Morgunblaðið - 05.11.2003, Qupperneq 38
DAGBÓK
38 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss kemur í dag.
Sunna og Brúarfoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, opin
miðvikud. kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10.30–
11.30 heilsugæsla, kl.
13–16.30 smíðar og
handavinna, kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 10
leikfimi, kl. 14.30 bank-
inn, kl. 14.40 ferð í
Bónus, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn
þegar veður leyfir.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinna, kl. 10–13
verslunin, kl. 13.30
bankinn, kl. 11–11.30
leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 postu-
lín, kl. 13 trémálun.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur, kl. 10–
12 verslunin, kl. 10
guðsþjónusta, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9 vinnu-
hópur gler, kl. 9.30,
10.20 og 11.15 leikfimi,
kl. 13. handa-
vinnuhornið, kl. 13.30
trésmíði, kl. 13 brids-
námskeið í Garðabergi,
kl. 16 stafganga í
Kirkjuhvoli hjá FAG.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
opin frá kl. 10–11.30,
viðtalstími í Gjábakka
kl 15–16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Tréútskurður kl. 9,
myndment kl. 10–16,
línudans kl. 11, glerlist
kl 13, pílukast og bilj-
ard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10.30 gamlir leikir og
dansar, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17. bobb.
Kl. 15.15 söngur.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia, línudans kl. 17.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, banki, kl. 13
brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
10.30–11.30 ganga, kl.
14.30 spænska, byrj-
endur, kl. 15–18 mynd-
list.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun keila í
Mjódd. Kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl.
13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjall-
að, kl. 13–16 tréskurð-
ur.
Vitatorg. Kl 8.45
smiðja, kl. 10 búta-
saumur, bókband og
föndur kl. 13. kóræfing
og verslunarferð kl.
12.30.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20. Lagt af stað frá
horni Hafnarhúsins,
norðanmegin.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Félagsvist kl. 20.30 í
Kiwanishúsinu, Mos-
fellsbæ.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl.
19.30 félagsvist.
ITC Fífa, fundur í
kvöld kl. 20.15 í Safn-
aðarheimili Hjalla-
kirkju, Álfaheiði 17.
Allir velkomnir.
www.simnet.is/itc/fifa
itcfifa@isl.is.
ITC deildin Korpa
kynningarfundur í
Safnaðarheimili Lága-
fellssóknar, Þverholti
3, Mosfellsbæ, kl. 20.
Gestir velkomnir.
www.simnet.is/itc.
Sjögrens-hópurinn
hittist á Kaffi Mílanó í
Faxafeni í kvöld kl. 20.
Kvenfélagið Hrönn,
jólapakkafundur fimm-
tud. 6. nóv. kl. 20 að
Borgartúni 22.
Kvenfélag Grens-
ássóknar köku- og
munabasar í safn-
aðarheimilinu laugard.
8. nóv. frá kl. 14–17.
Tekið á móti kökum
frá kl. 17–19 föstudag,
frá kl. 10 á laugardag.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Félagsfundur
fimmtud. 6. nóv. Gestir
fundarins Karl Krist-
ensen kirkjuvörður og
Magnea Sverrisdóttir
djákni.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
fundur fimmtud. 6.
nóv. kl. 20 í safn-
aðarheimilinu, Lauf-
ásvegi 13. Kynning á
skartgripum og tösk-
um.
Í dag er miðvikudagur 5. nóv-
ember, 309. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Takið því hver ann-
an að yður, eins og Kristur tók yð-
ur að sér, Guði til dýrðar.
(Rm … 15, 7.)
Frá mínum bæjardyrumséð hafa stjórnvöld
verið að virkja kraft hins
frjálsa markaðar og
frjálsrar samkeppni. Þau
öfl eru nú að verki. Þau
vinna að auknum hag-
vexti í landinu með því
að ná betri arðsemi út úr
eignum og fyrirtækjum.
Þetta er það verkefni
sem ég og mínir sam-
herjar vinnum nú að,“
sagði Björgólfur Guð-
mundsson, formaður
bankaráðs Landsbank-
ans, á landsfundi Sam-
fylkingarinnar á sunnu-
daginn. Taldi hann að
breytt rekstrarumhverfi
fyrirtækja og alþjóða-
samningar hafi stuðlað
að umbreytingum í við-
skiptalífi þjóðarinnar. Til
þeirra hafi verið sáð all-
an síðasta áratug. Breytt
lífssýn væri ávallt und-
anfari framfara.
Undanfarið hafa fjár-festingarfélög Björg-
ólfs og félaga, Samson,
verið til umfjöllunar
vegna umsvifa í íslensku
viðskiptalífi. Hafa þeir
félagar jafnvel verið
gagnrýndir fyrir að beita
Landsbankanum til að
fjárfesta samhliða fjár-
festingarfélagi sínu.
