Morgunblaðið - 05.11.2003, Page 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þorlákshöfn | Ráðstefnan Athafnakonur var
haldin í Ráðhúsi Ölfuss laugardaginn 1. nóv-
ember síðastliðinn. Þátttaka var nokkuð góð
og voru aðstandendur ánægðir með árang-
urinn. Það eru Kvennasjóður, Atvinnu- og
jafnréttisráðgjafar Byggðastofnunar, Kven-
réttindafélag Íslands og Kvenfélaga-
sambandið sem standa fyrir átakinu.
Athafnakonur er sýninga- og ráðstefnuröð
sem þessar vikurnar ferðast um landið.
Hringferðin hófst á Seyðisfirði 10.–11. októ-
ber sl. Síðustu helgi var röðin komin að Þor-
lákshöfn, dagana 7.–8. nóvember verður hún
í Borgarnesi og lýkur svo á Akureyri
helgina 21.–22. nóvember. Í sýninga- og ráð-
stefnuröðinni felst að sett er upp sýning á
hverjum stað þar sem 40–50 kvenfyrirtæki
kynna starfsemi sína. Þar að auki er efnt til
rástefnu um atvinnumál kvenna og haldin
eru örnámskeið fyrir konur um málefni
tengd rekstri fyrirtækja.
Nú um helgina var þessi stórglæsilega
sýning í nýju Ráðhúsi Ölfusinga í Þorláks-
höfn, þar sem yfir 40 fyrirtæki kvenna
sýndu framleiðsluvörur sínar, allt frá út-
saumi til gróðursetningarvéla, frá heilsuvör-
um til hugbúnaðar.
Samhliða sýningunni var haldin ráðstefna
um konur og landnýtingu, þar sem m.a.
voru flutt erindi um konur í búskap og um
menningartengda ferðaþjónustu. Kom með-
al annars fram í erindi Önnu Margrétar
Stefánsdóttur sem kennd er við Lifandi
landbúnað að konur eru að sækja í sig veðr-
ið í stefnumótun í landbúnaði, vilja koma á
nánari tengslum milli bænda og neytenda
og bæta ímynd stéttarinnar. Erindi Rann-
veigar Önnu Jónsdóttur bar með sér fersk-
an andblæ í umræðunni um menningar-
tengda ferðaþjónustu þar sem hún kallaði
eftir skýrri stefnumótun sveitarfélaga á
svæðinu í þeim efnum.
Valdimar Guðjónsson bóndi og oddviti
veitti ráðstefnugestum innsýn í samskipti
kynjanna í búskap, þar sem einkalífið teng-
ist náið vinnuumhverfinu og viðhorf kvenna
hafa blásið ferskum vindum um félagsstarf
bænda síðustu ár. Drífa Hjartardóttir al-
þingismaður ræddi mikilvægi stuðnings við
sjálfstæðan atvinnurekstur kvenna, hvernig
Kvennasjóðurinn hefur komið mörgum afar
spennandi og metnaðarfullum fyrirtækjum
kvenna á skrið og nauðsyn þess að efla enn
frekar stuðning við konur meðal frum-
kvöðla.
Róbert Jónsson, framkvæmdastjóri At-
vinnuþróunarsjóðs Suðurlands, kynnti sjóð-
Handunnið: Jóhanna Haraldsdóttir frá Sel-
fossi sýndi handunnin tréleikföng, rennda
penna og ýmsa nytjahluti úr tré.
Fjölbreytt: Listhúsið í Selvogi var með glæsileg-
an sýningarbás. Sigurbjörg Eyjólfsdóttir í Þor-
kelsgerði, sem hér sést, á Listhúsið.
Fallegt: Þorbjörg Hugrún Grímsdóttir, listakona
í Garðakúnst í Hvítárdal í Hrunamannahreppi,
sýndi mikinn fjölda fallegra muna.
