Morgunblaðið - 05.11.2003, Blaðsíða 1
Liðstyrkur
til Quarashi
Egill Ólafur (Tiny) er nýr
í hópnum Fólkið 49
Kettir í
hverju horni
Kolbrún Gestsdóttir ræktar
skrýtna ketti Daglegt líf 20
Hannaði
jólaskeiðina
Dagbjört Andrésdóttir skóp
flottasta Ketkrókinn 17
STOFNAÐ 1913 300. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FORSETI Sri Lanka,
Chandrika Kumarat-
unga, leysti ráðherra
varnarmála, upplýsinga-
mála og og innanríkis-
mála landsins frá störf-
um í gær. Engin ástæða
var gefin en forsetinn
sagði að þetta væri gert
„í þágu þjóðarhags-
muna“. Talið er að þess-
ar aðgerðir muni auka á
pólitískan óstöðugleika í
landinu. Forsetinn lét
einnig hermenn taka sér
stöðu við mikilvægar op-
inberar byggingar, þ. á m. ríkisfjölmiðla og frestaði
störfum þingsins í tvær vikur.
Tamíl-tígrarnir, herskáir uppreisnarmenn sem
hafa barist í yfir 20 ár gegn stjórnvöldum, hafa lagt
fram tillögu um að deila völdunum með núverandi
stjórnvöldum í norðausturhluta landsins þar sem
þjóðarbrot Tamíla er fjölmennast. Meirihluti Sri
Lanka-manna er hins vegar af stofni Sinhala.
Kumaratunga hefur átt í deilum við ráðherrana
þrjá um hvernig haldið skuli á friðarviðræðum og
fleiri málum. Sambúð forsetans og ríkisstjórnar
Ranils Wickremesinghe hefur verið stirð en flokkur
Wickremesinghes sigraði flokk Kumaratunga í
þingkosningum árið 2001. Wickremesinghe var í
gær í heimsókn í Bandaríkjunum en þar er ætlunin
að hann ræði friðarferlið á Sri Lanka við George W.
Bush Bandaríkjaforseta í dag og snúa síðan heim.
Forsætisráðherrann vændi í gær forsetann um að
vilja „skapa stjórnleysi“ á Sri Lanka.
Hertar öryggisráðstafanir
Samið var á sínum tíma um vopnahlé milli upp-
reisnarmanna og stjórnarhers og hafa Norðurlönd-
in undir forustu Norðmanna miðlað málum. En
Kumaratunga hefur verið uppsigað við Norðmenn
og krafðist þess nýlega að yfirmaður norrænu
sendinefndarinnar yrði rekinn. Tveir Íslendingar
eru á Sri Lanka á vegum Íslensku friðargæslunnar.
Agnes Bragadóttir, talsmaður norrænu friðargæsl-
unnar á Sri Lanka (SLMM), tjáði Morgunblaðinu í
gær að ákveðið hefði verið að herða öryggis-
ráðstafanir. Henni hefði verið fyrirskipað að halda
sig heima við þangað til í dag, miðvikudag.
Chandrika Kumarat-
unga (t.h.) og Ranil
Wickremesinghe.
Colombo. AFP.
Rak ráðherra
„í þágu þjóð-
arhagsmuna“
Reuters
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínumanna, frestaði í
gær myndun nýrrar heimastjórnar Palestínumanna
með því að hafna því að samþykkja þann mann sem
bráðabirgðaforsætisráðherrann hafði valið í emb-
ætti öryggismálaráðherra í heimastjórninni. Þar
með frestast einnig allar tilraunir til að koma frið-
arviðræðum Palestínumanna og Ísraela aftur í
gang, en engin formleg samskipti hafa átt sér stað
þeirra í milli í þrjá mánuði.
Ahmed Qurei, forsætisráðherra heimastjórnar-
innar, er búinn að tilnefna menn í öll ráðherraemb-
ætti, að öryggismálaráðuneytinu undanskildu, en
undir það heyra öryggissveitir heimastjórnarinnar.
Qurei átti fund með Arafat í gær en mistókst að
leysa deilu þeirra um hvern skipa skyldi í embættið.
Á bak við tregðu Arafats til að samþykkja ráð-
herraefnið er að hann vill ekki gefa eftir stjórn yfir
vissum þáttum öryggismálanna en ráðherraefnið,
Nasser Yousef, vill fá víðtækt valdaumboð. Sá frest-
ur sem Qurei hafði til að kynna nýja fullskipaða
stjórn fyrir þingi Palestínumanna rann út í gær, en
hann sagðist í gær myndu gera það í næstu viku.
Myndun heima-
stjórnar frestast
Ramallah. AP.
EIÐUR Smári Guðjohnsen skor-
aði eitt mark þegar Chelsea
vann ítalska Lazio 0:4 í Meist-
arakeppni Evrópu í gærkvöldi.
Leikið var á Ólympíuleikvang-
inum í Róm að viðstöddum 50
þúsund áhorfendum.
Eiður kom inn á sem vara-
maður á 67. mínútu og skoraði
hann mark sitt þremur mínútum
síðar. Þá átti hann þátt í öðru
marki sem Chelsea skoraði. Með
sigrinum í gærkvöldi er Chelsea
komið með vænlega stöðu í efsta
sæti C-riðils.