Björgólfur sagði erfitt að
starfa í íslensku við-
skiptaumhverfi vegna ná-
vígisins og umfjöllunar
fjölmiðla. En hann virtist
hvergi banginn enda
sagði hann að hin frjálsa
samkeppni væri að verki
og þeir félagarnir hefðu
það hlutverk að fram-
kalla nauðsynlegar um-
breytingar. Það væri
gert til að skýra eign-
arhald fyrirtækja og
skerpa á markmiðum
rekstrarins. Markaðurinn
væri kvikur og ekki ætti
að horfa á eitt einangrað
tilvik og dæma eftir því,
sagði Björgólfur.
Þetta er athyglisvertsjónarmið hjá manni
sem er fyrirferðarmikill í
íslensku atvinnulífi. Hann
sagðist líka vona að sá
dagur kæmi að erlendir
aðilar sæju sér hag í því
að fjárfesta hér á landi
og veita íslenskum fyr-
irtækjum nauðsynlegt
aðhald. „Vel má vera að
þegar erlend fyrirtæki
verða komin inn á ís-
lenskan samkeppn-
ismarkað, að almenn um-
fjöllun og umræða um
íslensk fyrirtæki yrði í
eðlilegu samræmi við
raunverulegt starfsum-
hverfi þeirra.“
Hægt er að velta fyrirsér hverju það myndi
breyta ef erlend fyr-
irtæki kæmu hingað í
auknum mæli. Kannski
myndu margir skilja bet-
ur á hvaða forsendum ís-
lenskir athafnamenn
tækju ákvarðanir sínar.
Þótt þeir starfi hér á
landi eru íslensk fyr-
irtæki í mörgum tilvikum
í alþjóðlegri samkeppni.
Röksemdir íslenskra at-
hafnamanna um að
dæma beri þá á þeim for-
sendum fengju aukið
vægi ef þeir hefðu er-
lenda samkeppni á innan-
landsmarkaði.
STAKSTEINAR
Öfl hins frjálsa mark-
aðar eru að verki
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er orðin hefð fyrir því hjáVíkverja sl. ár að gefa öndunum
á laugardags- eða sunnudags-
morgnum. Á sumrin eru fuglarnir
ekkert að flýta sér þegar Víkverji,
maki og lítil dóttir hans koma
þrammandi með brauð í poka en nú
þegar tekið er að kólna er fjaðrafok
þegar glittir í fólk nálægt tjörninni.
Endurnar, svanirnir, gæsirnar og
aðrir fuglar eru svo aðframkomnir af
hungri árla morguns að það er barist
um hvern brauðbita sem hent er til
þeirra. Margir fuglar eru orðnir svo
aðgangsharðir að þeir veigra sér
ekki við að koma upp á gangstétt og
reyna að hrifsa brauðið úr höndum
stúlkunnar sem er tveggja ára.
Dóttirin er orðin svo skelfd að hún
heldur sig milli foreldra sinna og
hefurvara á sér gagnvart fuglunum,
sem halda sig á bakkanum, svo þeir
nái ekki til hennar.
Björnsbakarí, vestur í bæ, hefur
ætíð tekið Víkverja vel þegar hann
hefur birst klukkan 9 á morgnana og
beðið um andabrauð og fengið fullan
poka án þess að þurfa að borga
krónu fyrir.
Nýir eigendur eru nú komnir að
bakaríinu og Víkverji vonar innilega
að þeir haldi þessum sið áfram.
Hann hefur nefnilega heimsótt
önnur bakarí í þessum tilgangi og
ætíð fengið synjun og verið boðið að
kaupa ódýrasta brauðið sem þeir eru
með á boðstólum í staðinn.
Ekki veit Víkverji hvort borgaryf-
irvöld gefa fuglunum að borða en
það fer ekkert á milli mála að fugl-
arnir eru glorsoltnir á veturna þegar
hann heimsækir þá. Hann hvetur
eigendur bakaría og stórmarkaða til
að gefa þeim brauð sem koma og
biðja um eithvað í gogginn fyrir
fuglana.
UM síðustu helgi þegar dóttirinvar að gefa fuglunum kom aðvíf-
andi hópur erlendra ferðamanna.
Þeir tóku myndir í gríð og erg og
síðan fannst einum tilvalið að fá
mynd af sér með dóttur Víkverja.
Kona ein úr hópnum greip í stúlkuna
og benti henni á myndavélina. Dótt-
irin varð dauðskelkuð og reyndi að
losa sig. Víkverji verður að segja
eins og er að honum var misboðið og
fannst að fólkið hefði getað beðið um
leyfi áður en konan greip í telpuna
og lét taka af þeim mynd saman.
x x x
VINUR Víkverja fékk að geymahluti í geymslu um daginn og
komst þá að því að þar hafði fólk
einnig fengið að geyma hund. Hann
var þar lokaður í stóru búri með
matarskál og vatn.
Vininum var tjáð að eigandinn
væri í útlöndum og að einhver kæmi
reglulega og gæfi hundinum á með-
an hann væri í geymslu. Þetta var
dimm geymsla og óaðlaðandi. Vin-
urinn var miður sín og lét húsvörð í
byggingunni vita að aðbúnaðurinn
væri ekki forsvaranlegur. Daginn
eftir var sem betur fer búið að taka
hundinn úr prísundinni.