Athafnakonur ræddu landnýtingu og ferða
Frá útsaumi til gróð-
ursetningarvéla,
frá heilsuvörum til
hugbúnaðar
LANDIÐ
FJÖLDI fólks lagði leið sína í opið
hús hjá Súlum, björgunarsveitinni á
Akureyri, um liðna helgi. Tilefnið
var að kynna starfsemi sveitarinnar
vegna fjögurra ára afmælis hennar.
„Við erum mjög sáttir með hvernig
til tókst,“ sagði Skúli Árnason, for-
maður, í samtali við Morgunblaðið.
„Á þriðja hundrað manns skrifuðu í
gestabókina og voru margir undr-
andi yfir því hversu fjölbreytt starf-
semi okkar er.“
Um 60 félagar eru virkir í starfi
sveitarinnar en á útkallslista eru um
80 manns. Þá komu 30 nýliðar til liðs
við sveitina nú í haust og sagði Skúli
þetta langstærsta hóp nýliða sem
komið hefði inn í einu. Súlur, björg-
unarsveitin á Akureyri varð til við
sameiningu þriggja björgunarsveita
í bænum í lok október 1999. Í kjöl-
farið hófst leit að hentugu húsnæði
fyrir starfsemina og haustið 2001
keypti sveitin hús á Hjalteyrargötu
12, m.a. með dyggum stuðningi
KEA og slysavarnadeildar kvenna.
Frá þeim tíma hefur verið unnið að
breytingum og lagfæringum á hús-
næðinu og er þeim nú lokið.
Skúli sagði að starfið hefði gengið
vel eftir sameiningu, „við áttum von
á því að einhverjir félagsmenn
myndu nota tækifærið og draga sig
út úr starfinu en það hefur verið lít-
ið um það og þessir gömlu eru bara
með áfram.“
Björgunarsveitin er mjög vel búin
tækjum og búnaði, hún er í nýju og
stóru húsnæði og með vel þjálfaða
félagsmenn innan sinna raða. Rekst-
urinn er mjög kostnaðarsamur en
helsta fjáröflun sveitarinnar hefur
verið árleg flugeldasala. Skúli sagði
að menn væru þegar farnir að huga
að flugeldasölunni og hann vonast
til að bæjarbúar styðji við bakið á
sveitinni með því kaupa flugeldana
hjá henni.
Morgunblaðið/Kristján
Áhugi: Fjöldi fólks kom á opið hús björgunarsveitarinnar, skoðaði húsnæði,
tæki og búnað og fékk upplýsingar um fjölbreytta starfsemi sveitarinnar.
Þótti afar spennandi: Yngri kynslóðin fékk að reyna klifurvegginn í hús-
næði Súlna og hér er Númi Kárason kominn upp undir loft.
Fjölbreytt starf-
semi vakti athygli
Klínísk sálfræði | Rúnar Helgi
Andrason sálfræðingur flytur fyrir-
lestur um starfsvettvang klínískrar
sálfræði á Félagsvísindatorgi í dag,
miðvikudag, 5. nóvember kl. 16.30 í
Þingvallastræti 23, stofu 14.
Í erindi fjallar hann um starfsvett-
vang og menntunarmál sálfræðinga
á Íslandi og möguleika þeirra á
vinnu á ýmsum sviðum þjóðfélags-
ins. „Sálfræði sem atvinnugrein hef-
ur verið að ryðja sér til rúms á Ís-
landi síðastliðinn áratug og hefur
viðhorf fólks til stéttarinnar breyst
samhliða því. Nú þykir ekki lengur
feimnismál að leita sér hjálpar held-
ur þykir það bera vott um þroska að
fólk viðurkenni vandann og snúi sér
til fagmanns. Því má spyrja hvort
áherslur klínískrar sálfræði séu að
færast frá geðrænum veikindum yfir
á geðrækt og góða líðan,“ segir í
frétt um fyrirlesturinn.