Hér sést Eiður klappa á koll-
inn á Juan Sebastian Veron, sem
fagnaði marki Eiðs.
Reuters
Eiður á
skotskón-
um gegn
Lazio
Eiður nýtti/43
♦ ♦ ♦
ÁKVEÐIÐ var á stjórnarfundi Hf. Eim-
skipafélags Íslands í gær að skipta félaginu
upp í tvö félög. Mun annað félagið, Eim-
skipafélag Íslands, annast alla flutninga-
starfsemi eins og verið hefur frá stofnun fé-
lagsins. Hitt félagið, Burðarás, mun sinna
fjárfestingarstarfsemi og taka yfir hluta-
bréf í Brimi ehf. Brim inniheldur þrjú sjáv-
arútvegsfyrirtæki; Útgerðarfélag Akureyr-
inga, Skagstrending og Harald Böðvarsson.
Tillaga þessa efnis verður lögð fyrir hlut-
hafafund.
Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður
Eimskipafélagsins, segir þetta hugmyndir
sem hafi verið í farvatninu innan stjórn-
arinnar og samþykktar samhljóða. „Við trú-
um því að með því að skipta þarna á milli
aukist áhuginn fyrir fjárfestingu í hvoru fé-
laginu fyrir sig,“ segir hann. Þau verði
skýrari fjárfestingarkostir; annars vegar
flutningafyrirtæki í alhliða flutningastarf-
semi hér á landi og erlendis og hins vegar
fyrirtæki í fjárfestingarstarfsemi. Áform
eru um að efla þessi fyrirtæki frekar og
vinna að því að fá fleiri fjárfesta til að taka
þátt í uppbyggingu og umbreytingu þeirra.
Burðarás skráð í Kauphöllinni
„Ég á ekki von á að þetta taki skemmri
tíma en þrjá til fjóra mánuði,“ segir Magn-
ús aðspurður hvenær þessar breytingar
gangi í gegn. Ganga þurfi frá ýmsum
formsatriðum áður. Eimskipafélagið er
skráð í Kauphöll Íslands og segir Magnús
að vafalaust þurfi að undirbúa nýja skrán-
ingu félagsins. „En við munum síðan útbúa
útboðslýsingu á Burðarás og skrá það á
markað.“
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eim-
skipafélagsins, óskaði eftir lausn frá störf-
um í ljósi þessara breytinga. Telur hann sér
ekki fært að taka þátt í því að umbreyta nú-
gildandi skipulagi eftir skamma reynslu.
Magnús segir nýjan forstjóra Eimskipa-
félagsins ekki í augsýn enda sé verið að
skipta félaginu upp og líklega muni tveir
menn ráða hvor yfir sínu fyrirtækinu. Hann
verður starfandi stjórnarformaður með
framkvæmdastjóra hvors félags sér við hlið.
Ingimundur Sigurpálsson lætur af störfum að eigin ósk
Eimskipafélagi Íslands
skipt upp í tvö félög
Óskar lausnar/6
ÚTGÁFUFÉLAG DV var úr-
skurðað gjaldþrota í gær í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur að ósk
stjórnar félagsins. Útgáfu
blaðsins verður haldið áfram á
ábyrgð og reikning Hamla,
dótturfélags Landsbanka Ís-
lands, sem er langstærsti kröfu-
hafinn í þrotabúið.
Þorsteinn Einarsson hrl. var
skipaður skiptastjóri þrotabús-
ins í gær. Hann telur að heild-
arskuldir þess séu um 1.100
milljónir króna. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru
skuldir búsins við Landsbank-
ann um 700 milljónir króna.
Þorsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að það hafi verið
sameiginleg ákvörðun hans og
stjórnenda Landsbankans að
halda útgáfunni gangandi. Það
verði gert til að vernda hags-
muni kröfuhafa, starfsfólks og
annarra. Rætt verður við veð-
hafa um framhaldið.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir að
reynt hafi verið að ná frjálsum
nauðasamningum en það hafi
ekki tekist. Ekki hafi samist um
það viðbótarhlutafé sem þurfti.
Upphaflega hafi verið gert ráð
fyrir að eigendur DV kæmu inn
með fjármagn en það hafi ekki
gengið eftir. Þá hafi verið rætt
við útgefendur Fréttablaðsins
en þegar búið hafi verið að
leggja málið upp hafi ekki náðst
samningar við þá. Sigurjón seg-
ir að reynt verði að ná sem
mestum verðmætum út úr fé-
laginu og segir stöðuna hafa
opnast þegar samningaleiðin
gekk ekki upp og fyrirtækið var
tekið til gjaldþrotameðferðar.
Starfsmenn DV fengu út-
borguð vangreidd laun í gær.
Þorsteinn Einarsson hélt fund
með starfsmönnum í gær um
stöðuna og annar fundur er
áformaður í dag, þar sem
skiptastjóri ætlar að ræða fram-
haldið.
Hömlur gefa DV út í dag
Nauðasamningar/4
Félagið var úrskurðað gjaldþrota
í gær eftir að frjálsir nauðasamn-
ingar höfðu ekki borið árangur