Morgunblaðið/Golli
Á morgnana þegar Víkverji gefur
fuglunum eru þeir glorsoltnir.
Bíó
ÞEGAR verslunin Geysir
gufaði upp, fyrir nokkrum
árum, voru húseignir fyr-
irtækisins við Aðalstræti
keyptar af borginni, gerðar
upp og voru kallaðar Hitt
húsið. Nú er Hitt húsið
komið í annað hús, í gömlu
Lögreglustöðina og húsin
við Aðalstræti gerð upp
aftur og breytt mikið. Allt
á sama áratugnum, undir
tveim borgarstjórnum.
Hvers vegna er borgin að
vasast í svona? Í árdaga
ungs lýðveldis réðust
nokkrir framsýnir borgar-
ar í það að reisa kvik-
myndahús við Snorra-
braut. Nú stefnir í að þetta
hús verði rifið. Íslenska
óperan er í húsnæðishall-
æri. Komið hefir fram að
undir sama þaki þrífist illa
sviðsleikarar og óperufólk,
flutningur óperunnar í
Borgarleikhúsið myndi
bara auka vandræðin þar.
Til að breyta Austurbæj-
arbíói í Óperuhús þarf að
útbúa búningsherbergi,
geymslur fyrir leikmuni og
búninga, þetta er hægt að
byggja aftan við húsið. Erf-
iðleikar seinasta bíósins
voru m.a. þeir að lítið var
um bílastæði, þriggja hæða
bílahús, með fyrstu hæð
niðurgrafinni er hægt að
setja í garðinn þarna fyrir
aftan og hafa garð á þaki
bílahússins. Hver á svo að
gera þetta? Það gæti t.d.
verið núverandi rekstrar-
aðili hússins, Óttar Felix
Hauksson, í félagi við fjár-
festa sem hefðu hag af
þessu. Milli óperusýninga
yrði húsið leigt út fyrir
aðra starfsemi. Norður-
mýrin er fyrsta hverfið í
Reykjavík sem skipulagt
var af mönnum sem til
slíkra starfa höfðu lært,
það er því spurning hvort
þetta hverfi sé ekki sjálf-
stætt hugverk og njóti
verndar sem slíkt.
Hver á svo að gæta
hagsmuna þessara látnu
skipulagsfrömuða, það er
auðvitað þeirra stéttar-
félag, Arkitektafélagið.
Gestur Gunnarsson
tæknifræðingur.
Annað kom á daginn
MÉR var boðið DV ókeyp-
is í 1 mánuð í október og sú
sem hringdi í mig sagði að
ég væri ekki skuldbundin
ef ég tæki þessu tilboði, ég
mætti segja blaðinu upp
eftir þennan tíma. En ann-
að kom á daginn því þegar
ég svo ætlaði að segja
blaðinu upp í dag, mánu-
daginn 3. nóvember, var
mér sagt að ég yrði að
borga blaðið út nóvember
vegna þess að það var á til-
boði.
Elísabet Aradóttir,
Hringbraut 39 R.
Ráð við músagangi
FYRIR stuttu sá ég pistil í
Velvakanda frá konu sem
var að leita ráða við músa-
gangi í sumarbústað. Hef
ekki lent í þessu sjálfur en
það sagði mér blómasölu-
kona að til væri laukur sem
héti músafæla eða músa-
fælulaukur. Hafði hann
fengist í Garðheimum en er
uppseldur eins og er en
fæst nú í Blómavali. Þessi
laukur er víst skorinn niður
í búta og settur þar sem
mýs sækja inn í bústaði.
H.H.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
GYLLT kvenúr týndist
föstudaginn 31. okt. á leið-
inni frá Ásvallagötu um
Blómvallagötu, Hringbraut
og Hofsvallagötu. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 552 1601.
Gleraugu týndust
GLERAUGU í svartri um-
gjörð týndust sl. fimmtu-
dag 30. okt. í námunda við
leikskólann Laufásborg
eða í nágrenni, Nönnugötu
og nágr. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 662-
3313.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
LÁRÉTT
1 storkin mjólkurfita, 4
glöð, 7 vondum, 8 land-
ræk, 9 veggur, 11 mjög,
13 smágrein, 14 styrkir,
15 hirsla, 17 draug, 20
beina að, 22 lítil tunna, 23
bor, 24 hafna, 25 ákveð.
LÓÐRÉTT
1 sýkja, 2 lítill bátur, 3
sterk, 4 konur, 5 flennan,
6 pinni, 10 kostnaður, 12
rándýr, 13 óhljóð, 15
álút, 16 auðveldi, 18 líf-
færi, 19 á sand af pen-
ingum, 20 kraftur, 21
svara.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 útrennsli, 8 rukki, 9 geisa, 10 sól, 11 trant, 13
alinn, 15 felga, 18 smell, 21 nót, 22 fitug, 23 argur, 24
blindfull.
Lóðrétt: 2 tukta, 3 efist, 4 negla, 5 leiði, 6 þrot, 7 baun,
12 nóg, 14 lim, 15 fífa, 16 lítil, 17 angan, 18 starf, 19 eng-
il, 20 læra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16