Kanadísk í Deiglunni | Martha
Brooks kynnir verk sín og les upp í
Deiglunni í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 5. nóvember, kl. 20.30.
Marta er margverðlaunaður rit-
höfundur og djasssöngkona, Kan-
adamaður af íslenskum ættum.
Hún hefur m.a. hlotið kanadísku
Governor General’s-verðlaunin árið
2002 fyrir bók sína True Confessions
of a Heartless Girl, sem hún mun
lesa upp úr á kynningunni.
Aðgangur er ókeypis.
ÖLL börn í grunnskólum Akureyrar, 2.553 börn
alls, hafa fengið afhent endurskinsmerki að gjöf, en
um er að ræða samstarfsverkefni Lögreglunnar á
Akureyri og Nýju kaffibrennslunnar sem efndu til
endurskinsmerkjadags í gær af þessu tilefni með
yfirskriftinni: Allir munu sjást.
Þetta er þriðja árið í röð sem öll grunnskólabörn
á Akureyri fá endurskinsmerki að gjöf, en lög-
reglan hefur leitað samstarfs við félög eða fyrirtæki
til að standa straum af kostnaði. Þorsteinn Péturs-
son, fræðslu- og forvarnarfulltrúi Lögreglunnar á
Akureyri, sagði að vel gengi að fá fyrirtæki til þessa
samstarfs, „það er bara nokkuð eftirsótt að komast
í þetta verkefni með okkur“, sagði hann.
Akureyri er að sögn Þorsteins eina bæjarfélagið
þar sem þessi háttur er hafður á, „þetta er einstakt
á landsvísu,“ sagði hann. „Ég myndi vilja að þessi
siður yrði tekinn upp alls staðar á landinu og við
gætum haft íslenskan endurskinsmerkjadag til að
vekja athygli á þýðingu þess að allir beri slík merki
í skammdeginu.“
Um er að ræða smellumerki sem auðvelt er að
festa á skólatösku eða yfirhafnir og sagði Þorsteinn
að hann sæi eldri endurskinsmerki enn á töskum og
úlpum í heimsóknum sínum í grunnskóla bæjarins.
„Það er greinilegt að hinir ungu vegfarendur
nota þessi merki og það er gleðilegt, það eykur ör-
yggið í umferðinni.“
Morgunblaðið/Kristján
Allir eiga að sjást! Helgi Örlygsson hjá Nýju
kaffibrennslunni smellir endurskinsmerki í Þor-
stein Pétursson. Öll grunnskólabörn á Akureyri
fá svona merki afhent.
Einstakt á
landsvísu!
Frjálshyggja | Á frjálshyggja er-
indi við Norðlendinga? Þetta er yfir-
skrift opins fundar Frjálshyggju-
félagsins sem haldinn verður á Hótel
KEA fimmtudagskvöldið 6. nóv-
ember kl. 20.
Haukur Örn Birgisson, formaður
félagsins, og Gunnlaugur Jónsson,
stjórnarmaður, flytja ávörp og ræða
hvers vegna hún er að þeirra mati
hin rétta stefna fyrir Íslendinga,
hvar sem þeir búa á landinu.
Skák | Skákþing Norðlendinga mun
standa yfir dagana 7. til 9. nóvember.
Tefldar verða 7 umferðir og hefst sú
fyrsta á föstudagskvöld, 7. nóvember
kl. 20. Það kvöld verða tefldar fjórar
umferðir, en skákþinginu síðan fram
haldið á laugardag og sunnudag.
Veitt verða peningaverðlaun fyrir
þrjú efstu sætin og miðast upphæðin
við þátttöku, en 60% þátttökugjalds
renna í sérstakan verðlaunasjóð.
Hraðskákmót Norðlendinga hefst
svo í framhaldi af skákþinginu, eða
kl. 14 sunnudaginn 14. nóvember.
Teflt verðu í Skákstofunni í Íþrótta-
höllinni.