Morgunblaðið - 20.09.2003, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
eftir Kristínu Ómarsdóttur
2. sýn. lau. 20. sept
3. sýn. fim. 25. sept.
4. sýn. lau. 27. sept.
5. sýn. fim. 2. okt.
Sýningar hefjast klukkan 20.
Ath! Takmarkaður sýningafjöldi
Mink leikhús og
Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör
Miðasala í 555 2222 eða á theater@vortex.is
Hljómsveit Rúnars Júlíussonar
í kvöld
Leikhúsgestir, munið spennandi matseðil
erling
Lau 20.09. kl. 20 LAUS SÆTI
Lau 20.09. kl. 22 UPPSELT
Fös 26.09. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 4.10. kl. 20 LAUS SÆTI
Fös 10.10. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Miðasala í síma 552 3000
Miðasala opin 15-18 virka daga
loftkastalinn@simnet.is
Einnig sýnt í Freyvangi
SUNNUDAGINN 21/9 - KL. 20 UPPSELT
MÁNUDAGINN 22/9 - KL. 20 UPPSELT
MÁNUDAGINN 20/10 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
ÞRIÐJUDAGINN 21/10 - KL. 20 LAUS SÆTI
FIMMTUDAGINN 23/10 - KL. 19 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ SÝNINGUM FER FÆKKANDI!
Stóra svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Í dag kl 14 - UPPSELT, Su 21/9 kl 14 - UPPSELT
Lau 27/9 kl 14 , Su 28/9 kl 14- UPPSELT
Lau 4/10 kl 14 , Su 5/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 11/10 kl 14,- UPPSELT, Su 12/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 18/10 kl 14, Su 19/10 kl 14
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Í kvöld kl 20. Lau 27/9 kl 20. Lau 4/10 kl 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Sala áskriftarkorta og afsláttarkorta stendur yfir
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900
Tíumiðakort: Notkun að eigin vali kr. 16.900
Komið á kortið: Fjórir miðar á Nýja svið/Litla svið. Kr. 6.400
VERTU MEÐ Í VETUR
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fi 25/9 kl 20, Fö 3/10 kl 20, Lau 11/10 kl 20,
Su 19/10 kl 20, Su 26/10 kl 20
Ath. Aðeins þessar sýningar
VERTU MEÐ! Á kynningarkvöldi.
Við kynnum leikárið fyrir gestum og gangandi!
Fjölbreytt - Frábært - Óvænt
Leikur - Söngur - Dans - Veitingar
Mi 24/9 kl 20 - Aðgangur ókeypis
Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga
Gríman 2003
„BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“ að mati áhorfenda
sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is
Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700
og sellofon@mmedia.is
IÐNÓ
sun, 21. sept kl. 21, Örfá sæti
fim, 25. sept kl. 21. Örfá sæti
föst, 26. sept kl. 21. UPPSELT
fim 2. okt kl. 21, Örfá sæti
.
í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu,
Miðaverð 1.200 kr.
Miðapantanir í síma 590 1200.
Nánari uppl. í síma 662 4805.
Lab Loki sýnir:
Sun 21. sept. kl. 14:00
Lau 27. sept. kl. 14:00
HLJÓMSVEITIN Brimkló hefur fyr-
ir löngu skipað sér í röð sígildra popp-
sveita Íslandssögunnar. Þeir eiga ótal
ógleymanlega smelli sem lifa með
þjóðinni og ungir sem aldnir geta
sungið með. Brimkló var upphaflega
stofnuð árið 1972 sem kántrýsveit og
naut gríðarlegra vinsælda meðal ís-
lenskra ballgesta. En þótt þeir hafi á
löngum ferli leikið um landið þvert og
endilangt hafa þeir aðeins einu sinni
leikið í heimabæ sjeffans sjálfs, Björg-
vins Halldórssonar, sem er Hafnfirð-
ingur af lífi og sál. Þetta hyggjast þeir
bæta í kvöld með því að halda tónleika
fyrir Hafnfirðinga í Kaplakrika.
„Já, okkur fannst kominn tími til að
leika í Hafnarfirði. Ég er svo mikill
Hafnfirðingur í mér að það fer ekki
leynt. Það er gaman að spila hér í
Hafnarfirði og ég hlakka mikið til.
Þetta hittir svo vel á að það er fótbolta-
leikur milli FH og KR fyrr um daginn
og svo getur fólk komið á ballið um
kvöldið. Við stillum verðinu í hóf og
stefnum á að hafa upp í kostnað. For-
salan er hafin og hægt að fá miða í Súf-
istanum og Kaplakrika. Forsalan
tryggir ódýrara verð.“
Góður hópur og margar sögur
Björgvin segist afar ánægður með
þær viðtökur sem Brimkló hefur
fengið á hljómleikaferð sinni í sumar.
