevrn
satf friyr sig hleudr oirðð sem hiled.
Stórmerkilegt ekki satt?
x x x
ANNARS hefur Víkverji veriðháður því í nokkur ár að kíkja
daglega á nokkrar vel valdar netsíð-
ur – þ.e.a.s. eftir að hafa skannað
þær fréttatengdu. Síðan vindurinn
fór úr þjóðmálasíðunum svokölluðu
og Pressan á strik.is fraus í tíma
hefur heimsóknum fjölgað verulega
á frettir.com – þar sem menn eru
orðnir ansi hreint naskir á að
merkja misfellur hjá öðrum fjöl-
miðlum og benda á það sem af einni
eða annarri ástæðu hefur verið látið
kyrrt liggja. Einnig hafa skoð-
anaskipti á malefnin.com átt til að
verða æði snörp og hressileg síð-
ustu mánuði. Svo má benda á fjör-
uga fjölmiðlaumræðu – séu menn á
annað borð gefnir fyrir þá sjálf-
hverfu skrúfu – á síðu Blaðamanna-
félags Íslands press.is.
x x x
FYNDNASTA íslenska vefsíðaner svo og verður baggalutur.is –
nokkuð sem þarf vart að fjölyrða
um. Fréttir í bundnu máli á frett-
ir.is hafa átt til að vera bráð-
skemmtilegar – þótt hagyrð-
ingar þar á bæ séu reyndar í
síðbúnu sumarfríi til 1. október.
Þá stenst Víkverji ekki mátið
að tékka á allri þvælunni sem
þvælist ofan í „rugludallana“ til-
veran.is og batman.is þótt sumt
af því efni sé af vafasamari sort-
inni. Málefnalegri er þá hugi.is
þar sem netverjar eru óþreyt-
andi að skiptast á skoðunum um
alla skapaða hluti, hvort sem er
hokkí, hundar, heimspeki eða
Harry Potter. Þar er reyndar
málfari æði ábótavant en ein-
staka innlegg er hið fróðlegasta
og greinilega vel ígrundað –
þótt vissulega sé oft og tíðum nettur
kverúlanta-fnykur þar af.
x x x
OG vissulega eru þeir flestir ang-andi af sömu stækjunni, blogg-
ararnir fjölmörgu sem verja drykk-
langri stund úr degi sínum í að
fjölyrða um allar sínar gjörðir og
ígrundanir. Inni á milli eru þó
nokkrir sem eru nógu sniðugir, hafa
nógu mikið – eða lítið – að segja til
að Víkverji finni hjá sér þörf til að
sækja þá aftur heim. Má þar nefna
bloggið hans Dr. Gunna this-
.is\drgunni og knappt, fátítt en
ávallt ávalt innlegg sickdanson.com
í þjóðmálaumræðuna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dr. Gunni veltir því nær daglega fyrir sér
hvort eitthvað sé að gerast á vefsíðu sinni.
Óeðlileg hækkun
íbúðaverðs
ÍBÚÐAVERÐ á höfuð-
borgarsvæðinu hefur hækk-
að um 14% á einu ári og á
aðeins 4 árum hefur verðið
hækkað um 80%.
Þetta er óeðlileg hækkun
miðað við kaupgetu fólks og
má leiða að því líkur að fólk
sé að auka verulega við
skuldir sínar, sérstaklega
ungt fólk sem kaupir sína
fyrstu íbúð á þessu okur-
verði.
Fyrir nokkrum árum
gerðist það í Noregi að
íbúðaverð hækkaði gríðar-
lega eins og er að gerast
hérna núna. En verðið
lækkaði aftur og svo fór að
margt fólk skuldaði meira
en verðmæti hússins var á
þeim tíma. Það skyldi þó
ekki vera bóla sem springur
eins og hlutabréfaæðið fyrir
um 2–3 árum, þessi þensla á
húsnæðismarkaðnum núna.
Íbúi í Grafarvogi.
Vandamálaútvarp
ÉG ER óánægður með
morgunútvarpið, þ.e. sam-
tengdar rásir 1 og 2. Þetta
er orðið endalaust vanda-
málaútvarp þar sem sífellt
er verið að kafa ofan í málin.