„Þetta er búið að vera mjög skemmti-
legt ævintýri. Þetta byrjaði með því
að Óli Palli á Rás 2 hringdi í mig í
byrjun árs og skaut að mér þeirri
hugmynd að Brimkló dustaði rykið af
hljóðfærunum. Við höfðum verið að
velta þessu fyrir okkur lengi, því það
var alltaf verið að biðja okkur um að
koma og spila hér og þar, svo við slóg-
um til og gerðum þetta. Við tókum
góða æfingatörn, orðnir dálítið
ryðgaðir, en þetta small allt saman
hjá okkur og nú orðnir æði þéttir. Það
er líka svo gaman að standa í þessu
því þetta er svo góður hópur og svo
margar sögur sem eru innan hans og
urðu til gegnum árin. Við höfum
margt að tala um.“
Glímt við þjóðveginn
„Svo fórum við og spörkuðum
þessu af stað á Skagaströnd, þar sem
við héldum kántrýtónleika ásamt KK
og Magnúsi, Hallbirni og BSG. Þar
voru móttökurnar frábærar og mikið
stuð í fólki.“ Eftir Skagastrandartón-
leikana fór Brimkló á ferð um landið
og lék á mörgum stöðum. „Við köll-
uðum þennan rúnt „Á þjóðveginum“,
svona „On the road“ stemning. Við
náðum ekki að spila alls staðar sem
við vildum, svo við ætlum að fara í
aðra ferð og heimsækja þá staði sem
við misstum af í fyrri ferðinni. Und-
irtektirnar voru mjög góðar og fólk af
öllum aldri kom á böllin og söng með.
Þetta var eiginlega þannig að stund-
um þurftum við bara að telja
í lagið og þá tóku áhorfend-
urnir við og sungu allt lagið.
Það var ótrúlegt hversu
margir kunna lögin.“
Gústi rótari með í för
„Það er líka gaman að því
að sumir hafa sagt að
Brimkló sé rokkveit í dul-
argervi. Nafnið Brimkló er
hægt að túlka sem við séum
að spila brimbrettatónlist,
svona surf-músík, en Árni
Johnsen stakk upp á þessu
nafni, við komum til hans og
báðum hann um hjálp við að
finna gott nafn á hljómsveit.
Gott nafn er rosalega mik-
ilvægt fyrir hljómsveit.
Hann fór strax að pæla og
fleygði í okkur fullt af góðum uppá-
stungum og Brimkló var ein af þeim.
Það hefur alltaf verið hægt að leita til
Árna eftir góðum hugmyndum og
uppástungum. Árni stakk til dæmis
upp á nafninu Trúbrot á sínum tíma.“
Þeir sem skoða myndir af Brimkló
koma gjarnan auga á mann sem ekki
er þekktur hljóðfæraleikari, en hann
er engu að síður ómissandi hluti af
Brimkló. Þar er á ferðinni Ágúst
Ágústsson (Gústi), frægasti rótari Ís-
lands, sem hefur fylgt Brimkló í gegn-
um árin. Gústi er enn með í för, enda
segir Bó Brimkló ekki vera Brimkló án
Gústa Rótara. „Gústi hefur nátt-
úrulega unnið með okkur frá upphafi
og ég og hann höfum starfað saman
allt frá árinu 1968. Það er ekki hugs-
andi að gera svona án hans.“
Siðmenntaðri skemmtanir
Auk Gústa rótara hafa margir góðir
gestir stigið á svið með drengjunum.
Þar má nefna Magnús Kjartansson,
sem flaug frá Kaupmannahöfn eftir að
hafa heilsað upp á Stuðmenn í Tívolí
og náði að stökkva á svið með Brimkló
í Stapanum kl. 1. Einnig kíkti Diddú
við þegar þeir léku í Hlégarði og söng
Nínu og Geira með Bjögga.
Margt hefur að sjálfsögðu breyst frá
því þeir Brimklóardrengir voru að
rúnta um landið síðast. „Mesta breyt-
ingin frá því í gamla daga er kannski
sú að núna eru flest hús þar sem mað-
ur er að spila með veitingar, en í gamla
daga voru þetta sveitaböll í fé-
lagsheimilum og ef fólk vildi drekka
tók það bara brjóstbirtuna og stakk
undir beltið. Þetta er orðið meira „si-
viliserað“. En eitt breytist aldrei, það
er bara góður hópur af fólki sem vill
skemmta sér og syngur með, þá er
alltaf þessi gamla tilfinning.“
„Þessi gamla tilfinning“
Brimkló heldur
loksins ball fyrir
Hafnfirðinga í Kapla-
krika í kvöld. Svavar
Knútur Kristinsson
átti af því tilefni spjall
við einn ástsælasta
og nafntogaðasta
dægurlagasöngvara
Íslands, Björgvin
Halldórsson.
svavar@mbl.is
Brimkló forðum daga. Gústi rótari er fyrir
miðri mynd og stendur traustur að baki Bó.
Brimkló leikur fyrir dansi í Kapla-
krika kl. 22:00 í kvöld.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111