En það er ekki það sem fólk
þarf á að halda nývaknað
með morgunkaffinu. Mér
finnst t.d. ákaflega þægilegt
í morgunsárið að fá að heyra
helstu fyrirsagnir í dagblöð-
unum með kaffinu, en ég bý
úti á landi og fæ ekki blöðin
fyrr en um hádegi.
Að lokum vil ég sérstak-
lega nefna Guðrúnu Gunn-
arsdóttur og Magnús Ein-
arsson sem dæmi um
þægilega útvarpsmenn að
morgni dags.
Broddi.
Byssumenn og
ófreskjur
MIKIÐ afskaplega eru aug-
lýsingar kvikmyndahús-
anna stundum hryllilega yf-
irþyrmandi. Þarna blasa
þær við manni tvær hálf-
síðuauglýsingar hlið við hlið
í dagblöðunum og grimmúð-
legir byssumenn ota framan
í lesendur byssuhlaupi, til-
búnir að hleypa af skoti.
Ekki er þar einn byssumað-
ur á lítt áberandi mynd. Nei,
oft þrjár og jafnvel fjórar
auglýsingar af sama ill-
menninu og þekja þannig
næstum tvær hálfar sam-
hliða síður. Ef það eru ekki
óðir byssumenn þá eru það
grimmúðlegar ófreskjur
með gapandi gin og útstand-
andi glyrnur.
Þessar hryllingsauglýs-
ingar birtast ekki bara í einu
dagblaði heldur tveimur og
það dag eftir dag. Ósköp
finnst mér þetta andstyggi-
lega ljótt og hafa neikvæð
áhrif á hug og hjarta.
Lesandi.
Fyrirspurn til Stætó
HVERS eiga notendur leið-
ar 7 að gjalda? Þar eru eld-
gamlir vagnar sem eru að
hristast í sundur og svo er
erfitt að komast upp í þá því
það er svo hátt í tröppurnar.
Svar óskast.
Farþegi.
Ally McBeal aftur
ÉG vil koma þeirri bón á
framfæri að dagskrárstjóri
Stöðvar 2 sýni þætti með
Ally McBeal kl. 18.05 í stað-
inn fyrir þessa drepleiðin-
legu Seinfeld-þætti. Ég tala
fyrir hönd margra og vona
að þið virðið ósk okkar.
Áskrifandi.
Dýrahald
Lítil læða í óskilum
LÍTIL 2–3 mánaða grá-
bröndótt læða kom til okkar
í Skipasund að kvöldi 15.
september. Hún var ómerkt
og hefur örugglega villst að
heiman. Við gerum ráð fyrir
að nú sé einhver sem sakni
hennar og viljum við koma
henni á rétt heimili. Þeir
sem kannast við hana hafi
samband við okkur í símum
561 6052 eða 867 6052.
Dagný.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
„Sjáið sílið! Alvöru síli.“
LÁRÉTT
1 sundla, 4 kinnungur,
7 dugnaðurinn, 8 tölum
um, 9 tóm, 11 lítill lækur,
13 ellimóð, 14 snjóa,
15 sæti, 17 hvelft, 20 bók-
stafur, 22 graftarnabbi,
23 laun, 24 kvenmanns-
nafn, 25 askana.
LÓÐRÉTT
1 áfall, 2 starfið, 3 korna,
4 fjöl, 5 vænn, 6 kvæðum,
10 elskuðum, 12 kraftur,
13 agnúi, 15 sól, 16 upp-
námið, 18 óhreinka,
19 mál, 20 gufu, 21 túla.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 reimleiki, 8 fúsan, 9 lýtið, 10 nói, 11 skapi,
13 neiti, 15 stáls, 18 safna, 21 kyn, 22 fjara, 23 æfing,
24 falslausa.
Lóðrétt: 2 enska, 3 munni, 4 ellin, 5 kætti, 6 ofns, 7 iðni,
12 pál, 14 efa, 15 sefa, 16 álaga, 17 skass, 18 snæða,
19 fliss, 20 angi.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16